Mörg hundruð einkahlutafélög

25. febrúar 2009 kl. 16.03 |

Fjölmiðlar hafa fjallað ítarlega um málefni einkahlutafélagsins Caramba - hugmyndir og orð ehf. sem við hjónin stofnuðum fyrir einum átta árum meðan ég var blaðamaður á Morgunblaðinu. Sjálfur hef ég gengið enn lengra og ritaði langan pistil hér á þessa síðu um þessi mál undir lok fyrra mánaðar, sjá hér.

Er mér til efs að aðrir í sambærilegri stöðu hafi gengið lengra í umfjöllun um eigin fjármál á opinberum vettvangi.

Talsvert hefur verið líka fjallað um málefni einkahlutafélaga í eigu varaformanns Sjálfstæðisflokksins og eiginmanns hennar, sem var einn af lykilstjórnendum Kaupþings. Þá hafa fasteigna- og verðbréfaviðskipti félags í eigu Lúðvíks Bergvinssonar alþingismanns nokkuð verið til umræðu.

Þetta eru þrjú einkahlutafélög í eigu þjóðþekktra aðila og maka þeirra sem mjög hafa verið til opinberrar umræðu. Ég kvarta ekkert yfir því, samanber fyrri skrif mín.

En í ljósi þess að Davíð Oddsson seðlabankastjóri hefur nú upplýst að hundruðir einkahlutafélaga í eigu þekktra manna úr þjóðlífinu og stjórnmálunum hafi átt í hlutabréfaviðskiptum í bönkunum, er spurning hvort þessi umræða verði nú ekki útvíkkuð ofurlítið og farið yfir þá sem þar um ræðir.

Spurningin er hvort fleiri vilja ekki skýra út sín mál með sambærilegum hætti?


Ummæli

2 ummæli fram að þessu

  1. Bragi þann 25. febrúar 2009

    Sem betur fer hafa menn vit á að nota hlutafélög til þess að takmarka áhættu í viðskiptum.

    Til þess eru hlutafélagalögin ætluð.

    Það er svo allt annar handleggur þegar menn brjóta lög og bera hlutafélagið fyrir sig. Þar þarf að nýta betur refsirétt og rannsóknarrétt í núverandi lögum. Síðustu átta ár hafa dómar í svona málum orðið sífellt vægari, ef á annað borð er dæmt í svona málum.

  2. Kalli Sveinss þann 25. febrúar 2009

    “Umræðan verði útvíkkuð ofurlítið” - Nei, ekki aðeins ” ofurlítið” heldur rækilega niður í kjölinn. Uppljóstranir Davíðs Oddssonar um HUNDRUÐ einkahlutafélög í eigu þekktra manna, af hlutabréfaviðskiptum í bönkunum, ÆPIR Á FULLKOMNA RANNSÓKN. Ekkert kák.
    Allir eiga að vera jafnir fyrir lögum landsins. Tortryggninni verður að linna.
    Svifta verður bankana í þessu máli, svokallaðri ” Bankaleynd”. Krafa.
    En - höfuskúrkar bankahrunsins eru Alfa & Omega eftirfarandi :
    I . BANKASTJÓRAR ALLRA BANKANNA.

    II. BANKARÁÐ ALLRA BANKANNA.

    III. ALLIR ráðherra fyrri stjórnar, þar á meðal Össur, Jóhanna & Kristján.
    Öll þessi ömurlega reynsla okkar Íslendinga á liðnum mánuðum, hefur þó eitt gott í sér.
    Við lærum af ömurlegri reynslunni, eða sem Rómverjar sögðu.: ” Usus est optimus magister” - þ.e. ” Reynsla er besti kennarinn” !

Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Vefmiðlar
Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning