Svalandi Lambrusco frá Lini

23. maí 2009 kl. 20.58 |

Ég tók við boltanum í vínkeðjunni frá Eiríki Stefáni Ásgeirssyni, blaðamanni hjá íþróttadeild Fréttablaðsins og Vísir.is.  Glaður tók ég í þessa áskorun og beið þess að fá eitthvað gott á mitt borð til að smakka og dæma um. Færandi hendi kom umboðsaðilinn (Vín og Matur)  með Lambrusco sem er frá Lini.  Þá vissi ég að nú þurfti ég að elda eitthvað nautakyns og fyrir valinu var Framfile frá Skare í Danmörku.  Ég gerði stórar steikur og kryddaði þær með marg tegunda kryddinu mínu frá Ameríku sem heitir einfaldlega Peper Supreme.  Eftir að ég kynnist því þá er það ekkert bara pipar og búið.  Með steikinni var Berniessóa og kartöflubátar.  Meira þarf ekki með enda á steikin að vera númer eitt og jú svo gott vín til að leiða þetta alla leið niður.  

Lambrusco Lini er með 11% áfengismagn sem er í hærri kantinum í þessum flokki það sem ég hef allavega prófað. En það kom ekki að sök þetta er gæða vín og hef ég beðið þess lengi að fá að drekka svipað vín og ég fékk á sínum tíma við Gardavatnið á Ítalíu en það var árið 2002 sem að ég kynnist Lambrusco og af hverju að hafa freyði í rauðuvíni.  Lambruco Lini er þurrt en mjög ferskt  og eitt það besta sem ég hef smakkað í þessari tegund. Gæti hafa verið það vín sem ég var að drekka á sínum tíma við Gardavatnið enda þegar ég betur gáði þá er framleiðandinn á þessu víni ekki langt frá Gardavatninu.  Fjölskyldufyrirtæki sem hefur verið í framleiðslu síðan 1910.  Maturinn sem ég var með var þungur en vínið kom skemmtilega á óvart og mildaði í raun allt þegar þessu var runnið niður.   Vínið er svalandi og í þessum hita sem hefur verið þá er yndislegt að taka það með sér veröndina og láta sólina aðeins lita sig í framan og skola niður með Lambrusco Lini. Vínið er bragðsterkt og gott og gefur skemmtilegt eftirbragð sem lætur mann gjóa augunum að flöskunni og sjá hvort ekki sé nóg til ennþá.  Þetta er Rollsinn í Lambrusco. Mæli hiklaust með þessu enda ertu með tvær flugur í einu glasi þ.e.a.s freyði og rauðvín. Ég skora á frjálslynda demókratann og íbúðalánafræðinginn Hall Magnússon  til að taka við boltanum af mér.


Ummæli

1 ummæli fram að þessu

  1. Arnar þann 24. maí 2009

    Þú hittir naglann á höfuðið. Þau Lambrusco sem hér hafa fengist og fólk er vant hafa minna alkóhól og eru því sætari og djúskenndari. Þetta er þurrt og ferskt og því svona gott matarvín.

Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Vefmiðlar
Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning