N’YJAR PAKKNINGAR MINNA MAGN HÆRRA VERÐ..
- Fært af minna þann 22. febrúar 2012. Flokkað undir Alþjóðamál, Efnahagur
- Rita ummæli »
N’YJAR PAKKNINGAR MINNA MAGN HÆRRA VERÐ..
í guðs bænum stöndum saman gegn þessu ráni….. nýjasta æði hjá fyritækjum þessa dagana er að skifta um umbúðir..
Talandi um eitt slikt MS þeir selja t.d skyrdrykki. Skyr.is drykkur auglystur látlaust.Þessi fini drykkur er komin í nýjar umbúðir ..
og lesið nú áður innibar þessi tegund 330 ml kostaði cirka 137 krónur..fyrstu dagan í nýju umbúðunum kostaði hann rúmar 150 krónu en þar er ekki öll sagan sögð MS minkaði magnið í leiðinni..um 8o ml
..skýring á verðbreytingunni jú nýjar umbúðir..en í gær skrapp ég í búðina og viti menn MS skyrdrykkur kostar nú 171 krónu…þessi drykkur sem áður var 330 ml og kostaði 137 kronur er komin i 171 krónu .. ég held að það sé liðin cirka mánuður síðan þeir breyttu um umbúðir..Þetta er bara bilun og hvergi hef ég séð neitt minnst á þetta ég veit að það eru fleiri fyritæki sem eru að þessu sama t.d
OPAL.nýjar pakkningar hærra verð minna magn..auðfengnir peningar hjá fyritækjum og við rífum framm veskið og brosum út af eyrum..
Gleðilega hátíð :0)
- Fært af minna þann 22. desember 2011. Flokkað undir Alþjóðamál, Efnahagur
- Rita ummæli »
FÁTÆKT Á JÓLUM!!
- Fært af minna þann 16. desember 2011. Flokkað undir Alþjóðamál, Efnahagur
- Rita ummæli »
Er fátækt á Íslandi??
- jabb það er raunin í dag,og vil ég biðja fólk um að stiðja
- mæðrastirksnefnd með framlagi til matarkaupa,
- vil einnig benda á að mér finst rétt að stiðja first
- fólkið hér í landinu áður en að farið er að stiðja
- einhverja í Útlöndum
- ….kv minna
- MUNIÐ AÐ MARGT SMÁTT GERIR EITT STÓRT.
SJÁLFRÆÐIS ALDURINN ER 18 ÁR!!
- Fært af minna þann 7. desember 2011. Flokkað undir Alþjóðamál, Efnahagur
- Rita ummæli »
Egill Gillzenegger-Gurrý og 18 ára stúlka !!
- Fært af minna þann 6. desember 2011. Flokkað undir Alþjóðamál, Efnahagur
- Rita ummæli »
Ég get ekki orða bundist lengur í sambandi við… NAUÐGUNARKÆRU….sem kom fram á dögunum á hendur…Gilzenegger/Egills, og Gurrý
það hefur þvílíkt verið valtað yfir stúlkuna sem kærir…þið fólk þið verðið að átta ykkur á að Egill er ekkert cool.og að ef þið skoðið ferilin hans þá eru þessir brandarar hanns allir á þann veg að niðurlægja konur,
ég veit ekki með þátt Gurrýar í þessu máli og að sjálfsögðu ekki þátt Egills,enda var ég ekki viðstödd og er þar af leiðandi ekki dómbær um þetta mál,
en eitt veit ég, að ef einhver ætlar að kæra svona þá gerir sá/sú hin sama/sami það ekki nema að það séu miklar forsendur fyrir því,það er klárt..
svo hættið að vallta yfir og taka afstöðu í þessu máli ….og leifið ransóknarlögreglu að ransaka málið,
…..kv minna.
Hvernig á að þekkja siðblindu ??
- Fært af minna þann 23. nóvember 2011. Flokkað undir Alþjóðamál, Efnahagur
- Rita ummæli »
STAÐFAST AUGNARÁÐ
Margir eiga erfitt með að halda augnsambandi meðan þeir ljúga en hinn siðblindi horfist hins vegar stöðugt í augu við þig þegar hann vill fá eitthvað af þér eða vill ráða yfir þér. Það er enginn vafi á að akkúrat þetta notaði Charles Manson til að sannfæra fylgjendur sína og láta þá fremja hroðaleg ódæði. Það má sjá þetta starandi og sefjandi augnaráð hans á myndskeiðum á YouTube. Ef hann vildi koma máli sínu til skila til viðmælenda horfði hann beint í augu þeirra, annars leit hann stöðugt undan. [Myndin er af Peter Lundin. Hann er ýmist sléttrakaður um höfuð og vanga eða með sítt hár og skegg. Á Facebook er hann ljóshærður, síðskeggjaður og síðhærður. Svo merkilegt sem það nú er á hann 41 vin ...]
AUGNSAMBAND ROFIÐ UM LEIÐ OG ÞÚ KEMUR EKKI AÐ GAGNI LENGUR
Þegar hinn siðblindi telur sig ekki hafa neitt á þér að græða lengur á hann erfitt með að horfa á þig vegna þess að hann tengist þér ekki sem manneskju. Hann getur bara tengst þér eins og dauðum hlut eða verið upptekinn af því hvað þú getur gert honum til góða.
Enginn gat gert neitt fyrir Ted Bundy8 þegar síðasta viðtalið við hann var tekið, rétt áður en hann var líflátinn. Þess vegna horfðist hann varla í augu við spyrjandann, eins og sjá má á YouTube. Sama á við um fjárglæframanninn mikla, Bernie Madoff9. Hann sat fyrir svörum í hringborðsumræðum og horfðist ekki augu við nokkurn mann. Af hverju? Vegna þess að hann þarfnaðist þeirra ekki. Þeir voru honum einskis virði. Hann gat ekki ráðskast með hina svo hann nennti ekki einu sinni að reyna.
RÁÐSKAST MEÐ AUGNARÁÐINU
Siðblindir nota skerta virka skilyrðingu sem neyðir þig til að hlusta eða veita honum að minnsta kosti athygli. Þetta gerir sá siðblindi með því að stara á þig og rjúfa svo skyndilega augnsambandið og láta þig bíða eftir að hann snúi athyglinni aftur að þér. Hann skynjar líka eftirvæntingu þína. Þannig getur hann stjórnað þér.
SJÁLFSÁNÆGJUGRÍMA KEMUR Í STAÐ ANDLITSTJÁNINGAR
Siðblinda skortir fínhreyfingar í andlitinu og svipbrigði sem gefa tilfinningar til kynna. Oftast kemur þess í stað einhvers konar stirðnuð andlitsgríma sem lítur samt í rauninni frekar huggulega út því þeir hafa æft upp vinalegan svip til að dylja allt hið óþægilega sem er á kreiki í hugarfylgsnum þeirra.10
GETA EKKI SÝNT LITRÓF TILFINNINGA MEÐ SVIPBRIGÐUM
Vegna þess hve siðblindir eru kaldlyndir er þeim ómögulegt að tjá alls konar tilfinningar með svipbrigðum. Kannski var það þess vegna sem raðmorðinginn John Wayne Grayce, sem myrti unga drengi, lokkaði fórnarlömbin til sín með því að mála sig eins og hamingjusaman sirkústrúð í framan.
Skortur á svipbrigðum sást vel í framkomu Bernards Madoff, allt til þess að dómurinn féll. Margir höfðu það á orði að hann bæri sífellt glott á vörum. Þetta er dæmi um að hinn siðblindi reynir að miðla ánægju en nær því ekki heldur endar glottandi. Ted Bundy var eins á svipinn og sagt var hið sama um hann. [Myndin til hægri er af Ted Bundy.] Scott Peterson, sem myrti eiginkonu sína og ófætt barn, glotti alveg eins undir öllum réttarhöldunum og setti kviðdómendur úr jafnvægi. Hann bar enn grímu-glottið þegar verðirnir fylgdu honum inn í San Quentin fangelsið.
Andlitssvipur hans minnti sem sagt á grímu og var gersneytt svipbrigðum og tilfinningum. Svona andlitstjáning er skýrt merki þess að eitthvað er ekki eins og á að vera. Fólk sýnir svipbrigði svo lengi sem það hefur ekki verið sprautað með bótox. En í tilviki hins siðblinda skortir tilfinningarnar til að tjá sem skýrir af hverju hann sýnir svo fá svipbrigði. Þess vegna var líka grátur Casey í réttarsal lítt sannfærandi.
SIÐBLINDIR GRÁTA ÞURRUM TÁRUM
Stundum reyna siðblindir að þykjast hafa tilfinningar og gráta til að öðlast samúð. En maður sér sjaldan tár. Af því þeir eru tilfinningalausir, sem felur í sér að þeir skynja enga hryggð, þá reyna þeir oft að leika sig grátandi með því að þurrka sér um augun. En hreinn og beinn skortur á tárum kemur auðvitað upp um þá! Þannig var Casey í lokaréttarhöldunum.
AÐ LOKUM
Ef þú tekur eftir einhverjum af þeim vísbendingum sem taldar hafa verið upp skaltu alls ekki láta þær þér í léttu rúmi liggja! Slíkt gæti eyðilagt líf þitt eða jafnvel kostað þig lífið. Ef eðlishvötin hvíslar að þú sért í félagsskap siðblinds náunga eða ef þú finnur fyrir óróleika innst inni þá skaltu reikna með að eðlisávísunin sé rétt, fara eftir henni og HLAUPA!!!!
1 Grein á Wikipediu fjallar um Casey Anthony og dóttur hennar Caylee. Casey hefur verið marghandtekin fyrir ýmis afbrot og situr nú í fangelsi ákærð um að hafa myrt tæplega 3 ára dóttur sína. Titill greinarinnar virkar asnalegur á Íslending en hefur væntanlega átt að trekkja ameríska lesendur á sínum tíma, þegar mál Casey Anthony voru í hámæli.
2 Í inngangi kemur fram að höfundurinn, Lillian Glass, lítur á hugtakið „sociopath“ sem nánast samheiti við „psychopath“. Í sama streng tekur Robert D. Hare sem telur að þeir sem vilja nota orðið „sociopath“ séu uppteknir af þeirri hugmynd að manngerðin sé mótuð af félagslegum aðstæðum. Sjálfur vill hann nota orðið „psychopath“ því hann telur að sálfræðilegir, líffræðilegir og arfgengir þættir hafi allir sitt að segja til að skapa siðblindan einstakling. Sjá Without Concience. The Disturbing World of Psychopaths Among Us, 1999, s. 23-24.
3 Af því höfundurinn lítur nokkuð glansmyndalega út, enda sjónvarpsstjarna vestra, er rétt að benda á síðu um menntun hennar og bakgrunn. Af þeim upplýsingum að dæma má ætla að hún kunni góð skil á umfjöllunarefninu í þessari grein.
4 Robert D. Hare gerir kaldlyndi siðblindra nokkur skil í undirkaflanum „Hollow Words“ í Without Concience. The Disturbing World of Psychopaths Among Us, 8. kafla, s. 128 - 129. Hann vitnar í lýsingar annarra á þessu siðblindueinkenni, t.d. „Hann kann textann en ekki lagið.“ [J. H. Jones og H. C. Quay, 1962]eða „Hugmyndir um gagnkvæman skilning og gagnkvæm samskipti eru ofar tilfinningalegri skynjun hins siðblinda; hann þekkir einungis bókstaflega merkingu svoleiðis orða.“ [V. Grant, 1977] Sjálfur reynir Hare að útskýra þetta svona: „Sá siðblindi er að sumu leyti eins og litblindur sem sér veröldina í gráum tónum en hefur lært hvernig á að lifa í heimi litanna. Litblindur hefur lært að ljósið fyrir „stopp“ er efst á götuvitanum. Þegar litblindur maður segir þér að hann hafi stoppað á rauðu ljósi meinar hann í rauninni að hann hafi stoppað á efsta ljósinu. Hann kann að eiga erfitt með að ræða um liti á hinu og þessu en hefur væntanlega lært að bæta sér þetta upp og í sumum tilvikum gera jafnvel nánir vinir hans sér ekki grein fyrir að hann skynjar ekki liti. Alveg eins og þann litblinda vantar siðblindan mikilvægan reynsluþátt - í síðarnefnda tilvikinu upplifun tilfinninga - en sá siðblindi getur vel hafa lært orðin sem aðrir nota til að lýsa eða tjá tilfinningar sem hann sjálfur skilur í rauninni ekki. Eins og Cleckley orðaði það: „Hann getur lært að nota venjuleg orð … [og] mun einnig læra að herma rétt eftir því sem tjáir tilfinningar … en tilfinningarnar sjálfar skortir“. [Cleckley, 1976, s. 230].“
5 Langt er síðan menn tóku eftir því að siðblindir skynja ekki almennilega tilfinningaleg og óhlutlæg blæbrigði tungumálsins. Markmið rannsóknar einnar var að meta hæfileika siðblindra til að skilja myndhverfingar [nokkurs konar líkingar], jafnt bókstaflega sem tilfinningatengda merkingu þeirra.
Í ljós kom að þeir skildu ágætlega bókstaflega merkingu slíkra orðasambanda. Aftur á móti gerðu þeir sér slæma grein fyrir því hvort líking væri jákvæð eða neikvæð. Má nefna dæmi á borð við „Hafið er móðir [vagga] lífsins“, sem einn siðblindur taldi mjög neikvæða líkingu meðan annar taldi „Maðurinn er ormur sem lifir á líki jarðarinnar“ vera mjög jákvæða. Enn annars útskýrði alveg rétt myndhverfinguna „Svefninn er græðir sem læknar sár hversdagsins“ [„Svefninn er allra meina bót“] og sagði þýða „Svefn hjálpar þér að lækna líkamann“ en greindi síðan þessa myndhverfingu sem neikvæða. Þessar niðurstöður styðja enn frekar tilgátur um að siðblindir eigi erfitt með að greina tilfinningabundna þætti tungumáls.
Það kaldhæðnislega við þessar niðurstöður er að siðblindir nota sjálfir oft myndhverfingar og málskrúð til að ganga í augun á öðrum, dylja ætlan sína og ná stjórn yfir öðrum. Einn í rannsókninni lýsti hinu fullkomna lífi með eiginkonu sinni þannig: „Með ást hennar varð ég borgari í hinu himneska keisaradæmi“. Þrátt fyrir málskrúðið hafði hann ekki búið með konu sinni í tvö ár, uns hann var tekinn fastur fyrir að kveikja í húsinu hennar, birtast á vinnustað og skjóta tvo vinnufélaga hennar. Svona ósamræmi milli orða og gerða er auðvitað lykilþáttur í persónleika siðblindra.
Sjá Herve HF, Hayes P, Hare RD. „Psychopathy and sensitivity to the emotional polarity of metaphorical statements“. Personality and Individual Differences. 2003, 35. árg. 7. tbl., s. 1497–1507. The Official Journal of the International Society for the Study of Individual Differences (ISSID) Nálgast má greinina á netinu hér.
Mér finnst þessar niðurstöður benda til þess að siðblindir eigi erfitt með að skilja kímni, tvíræðni og skáldskap sem byggir á myndhverfingum. Það er því eðlileg ályktun að þeir þoli illa stríðni og að upplifun þeirra af skáldskap sem byggir á miklu myndmáli sé heldur fátækleg.
6 Robert D. Hare nefnir dæmi um þetta, samtal þar sem kvenkyns rannsakandi bað siðblindan fanga að lýsa einhverjum tilfinningaþrungnu atviki sem hann hefði upplifað og fanginn svaraði:
„Ja, þetta er erfið spurning. Svo margt að hugsa um. Ég man að einu sinni - ö - var ég að fara yfir á rauðu ljósi og það var engin umferð, skilurðu? Svo hvað er málið? Þessi lögga byrjaði að bögga mig að ástæðulausu og gerði mig alveg brjálaðan. Ég fór í rauninni ekkert yfir á rauðu. Sennilega var það á gulu … svo hvað var - ö - málið? Vandamálið með löggur eru að þeir eru - ö - næstum alltaf á einhverju valdatrippi. Þeir eru matsjó, skilurðu? Ég er ekkert fyrir matsjó. Ég er meira svona elskhugi. Hvað finnst þér? Ég meina, ef ég mundi ekki vera í fangelsi … segjum svo að við hittumst í partíi - ö - og ég mundi bjóða þér út, og, ég þori að veðja að þú mundir segja já, ekki satt?“ (Without Concience. The Disturbing World of Psychopaths Among Us. 1999, s. 138)
7 Hare nefnir nokkur dæmi um slíkar mótsagnir, þar á meðal þetta: „Þegar Ted Bundy var spurður hvaða áhrif kókaín hefði á hann þá svaraði hann: “Kókaín? Ég hef aldrei notað það … ég prófaði aldrei kókaín. Ég held ég hafi kannski prófað það einu sinni og fékk ekkert út úr því. Sniffaði bara pínulítið. Og ég bara vil ekkert með það hafa. Það er of dýrt. Og ég hugsa að ef ég væri útigangsmaður og ætti nóg af því þá mundi ég kannski brúka það. En ég er fyrst og fremst marijúana-gaur. Það sem ég geri er … ég elska að fá mér jónu. Og valíum. Og auðvitað alkóhól.“ (Without Concience. The Disturbing World of Psychopaths Among Us. 1999, s. 126).
Síðan reynir Hare að útskýra fyrirbærið þannig: Í flestu fólki skipta heilahvelin tvö með sér verkum. Í vinstra heilahveli fer fram úrvinnsla upplýsinga, þ.e. greining og röðun, og einnig sér vinstra heilahvel um málskilning og málnotkun. Hægra heilahvelið vinnur úr upplýsingum sem heild og skiptir miklu máli í rúmskynjun, myndum, tilfinningaupplifun og tónlist. Það er náttúrulega hagkvæmt að heilahvelin sjái hvort um sitt. Ef bæði vasast í því sama hægir það á úrvinnslunni. Rekja má sumar gerðir lesblindu og stams til einmitt þessa. Málsstöðvar má finna í báðum heilahvelum. Keppni milli heilahvelanna tveggja veldur miklu í ýmsum erfiðleikum í málskilningi og málnotkun. Nýjar rannsóknir benda til að einmitt slík tvíhliða málvinnsla heilans sé eitt einkenna siðblindu. Af þessu má draga þá ályktun að það hve siðblindum hættir til að vera tvísaga sé af því að „stjórnin er ekki á hreinu“, þ.e.a.s. að bæði heilahvelin reyna að stýra málvinnslunni, sem veldur því að orðfæri verður illa samþætt og lætur illa að stjórn. (Without Concience. The Disturbing World of Psychopaths Among Us, 1999, s. 127-128). Sjá nánar um þessa kenningu: Christopher J. Patrick. 2007. Handbook of Psychopathy, s. 340-341. Guilford Press, New York. Skoðað áGoogle bækur þann 7. janúar 2011.
8 Ted Bundy er frægasti raðmorðingi Bandaríkjanna. Hann var líflátinn árið 1989. Sjá nánar í greinarstubbi á íslensku Wikipediu eða langa umfjöllun á ensku Wikipediu.
9 Árið 2009 var Bandaríkjamaðurinn Bernard Madoff dæmdur í 150 ára fangelsi fyrir yfirgengilegt fjármálamisferli og fjársvik. Sjá nánar í grein um hann á Wikipediu.
10 Það er varla tilviljun að hið fræga grundvallarrit Hervey Cleckley um siðblindu heitir einmitt The Mask of Sanity.
Síðast breytt 12. janúar 2011
Harpa Hreinsdóttirfann þetta einhverstaðar á netinu og fékk lánað….kv minna
MEGRUNAR TYGGJÓ !!
- Fært af minna þann 22. nóvember 2011. Flokkað undir Alþjóðamál, Efnahagur
- Rita ummæli »
Var að lesa frétt um að það væri búið að finna upp
Tyggjó með hormón sem að gerir það að verkum
að fólki finnist það vera með fullan maga af mat
mykið vildi ég að Íslenska ríkið setti þetta á
markað sem first hér á landi
held að það mundi breita miklu fyrir fólk
of þjóðfélagið í heild
….kv minna
Á HJÚKRUNARHEIMILINU..
- Fært af minna þann 17. nóvember 2011. Flokkað undir Alþjóðamál, Efnahagur
- Rita ummæli »
Það var með trega sem unga konan fékk inni fyrir föður sinn á hjúkrunarheimilinu.
Þegar hún heimsótti hann í fyrsta sinn kom það henni á óvart hversu hress hann var. Hann þreyttist ekki á að bera staðnum vel söguna og endurtók hvað eftir annað hversu vel hann svæfi.
Þegar dóttirin spurði hverju það sætti að hann væri svona ánægður, svaraði gamli maðurinn að læknirinn hefði ákveðið að hann fengi Magnyl og Viagra fyrir nóttina.
Dóttirin var handviss um að sá gamli væri eitthvað að misskilja hlutina svo hún spurði læknirinn nánar út í þetta.
“Jú, þetta er alveg rétt hjá pabba þínum. Magnylið tekur verkina og bætir þannig svefninn en Viagra kemur í veg fyrir að hann velti fram úr rúminu.”
Fært undir Brandarar, Vinir og fjölskylda | Engin ummæli »
DÓMARINN VIÐ ÞANN ÁKÆRÐA FYRIR RÉTTI:
- Fært af minna þann 14. nóvember 2011. Flokkað undir Alþjóðamál, Efnahagur
- Rita ummæli »
Dómarinn við þann ákærða fyrir rétti:
“Þú ert ákærður fyrir rán.”
Sá kærði svarar: “Því get ég varla trúað.”
Dómarinn: “Hvert er nafn þitt?”
“Sófus, Pétur,Narfi, Axel Hanssen.”
“Og fæddur?”
“Já, að sjálfsögðu.”
“Ég meina, hvar ertu fæddur?”
“Nú já, - ég er fæddur í vesturbænum, skírður í miðbænum, fermdur í austurbænum og giftur í Breiðholtinu.”
“Og hverjum giftur?”
“Það er kona.”
“Jú, ekki er hægt að vera giftur karlmanni.”
“Ja, hún frænka mín getur það. Hún er gift karlmanni.”
“Hvað er faðir þinn?”
“Dáinn.”
“Hvað var hann áður en hann dó?”
“Lifandi.”
“Já, en hvað VAR hann?”
“Hann var með lungnabólgu.”
“Hvað gerði hann?”
“Hann hóstaði gríðarlega.”
“Ekki gat hann lifað af því, eða hvað?”
“Nei, enda dó hann mjög snögglega.”
“Réttinum er slitið,
tilkynnir dómarinn hátíðlega. -
“Þú dæmist saklaus og ert frjáls ferða þinna.”
“Þýðir þetta þá að ég megi halda öllu þýfinu?”
ÞAÐ ÞARF AÐ SEGJA FERÐAMÖNNUM FRÁ ÞESSU !!
- Fært af minna þann 11. nóvember 2011. Flokkað undir Alþjóðamál, Efnahagur
- Rita ummæli »
Það þarf að segja ferðamönnum frá því hvernig þeir eigi að bragðast við ef bíll þeirra bilar eða ef þeir villast í ferðum sínum hér á landi….
td eins og núna eru fleiri hundruð manns að leita ferðamanns frá svíþjóð…
bíllinn hanns fanst í gær…
við Íslendingar vitum þó að ef eithvað kemur fyrir þá
eigum við að halda okkur í bílnum þar til að aðstoð berst,
mér sýnist að þurfi að bætu úr þessu og fr´ða þá ferða menn betur sem að hingað koma
…kv minna
Af hverju er ekki lengur hægt að blogga við fréttir ???
- Fært af minna þann 11. nóvember 2011. Flokkað undir Alþjóðamál, Efnahagur
- Rita ummæli »
Ætlaði að blogga við frétt hérna…en svo er það ekki hægt lengur …hummmm
ekki gott það
….kv minna
Aumkunarvert!!
- Fært af minna þann 9. nóvember 2011. Flokkað undir Alþjóðamál, Efnahagur
- Rita ummæli »
Aumkunnarvert finnst mér þegar að fólk getur skrifað komment inn á bloggið hjá mér en
getur ekki staðið undir nafni ..það geri ég þó …og skamast mín ekkert fyrir það..
Ég held fram mínum skoðunum hér og veit ekki betur en að þetta sé frjálst land og mér sé fullkomlega heimilt að setja mínar skoðanir hér inn….
að það meiði einhvern já það getur vel verið …en það meiddi mitt fólk líka …það þurfið þið að átta ykkur á .
og enn eitt til mín hafi hringt fjöldin allur af konum sem að hafa lent í svipuðu ofbeldi og eru þakklátar fyrir að ég hafi stigið svona fram…
sumar þeirra hafa ekki fengið eins góð viðbrögð lögreglu og ég fékk á sínum tíma og segjast þær oft hafa beðið í marga klukkutíma eftir að lögregla mæti á staðin …….( ef hún mæti )
þetta þykir mér afskaplega sárt að heyra og vona ég að lögregla láti þetta ekki spyrjast um sig.
(þetta eru jú konur í mikilli neyð.)
ég vil svo þakka þeim sem að hafa hringt til mín og sent mér sms og
hvatt mig áfram í því sem að ég er að gera…
knús til ykkar allra elskurnar,
ps líka ykkar sem að standið með ofbeldis mönnum…og munið að
kærleikur og réttlæti
sigrar alltaf að lokum.
….kv minna
KONUR VARIÐ YKKUR Á ÞESSUM !!
- Fært af minna þann 7. nóvember 2011. Flokkað undir Alþjóðamál, Efnahagur
- 17 ummæli »
D Ó M U R
Héraðsdóms Norðurlands eystra miðvikudaginn 26. október 2011 í máli
nr. S-123/2011:
Ákæruvaldið
(Eyþór Þorbergsson fulltrúi)
gegn
X= Guðlaugur Smári Jóhannsson.
(Ingvar Þóroddsson hdl.)
Mál þetta, sem var dómtekið 28. september sl., höfðaði sýslumaðurinn á Akureyri 16. júní sl. á hendur X, kt. 000000-0000;
„fyrir líkamsárás, með því að hafa mánudagsmorguninn 14. febrúar 2011, ráðist að sambýliskonu sinni A, kt. 000000-0000, í eldhúsi á þáverandi sameiginlegu heimili þeirra að [...], gripið í föt hennar, og ýtt henni upp að vegg og slegið hana einu sinni í andlitið með krepptum hnefa, þannig að hún féll í gólfið, og síðan sparkað einu sinni í fætur hennar. Afleiðingar þessarar árásar urðu að hún hlaut mar og bólgu yfir vinstra kinnbeini og sprungna æð í vinstra auga.
Telst þetta varða við 1. mgr. 217. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940, sbr. 10. gr. laga nr. 20, 1981.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til alls sakarkostnaðar.
Einkaréttarkrafa.
Í málinu gerir A, kt. 000000-0000, [...], bótakröfu á hendur ákærða að fjárhæð kr. 500.000 með vöxtum samkvæmt 8. gr., sbr. 4. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38, 2001 frá 10.04.2011, til þess dags er mánuður er liðinn frá því að bótakrafa þessi var kynnt ákærða, en dráttarvöxtum frá þeim degi, sbr. 1. mgr. 6. gr. sömu laga til greiðsludags.“
Ákærði krefst þess aðallega að verða sýknaður en til vara að verða dæmdur til vægustu refsingar sem lög leyfa og eftir atvikum að hún verði skilorðsbundin. Hvað bótakröfuna varðar krefst hann þess aðallega að henni verði vísað frá dómi, til vara sýknu og til þrautavara að hún verði lækkuð verulega. Þá krefst hann þess að sakarkostnaður verði greiddur úr ríkissjóði og skipuðum verjanda dæmd hæfileg máls varnarlaun.
I.
Aðfaranótt mánudagsins 14. febrúar 2011 kl. 05:21 hafði brotaþoli, A, samband við lögreglu og óskaði eftir aðstoð vegna líkamsárásar. Lög reglumennirnir María Jespersen og Vagn Kristjánsson hittu hana fyrir utan við …. Segir í frumskýrslu lögreglumannanna að hún hafi verið með greini legan áverka við vinstra auga, mar og roða í því. Eftir henni er haft að hún hafi nýlega verið farin að búa með ákærða ásamt 12 ára syni sínum. Ákærði neyti mikils áfengis og kvöldið áður hafi hann verið búinn að drekka það mikið að hún hafi ákveðið að fara með son sinn í íbúð sem hún ætti í … til að gista þar. Hún hafi þurft að fara heim til ákærða til að sækja föt og fleira fyrir drenginn áður en skóli hæfist og vonað að ákærði væri sofandi. Þetta hafi verið rétt fyrir klukkan 05:30 (svo!). Ákærði hafi verið vakandi og hafi komið til einhverra orðaskipta milli þeirra, þar sem hún hafi haft orð á því að hann ætti við drykkjuvandamál að etja og þyrfti að fara í meðferð við því. Hann hafi þá brugðist illa við og slegið hana einu föstu hnefahöggi í andlitið svo hún hafi fallið við. Þá hafi hann einnig sparkað í fætur hennar þar sem hún hafi legið á eldhúsgólfinu. Hún hafi síðan staðið á fætur og farið út og hringt eftir aðstoð.
Lögreglumennirnir óku A á slysadeild og leiðbeindu henni um „kæruferli í líkamsárásarmálum.“
Í málinu liggur frammi upplýsingaskýrsla lögreglu, dagsett 22. febrúar 2011, þar sem segir að þann dag hafi enginn haft frekara samband við lögreglu vegna þessa atviks og engar kröfur hafi verið lagðar fram, hvorki um bætur né refsingu. Sé málið því afgreitt frá lögreglu án frekari afskipta.
Þann 16. maí 2011 kom A á lögreglustöð og kærði. Hún skýrði svo frá að hún hefði kynnst ákærða fyrir rúmlega einu og hálfu ári og þau hefðu verið búin að búa saman í um tvo mánuði á heimili hans við … . Hún sagði hann hafa drukkið nokkuð mikið og stundum í tvo til fjóra sólarhringa í senn. Hann hefði lofað henni að hætta neyslunni en ekki staðið við það. Þau hefðu fengið sér í glas laugar dagskvöldið 12. febrúar, en ákærði hefði drukkið daginn eftir, farið út og komið heim drukkinn um klukkan 18:00 sunnudaginn 13. febrúar. Þá hefði hún farið með syni sínum, 13 ára gömlum, heim til sín í … . Soninn hefði vantað sundföt, sem hefðu verið í … og hún hefði því farið þangað snemma á mánudags morgni til að sækja sundfötin. Ákærði hefði vaknað. Þau hefðu farið að tala saman við eldhúsborðið og hún sagt honum að þetta samband gengi ekki og hann væri hel vítis drykkjuræfill og yrði að fara í meðferð. Hún hefði staðið harkalega á fætur og ákærði líka, hann gripið framan í föt hennar, ýtt henni upp að vegg og slegið hana einu sinni í andlitið með krepptum hnefa. Höggið hefði lent vinstra megin á andliti hennar, kinnbeini og auga. Höfuð hennar hefði slegist í vegginn. Hún hefði vankast og fallið á gólfið. Meðan hún hefði legið þar hefði hún rankað við sér við það að ákærði hefði sparkað a.m.k. einu sinni í hana og sparkið komið í fæturna. Hann hefði farið út úr eldhúsinu. Hún hefði yfirgefið íbúðina og hringt til lögreglu. Hún hefði fengið slæmt glóðarauga á vinstra auga, blætt hefði inná það og síðan hefði komið í ljós að rót hefði drepist í vinstri hliðarframtönn og tannlæknir metið það svo að það gæti hafa orsakast af þessu höggi.
Lögregla yfirheyrði ákærða 10. júní 2011. Hann skýrði svo frá að þau A hefðu kynnst fyrir um einu og hálfu ári, aldrei búið saman en verið kærustupar. Hann neitaði því alfarið að hafa slegið A. Þeim hefði orðið sundurorða en engin átök hefðu orðið. Hann lýsti aðdragandanum svo að hann hefði verið að drekka kvöldið áður, en farið að sofa þegar hann hefði komið heim. Hann hefði vaknað rétt fyrir klukkan fimm við hurðaskelli og mikinn umgang, farið fram og séð A komna. Þau hefðu sest við eldhúsborðið og rætt saman, hún hefði orðið æst og ausið yfir hann svívirðingum. Hann hefði verið rólegur og ekki svarað neinu, hún hefði æst ennþá meira, velt eldhúsborðinu við, ráðist að dauðum hlutum í eldhúsinu og þeytt stólum til og frá. Hann hefði farið inn í herbergi sitt en A verið eftir frammi. Hann hefði heyrt umgang í henni og litið fram aftur. Þá hefði hann séð hana liggja á eldhúsgólfinu innan um stóla og borð. Hann hefði sagt henni að skilja eftir lykla að íbúðinni þegar hún færi, en hún engu svarað. Hann hefði farið aftur inn í herbergi og heyrt hana skömmu síðar fara og skella á eftir sér.
Fyrir liggur texti úr bráðasjúkraskrá slysadeildar vegna komu A 14. febrúar 2011 kl. 05:33. Textinn er saminn af B, kandídat. Þar segir að A hafi komið í fylgd lögreglu á slysadeild. Hún hafi verið að hitta mann síðastliðið eitt og hálft ár og að mestu leyti búið heima hjá honum ásamt 12 ára gömlum syni sínum. Maðurinn hafi drukkið mikið að undanförnu að sögn A og kvöldið áður hafi hún fengið nóg og flutt út af heimilinu. Í morgunsárið eða um klukkan fimm hafi hún ætlað að finna dót í skólann fyrir son sinn og farið að sækja það. Maðurinn hafi vaknað og þau farið að ræða saman og hún sagt honum að samband þeirra gengi ekki lengur nema hann tæki sig á í drykkjunni og færi í meðferð. Við það hafi hann reiðst og slegið til hennar með höggi á vinstri kinn. Hún hafi fallið í gólfið og að eigin sögn fundist sem hún hefði dottið út í nokkrar sekúndur. Hún hafi lýst sársauka yfir vinstra kinnbeini. Maðurinn hafi slegið til hennar í þetta eina sinn og aldrei verið ofbeldisfullur gagnvart henni áður. Síðan segir að sjá hafi mátt byrjandi mar og bólgu yfir vinstra kinnbeini. Æð hafi sprungið í vinstra auga og blætt og sé það orðið rautt. Ekki hafi verið að sjá neitt opið sár og engin fersk blæðing verið í andliti. Þreifieymsli hafi verið yfir vinstra kinnbeini neðan við enda á vinstra auga. Þar hafi verið komið fram mar og bólga á svæði um 5 x 3 sentímetrar í þvermál.
II.
Ákærði kvaðst fyrir dómi hafa verið að heiman allan sunnudaginn. Hann hafi drukkið bjór og fundið einhverja breytingu á sér um það leyti sem hann hafi komið heim. A og sonur hennar hafi verið heima við, en hann ekki haft mikil samskipti við þau. Hann hafi farið snemma að sofa, ekki seinna en kl. 9 um kvöldið. Hann hafi vaknað klukkan hálffimm um morguninn við það að A hafi verið að róta í skápum og hirslum. Hún hafi reynt að æsa hann upp en ekki tekist það og orðið reið og sópað munum af eldhúsborðinu. Hann hafi farið inn í herbergi og heyrt brambolt í eldhúsinu, þá farið fram aftur og séð A liggja á eldhúsgólfinu, en borð og stólar hafi verið úti um allt. Hann hafi sagt við hana að hún skyldi skila lyklum og farið aftur að sofa. Hann kvaðst ekki hafa athugað hvort hún væri með meðvitund eða ekki og tók fram að hann sæi eftir því að hafa ekki gert svo.
A skýrði frá því að þau ákærði hafi búið saman, en hún hafi ekki verið búin að flytja lögheimili sitt. Ákærði hafi komið ölvaður heim á sunnudegi og hafi hún þá farið með son sinn að heiman. Hún hafi farið um nóttina til að sækja íþróttaföt á soninn. Ákærði hafi vaknað og þau rætt saman. Hafi hún sagt að þetta gengi ekki og hann væri fyllirísræfill. Hún hafi staðið snöggt upp og eldhúsborðið hafi titrað við það og eitthvað fallið af því. Ákærði hafi þá slegið hana svo hún vankaðist. Hún kvaðst minnast þess að hann hafi sparkað í fætur hennar meðan hún lá á gólfinu. Hún hafi síðan farið út en fundið að hún væri ennþá of vönkuð til að aka heim og hringt til lögreglu. Hún kvaðst hafa farið á lögreglustöð um viku seinna til að kæra, en þá hefði enginn verið viðlátinn til að sinna erindi hennar. Hafi farið svo nokkrum sinnum áður en tekin var af henni lögregluskýrsla. Hún kvaðst hafa farið nokkru síðar heim til ákærða með menn með sér til að sækja pjönkur sínar og hafi ákærði þá sagt að þetta hefði verið gott á hana.
Lögreglumennirnir María Jespersen og Vagn Kristjánsson gáfu skýrslur fyrir dómi og staðfestu frumskýrslu Maríu, sem áður hefur verið rakin efnislega. Í fram burði Maríu kom fram að hún myndi eftir að líklega um viku eftir atvikið hefði A komið á lögreglustöð og viljað tala við rannsóknarlögreglumann, en kvaðst ekki geta sagt til um það hvort hún hefði fengið því erindi framgengt.
Fyrir dóminn kom C, sem var einn þeirra sem hjálpaði A að sækja dót heim til ákærða. Minntist hann þess að ákærði hefði sagt að eitthvað hefði verið gott á A og kvaðst hafa ályktað að þar ætti hann við það að hann hefði slegið hana.
Framangreindur læknir, B, gaf skýrslu símleiðis og staðfesti efni bráðasjúkraskrár og skýrði það.
III.
Ákærði og A eru ein til frásagnar um atvik í eldhúsinu á heimili ákærða á þeim tíma sem ákæran greinir. Hefur A frá upphafi staðfastlega borið að ákærði hafi greitt sér hnefahögg, en ákærði kveðst hafa komið að henni liggjandi í eldhúsinu og snúið frá henni þar án þess að athuga hvað komið hefði fyrir. Áverki a er þess eðlis að af honum verður ekki ráðið með fullri vissu hvort leggja beri frásögn hennar eða ákærða til grundvallar, þar sem ekki verður útilokað að hann hafi komið til við fall. Enginn grunur leikur á því að A hafi verið undir áhrifum áfengis eða lyfja. Ákærði mun hafa sofnað undir einhverjum áfengisáhrifum, en ekki verður annað lagt til grundvallar en að þau hafi verið runnin af honum eftir svefninn, að mestu eða öllu leyti. Ákærði og A eru sammála um að þeim hafi orðið sundurorða áður en hún fékk áverkann. Þegar af þeirri ástæðu að ákærði gat allt eins átt við það að A hefði hlotið glóðarauga af falli, hafi hann sagt að það væri ,,gott á hana“, verður ekkert sérstakt ályktað af framburði hennar og vitnisins C um það atriði.
Framburður A um að ákærði hefði slegið hana kom fram þegar eftir atvikið samkvæmt skráðri frásögn lögreglumanna og læknis og hefur verið stöðugur um það síðan. Er hún samkvæm sjálfri sér í öllum meginatriðum, bæði að því leyti sem haft er eftir henni í frumskýrslu lögreglu og bráðasjúkraskrá og síðan við skýrslu töku fyrir lögreglu og dómi. Skýring hennar á því hversu langur tími leið uns hún kærði fær stoð í framburði Maríu Jespersen og verður því metin trúverðug.
Þótt það sé ekki útilokað eins og nefnt er hér að framan, að áverki A geti hafa orsakast af falli, er það til muna ólíklegri skýring á honum en sú sem hún ber um. Þá eru viðbrögð ákærða með nokkrum ólíkindum, ef svo var sem hann segir að hann hafi komið að A liggjandi á eldhúsgólfinu en ekki athugað hvort hún væri með meðvitund og hvað fyrir hana hefði komið. Gerir þetta frásögn hans ótrúverðugri en ella. Að þessu virtu verður frásögn A metin trúverðug og lögð til grundvallar dómi. Verður talið nægilega sannað með framburði hennar að ákærði hafi slegið hana hnefahögg í greint sinn, með þeim afleiðingum sem ákæra greinir. Gegn neitun ákærða verður ekki talið sannað að hann hafi sparkað í fætur hennar eða að höfuð hennar hafi slegist í vegg, þar sem engin meiðsli gefa það til kynna. Verknaður ákærða varðar við tilgreint refsiákvæði í ákæru.
Hér að framan er rakin stuttlega frásögn A og ákærða um samband þeirra. Ljóst er að það var fyrir hendi í einhverri mynd og hún var a.m.k. nokkuð tíður gestur á heimili ákærða, þótt þau greini á um það hvort hún hafi verið flutt til hans eða ekki. Jafnvel þótt svo yrði litið á að þau hafi verið nákomin í skilningi 3. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 með síðari breytingum, verður litið til atvika og þess að hér var um einstakt tilvik að ræða. Eru þegar af þeirri ástæðu ekki efni til að beita því ákvæði við ákvörðun refsingar.
A varð fyrir árásinni eftir að hún hafði kallað ákærða drykkjuræfil eða fyllirísræfil. Þrátt fyrir það verður ekki litið svo á að hún hafi átt með því upptök að árásinni í skilningi 3. mgr. 218. gr. b. almennra hegningarlaga með áorðnum breytingum, og þótt ummælin væru móðgandi verða þau hér ekki metin stórfelld móðgun í skilningi 4. tl. 1. mgr. 74. gr. sömu laga, eins og aðstæðum var háttað. Á hinn bóginn verður litið til 8. tl. 1. mgr. 70. gr. sömu laga og haft í huga við ákvörðun refsingar að ákærði lét A liggja eftir og gekk sjálfur til náða eftir að hann hafði unnið verkið.
Ákærði var dæmdur þann 16. október 2009 í eins mánaðar fangelsi, skilorðs bundið í tvö ár, fyrir brot gegn 1. mgr. 106. gr. almennra hegningarlaga. Hefur hann nú rofið skilorð þess dóms og ítrekað ofbeldisbrot, sbr. 1. mgr. 218. gr. b. almennra hegningarlaga, sbr. 4. gr. laga nr. 83/2005. Ber að taka dóminn upp og dæma ákærða refsingu í einu lagi fyrir bæði brotin eftir reglum 77. gr. almennra hegningarlaga. Ákveðst hún fangelsi í þrjá mánuði. Rétt þykir að skilorðsbinda hana að hluta eins og greinir í dómsorði, en ekki þykir fært að skilorðsbinda hana að fullu.
Bótakrafa er rakin í ákæru og liggur greinargerð um hana frammi í málinu. Hún var nánar reifuð við munnlegan málflutning. Fallist verður á að ákærði hafi bakað sér bótaskyldu gagnvart brotaþola. Verður ekki fallist á aðal- og varakröfur hans varð andi bótakröfuna.
Í þrautavarakröfu byggir ákærði á því að krafa um miskabætur sé allt of há og verður fallist á það. Þykja miskabætur hæfilega ákveðnar 150.000 krónur. Fallist verður á það með ákærða að miða hana við verðlag á þeim tíma þegar hún var sett fram og kynnt ákærða stuttu seinna. Verða því ekki dæmdir vextir á fjárhæðina, en dráttarvextir dæmdir frá 10. júlí 2011 til greiðsludags.
Þótt þess sé ekki getið í ákæru, er í greinargerð um bótakröfu höfð uppi krafa um ,,þóknun vegna réttargæslu úr hendi sakbornings samkvæmt mati réttarins eða samkvæmt síðar framlögðum málskostnaðarreikningi, að viðbættum virðisaukaskatti á réttargæsluþóknun.“ Er síðar í greinargerðinni vísað til 48. gr. laga nr. 88/2008, kröf unni til stuðnings. Þar segir að þóknun skipaðs réttargæslumanns skuli ákveðin í dómi eða úrskurði. Einnig er þar kveðið á um að slík þóknun teljist til sakarkostnaðar.
Brotaþola hefur ekki verið skipaður réttargæslumaður. Þessi þáttur í kröfugerð hennar er verulegum annmörkum háður. Þó verður litið til þess að gerð er krafa um þóknun úr hendi sakbornings og þess að ákærði hefur ekki hreyft andmælum gegn þessum þætti sérstaklega. Með þetta í huga þykir mega líta svo á að átt sé við málskostnað, sbr. 3. mgr. 176. gr. laga nr. 88/2008 og að ekki sé brýn skylda að vísa þessum þætti sjálfkrafa frá dómi. Verður ákærði að þessu athuguðu dæmdur til að greiða brotaþola 62.750 krónur í málskostnað.
Ákærði verður dæmdur til að greiða sakarkostnað, sem enginn er annar en máls varnarlaun skipaðs verjanda hans, Ingvars Þóroddssonar hdl. sem ákveðast eins og greinir í dómsorði að virðisaukaskatti meðtöldum.
Dóm þennan kveður upp Erlingur Sigtryggsson, héraðsdómari.
D Ó M S O R Ð :
Ákærði, X,= Guðlaugur Smári Jóhannsson, sæti fangelsi í þrjá mánuði, en fresta ber fullnustu tveggja mánaða þar af. Skal sá hluti refsingarinnar falla niður að liðnum tveimur árum frá uppsögu þessa dóms að telja, haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.
Ákærði greiði A 150.000 krónur, með dráttarvöxtum skv. 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38, 2001 frá 10. júlí 2011 til greiðsludags og 62.750 krónur í málskostnað.
Ákærði greiði 225.900 krónur í sakarkostnað, sem er málsvarnarlaun skipaðs verjanda hans, Ingvars Þóroddssonar héraðsdómslögmanns.
Hér kemur mynd af Þolanda….
Brot gegn valdstjórninni | Skilorð
D Ó M U R
Héraðsdóms Norðurlands eystra föstudaginn 16. október 2009 í máli
nr. S-204/2009:
Ákæruvaldið
(Eyþór Þorbergsson fulltrúi)
gegn
Guðlaugi Smára Jóhannssyni
(Ingvar Þóroddsson hdl.)
Mál þetta, sem dómtekið var í gær, er höfðað með ákæru ríkissaksóknara, útgefinni 25. ágúst 2009, á hendur Guðlaugi Smára Jóhannssyni, kt. 000000-0000, Smárahlíð 12c, Akureyri, fyrir
„brot gegn valdstjórninni, með því að hafa laugardaginn 4. apríl 2009, að Fífuhvammi 1, Fellabæ, slegið Hjalta Bergmar Axelsson lögreglumann í andlitið, er hann hafði afskipti af ákærða vegna skyldustarfa sinna.
Telst þetta varða við 1. mgr. 106. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 1. gr. laga nr. 25/1987.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.“
Ákærði hefur fyrir dómi skýlaust játað sök samkvæmt ákæru. Með játningu þeirri, sem fær stoð í gögnum málsins og engin ástæða þykir til að draga í efa, er hann sannur að sök og hefur unnið sér til refsingar.
Við ákvörðun refsingar verður litið til játningar ákærða og þess að honum hefur ekki áður verið gerð refsing. Ákærði kvaðst fyrir dómi hafa slegið umræddan lögregluþjón með flötum lófa og verður miðað við það. Þá lýsti ákærði mikilli iðrun vegna gjörðar sinnar og þykir dóminum engin ástæða vera til að efast um hana. Við ákvörðun refsingar verður horft til þessa alls. Á hinn bóginn er ekki unnt að horfa fram hjá því, að alvörumál er að slá einkennisklæddan lögregluþjón við skyldustörf, en lögreglan hafði í umrætt sinn verið kvödd á einkaheimili að ósk húsráðanda. Þegar á allt er horft verður ákærði dæmdur til eins mánaðar fangelsis en rétt þykir að fresta fullnustu refsingarinnar og falli hún niður að liðnum tveimur árum haldi ákærði almennt skilorð.
Ákærði verður dæmdur til að greiða málsvarnarþóknun verjanda síns, Ingvars Þóroddssonar héraðsdómslögmanns, 38.900 krónur, og hefur þá verið litið til reglna um virðisaukaskatt. Annar sakarkostnaður féll ekki til.
Af hálfu ákæruvaldsins fór með málið Eyþór Þorbergsson fulltrúi lögreglustjórans á Akureyri.
Þorsteinn Davíðsson kveður upp dóm þennan.
D Ó M S O R Ð
Ákærði, Guðlaugur Smári Jóhannsson, sæti fangelsi í einn mánuð. Fullnustu refsingarinnar skal frestað og niður skal hún falla að liðnum tveimur árum haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Ingvars Þóroddssonar héraðsdómslögmanns, 38.900 krónur.
Þorsteinn Davíðsson.
GERENDUR EINELTIS ERU MORÐINGJAR.
- Fært af minna þann 27. september 2011. Flokkað undir Alþjóðamál, Efnahagur
- 684 ummæli »
Frá því að ég byrjaði að blogga hef ég af og til sett inn ýmsar greinar um einellti og níð ýmiskonar.
Enn og aftur ætla ég að skrifa um einellti
Einellti getur leitt til þess að sá sem fyrir því verður tekur líf sitt,
sem að sannast hefur nú á síðustu dögum og vil ég vitna í dreng á suðurnesjum sem að það gerði ,aðeins 11 ára gamall.
Ég skil samt ekki eitt af hverju er gerendum enn og aftur hampað ??
og skuldinni skellt á þann sem að fyrir einelltinu varð
(DÆMI ) Allir hlupu af stað með bænastund í skólanum að sjálfsögðu var það fyrir gerendur einelltisinns (morðingjanna)..já ég segi morðingjanna vegna þess að það sem að gerendurni gerðu leiddi til þess að drengurinn tók líf sitt hann sá enga aðra leið út úr aðstæðum,
gerendum er alltaf hampað í þessu þjóðfélagi,mín skoðun er sú að börn speigla heimilin, og ef þú ert gerandi einelltis þá er orðin stór spurning hvernig sé heima hjá barninu,
eitt vil ég líka segja um einellti það er eins með það og, kynferðislega misnotkun,að sá sem fyrir því verður er brotin á sál og líkama ..alla ævi. og það skrifast sem sálar morð… sem sagt morð
kv minna
SKILDULESNING TIL ÖKUMANNA !!
- Fært af minna þann 12. september 2011. Flokkað undir Efnahagur, Fjölmiðlar
- 609 ummæli »
Ég sá þig faðma veskið þitt nær þér í matvörubúðinni,
en þú sást mig ekki setja 5000 krónur í safnaðarbaukinn í kirkjunni á sunnudaginn.
Ég sá þig draga börnin þín nær þér þegar þú mættir mér á gangstéttinni,
en þú sást mig ekki leika jólasvein á barnaspítalanum.
Ég sá þig hætta við að fara inn á veitingastaðinn,
en þú sást mig ekki á söfnuninni fyrir svöng börn í Afríku.
Ég sá þig skrúfa upp rúðuna á bílnum þínum og hrista höfuðið þegar ég ók framhjá,
en þú sást mig ekki keyra fyrir aftan þig þegar þú hentir sígarettunni út um gluggan hjá þér
Ég sá þig gretta þig þegar ég brosti til barnana þinna,
en þú sást mig ekki þegar ég fór með leikföng í athvafið.
Ég sá þig horfa með hneikslunar svip á leðurgallana okkar,
en þú sást okkur ekki fara með úlpur og hlý föt til heimilislausra.
Ég sá þig horfa með óttasvip á húðflúrin mín,
en þú sást mig ekki gráta þegar börnin mín fæddust og
lét skrifa nöfn þeirra í og yfir hjartað mitt.
Ég sá þig skipta um akrein að flýta þér eitthvað,
en þú sást mig ekki á leið minni heim til fjölskyldunnar.
Ég sá þig kvarta yfir því hversu hávært hjólið mitt væri,
en þú sást mig ekki þegar þú varst að skipta um geisladisk og
ráfaðir yfir á mína akrein.
Ég sá þig öskra á börnin þín í bílnum,
en þú sást mig ekki strjúka hendur barna minna vitandi að þau séu örugg.
Ég sá þig lesandi dagblað eða kort þar sem þú keyrðir niður veginn, en þú sást mig ekki strjúka læri konunnar minnar þegar hún sagði mér að taka næstu hægri beygju.
Ég sá þig æða niður veginn í rigningunni,
en þú sást mig ekki þar sem ég blotnaði inn að beini til
þess að sonur minn gæti fengið bílinn lánaðan á stefnumót.
Ég sá þig fara yfir á gulu ljósi til að spara þér nokkrar sekúndur,
en þú sást mig ekki beygja til hægri.
Ég sá þig svína fyrir mig því að þú þurftir að vera á akreininni sem ég var á,
en þú sást mig ekki fara útaf veginum.
Ég sá þig bíða óþolinmóðan eftir því að vinir mínir færu frammúr,
en þú sást mig ekki…. ég var ekki þar.
Ég sá þig fara heim til fjölskyldunnar þinnar,
en þú sást mig ekki, því að ég dó þennan dag, þú svínaðir á mig.
Ég var bara mótorhjólamaður, maður sem átti fjölskyldu og vini,
en þú sást mig ekki, bara leðrið og hjólið.
Virðum mótorhjólafólk sem annað fólk.
Tekið af síðu vélhjólaklúbbsins HSL
Asninn !!!
- Fært af minna þann 9. september 2011. Flokkað undir Alþjóðamál, Efnahagur
- 1.399 ummæli »
Arion Bannki gefur miljarða til heilbrigðis kerfisinns !!!!
- Fært af minna þann 9. september 2011. Flokkað undir Alþjóðamál, Efnahagur
- 933 ummæli »
ENGINN VEIT HVAÐ MORGUNDAGURINN VEITIR MANNI..
- Fært af minna þann 5. september 2011. Flokkað undir Alþjóðamál, Efnahagur
- 25 ummæli »
Enginn veit hvað morgundagurin veitir manni ,
en eitt er víst að best er að þakka og njóta þess sem að við höfum,því þegar að er gáð þá er oftast eithvað fallegt og gott í kringum okkur sem ljúft er að njóta,og getið jafnvel notið samann,til dæmis þessi yndislegi dagur.ferskur andvari smá kul,ljúft að draga andan í svo hreinu og tæru lofti..ekki er það nú öllum gefið að hafa hreint og tært loft,fallegu haust litirnir á trjám gulur brúnn og grænn rauður,hvað getur verið hreinna og tærara en yndislegu náttúru litirnir,
vona að þið mínir yndisleguvinir hér á Blogginu eigið ,góðan og
blessaðan dag ,og göngum inn í hann með gleði í hjarta,.
