Það er óhætt að segja að stjórnmálalífið hér á landi sé í talsverðu rugli – eiginlega svona meira rugli en oftast nær.   Eins og þeir sem lesa bloggið mitt þá er ég ekki stuðningsmaður ríkisstjórnar Íslands en ég vil henni samt vel og vona að þeir geri betur en þeir hafa gert.  Forystufólkið stjórninni hafa nefnilega sagt að þau séu að gera sitt besta og ég bara verð að trúa því. 

En það sem gerir þetta stjórnmálalíf svo ruglað og vitlaust er að stjórnarandstæðan vill að gerður verður nýr Icesave samningur en þeir vilja samt meina að stjórnin hafa engan áhuga á því.

Stjórnin hafa meiri áhuga að ræða vaxtamál og horfir VG til Noregs í þeim efnum að fá lán á betri vöxtum. Á sama tíma horfir Samfylkingin til ESB um að fá fyrirgreiðlsun þaðan. 

Æææ ég veit ekki þetta er eins og kappleikur í yngriflokk þar sem foreldrar hrópa og æpa á völlinn og engin skilur neitt.


Ummæli

3 ummæli fram að þessu

  1. Kristbjörn Árnason þann 4. febrúar 2010

    Sæll bakari sæll, ég hef verið stuðningsmaður þessarar ríkisstjórnar og er þess fullviss að annað er ekki í boði.

    Það er rétt lýsing hjá þér, að mér finnst þetta með eldri og yngri flokk.

    En nú er alvaran miklu meiri. Það verður að leysa þessa deilu vegna Icesave- vandans og almenningur krefst þess, að alþingismenn snúi bökum saman.
    Stjórnin var auðvitað komin með ákveðna lausn sem henni finnst eðlilegt að vinna út frá.

    Því verður stjórnarandstaðan að koma að málinu. Það hefur hún fengið, hún hefur fengið að kynna sér málið frá fyrstu hendi. Þegar síðan kemur að því

    En stjórnarandstaðan hefur ekki þrátt fyrir að hafa sagt það að hún hafi lausnina, ekki komið fram með neinar nýjar lausnir.

    Í stað þess þá, að fara í það verk með ríkisstjórninni að leita nýrra lausna taka þeir til þess ráðs að hrópa á torgum að stjórnin sé ómöguleg.

    Enda eru þeir hvattir til áframhaldandi uppreisnar af ritstjóranum í Hádegismóum.

  2. Tómas Meyer þann 4. febrúar 2010

    Nokkuð mikið til í þessu hjá þér Kristbjörn!

  3. minna þann 5. febrúar 2010

    Sæll Tómas

    er ekki heldur stuðnings maður Ríkistjórnar
    og kaus hana alls ekki það er klárt
    er heldur ekki sjálfstæðis maður..þar er of mikil spilling

    en vill stjórninni vel eis og flestir, ég var reindar að vona að þessi stjórn mundi hlusta meira á fólkið og átta sig á að við viljum ekki borga fyrir gulldrenginna….þeas: Útrásar vikingana,

    …kv minna

    þarámeð talið ice save…

Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Vefmiðlar
Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning