jan
22
Allsherjar uppstokkun á lista íhaldsins?
22. janúar 2010 kl. 19.26 |
Ég get ekki fundið betur eftir að hafa talað við ansi marga sjálfstæðismenn sem ætla að taka þátt í prófkjörinu á morgun í Reykjavík, að það verði allsherjar uppstokkun á lista flokksins fyrir komandi kosningar í vor.
Annars er það ekki mitt að tjá mig um aðra flokka og hvernig þeir ætla að ráða málum sínum. En miða við þetta þá ætlar hinn almenn flokksmaður íhaldsins að gera eins og við framsóknarmenn og gefa nýju fólki tækifæri og finnst mér það gott. Allavega þeir fjölmörgu sem ég hef talað við.
En allavega þá vona ég að Geir Sveinsson nái góðri kosningu enda þekki ég hann ekkert af öðru en góðu og algjörlega toppmaður í alla staði.
Ummæli
2 ummæli fram að þessu
Ég er bakari að mennt, starfa hjá Dreifingu ehf sem og á Stöð2 Sport. Framsóknarmaður, gítarspilari og áhugamaður um margt. Á einn son sem er mitt mesta og besta afrek til þessa.
Sæll Tómas.
Já útreiðin sem spillingarlið Sjálfstæðisflokksins fær verður sögulegt fyrir þann flokk.
Sannaðu til.
kv
Já getur verið og ég spyr líka á móti - hafa kjörnir fulltrúar D-listans gert upp Rei-málið????? Er það ekki bara undir teppinu. Ég bara spyr ?