mar
5
Segjum NEI á morgun
5. mars 2010 kl. 10.58 | Rita ummæli
Það er okkur nauðsynlegt að fella Icesave-lögin frá því í desember í þjóðaratkvæðagreiðslunni á morgun og þetta mun bara styrkja samningsstöðu okkar. Miða við það sem maður hefur lesið þá eru bretar og hollendingar skíthræddir og meiri segja Evrópusambandið við þessa kosningu. Þetta gæti haft formdæmi fyrir önnur ríki sem er ekki gott mál fyrir Brussel og nágreni. Hlustum ekki á það sem Jóhanna og Steingrímur segja, heldur mætum á kjörstað og segjum nei. Þó svo að líf ríkisstjórnarinnar hangir á þessu og sérstaklega pólitíska líf Jóhönnu og Steingríms, þá er meira í húfi fyrir landið en framtíð þeirra.
Ekki láta þitt eftir liggja………….. góða helgi.
mar
4
Vafasamur ráðherra
4. mars 2010 kl. 8.47 | Rita ummæli
Ég get ekki annað en skrifað nokkrar línur um ráðherrann, Jón Bjarnason. Aldrei hefur mér líkað við það sem ég hef séð frá þessum manni. Þetta er svona leiðindargaur með eindæmum og hver man ekki eftir því er hann var í stjórnarandstæðu á sínum tíma komandi upp í pontu í nánast hverju einasta máli, rauflandi og bullandi þannig að maður bara já OMG. En í dag er hann orðinn stór kall og tjáir ekki mál á neinu segir bara já þegar atkvæðagreiðslan fer fram.
En nú hefur þessi ráðherra komið fram til að ná sér í velvild hjá bændum með því að varpa því á þingi bænda að auglýsing Símans þar sem fjórir frískir menn í loppapeysum ætla að taka þorrann alvarlega og eru mættir í torfkofann. Eins og hjá svo mörgu nútímafólkinu þá er þetta ekki að gera sig…. reyndar skil ég það ekki því mér finnst svona 60% af þorramatnum góður og borða þetta einu sinni á ári. En margir eru samt ekki fyrir þennan mat þ.e.a.s ef mat á að kalla en það er annað mál.
En hvað er ráðherrann að slá sér upp til riddara með því að ráðast á þessa auglýsingu? Er hann að koma sér ,, inn,, hjá bændum? Þetta er skemmtileg auglýsing með nokkrar af fremstu leikurum landsins í farabroddi og ég segi bara að þessi ráðherra er mjög vafasamur að gera sér mat úr svona máli sem skiptir engu máli. Það er alls ekki verið að ráðast á bændur eða matvælaframleiðsluna í landinu. Það er verið að auglýsa dreifikerfi símafyrirtækis. Heldur bara brandari sem á vel við höggi. Það er bara vafasamt fólk sem reynir að slá sér upp með svona.
mar
1
Harmageddon er málið!
1. mars 2010 kl. 22.01 | 1 ummæli
Já hver kveikir ekki á útvarpinu á morgnana eða eftir klukkan 16:00 og það fyrsta sem kemur upp er Icesave, misgáfaðir þingmenn að röfla út og suður og hafa ekki hundsvit hvað þeir eru að segja, kreppa, bankarnir, dómsstólar og ég veit ekki hvað? Eiginlega bara leiðindi - lítið um jákvæðni og pepp. Útvarpið á milli 09:00 - 16:00 er síðan alveg ágæt hjá nokkrum stöðvum. Veit ekki með ykkur hinn en ég er kominn með upp í kok af þessum viðbjóði þegar kvekt er á morgnana og síðan eftir klukkan 16:00. Svo hefur það verið núna hjá mér undanfarna daga að ég hef verið að setja á X-977 þegar líða fer á daginn og vitir menn? Þarna er eitthvað sem maður getur hlustað á Fyrst Valtýr með sportið og síðan Harmageddon, tónlistin frábær og þeir Frosti og Máni alveg með þetta. Frábærir útvarpsmenn og svo sannarlega gera lífið skemmtilegra. Hafa skoðanir og segja hana og þannig á þetta að vera. Takk fyrir strákar og keep up the good work!
mar
1
Fínasta Eddu-verðlaunahátið
1. mars 2010 kl. 11.21 | Rita ummæli
Ég var bara nokkuð sáttur við Eddu verðlaunin á laugardagskvöldið. Baltasar var bara ferkar góður þar sem ég bjóst við meiri hroka frá honum en raunin varð. Ég var ánægður með flest að því sem fékk verðlaun Þó svo að auðvita eru allir sigurvegarar sem fá tilnefningu – það finnst mér allavega. Skotin á RÚV voru rétt sem og á ráðamenn landsins. Þetta var bara hin besta skemmtun – allavega skemmtum við okkur vel sem vorum saman að horfa á þetta. Stöð2 fær náttúrlega plús fyrir að hafa tekið þetta og sýnt beint til landsmanna.
feb
16
Aftur kemst Sóley Tómasdóttir í fréttirnar - er hún alveg að missa það?
16. febrúar 2010 kl. 21.01 | Rita ummæli
Hvað er hægt að segja um hina fjallmyndarlegu en hundleiðinlegu Sóley Tómasdóttir? Fyrst eru atkvæði sótt heim til fólks og síðan fá menn ekki að gera það sem samviskan segir heldur gera það sem þeim hefur verið sagt s.b borgarstjórnarfund í dag þar sem hún þessi fantur (virðist vera) skipaði flokksbróður sínum Hermanni Valssyni að sitja hjá við atkvæða greiðslu.
Þegar kom að Hermanni, sem er varaborgarfulltri, þá var hann spurður um afstöðu til málsins. Hann svaraði þá já. Spurður hvort hann væri sammála því að vísa málinu frá leiðrétti hann sig skyndilega og sagðist hafa ætlað að segja nei.
Þá sagði Sóley, sem var ritari fundarins og taldi atkvæðin, við Hermann: Þú átt að sitja hjá.
Hermann á þá að hafa endurtekið svar sitt hátt og skýrt: Ég segi nei.
OK! En eiga kjörnir fulltrúar ekki að fylgja eigin sannfæringu? Kannski ekki í VG og þar sem Sóley Tómasdóttir ræður ríkjum. Smánarlegt í alla staði.
Bara til að útskýra hvað var verið að greiða atkvæði um þá var það frávísunartillaga um tillögu Ólafs F. Magnússonar.
feb
15
Sárt ef satt reynist – Spaugstofan tekin af dagskrá
15. febrúar 2010 kl. 8.46 | Rita ummæli
Sárt ef satt reynist að Spaugstofan verður tekin af dagskrá þegar þessum vetri lýkur. Í 21 ár hafa þessir skemmtilegu menn komið fram í hverju viku á vetratíma og skemmt landanum – verið svona málgagn fólksins oft á tíðum. Reyndar er ekkert staðfest í þessum efnum samkvæmt því sem útvarpsstjóri segir en spaugstofumenn gera ráð fyrir því að vera ekki áfram vegna niðurskurðar hjá RÚV.
Sjálfur segir Karl Ágúst Úlfsson að svörin sem þeir félagar fengu frá RÚV hafi ekki verið afdráttarlaus en þeir félagar gera samt ekki ráð fyrir að vera áfram og segir Karl og er ég sammála honum um að það verði mikil skaði að missa þetta málgang fólksins.
Spaugstofan hefur verið á skjá landsmanna í 21 ár og hafa þeir félagar skrifað 375 þætti. Spaugstofumenn voru lengst af 5 talsins, en Randveri Þorlákssyni var gert að hætta árið 2007. Olli sú ákvörðun fyrrum dagskrárstjóra hörð viðbrögð í samfélaginu. Búast má við að viðbrögðin verði álíka hörð hverfi Spaugstofan af skjánum, enda sýna mælingar að þátturinn er enn einn sá vinsælasti á landinu og væri tóm tjara að skrifa hann út - því frekar ættu menn að spara á öðrum stöðum hjá RÚV eins og komið hefur fram margoft undanfarið.
feb
8
Samfylkingin gerir hosur sínar grænar fyrir Framsóknarflokknum
8. febrúar 2010 kl. 8.50 | 2 ummæli
Það er talsvert talað um það þessa dagana að ákveðnir menn innan Samfylkingarinnar hafi leitað eftir viðbrögðum frá þingmönnum Framsóknarflokksins um að koma inn í stjórnina og styrkja hana til muna. Reyndar kom formaður Framsóknarflokksins fram í gær og sagðist ekkert skilja hvaðan svona tal kæmi og ekkert væri til í því.
