ágú
31
Áfram gakk og allt á þurru!
31. ágúst 2008 | 1 ummæli
Þegar horft er til baka á tæknibyltingar undangenginna áratuga er ein bylting, sem gleymist alveg ótrúlega oft.
Einhver stærsta bylting tækninnar var að koma landanum af sauðsskinnskónum og á gúmmískó. Áhrif þess að sleppa við vosbúðina, kuldann og vætu fótanna er áreiðanlega ekki það sem toppar listann yfir stóru breytingarnar, en mér hefur einhvernvegin alltaf þótt [...]
ágú
29
Hver bjargar gullfiskinum?
29. ágúst 2008 | 1 ummæli
Kannski finnst einhverjum hugmyndin algerlega frábær? En af hverju setja framleiðendur í Qingdao í Kína, litla gullfiska í poka, sem skreyta lyklakippur?
Hrein og klár peningagræðgi, hvað annað. En hversu frábær er þessi hugmynd ef grannt er skoðað? Þeir sem kafað hafa ofaní gullfiskamálið segja að fiskurinn lifi aðeins í nokkrar klukkustundir og að yfirleitt megi [...]
ágú
7
Munaðarlaust glasabarn
7. ágúst 2008 | Rita ummæli
Þrjátíu ár eru liðin síðan fyrsta glasabarn heimsins, Louise Brown, leit dagsins ljós.
Fyrsta munaðarlausa glasabarnið fæddist hins vegar fyrir nokkrum dögum.
Sagan er á þá leið að japönsk hjón réðu sér indverska meðgöngumóður til að ganga með glasabarn þeirra hjóna.
Þau skildu fyrir fæðingu barnsins og allt sigldi í strand í kjölfarið.
Eigandi eggsins, japanska móðirin, átti samkvæmt [...]
ágú
3
Æfingapillan = mjór án megrunar!
3. ágúst 2008 | Rita ummæli
Loksins virðist vera skammt í pilluna, sem kemur í stað hreyfingar en virkar jafn vel og langur túr í fitnessið.
Eða er hægt að biðja um meira en eina litla pillu, sem gerir líkaman sveigjanlegan, sterkan og mjóan?
Á vinnuborði upfinningamannanna heitir hún “æfingapillan” og er rík af efnum sem bera þau þokkafullu nöfn, GW1516 og AICAR.
Efnin telja frumum líkamans [...]
