mar
31
Góð æfing fyrir næstu kosningar og beðið eftir RUV!
31. mars 2007 | 7 ummæli
Ég get rétt reiknað með að félagarnir á ruv.is og visir.is hafi í kvöld fengið nasaþefinn af því sem búast má við þegar fólk vill fylgjast grannt með á öðrum miðlum en gamaldags línulegu sjónvarpi. Heima hjá mér duttu báðir netþjónar út á tímabili vegna álags. Það er svosem ekkert til að fara í flækju [...]
mar
31
ruv.is vinnur mörg prik
31. mars 2007 | 3 ummæli
Loksins, loksins er ruv.is með á nótunum. Frábær útsending hjá þeim á netinu með viðamiklum upplýsingum, gömlum og nýjum um álver í Straumsvík. Nostalgía í bland við viðhorf Hafnfirðinga akkúrat núna. Rennur klárlega vel ofaní netverja.
Stöð 2 byrjaði vel í kvöldfréttum, en týndist svo á netinu þar sem þó var auglýst bein útsending á visir.is. [...]
mar
29
Fagra, nýja veröld, 2010
29. mars 2007 | 5 ummæli
Ykkur til gleði og ánægju er hér samantekt um það sem bíður okkar á næstunni í hinni fögru, nýju tækniveröld. Sérfræðingar við tækniháskólann í Árósum birtu fyrr á árinu lista yfir 10 tæknibreytur, sem við eigum eftir að mæta og jafnvel eignast áður en árið 2010 gengur í garð. Hér í lauslegri þýðingu.
Skjátækni sem 3D, [...]
mar
27
Heilsuspillandi jafnrétti?
27. mars 2007 | Rita ummæli
Bæði karlar og konur eiga við heilbrigðisvandamál að stríða, sem rekja má til jafnréttis á vinnumarkaði. Þessu halda þrír sérfræðingar frá hinu virðulega Karolinska Institut í Stokkhólmi fram.
Samkvæmt sérfræðingunum, Monu Backhans, Michael Lundberg og Anna Maansdotter, leiðir jafnrétti meðal annars til meiri streitu og lélegri matarvenja hjá bæði körlum og konum. Það hefur um síðir [...]
mar
25
Bill Gates loks með skírteini
25. mars 2007 | Rita ummæli
34 árum og ótöldum trilljónum dollara síðar fær heimsins ríkasti eilífðarstúdent loksins háskólaskírteini til að hengja á vegginn.
Bill Gates hóf nám í Harvard háskóla árið 1973. Þá þegar hafði hugmyndin um Microsoft fæðst í kolli hans og Bill gat ekki séð að nám í háskóla lífsins gæti sameinast yfirlegu fræðibókanna. Allir þekkja hvernig sú saga fór.
En [...]
mar
25
Elton John án aðgangseyris og í stúkusæti
25. mars 2007 | Rita ummæli
Elton John á afmæli og heldur tónleika af því tilefni, eins og flestir vita.
Þeim sem ekki er boðið eða komust ekki vegna einhvers annars, geta notið tónleikanna á netinu, algerlega ókeypis og úr stúkusætinu við skjáinn heima. Útsendingin hefst í kvöld laust eftir miðnætti og hægt er að nálgast hana hér:
http://msnpresents.msn.com/EltonJohn/artist.aspx?mkt=da-dk
Og sé maður ekki í [...]
mar
24
205 tommur á vegginn
24. mars 2007 | Rita ummæli
Ítalska fyrirtækið Tecnovision sýndi á Cebit sýningunni um daginn væntanlega stærsta TV flatskjá sem völ er á. Skjárinn, sem er 205 tommur og byggður á LED tækni, er á leiðinni á markað og á hillum Tecnovision standa tilbúnir flatskjáir af stærðinni 150, 175 og svo 205 tommur af merkinu Luxio. Allt HD ready (hvenær sem [...]
mar
24
Innyflin í PS3
24. mars 2007 | Rita ummæli
Undir gljáfægðu yfirborðinu eru ca. 5 kíló af áhugaverðum rafeindainnyflum.
Um það bil 40 skrúfur halda öllu saman. Kannski ekki alveg fyrir hvern sem er að halda stjórn á öllu smávægilegu áður en dýrgripurinn yfirgefur skurðarborðið. En þeir hjá PC World DK tóku sig til og kíktu undir húðina á nýjustu heimilisvélinni.
Hér er vídeóið með þeirra [...]
mar
23
Kaloríurnar kysstar bless
23. mars 2007 | 2 ummæli
Ónauðsynleg þekking er skemmtileg og einstaka sinnum líka gagnleg.
Hvað eyðir maður t.d. mörgum hitaeiningum í einn verulega góðan koss?
Kannski getur góður koss komið í stað púltíma í líkamsræktinni?
Ónauðsynleg þekking er líka nothæf, hægt er að brosa og hláturinn lengir lífið. Svo
er hægt að trompa upp með alls kyns ónauðsynlega fróðleiksmola og lífga upp á
dauflega fermingarveislu. [...]
mar
22
Léleg útgáfa af PS3?
22. mars 2007 | 21 ummæli
Sony hefur sparað kramið í evrópsku útgáfunni af PS3 og ekki er hægt að spila öll PS2 spil á nýju græjuna. Evrópska útgáfan er samkvæmt danska blaðinu Politiken mun lélegri en sú Playstation, sem hefur verið til sölu í Japan og Bandaríkjunum í nokkra mánuði.
Ástæðan er sögð sú að Sony tapar á framleiðslu hverrar einustu [...]
