Ég er ekki frá því að handboltalandsliðið og árangur þess í Austurríki gefi ríkisstjórn Íslands besta og mesta starfsfrið sem um getur síðustu mánuði.  Nú er enginn að pæla í öllu því klúðri og vitleysu sem Jóhanna og Steingrímur gera daglega ásamt sínu fylgdarliði. Nú ætti þetta fólk að fara vel yfir málin og laga það sem þarf að laga og koma með framtíðarsýn og úrbætur því nú er tíminn vegna þess að öllum er skítsama hvað þau eru að bralla þar sem númer eitt, tvö og þrjú er landsliðið í handbolta.  Nýta friðinn og tækifærið og koma svo sterk til leiks eftir EM öllum til hagsbóta.


Ummæli

1 ummæli fram að þessu

  1. Guðmundur Óli Scheving þann 27. janúar 2010

    Sæll Tómas.
    Ég vil nú frekar hlusta og horfa á þá en…. hina.
    kv.

Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Vefmiðlar
Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning