jan
29
Hvernig björgum við heimilunum í landinu?
29. janúar 2009 kl. 22.54 |
Bráðaaðgerðir til bjargar heimilunum í landinu voru til umræðu í Íslandi í dag í kvöld. Auk mín ræddi Ásta Rut Jónasdóttir, formaður Hagsmunasamtaka heimilanna, mögulegar leiðir til að koma í veg fyrir fjöldagjaldþrot og landflótta þúsunda eða jafnvel tugþúsunda á næstu vikum og mánuðum.
Upptöku af umræðunni er að finna hér.
Ummæli
9 ummæli fram að þessu

Hugleiðingar Björns Inga Hrafnssonar, stjórnanda Markaðarins á Stöð 2 birtast á þessari síðu. Hér er fjallað um áhugaverð tíðindi og skoðanir viðraðar um viðskipti, efnahagsmál og þjóðmál almennt. Frjálst er að vitna til efnis á þessari síðu, enda sé heimilda þá getið. Hefur þú athugasemdir eða góða ábendingu? Skrifaðu mér bréf á netfangið
Af hverju spyrjum við ekki Jóhönnu Sigurðardóttur. Hún átti sæti í síðustu ríkisstjórn og gerði ekki neitt. Hún hlýtur að hafa öll svörin núna.
þú ert greinilega ekki vel upplýstur þórir.þetta er eini ráðherrann sem hefur gért eitthvað fyrir þá sem minnst meiga sýn.þú er sennilega sjálfstæðis maður sem gétur ekki sætt þig við að tapa.Enda ykkar tími liðinn sem betur fer og nýir timar taka við.
Skipta um gjaldmiðil! Sérstaklega meðan krónan er svona lág því þá verða skuldirnar í íslenskum krónum mun lægri þegar laun og íbúðaverð leita jafnvægis á ný. Gera tvíhliðaskipti.
Bara að hafa þessar aðgerðir nógu einfaldar og nota þau kerfi sem fyrir eru.
Við erum löngu búin að byggja upp úrræðakerfi. Nú þarf að kynna það, fjarmagna og einfalda.
Svo er bara að velja einn útgangspunkt í lánamálum einstaklinga. T.d. að Íbúðalánasjóður kaupi erlend lán til baka og hefji svo innheimjtu út frá gengisvísitölu ca. 175, og verðtryggi þau svo í staðinn. Sama raunlækkun sé á
Og til viðbótar við það sem sem Bragi nefnir hér að ofan, (þ.e. umbreytingu myntkörfulána í hefbundin krónulán), að tengja verðtryggingu lána við launavísitölu, í stað vísitölu neysluverðs, og gera það afturvirkt til miðs seinasta árs. Aðeins á þann hátt er hægt að tryggja að lántakendur hafi forsendur til að greiða það sem þeir gerðu samning um, þ.e. að svipað hlutfall tekna fari í húsnæðisgreiðslur. Ef þetta kostar Íbúðarlánaslóð eitthvað, verður það ekkert í samanburði við annað sem ríkið er að taka á sig þessa dagana.
Svona á þann hátt sem þú lýstir í sjónvarpinu - og gera það þannig að eftir er tekið og munar um. Ekkert hálfkák.
Hvað með jóbama er hún ekki nýji frelsarinn?
Samtökin 78 og Jóbama geta gert gei-prædið að álíka viðburði og Hm eða olypmpíuleikunum það hlýtur að tryggja mikinn gjaldeyri.
Össur gæti reynt að slá í gegn sem lifandi garðálfur og skemmt börnum í útlöndum.
Imba-Sollu mætti Kári Stefáns klóna og fjöldaframleiða og nota sem vopn til að rústa ríkjum innan frá.
Síðan mætti hugsa sér að gera Samfylkinguna að alþjóðlegri stofnun til verndar spilltum auðjöfrum sem þjást af græðgi og kókaínfíkn.
Jóhanna og Sovétmennirnir hljóta að eiga margvísleg svör við efnahagsvandanum. Merkilegt samt að aldrei bólaði á þessum lausnum þegar Samfylkingin var í stjórn með Sjálfstæðisflokknum. Samfylkingin hlýtur að hafa geymt þessar töfralausnir fyrir þessa nýju ríkisstjórn. Manni skilst að þjóðfélagið muni gjörbreytast þegar Davíð Oddsson verður rekin og öll vandræði þjóðarinnar muni gufa upp. Til þess að gera nýju ríkisstjórnina traustvekjandi hafa Ingibjörg og Steingrímur sótt flokksmenn sína upp í háskóla og þau eiga víst að ljá þessu mikinn gæðastimpil. En engu að síður er Jóhanna þegar orðin að athlægi í erlendum grínþáttum þar sem snilli íslendinga í efnahagsmálum er lýst með því að gera lesbíska flugfreyju að yfirstjórnanda landsins. Það útaf fyrir sig er mikill gæðastimpill.
Kári Örn við í VG beru enga ábyrgð á vanrækslu og vangetu Samfylkingarinnar í síðustu ríkisstjórn. Við vinstri-græn munum hafa vökul augu á siðspilltri Samfylkingu. Það verður ekki auðvelt fyrir þau að skeina rassinn á Jóni Ásgeiri í þessari stjórn.
Við vitum að við göngum í stjórn með ESB-lýðskrumurum en þau komast ekkert áleiðis með okkur. Vinstri-Græn munu ekki svíkja þjóð sína.