feb
1
Steingrímur Hermannsson (1928-2010)
1. febrúar 2010 kl. 17.22 |
Steingrímur Hermannsson fyrrverandi forsætisráðherra er látinn á 82. aldursári. Með honum er genginn einn mesti og glæsilegasti stjórnmálaforingi íslensku þjóðarinnar. Hann var frjálslyndur umbóta sinni og kom með þá stefnu í Framsóknarflokkinn á sínum tíma sem breytti flokknum úr afturhaldsflokki í framsækinn félagshyggjuflokk. Steingrímur var vinsæll stjórnmálamaður ekki aðeins hjá Framsóknarmönnum heldur stórum hluta þjóðarinnar.
Sjálfur kynnist ég honum lítillega og ég hafði alltaf gaman og gott af því að ræða við Steingrím. Hann var fróður maður og hugsandi. Það var gaman að spyrja hann um gamla tíma enda mitt áhugasvið, pólitísk sagnfræði meðal annars. Oft hef ég verið spurður af hverju ég sé framsóknarmaður? Steingrímur Hermannsson hafði djúp áhrif á mig sem ungum manni og ég mun minnast hans sem mikils meistara. Ísland hefur misst einn af sínum bestu sonum.
Fjölskyldu hans votta ég mína dýpstu samúðar
Ég er bakari að mennt, starfa hjá Dreifingu ehf sem og á Stöð2 Sport. Framsóknarmaður, gítarspilari og áhugamaður um margt. Á einn son sem er mitt mesta og besta afrek til þessa.