feb
25
Gummi Gumm tekur aftur við landsliðinu
25. febrúar 2008 | Rita ummæli
Guðmundur Þórður Guðmundsson hefur verið ráðinn landsliðsþjálfari Íslands í handknattleik. Er þetta í annað sinn sem hann tekur við liðinu. Loksins er búið að binda enda á lönguvitleysu hjá forráðamönnum HSÍ. Gummi var þjálfari liðsins þegar liðið hafnaði í 4 sæti á EM í Svíþjóð 2002. Ég er bara ánægður [...]
feb
24
Við erum að senda leiðinlegasta lag allra tíma til Serbíu
24. febrúar 2008 | 2 ummæli
Ég hef fylgst með Eurovison síðan ég var svona 10 ára gamall á hverju ári. Ég hafði fyrstu 15 árin mjög gaman að þessu og var þessi harði aðdáandi. Síðan þegar maður fór að eldast þá fór áhuginn að dvína en alltaf kom samt upp smá stemming í mann þegar til dæmis undankeppni var hér [...]
feb
23
Utan Vallar hefur sannað sitt mál
23. febrúar 2008 | Rita ummæli
Umræðuþátturinn Utan Vallar sem er á Sýn alla fimmtudaga hefur svo sannarlega sannað sitt mál. Lengi hef ég beðið eftir því menn sem stýra sjónvarpinu hér landi sáu að þarna er gott sjónvarpsefni, umræðuþáttur um íþróttir.
Við höfum marga misgóða sjónvarpsþætti hér á landi en flestir eru um pólitík, dægurmál og [...]
feb
20
Hemmi Gunn klikkar ekki, bara alls ekki
20. febrúar 2008 | Rita ummæli
Hemmi Gunn er annar spámanna Vefsíðurnar Gras.is og fengum við hann til að spá fyrir leikina í Meistaradeildina og í leikjum gærdagsins var sá gamli með alla leikina rétta. Vantaði aðeins uppá markaskorið en öll liðin unnu. Hemmi Gunn kemur svo seinna í dag með spá sína fyrir leikina í kvöld.
Liverpool – Inter 2-0 (Hemmi [...]
feb
19
Geir Sveinsson tekur ekki við landsliðinu
19. febrúar 2008 | Rita ummæli
Geir Sveinsson mun ekki taka við íslenska landsliðinu í handbolta. Hann gaf HSÍ svar í dag eftir að hafa fengið að hugsa málið í fjóra daga. Geir var án efa líklegastur til að taka starfið að sér og hafa nú tveir sagt nei því Dagur Sigurðsson afþakkaði fyrir helgi.
Ég er ennþá á þeirri skoðun sem [...]
feb
19
Meistaradeildin hefst í kvöld – bara veisla og ekkert annað
19. febrúar 2008 | Rita ummæli
Já Meistaradeild Evrópu hefst í kvöld og þetta er bara veisla af bestu gerð. Átta flottar viðureignir svona við fyrstu sín. Það er alltaf erfitt að spá hvaða lið fara áfram en ég ætla að leyfa mér að tippa á leikina í kvöld og á morgun.
Liverpool – Inter: Tvö af mínum uppáhaldsliðum. [...]
feb
16
Enn eitt djókið hjá Liverpool
16. febrúar 2008 | Rita ummæli
Jæja þá fór það þannig í dag að Liverpool gerði sér lítið fyrir og tapaði á heimavelli fyrir Barnsley sem er í 14 sæti í næst efstu deildinni á Englandi. Ég veit að gamla klisjan er að bikar er bikar. Leikurinn fór 2-1.
Þetta Liverpool lið býr til hlátursefni eins og verksmiðja og var þetta nýjasta [...]
feb
14
Allir Hafnfirðingar verða löglegir Gaflarar í ár
14. febrúar 2008 | 4 ummæli
Allir þeir sem búa í Hafnarfirði frá 1 janúar 2008 verða löglegir Gaflarar. Ég hef búið í Hafnarfirði í yfir áratug og alltaf hef ég verið kallaður AA eða aðfluttur andskoti. Hafnarfjörður á 100 ára afmæli í ár og hafa þessir AA-einstaklingar svo sannarlega hjálpað til með að byggja upp [...]
feb
12
Dagur að taka við landsliðinu?
12. febrúar 2008 | Rita ummæli
Allt útlit er fyrir að Dagur Sigurðsson verðu næsti landsliðsþjálfari Íslands í handbolta. Ef marka má það sem Fréttablaðið hefur undir höndum og treysti ég því blaði fullkomlega. Þá hafa viðræður átt sér stað af hálfu forráðamanna HSÍ og Dags. Eiga þær viðræður að hafa gengið vel og verði jákvæðar.
Dagur hefur svo sem ekki farið [...]
feb
10
Bandið hans Bubba lofar góðu
10. febrúar 2008 | Rita ummæli
Þegar ég heyrði að Bubbi Mortheins væri að koma með sjónvarpsþátt þar sem hann væri að leita eftir söngvara í nýja hljómsveit. Hugsaði ég með mér enn eitt idolið og X-factor. Var ekki komið á endastöð með þetta í bili að minnsta kosti. En ég hef horft á þessa tvo þætti sem hafa verið sýndir [...]
feb
9
Bestu íslensku sjónvarpsþættirnir á þessum vetri
9. febrúar 2008 | Rita ummæli
Maður hefur ekkert til að blogga um núna þannig að mér datt í hug að koma óþarfan lista af bestu sjónvarpsþáttum sem hafa verið í sjónvarpinu í undanfarin misseri. Tek ekki fréttatíma inn í þetta. En horfi oftast á fréttir Stöðvar2. Ætlaði að hafa tíu þætti en því [...]
feb
8
Meiri Pressu takk
8. febrúar 2008 | 3 ummæli
Ég var mjög ánægður með íslenska spennuþáttaröðina Pressan sem var sýnd á Stöð 2. Ein allra besta þáttaröð sem framleitt hefur verið hér landi. Ég gef Stöð2 og þeim aðilum sem trúði á þetta verkefni hrós. Ég vil meiri Pressu næsta vetur. Við fengum Næturvaktina fyrir áramót og það var [...]
feb
6
Framhjáhald og áfengisdrykkja er dauðadómur
6. febrúar 2008 | 3 ummæli
Ég var ekkert smá hissa og reiður í morgun þegar ég hlutstaði á útvarpsfréttir á Bylgjunni.
Þar var frétt frá Íran þar sem tvær systur sem átti í framhjáhaldi voru dæmdar til dauða. Þær verða grýttar til dauða. Svo var það að einn maður hafði verið uppvísa að drekka áfengi fjórum sínum [...]
feb
5
Ótrúverðugur forsætisráðherra Íslands
5. febrúar 2008 | Rita ummæli
Ég heyrði í gær að forsætisráðherrann, Geir H. Haarde sagði í ræðustól á alþingi að hann hefðu samúð með evrunni. Ég bjóst ekki við að heyra svona rugl frá þessum ágæta manni. Ég bjóst við hann væri trúverðugri en þetta. Geir vil sem minnst ræða Evrópusambandið og evruna. Við hvað eru Sjálfsstæðismenn hræddir? Hef aldrei [...]
feb
4
Tíska hjá knattspyrnumönnum að halda framhjá
4. febrúar 2008 | 1 ummæli
Það virðist vera einhvern tísku faraldur í gangi á Englandi þessa dagana þar sem knattspyrnumenn eru teknir í bóli bjarnar fyrir að halda framhjá sínum eiginkonum. Ekki langt síðan ég var að blogga um Ashley Cole, leikmanns Chelsea og enska landsliðsins sem var sagður hafa látið vininn annarsstaðar inn en hann ætti að gera. Allt [...]
Ég er bakari að mennt, starfa hjá Dreifingu ehf sem og á Stöð2 Sport. Framsóknarmaður, gítarspilari og áhugamaður um margt. Á einn son sem er mitt mesta og besta afrek til þessa.