Smá lagfæring!

17. febrúar 2009

Ég var aðeins að lagfæra bloggið mitt, sömu litir, en bara aðeins meira kúl :)

Gleðilegt ár!

4. janúar 2009

Gleðilegt ár og takk fyrir það gamla! :) Ég veit að ég er mjög léleg við að blogga og það er ekki vegna þess að ég hef ekki tíma í það eða nenni því ekki, heldur er það útaf því að ég man svo sjaldan eftir því. Og af því ég man svo sjaldan eftir því þá hef ég verið að spá í hvort ég ætti að hætta með bloggið mitt eða ekki.

Hvað finnst ykkur? Ætti ég að hætta að blogga eða ekki? Hvað vilji þið? Langar ykkur til þess að halda áfram að lesa bloggið mitt?

Kveðja, Prinsessa :)

Ég er á lífi!

7. ágúst 2008

Loksins eftir rúmlega 7 mánuði kemur blogg frá mér til þess að láta ykkur vita að ég er á lífi :D Ég er búin að hafa það allt of gott í sumar og er margt búið að gerast hjá mér :D Það sem er búið að gerast er t.d. það að ég er búin að fá DRAUMASTARFIÐ MITT :D ,ég fékk vinnu á leikskóla og ég gjörsamlega ELSKA vinnuna mína :D Krakkarnir eru svo skemmtilegir og forvitinir og það er BARA yndislegt að vera með þeim og starfsfólkið sem er að vinna með mér er æðislegt :D Ég var í aðlögun í smá tíma áður en ég fór í sumarfrí :D Svo erum við hér heima búin að fá gasgrill og af því það er búið að vera svo gott veður í sumar að þá hefur verið grillað í hvert skipti sem gott veður kemur, þannig að ég er búin að borða yfir mig af grillmat og aðhaldið mitt hefur þess vegna ekki gengið vel en ég tek þá bara betur á því í vetur :) Svo er ég búin að vera í mánaðarfríi frá sjúkraþjálfun en byrja aftur á morgun og ég er ekkert smá fegin, bæði vegna þess að ég sakna sjúkraþjálfara míns alveg rosalega mikið og líka vegna þess að þá get ég loksins farið að taka á því almennilega og farið að hreyfa mig af viti :D Nú, svo er skólinn minn að fara byrja aftur og mun ég vera vinna á leikskólanum með honum :)

Blogga meira seinna og fljótlega

Kv, Prinsessan ;)

KÆRASTI ÓSKAST!!

25. janúar 2008

Af því ég er orðin svo HUNDLEIÐ á því að vera á lausu, þá auglýsi ég hér með eftir kærasta :D Hann má vera á aldrinum 29-35, hörundslitur skiptir EKKI máli, má vera frá öðru landi en samt búa á Íslandi, verður að kunna að elda, vera reyklaus, drekka sjaldan, vera með góðann húmor og fyndinn, vera sterkur til að hjálpa mér upp tröppur og fleira af því ég er í hjólastól (ég tek það fram fyrir þá sem vita ekki að ég er í hjólastól ;) ),helst að leigja eða eiga íbúð eða hús með beinum inngangi, hann má eiga barn eða börn (hann má samt ALLS EKKI vera giftur),það væri æðislegt ef hann ætti hund(ég elska hunda :) ), verður að eiga bíl en ALLS EKKI jeppa, verður að vera kelinn (eins og ég :D ), verður að vera þolinmóður, má ekki vera nískur, eigingjarn, frekur, uppáþrengjandi eða þröngsýnn, svo væri æðislegt ef hann væri með eitthvað af sömu áhugamálum og ég en mér finnst það samt mikilvægt að við séum samt ekki alveg með sömu áhugamálin svo að við séum ekki alltaf saman og gerum eitthvað í sitthvoru lagi :) Hann má ALLS EKKI vera ofbeldishneigður eða framhjáhaldari en mest af öllu verður hann að elska mig eins og ég er :D

Þeir sem hafa áhuga geta skrifað svarið sitt í ummæli hér fyrir neðan og þeir/þau sem vilja skrifa skoðun sína á þessu bloggi getið líka gert það í ummæli :D

Bæ í bili, Los ;)

Gleðileg jól!!

24. desember 2007

Jólaprinsessan óskar ykkur öllum gleðilegra jóla og vona að þið hafið það sem best um jólin :D

Og það er tvennt sem þið verðið að hafa í huga, borða vel um jólin og gangið hægt um gleðinar dyr :D

Með jólakveðju, Jólaprinsessan :D

Gjörsamlega brjálað að gera!

14. nóvember 2007

Það eru ekki nema 2 vikur eftir af skólanum og þá er ég komin í jólafrí, þess vegna er svo gjörsamlega brjálað að gera hjá mér við að skila stórum og erfiðum verkefnum og próflestur að ég er að drukkna :( Þess vegna þarf ég að eyða öllum mínum frítíma til þess að vera á bókasafninu í skólanum til að klára stóru verkefnin, til þess að geta skilað þeim á réttum tíma og svo þegar ég kem heim þá undirbý ég mig undir prófin. Þannig að ég hef tekið þá ákvörðun, af því að það er svona brjálað að gera hjá mér, að ég ætla ekki að blogga aftur fyrr en ég er búin í skólanum og ég vona að þið skiljið það. En um leið og ég er komin í jólafrí 27.nóv þá mun ég blogga aftur, ég lofa ykkur því :D ;)

Until next time, see ya ;) :)

LOS

Bingóóheppni

8. nóvember 2007

Í gærkvöldi fór ég í bingó með vinkonum mínum og ég var ekkert smá spennt, enda hafði ég ekki farið í bingó síðan 1700 og súrkál. En allavega þegar það var verið að spila 4. eða 5.umferð(ég man ekki hvort það var) þá var vinningurinn 50.000 og vitiði hvað? Það munaði EINNI tölu að ég hefði unnið þessi 50.000! Arrrgh, hvað ég var pirruð yfir því. Heyriði, svo í næstu umferð þar á eftir þá vann vinkona mín sem sat við hliðina á mér 25.000! Þá varð ég ennþá pirraðri og reiðari að vinkona mín gat ekkert sagt við mig af því ég hunsaði hana útaf því að ég var svo pirruð og reið yfir því að hún hafi unnið en ekki ég en ég er samt ekki reið útí hana sjálfa, heldur bara yfir því að hún hafi unnið vinning en ekki ég.

Ég er svo rosalega mikil keppnismanneskja og ég verð svo fúl þegar það munar svona litlu eins og gerðist í gærkvöldi, að það er rosalegt og þess vegna gat ég ekki samgleðst með vinkonu minni sem sat við hliðina á mér yfir því að hún hafi unnið 25.000. En ég er búin að jafna mig á þessu í dag en vildi bara deila með ykkur þessari bingóóheppni minni

Until next time, see ya ;)

LOS

Mér finnst þetta nú einum of mikið

3. nóvember 2007

Nóvember mánuður er bara nýbyrjaður og maður sér ekkert nema jólanammi, jólakonfekt, jólasmákökur, jólagos og jólaauglýsingar um það að jólin séu komin í þessari eða hinni búðinni. Svo loksins þegar Aðfangadagur jóla kemur þá er maður búin að fá sig fullsadda/nn af öllu sem tengist jólunum! Sko, þið skuluð alls ekki misskilja mig, ég er rosalega mikið jólabarn og elska jólin en mér finnst bara sumt fólk og búðir líka byrja of snemma með að skreyta hjá sér og mér finnst líka of snemmt að koma með jólavörur, jólasælgæti, jólasmákökur og jólagos í búðirnar í byrjun Nóvember.

Mín skoðun er sú að það á ekki að koma með jólavörur og jólaskraut fyrr en 1.des, því þá er byrjað að spila jólalög og þá fyrst kemst maður í jólafílinginn við að heyra þau öll.

En hvað finnst ykkur? Eru þið sammála mér eða finnst ykkur allt þetta jólaumstang ekkert koma of snemma?

Kveðja, LOS

Velkomin/nn á bloggsíðuna mína!

3. nóvember 2007

Ég gat ekki sofnað og ákvað þess vegna að stofna nýja bloggsíðu. Ég ætla ekki að hafa þetta fyrsta blogg mitt langt og blogga frekar betur á morgun.

Kær kveðja, LOS


Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Vefmiðlar
Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning