
Kolur sem er fyrsti pomeranian hundurinn sem ég eignaðist er orðinn 10 ára. Hann er fæddur 20.10 2001 Hann ber aldurinn vel og er mjög hraustur hundur og fallegur. Ég á fallega tík sem heitir Skelja Ramóna sem er dóttir hans og Sabínu. Hún er móðir Skelja Hannibal.

Kolur og dóttir hans Ramóna.
Þetta er hundaræktun. Þá er hundaræktandi að búa til sinn eigin stofn með framræktun.

Skelja Hannibal

Skeljaræktun hefur blómstrað eftir að ég flutti onn Tabozi Wings of Phoenix. Undan honum hafa komið margir verðlauna hundar og hann hefur gefið góða og heilbrigða hunda. Nú ætla ég að setja tvær tíkur undir Phienix og það verður spennandi.


Þú ert aldrei einn, hvorki í gleði eða sorg, ef þú átt lítinn Coton de Tuléar. Casmier farina og Casmier Bellis eru innfluttar frá Danmörku og rekja báðar ættir sínar til Jespesen ræktunarinnar(http://www.pet.no/jespersen/) sem er talin sú besta í heimi.
Ég er alveg komin á kaf í að sulta.

Fuglager í garðinum mínum.
Halla fóðrið er mjög gott fóður og fer reglulega vel í bæði pommana og ekki síður í Coton de Tuléar. Hundarnir eru æstir í það og það fer mjög vel í þá.

Farina er hálóða núna en ekki verður sett á hana því hún átti hvolp fyrir rúmlega 6 mánuðum og því verður sett á hana ú sumar. Vonandi á hún þá fleiri hvolpa því Skelja Kasper er sérlega vel heppnaður hvolpur.


Nú er ég að prófa mig áfram með nýtt fóður sem heitir Halle Foder Það fæst hjá Bender í Hlíðarsmára. Ég ætla að halda utan um þessa tilraun mína.

Medium 26-20 er hveitifrítt heilfóður sem uppfyllir daglega næringarþörf hundsins. Hentar hundum á öllum aldri og af öllum tegundum. Fóðrið er samsett úr hágæða hráefnum, er bragðgott og auðmeltanlegt. Medium 26-20 er fóður sem hægt er að notast við á fjölbreyttan hátt, passar við margar aðstæður s.s feldvandamál, óþol, vandamál með holdafar og fl. Inniheldur ávaxtasykur sem auðveldar frásog næringarefna í meltingarvegi. Hentar einnig hvolpum og mjólkandi tíkum. Engin gervibragðefni, litarefni eða rotvarnarefni eru í fóðrinu.
15 kg kr. 8.500
2.5 kg kr. 1.490 kr

Ég var upp í sumarbústað með litlu hundana mína og naut þess að vera í kyrrðinni og sælunni í sveitinni. Borðaði góðan mat. Var mikið úti við og naut lífsins. Þetta er sko lífið.

Ég er að spá í að skipta yfir í þetta blogg því hitt bloggið er svo stirt og snúið.