feb
27
Takk fyrir mig
27. febrúar 2009 kl. 8.31 |
Ég þakka þeim tugþúsundum Íslendinga sem sótt hafa þessa bloggsíðu í hverri viku undanfarin misseri. Hér hafa átt sér stað öflug skoðanaskipti sem ég hef haft ánægju og gagn af að taka þátt í.
Nú færi ég mig um set, nýr fjölmiðill www.pressan.is hefur göngu sína á morgun.
Starfsfólki Vísis þakka ég einstaklega ánægjulegt samstarf.
Ummæli
12 ummæli fram að þessu

Hugleiðingar Björns Inga Hrafnssonar, stjórnanda Markaðarins á Stöð 2 birtast á þessari síðu. Hér er fjallað um áhugaverð tíðindi og skoðanir viðraðar um viðskipti, efnahagsmál og þjóðmál almennt. Frjálst er að vitna til efnis á þessari síðu, enda sé heimilda þá getið. Hefur þú athugasemdir eða góða ábendingu? Skrifaðu mér bréf á netfangið
Þetta hefur verið eins og kastljós blaðana og Silfrið hans Egils. Halltu þessu áfram!
Vonandi verður Pressan rannsóknarmiðill eins og forðum. Nú er þörf á að koma með sannleika upp á yfirborðið og fela ekkert.
Það mætti líka koma með uppbyggilegt efni og jákvæðar fréttir. Benda á tækifærin o.þh.
Takk fyrir mig
Þú færð heimsókn frá mér á nýjum stað.
Kv.Björgmundur
Gangi vel
ég fylgist grannt með þér Björn Ingi. Ég tel að þú hafir staðið þig glæsilega. Þú hefur gagnrýnt alla jafnt og málefnalega. Meira að segja hefur þú ekki hlíft Samfylkingunni eins og æði margir í forsvari fyrir fjölmiðla.
Þú hefur sannarlega sýnt okkur fagleg vinnubrögð og það er það sem fjölmiðlum hefur mikið vantað.
Björn Ingi við sjáumst á nýjum stað
Takk fyrir mig við sjáumst á nýja staðnum, gangi þér vel.
Með kveðju úr norðri
HEi
Verður boðið upp á blogg einstaklinga þar eins og hér og á moggabloggi?
Blessaður Björn.
Takk sömu leiðis og gott gengi á nýjum miðli.
Kveðja að austan.
Takk fyrir sömuleiðis og gangi þér vel með nýja miðilinn.
Ég þakka samstarfið og óska þér alls hins besta á nýjum vettvangi.
Tillaga að mottói fyrir yðar tign. Í fyrsta lagi ég,í öðru lagi ég og í þriðja lagi þarf ég að hugsa eitthvað um sjálfan mig.
Takk fyrir Björn Ingi - vísis-bloggið verður ansi mikið slappara þegar þú ert kominn annað.
Ætlar þú annars ekki að setja upp bloggsvæði . . . ?