Nú kemur vefrit Morgunsblaðsins fram með að þetta mál og segir að hafi verið í gangi í einar tvær vikur eða svo. Fylkingarmenn með Össur Skarphéðins fremstan í flokki eru sögð langþreytt á VG en stjórnin er rétt eins árs reyndar og helstu ástæður eru ákvörðunarfælni og engar framkvæmdir heimilaðar af hálfu VG.
Framsóknarflokkurinn hefur ekkert með að gera að ganga til liðs við þessa stjórn enda veit ég fyrir víst að menn þar á bæ taka frekar dræmt í þessa hugmynd fylkingarsinna. En maður getur engu spáð fyrir hvað þetta fólk inna á þingi tekur sér upp.
feb
4
Allt í rugli og minnkandi líkur á samstöðu?
4. febrúar 2010 kl. 11.23 | 3 ummæli
Það er óhætt að segja að stjórnmálalífið hér á landi sé í talsverðu rugli – eiginlega svona meira rugli en oftast nær. Eins og þeir sem lesa bloggið mitt þá er ég ekki stuðningsmaður ríkisstjórnar Íslands en ég vil henni samt vel og vona að þeir geri betur en þeir hafa gert. Forystufólkið stjórninni hafa nefnilega sagt að þau séu að gera sitt besta og ég bara verð að trúa því.
En það sem gerir þetta stjórnmálalíf svo ruglað og vitlaust er að stjórnarandstæðan vill að gerður verður nýr Icesave samningur en þeir vilja samt meina að stjórnin hafa engan áhuga á því.
Stjórnin hafa meiri áhuga að ræða vaxtamál og horfir VG til Noregs í þeim efnum að fá lán á betri vöxtum. Á sama tíma horfir Samfylkingin til ESB um að fá fyrirgreiðlsun þaðan.
Æææ ég veit ekki þetta er eins og kappleikur í yngriflokk þar sem foreldrar hrópa og æpa á völlinn og engin skilur neitt.
feb
2
Þóra Arnórsdóttir var flott í kvöld
2. febrúar 2010 kl. 21.14 | 3 ummæli
Fjölmiðlakonan Þóra Arnórsdóttir fær allt það hrós sem ég get gefið fyrir framgöngu sína í Kastljósinu í kvöld þegar frú Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra sat fyrir svörum. Þóra var frábær og loksins var gengið á þetta valdalið okkar. Mér fannst allavega ekkert af viti koma frá Jóhönnu og mjög oft óörugg í svörum. Þóra var ekki ruddalega eins og stuðningsmenn S-flokkana hafa keppst við að koma með athugasemdir hér á blogginu. Jóhanna byrjaði vel og fór talsvert í að lýsa gríðarlegum árangri ríkisstjórnarinnar í endurreisn bankana, uppbyggingu atvinnulífsins og allri þeirri rannsóknar- nefndarvinnu sem hefur verið í gangi.
En þegar Þóra Arnórs kom að Icesave, spillingin í bönkunum og skjaldborgin þá kom bara allt annað hljóð í skrokkinn. Annars hef ég alltaf haft dálæti á Jóhönnu svo það komi fram.
feb
1
Steingrímur Hermannsson (1928-2010)
1. febrúar 2010 kl. 17.22 | Rita ummæli
Steingrímur Hermannsson fyrrverandi forsætisráðherra er látinn á 82. aldursári. Með honum er genginn einn mesti og glæsilegasti stjórnmálaforingi íslensku þjóðarinnar. Hann var frjálslyndur umbóta sinni og kom með þá stefnu í Framsóknarflokkinn á sínum tíma sem breytti flokknum úr afturhaldsflokki í framsækinn félagshyggjuflokk. Steingrímur var vinsæll stjórnmálamaður ekki aðeins hjá Framsóknarmönnum heldur stórum hluta þjóðarinnar.
Sjálfur kynnist ég honum lítillega og ég hafði alltaf gaman og gott af því að ræða við Steingrím. Hann var fróður maður og hugsandi. Það var gaman að spyrja hann um gamla tíma enda mitt áhugasvið, pólitísk sagnfræði meðal annars. Oft hef ég verið spurður af hverju ég sé framsóknarmaður? Steingrímur Hermannsson hafði djúp áhrif á mig sem ungum manni og ég mun minnast hans sem mikils meistara. Ísland hefur misst einn af sínum bestu sonum.
Fjölskyldu hans votta ég mína dýpstu samúðar
jan
29
Frakkar segja Íslendinga ekki vera neina hindrun
29. janúar 2010 kl. 9.38 | Rita ummæli
Undanúrslitaleikurinn milli Íslands og Frakklands er á morgun klukkan 13:00. Það er heldur betur spenna komin í landan og hefur þessi viku sem er senn að líða verið alveg mögnuð fyrir okkur frónverja. En helgin gæti orðið ennþá betri – pælið í því! Ég hef trú á okkar liði og við tökum þessa fransmenn. En þeir segja okkur ekki vera neina hindrun bara svona walk in the park dæmi.
Frakkar geta náð þeim frábæra árangri að vinna þrennuna með því að vinna EM. Frakkar eru heims- og ólympíumeistarar en engri þjóð hefur tekist að ná þessum árangri hingað til. Eins og einn frakki sagði ,, Nú er tækifæri til að skrá nafn okkar á söguna og Ísland verður engin hindrun að þeirri leið.
Já! Eins og maður segir keep talking, keep talking. Það þarf að nefnilega að gera hlutina í verki ekki í orði.
Áfram Ísland!!!! Alla leið
jan
27
Handboltalandsliðið færir ríkisstjórninni starfsfrið
27. janúar 2010 kl. 7.00 | 1 ummæli
Ég er ekki frá því að handboltalandsliðið og árangur þess í Austurríki gefi ríkisstjórn Íslands besta og mesta starfsfrið sem um getur síðustu mánuði. Nú er enginn að pæla í öllu því klúðri og vitleysu sem Jóhanna og Steingrímur gera daglega ásamt sínu fylgdarliði. Nú ætti þetta fólk að fara vel yfir málin og laga það sem þarf að laga og koma með framtíðarsýn og úrbætur því nú er tíminn vegna þess að öllum er skítsama hvað þau eru að bralla þar sem númer eitt, tvö og þrjú er landsliðið í handbolta. Nýta friðinn og tækifærið og koma svo sterk til leiks eftir EM öllum til hagsbóta.
jan
26
Wayne Rooney vill fá Steven Gerrard til Manchester United
26. janúar 2010 kl. 21.36 | Rita ummæli
Knattspyrnuvefsíðan Goal.com er með lið hjá sér þar sem lesendur síðunar geta spyrt helstu hetjaur fótboltans spurninga. Fyrstu til að ríða á vaðið er engin annar er snillingurinn Wayne Rooney sem leikur með Manchester United og enska landsliðinu. Það er margt skemmtilegt sem kemur fram í þeim svörum sem Rooney svarar.
Fyrsta spurningin er hvaða varnarmaður hann telji að sé sá erfiðasti sem hann hefur glímt við. Svar hans var John Terry fyrirliði Chelsea og enska landsliðsins og kemur það varla mikið á óvart enda Terry mikil leiðtogi og klettur.
Þegar Rooney er spurður hvaða leikmann hann vildi fá til Manchester United þá teygir hann aðeins svarið og segir það að öll þannig mál séu í höndum stjórans. Hann segir að hann spilað með frábærum leikmönnum og geri ennþá dag í dag. En Steven Gerrard fyrirliði Liverpool sé mikil vinur hans og hann væri alveg til í að fá hann til Manchester United en hann veit vel að að því verður ekki þar sem Steven er Liverpool-maður alveg í gegn. En þess má geta að Gerrard fékk reynslutíma hjá Manchester United þegar hann var ungur á árum.
Einnig segir Rooney frá því að hann hefði viljað spila með Zinedine Zidane og þegar hann spilaði gegn honum þá var hann eiginlega agndofa yfir hversu góður leikmaður hann var. Einnig gefur hann Theo Walcott hjá Arsenal góða einkunn og segir hann efnilegan leikmann og einn sá fljótasta sem hann hefur leikið með en saman hafa þeir verið hjá enska landsliðinu.
Einnig er Wayne Rooney spurður út í hvað hann sagði við Carlos Tevez leikmann Manchester City sem var að fara að taka vítaspyrnu í leik liðana fyrir stuttu í Carling Cup bikarnum. Rooney sagði að hann hafi sagt við félaga sinn ,, skjóttu framhjá – ég bað hann um að skora ekki.
Á HM 2006 var Rooney rekinn af velli eftir brot á félaga sínum Cristinao Ronaldo sem spilar fyrir Portúgal. Mikið blaðamál var eftir þetta og voru flestir sammála að Ronaldo ætti ekki afturkvæmt á enska grund og samband þeirra hefði farið út um veður og vind - fannst mörgum eins og Ronaldo hafi fiskað félaga sinn hjá Manchester United af velli. En svona svarar Rooney þessu ,, Við töluðum saman stuttu eftir þetta í síma og þegar við síðan komum aftur til Manchester og hófum undirbúningstímabilið þá kom stjórinn og tók okkur tvö á fund. Sagði okkur frá því hvernig blöðin væru og hvernig þau mundu reyna að gera allt til að búa tilf frétt. Við tókumst í hendur. Ronaldo er góður drengur og við spiluðum oft mjög vel saman.
Rooney er spurður hvaða leikmann hann væri helst til í að hafa með sér í framlínu enska landsliðins þá koma helst til greina hjá honum Emile Heskey eða Jermaine Defoe skiptir ekki hvor það er í raun.
Rooney og eiginkona hans eignuðust strák fyrir stuttu og einn fyndinn lesandi spurði hvort hann mundi ekki verða sár ef sonur hans mundi taka uppá því að halda með Liverpool. En Rooney stóð ekki á svari enda fæddur og uppalinn í Liverpool-borg en fylgismaður Everton eins og öll hans fjölskylda. ,, Öll mín fjölskylda er Everton-stuðningsmenn og þannig ólst ég upp. Það fólst meðal annars í því að hata Liverpool. Þannig er það og þannig verður það. Sonur minn mun fá það sama og ég hef ekki miklar áhyggjur af því,” sagði Wayne Rooney.
jan
25
Ný keppni hefst í dag í Austurríki
25. janúar 2010 kl. 9.07 | Rita ummæli
Það má segja að alveg ný keppni hefst í dag þegar íslenska landsliðið í handbolta hefur leik í milliriðli á EM í Austurríki. Liðið sló heldur betur frá sér gegn dönum og fer í milliriðil með þrjú stig. Tvö efstu liðin í riðlinum vinna sér rétt í undanúrslitum og um leið rétt að spila um verðlaun.
Króatar verða fyrstu mótherjar okkar liðs en þeir eru með fjögur stig í riðlinum. Króatía hafa alveg síðan þeir fengu sjálfstæði verið ein allra besta handboltaþjóð heims. En málið er að það erum við líka núna um stundir. Eins og Guðjón Valur Sigurðsson sagði eftir leikinn gegn dönum ,, Eigum við ekki bara að segja að fyrstu tveir leikirnir hafi verið slys og nú er þetta komið.”
Allir leikir liðsins í milliriðli byrja klukkan 15:00 en leikið er í dag, á morgun og svo á fimmtudaginn.
Mánudagur: ÍSLAND – KRÓATÍA 15:00
Þriðjudagur: ÍSLAND – RÚSSLAND 15:00
Fimmtudagur: ÍSLAND – NOREGUR 15:00
Áfram Ísland!
jan
23
Áfram Ísland!!
23. janúar 2010 kl. 21.23 | 2 ummæli
Ekki eru margir dagar síðan það var hraunað yfir landsliðið - nú er fagnað…..stundum er gott að bíða og sjá þegar lokaflautan glymur….. ekki satt? Vorkenni þeim aðilum sem komu fram á fésinu, útvarpi og kaffi stofum landsins núna…. En hey common Áfram Ísland! Til hamingju strákar vel gert - landi og þjóð til mikils sóma!!!!
Ég er bakari að mennt, starfa hjá Dreifingu ehf sem og á Stöð2 Sport. Framsóknarmaður, gítarspilari og áhugamaður um margt. Á einn son sem er mitt mesta og besta afrek til þessa.