feb
27
Takk fyrir mig
27. febrúar 2009 kl. 8.31 | 12 ummæli
Ég þakka þeim tugþúsundum Íslendinga sem sótt hafa þessa bloggsíðu í hverri viku undanfarin misseri. Hér hafa átt sér stað öflug skoðanaskipti sem ég hef haft ánægju og gagn af að taka þátt í.
Nú færi ég mig um set, nýr fjölmiðill www.pressan.is hefur göngu sína á morgun.
Starfsfólki Vísis þakka ég einstaklega ánægjulegt samstarf.
feb
26
Árni Páll, Guðrún Inga og Ársæll í Markaðnum í kvöld
26. febrúar 2009 kl. 16.46 | 16 ummæli
Árni Páll Árnason alþingismaður, Guðrún Inga Ingólfsdóttir hagfræðingur og Ársæll Valfells lektor verða gestir mínir í Markaðnum á Stöð 2 í kvöld kl. 19.10 í opinni dagskrá.
Við ræður þar ný lög um Seðlabankann, sem þá verða væntanlega orðin að veruleika, hugmyndir um niðurfellingu eða afskriftir skulda, peningamálastefnuna nú þegar styttist í að krónunni verði aftur fleytt frjálsri og sitthvað fleira.
feb
26
Cosser boðar forföll
26. febrúar 2009 kl. 12.28 | 4 ummæli
Ástralsk/enski fjárfestirinn Steve Cosser, sem átti að vera gestur minn í Markaðnum á Stöð 2 í kvöld, hefur á síðustu stundu boðað forföll, en hann hafði áður staðfest komu sína.
Cosser, sem bauð í Árvakur hf., útgáfufélag Morgunblaðsins, en fékk ekki, mun hafa fundað með fulltrúum Íslandsbanka í morgun vegna málsins, en bankinn fór með málefni Árvakurs og sá um söluferlið. Að höfðu samráði við lögmenn ætlar hann ekki að tjá sig um niðurstöður bankans, í bili að minnsta kosti.
Hvað það þýðir, veit ég ekki. En þykist þess fullviss að fjárfestirinn sé afar ósáttur með málalok, enda sagði hann í sjónvarpsfréttum í fyrrakvöld að hann væri þess fullviss að tilboð hans í Morgunblaðið væri hagstæðast.
feb
26
Steve Cosser í Markaðnum í kvöld
26. febrúar 2009 kl. 10.32 | 3 ummæli
Ástralski fjárfestirinn Steve Cosser verður aðalgestur minn í Markaðnum á Stöð 2 í kvöld, strax á eftir Íslandi í dag.
Cosser hefur komið eins og stormsveipur inn í íslenskt viðskiptalíf síðustu daga og skemmst er að minnast tilboðs hans í Árvakur hf., útgáfufélag Morgunblaðsins, sem nú er ljóst að var ekki tekið. Verður athyglisvert að heyra sjónarmið hans í þeim efnum, því í viðtölum hafði hann fullyrt að sitt tilboð væri hagstæðast fyrir bankann og erlendir kröfuhafar myndu fylgjast grannt með því hvernig staðið yrði að þeim viðskiptum af hálfu Íslandsbanka, viðskiptabanka Árvakurs hf.
Margir velta fyrir sér hvers vegna ástralskur auðmaður hafi áhuga á fjárfestingum á Íslandi, eins og staðan er nú hér í efnahagsmálum. Fyrir vikið hafa vangaveltur heyrst um hvort aðrir standi á bak við áhuga hans á fjárfestingum, en því harðneitar hann, segist ekki leppur neins og kveðst miklu sterkari fjárhagslega en íslenskir auðmenn og þurfi þvi ekki á þeirra peningum að halda.
Cosser hefur einnig sagt að hann vilji fjárfesta í fleiri greinum en fjölmiðlum hér á landi, t.d. í orkuiðnaði, ferðaþjónustu og fasteignum. Þannig hefur hann lýst yfir áhuga á að kaupa Tónlistar- og ráðstefnuhúsið sem nú er í byggingu og er komið alveg í fangið á ríki og borg eftir hrun íslensku bankanna.
Mörgum mun einnig þykja forvitnilegt að heyra skoðanir Cossers á jöklabréfunum alræmdu og stöðu íslensku krónunnar, en hann hefur augsýnilega kynnt sér aðstæður hér á landi afar vel og segist kominn til langframa, ekki aðeins til að kaupa eignir á spottprís og innleysa stundargróða.
feb
25
Margt til í þessu
25. febrúar 2009 kl. 18.01 | 12 ummæli
Ágæt grein Illuga Gunnarssonar alþingismanns á vef Sjálfstæðisflokksins í dag í tilefni af því að aukin harka er að færast í prófkjör Sjálfstæðisflokksins í borginni.
Illugi segir meðal annars:
Undanfarna daga hefur prófkjörsbaráttan verið að harðna hér í Reykjavík. Málefnaleg gagnrýni og rökræður eru nauðsyn og í slíkri umræðu eigum við öll að vera þátttakendur. En því miður er ekki allt málefnalegt sem sagt er þessa dagana. Ég hef reynt að halda mig frá því að lesa blogg og ýmislegt það sem skrifað er um mig og aðra frambjóðendur á vefnum. Það sem ég hef þó séð er nóg til þess að manni kólnar í sálinni; nafnlaust blogg og athugasemdir sem hafa engan annan tilgang en þann að meiða, særa, skemma og eyðileggja, eru daglegt brauð.
feb
25
Mörg hundruð einkahlutafélög
25. febrúar 2009 kl. 16.03 | 2 ummæli
Fjölmiðlar hafa fjallað ítarlega um málefni einkahlutafélagsins Caramba - hugmyndir og orð ehf. sem við hjónin stofnuðum fyrir einum átta árum meðan ég var blaðamaður á Morgunblaðinu. Sjálfur hef ég gengið enn lengra og ritaði langan pistil hér á þessa síðu um þessi mál undir lok fyrra mánaðar, sjá hér.
Er mér til efs að aðrir í sambærilegri stöðu hafi gengið lengra í umfjöllun um eigin fjármál á opinberum vettvangi.
Talsvert hefur verið líka fjallað um málefni einkahlutafélaga í eigu varaformanns Sjálfstæðisflokksins og eiginmanns hennar, sem var einn af lykilstjórnendum Kaupþings. Þá hafa fasteigna- og verðbréfaviðskipti félags í eigu Lúðvíks Bergvinssonar alþingismanns nokkuð verið til umræðu.
Þetta eru þrjú einkahlutafélög í eigu þjóðþekktra aðila og maka þeirra sem mjög hafa verið til opinberrar umræðu. Ég kvarta ekkert yfir því, samanber fyrri skrif mín.
En í ljósi þess að Davíð Oddsson seðlabankastjóri hefur nú upplýst að hundruðir einkahlutafélaga í eigu þekktra manna úr þjóðlífinu og stjórnmálunum hafi átt í hlutabréfaviðskiptum í bönkunum, er spurning hvort þessi umræða verði nú ekki útvíkkuð ofurlítið og farið yfir þá sem þar um ræðir.
Spurningin er hvort fleiri vilja ekki skýra út sín mál með sambærilegum hætti?
feb
25
Verkin tala
25. febrúar 2009 kl. 10.09 | 16 ummæli
Niðurstaða Gylfa Magnússonar viðskiptaráðherra, um að taka aftur þá ákvörðun Geirs H. Haarde forsætisráðherra og fyrri ríkisstjórnar, að leita réttar Íslendinga fyrir Mannréttindadómstól Evrópu vegna setningar hryðjuverkalaga breskra stjórnvalda, er án efa gleggsta dæmið hingað til um að ný ríkisstjórn muni láta verkin tala.
feb
25
Leiðtoginn
25. febrúar 2009 kl. 0.11 | 38 ummæli
Eitt var alveg hárrétt hjá Davíð Oddssyni í Kastljóssviðtalinu fræga. Þjóðina skortir sárlega leiðtoga sem blása henni kjarki í brjóst og bjóða upp á einhverja framtíðarsýn og lausnir í staðinn fyrir svartnætti og ósanngirni.
Við erum ekki að tala foringjaræði, heldur sterka forystu fyrir þjóðinni á erfiðum tímum.
Það sem skilur hina svonefndu búsáhaldabyltingu frá öðrum slíkum byltingum í sögunni, er meðal annars sú staðreynd að hún skóp engan afgerandi forystumann - leiðtoga. Byltingin hafði ekkert andlit, einhvern byltingarforingja.
Það er ólíkt t.d. appelsínugulu byltingunni í Úkraínu fyrir nokkrum misserum.
feb
24
Dýrt hús og merkilegt minnisblað
24. febrúar 2009 kl. 22.40 | 12 ummæli
Ástralski fjárfestirinn Cosser var kokhraustur í kvöldfréttum sjónvarpsstöðvanna og kvaðst sannfærður um að fá Morgunblaðið, enda væri tilboð hans í Árvakur hagstæðast fyrir bankann. Ástralski huldumaðurinn sagði af og frá að hann væri leppur einhverra íslenskra auðmanna; hann ætti sjálfsagt meira undir sér en þeir samanlagt og aðeins húsið hans í Lundúnum væri þrettán sinnum verðmætara en Mogginn.
Það hlýtur að vera ansi flott hús, hugsaði ég.
Magnað viðtal við Davíð í Kastljósinu. Ég geri ekki lítið úr þeim orðum hans að hann hafi varað við aðvífandi hruni. En ég skil ekki hvers vegna stjórnvöld gerðu ekkert með aðvaranir hans. Minnisblaðið sem Davíð sagði frá hlýtur nú að verða birt í framhaldinu, en hann segir að það sé frá í febrúar og segi beinum orðum frá því að bankarnir fari væntanlega allir á hausinn í október.
Sem þeir og gerðu.
Hann minntist einnig á lekann úr ríkisstjórninni í lok september þegar hann kom á ríkisstjórnarfund sem gestur og sagðist telja komnar aðstæður til að mynda þjóðstjórn, væru þær aðstæður á annað borð einhvern tímann fyrir hendi. Ég skrifaði fræga forsíðufrétt um þetta mál í Fréttablaðið.
Davíð undraðist að tveir ráðherrar hefðu ráðist á sig vegna þjóðstjórnarhugmyndarinnar (Þorgerður Katrín, Össur?), en ekki látið þess getið að hann hefði fyrr á fundinum skýrt ríkisstjórninni frá því mati sínu að bankarnir þrír yrðu væntanlega allir fallnir innan tveggja til þriggja vikna og að margfalda þyrfti framlög til efnahagsbrotadeildar Ríkislögreglustjóra, ekki draga úr þeim.
Hver verða viðbrögð forystumanna ríkisstjórnarinnar við þessu viðtali? Og forystu Sjálfstæðisflokksins? Og hvað gerist í viðskiptanefnd á morgun, verður frumvarpið um Seðlabankann afgreitt þar til þriðju umræðu og afgreitt sem lög frá Alþingi á morgun?
feb
24
Ráðast örlög Morgunblaðsins í dag?
24. febrúar 2009 kl. 10.27 | 8 ummæli
Bankaráð Íslandsbanka kemur til fundar nú fyrir hádegi og þá skilst mér að eigi að afgreiða söluna á Árvakri hf., útgáfufélagi Morgunblaðsins. Seinni partinn í gær lá fyrir hvort tilboð ástralsks fjárfestis eða aðila á vegum Óskars Magnússonar lögmanns væri hærra, en niðurstaðan úr því mati hefur þó ekki verið gefin upp.
Árvakur hefur átt í gríðarlegum rekstrarerfiðleikum eins og mörg önnur fyrirtæki hér á landi, en tapið virðist ekkert hafa verið minna í góðæri síðustu ára en nú í niðursveiflunni. Kemur þar væntanlega einkum til gríðarleg skuldsetning vegna prentsmiðju sem er hlutfallslega allt of stór fyrir íslenskan markað og svo gríðarlegur taprekstur vegna fríblaðsins Blaðsins, sem síðar hét 24 stundir.
Samkvæmt því sem fjölmiðlar hafa skýrt frá, hefur tapið numið um 100-150 milljónum króna á mánuði undanfarin misseri, jafnvel um 5 milljónum króna á dag. Það þýðir væntanlega, að frá því ríkisbankinn Glitnir og síðar Íslandsbanki tóku blaðið yfir og rekstur þess, hefur tap fallið á bankann upp á hálfan milljarð eða svo. Það eru ógnvænlegar tölur.
Að mörgu leyti hefði verið afar jákvætt ef fjárfestahópur með breiða skírskotun og dreifða eignaraðild hefði eignast Morgunblaðið, hópur eins og sá sem Vilhjálmur Bjarnason fór fyrir. En tilboð hans mun hafa verið mun lægra en þeirra tveggja sem nú standa eftir. Mikilvægt er að bankinn leggi að söluferlinu loknu öll spilin á borðið í ljósi þess gagnsæis sem hafði verið boðað, en hefur nokkuð skort á síðustu vikur. Einkum er þetta nauðsynlegt í ljósi þess, að allir tilboðsgjafarnir virðast gera ráð fyrir og ganga út frá því að Íslandsbanki afskrifi eða felli niður stóran hluta áhvílandi skulda, jafnvel tvo til þrjá milljarða. Slíkt yrði vitaskuld fordæmisgefandi í öllum samskiptum nýju ríkisbankanna og viðskiptalífsins og því mjög fylgst með því ferli.
Sem áhugamaður um fjölmiðla og gamall Moggamaður, fylgist maður auðvitað með af áhuga. Ég vil alls ekki að Morgunblaðið hætti að koma út og sendi starfsfólki blaðsins baráttukveðjur á erfiðum tímum. Óvissan hefur verið mikil og langvarandi og eflaust best fyrir alla að henni ljúki, vonandi í dag og framtíðarmyndin skýrist í kjölfarið á því.
Nokkrar athyglisverðar samsæriskenningar hafa vaknað í tengslum við þessi mál, kannski skiljanlega í ljósi þess að Morgunblaðið er áhrifamikill fjölmiðill og getgátur uppi um að áhugi fjárfesta tengist því frekar en hagnaðarvon og arðsemi sem sýnist lítil sem engin. Eðlilegt er að því sé velt upp hvaða ástæðu ástralskur fjárfestir hafi til að koma til Íslands og kaupa blað sem hann getur ekki lesið sjálfur og hefur skilað tapi ár eftir ár? Er hann leppur einhverra fjárfesta? Svo er ekki, segir hann og hlýtur rökstuðningur fyrir því að koma afgerandi fram í tilboðinu.
Margir hafa einnig velt fyrir sér áhuga Óskars Magnússonar lögmanns á blaðaútgáfu. Hverjir standa á bak við hann? Skemmtilegasta samsæriskenningin er sú að Davíð Oddsson, Seðlabankastjóri og fyrrverandi forsætisráðherra, sé kandídat Óskars og félaga í ritstjórastólinn. Ekki veit ég hvort eitthvað er til í því, en ef svo færi, yrði óneitanlega spennandi að fylgjast með leiðaraskrifum hans og kollegans á Fréttablaðinu í kjölfarið.
Mætti þá jafnvel tala um móður allra ritdeilna og skeytasendinga…

Hugleiðingar Björns Inga Hrafnssonar, stjórnanda Markaðarins á Stöð 2 birtast á þessari síðu. Hér er fjallað um áhugaverð tíðindi og skoðanir viðraðar um viðskipti, efnahagsmál og þjóðmál almennt. Frjálst er að vitna til efnis á þessari síðu, enda sé heimilda þá getið. Hefur þú athugasemdir eða góða ábendingu? Skrifaðu mér bréf á netfangið