jan
19
80´s Club er staðurinn til að horfa á boltann
19. janúar 2010 kl. 15.45 |
Ég verð að setja nokkur orð um skemmtistaðinn, 80´s Club á Grensásvegi í Reykjavík. Þetta er einn flottasti staður sem ég hef farið og horft á boltann í beinni. Frábær aðstæða og ekkert smá massa góður matur sem hægt er að fá sér, alvöru hráefni.
En þó svo að maður sleppi því að fá sér bita þá er þessi staður mjög skemmtilega hannaður og það er virkilega gott að horfa á boltann. Flottir skjáir og góð breiðtjöld enda þrjú takk fyrir. Ég hef farið á flesta pöppana hér á höfuðborgarsvæðinu og ég segi bara 80’s club er staðurinn – ber af á öllum sviðum.
Ég ætla að rífa í mig stemmunga á 80´club þegar landsliðið byrjar að hefja röst sína í kvöld í handboltanum og segi bara ef þú ert að leita að stað til að horfa á boltann, þá er þetta staðurinn og stemmingin.
Ég er bakari að mennt, starfa hjá Dreifingu ehf sem og á Stöð2 Sport. Framsóknarmaður, gítarspilari og áhugamaður um margt. Á einn son sem er mitt mesta og besta afrek til þessa.