ágú
24
Vistvæn tækniútilega
24. ágúst 2009 kl. 9.22 |
Allur vandi nútímaferðalangsins er leystur. Orange og Kaleidoscope hafa í sameiningu búið til tjald, sem hleður sig sjálft, hleður allar græjurnar og sér um þráðlausa netið á meðan farið er á útihátíðina eða náttúrunnar notið í tjaldferðalagi.
Tjaldið er framleitt úr nýrri tegund tjalddúks þar sem sólarsellur eru ofnar inn í efnið. Tjaldið getur því hlaðið upp þráðlausan WIFI sendibúnað, séð um allan rafdrifinn nauðsynjabúnað nútímamannsins, þar á meðal farsímann og mússíkspilarann.
En það er ekki eina verkið, sem tjaldið sér um. Það framleiðir einnig nægan straum til að hita upp botninn í tjaldinu þannig að þægindin eru í hámarki. Ef útivistarröltið dregst á langinn er hægt að kalla tjaldið upp með SMS skilaboðum og þá lýsir það leiðina eins og viti.
Með tjaldinu fylgir þráðlaus búnaður, sem sýnir að sjálfsögðu hversu mikil orka er framleidd og notuð og eru allar upplýsingarnar sýndar á LCD snertiskjá. Hleðslukerfi tjaldsins vinnur þannig að búið er til segulsvið og því hægt að hlaða allar græjurnar án þess að taka snúrurnar með.
Hugmyndin að nýja tjaldinu er sótt í margra ára rannsóknir á þörfum og óskum þeirra gesta sem sækja stórar útivistarsamkomur víða um heim og ættu því að geta gagnast landanum á Þjóðhátíð eða í Húsafelli - þegar tjaldið kemur á markað, sem virðist verða innan tíðar.
Stikkorð: Kaleidoscope, Orange, sólarorka, tjald, Umhverfi, umhverfisvernd, útilega, WIFI.

