sep
15
Hvíta húsið í skýin!
15. september 2009 kl. 20.56 |
Cloud services, Software as Services - eða það sem á ylhýra mætti nefna “himnasendingu”.. er meðal þess, sem Google hefur hvað ötulast boðið netverjum, sem vilja framleiða efni á ódýran og aðgengilegan hátt. Google Apps býður upp á ritvinnslu, powerpoint og excel forrit, sem þýðir að ekki þarf að kaupa office-pakka dýrum dómum. Skjölin eru vistuð á vefþjónum í Google-himninum og hægt að nálgast þau hvaðan og hvenær sem er. Aðgangur fyrir fleiri er sjálfsagður hlutur og auðveldar þannig samvinnu og upplýsingamiðlun. Flestallir, sem vit hafa á meta sem svo að Cloud services - eða “himnaþjónustur” sé það sem koma skal. Og nú hefur Hvíta húsið í Guðs eigin landi tekið af skarið og býður öllum opinberum stofnunum uppá opna vefþjónustu með Google sem fyrirmynd - og reyndar líka nokkrum af verkfærum úr gullakistu Google í bland.
Hvíta húsið fór í samskiptaham 21. aldarinnar með nýjum forseta og meðal þess sem er að finna í Apps.gov eru útskýringar og bendlar á samfélagsvefi eins og Facebook, youtube, vimeo, flickr. Þannig að ekki er stefnan á þeim bæ að loka fyrir samfélagsvefina. Einnig er að finna tengingar á vefi, sem auðvelda umsjónarmönnum heimasíðna að deila efni yfir á aðra miðla. Á leiðinni eru stream-lausnir og annað skemmtilegt. Í pakkanum, sem auka á framleiðni er boðið uppá Google Apps fyrirtækjalausnina til sölu á viðráðanlegu verði fyrir hvaða ríkisstofnun sem er. Vöruhús Apps.gof er ansi tilkomumikið hvað varðar “himnasendar” lausnir og eitthvað fyrir alla. Jafnvel íhaldssömustu tæknisérfræðinga embættismannakerfisins.
-
Á bloggi Hvíta hússins kemur fram að Apps.gov sé sett saman að frumkvæði forsetans og með það að markmiði að lækka kostnað stjórnvalda ásamt því að auka framsækni innan stjórnkerfisins.
Fyrir íslenska kerfiskalla, sem vilja fylgjast með er linkurinn:
www.apps.gov
Stikkorð: apps, Cloud, google, Hvita husið, S-a-S, ský.