því hver veit hvað framtíðin ber í skauti sér…
HEIL OG SÆL ÖLL
- Fært af minna þann 27. ágúst 2011. Flokkað undir Alþjóðamál, Fjölmiðlar
- 4 ummæli »
Jabb það er kominn tími á blogg :0)
er nokkuð hress bara, en er ekki viss um að þið viljið nokkuð um það vita.
en það er þvílíkt stuð hjá mér þessa daganna,
ég demdi mér í Mótorhjóla próf
og í tilefni þess að ég verð fimmtug á þessu ári þá
gaf yndislegi kærastinn minn mér mótorfák..
svo núna er ég bara alltaf út að hjóla ..jámm love it.
Þetta er því líkt gaman.
ætla að reina að setja inn mynd af fáknum hérna
Svo er Akureyrar bær 149 ára á mánudaginn
afmælis kveðjur til ykkar allra, Akureyringar.
Ég vona að þið eigið góða helgi kæru vinir
verið góð hvort við annað.
Það má aldrei gefast upp ..
- Fært af minna þann 3. júní 2011. Flokkað undir Alþjóðamál, Fjölmiðlar
- 594 ummæli »
Það má aldrei gefast upp gegn eiturlyfjum
Ef að gefist er upp gegn eiturlyfjum má
reikna með að ráðamenn landa í heiminum,
og Ríkisstjórnir landa í heiminum,
komi til með að nota dópið
og hvernig verður heimurinn þá
uffff ekki er það gott fyrir
kv minna
EINELTI ER LÖGREGLUMÁL !!
- Fært af minna þann 9. mars 2011. Flokkað undir Alþjóðamál, Fjölmiðlar
- 611 ummæli »
EINELLTI ER LÖGREGLUMÁL
Ég á dóttir sem að er 22 ára í dag..hún lenti í miklu einelti..ég segi eins og þessi kona ég reindi að gera allt.það skrítna við þetta allt saman er að telpan mín var tekin í viðtöl hjá skólasálfræðingi..en ekki gerendurnir.eftir þó nokkur viðtöl hafði ég samband við .sálfræðingin og spurði hvort að ekki væri komin lausn á málið.
en hún sagði mér að það væri ekkert að dóttir minni ..dugleg stúlka hrein og bein og ljúf og góð.auðvita vissi ég þetta og sagði sálfræðingnum það,og spurði hvenær ætti að tala við gerendurna.en þá sagði hún mér að það yrði ekki gert..mig rak í roga stans..nei ekkert gert til að hjálpa þeim sem að eiðileggja jafnvel líf þeirra barna sem fyrir eineltinu verða,
Ég hafði samband við skólaskrifstofu og talaði þar við yfirmann,spurði hann hvort að það væri bara ekki betra að flytja hana um skóla,en hann neitar því.sem sé ,dóttir mín átti að mæta í þennan skóla og þola það að vera limlest líkamlega ásamt endalausum háðsglósum í hennar garð.
Ég spurði sálfræðingin einnig hvað hann mundi gera ef þetta væri hanns barn,og hann héllt því blákallt framm að hann mundi halda áfram að senda sitt barn í skólann ,sama hvað gengi á.
Þetta var hanns mat en ég get sagt ykkur að ég veit að hann mundi aldrei láta barnið sitt ganga gegnum það sem að dóttir mín þurfti að ganga gegnum.Það gerir ekkert foreldri .
Ég vil taka fram að dóttir mín er og var myndar stúlka afburða sundmaður,og þjálfaði sund á þessum tíma og fór ekki svo ofaní sundlaugina öðruvísi en að koma upp með gull verðlaun,þetta þoldu hinir krakkarnir ílla.
Endirinn varð sá að ég tók dóttur mína úr skólanum og kendi henni sjálf í 3 mánuði síðan læddist hún bakdyrameginn inn í skólann til að taka vorpróf þetta vorið.
um sumarið vorum við í Danmörku og nutum okkar þar í 2 mánuði .en þegar að átti að fara heim þá vildi sú stutta ekki fara sagðist alls ekki vilja byrja aftur í þessum skóla,
Ég hringdi í skólann frá Danmörku til að heyra hvað gert hefð verið vegna þessa eineltis og fékk þau svör að ekkert hefði verið gert og engar ráðstafanir yrðu gerðar vegna þessa,
Þá var mér allri lokið vildi ekki legja þetta lengur á dóttur mína við komum upp til Íslands og ég geng í það að koma dóttur minni í annan skóla,hún varð reindar að sækja þann skóla í annað bæjarfélag þar sem að eineltisskólin er eini skólinn í því bæjarfélagi sem að við bjuggum í,og þurfti ég að keira með hana langar leiðir í og úr skóla.
Ég reindi allt en ekkert gerðist til hjálpar dóttur minni !!!!!
en núna þegar að ég hugsa til baka þá er ein leið sem að ég fór ekki..
þarna var mikið ofbeldi í gangi hún kom oft heim skrámuð og með marbletti hingað og þangað um líkamann
OG OFBELDI Á AÐ KÆRA TIL LÖGREGLU OFBELDI ER LÖGREGLUMÁL
Svo að ég vil benda þeim á sem að eru að lenda í þessu með börnin sín í dag
KÆRIÐ ÞETTA TIL LÖGREGU
Í barnaverndar lögum segir að börn eigi að líða vel bæði andlega og líkamlega
þarna er ekkert gert til að hjálpa börnunum og fólkið sem að þessu kemur ekki starfi sínu vaxið og færi best á því að Reka þetta fólk úr starfi
Þetta er reynsla mín um ofbeldi barnsins míns .
…kv minna
UFFF pínu óhugnalegt:
- Fært af minna þann 4. mars 2011. Flokkað undir Efnahagur, Fjölmiðlar
- 5 ummæli »
Vilja þurrfrysta lík og gróðursetja tré ofan á leiðið Mér finnst þessi hugmynd smá óhugnaleg, en kanski er þetta málið..
og ef þarf að ná dna einhverntíma seinna þá er bara að taka sneið af trénu..
ööööööööööööö !!!!
I like you
- Fært af minna þann 26. febrúar 2011. Flokkað undir Alþjóðamál, Fjölmiðlar
- 5 ummæli »
OFBELDI….
- Fært af minna þann 21. febrúar 2011. Flokkað undir Efnahagur, Fjölmiðlar
- 29 ummæli »
Ofbeldi og kúgun í samböndum og samskiptum
Hvenær er það orðið skaðlegt?
Þegar við hugsum um ofbeldi kemur líkamlegt ofbeldi yfirleitt fyrst upp í hugann. Ofbeldi getur þó verið margþætt og er gjarnan skipt upp í þrjá flokka: 1) líkamlegt ofbeldi, 2) andlegt ofbeldi og 3) kynferðislegt ofbeldi. Hér á eftir koma nokkur dæmi um ofbeldi og/eða kúgun:
Líkamlegt Andlegt/félagslegt Kynferðislegt
Klípa Uppnefna eða gera lítið úr (Þegiðu þarna,
tæfan þín. Þú ert svo mikill hálfviti). Kyssa eða snerta þegar viðkomandi vill það ekki (t.d. káfa á brjóstum).
Henda hlut í einhvern Koma í veg fyrir að maður geti verið með vinum og fjölskyldu Koma í veg fyrir að maður gisti hjá vinum eða komist í afmæli. Neyða einhvern til að ganga lengra en hann/hún vill (t.d. heimta munnmök eða endaþarmsmök þegar hann/hún vill það ekki).
Klóra Fylgjast með ferðum einhvers (Þú sagðist ætla á æfingu en ég veit að þú fórst ekki) Harkalegt kynlíf sem viðkomandi vill ekki.
Hrinda Segja einhverjum fyrir verkum (Vertu komin heim fyrir kl. 8. Náðu í vatn fyrir mig). Koma í veg fyrir að viðkomandi geti notað getnaðarvörn eða kynsjúkdómavörn.
Toga í hár Stjórna fatavali (Þú ert eins og drusla í þessum bol, skiptu um). Taka kynferðislegar myndir án samþykkis/vitundar.
Bíta Skrifa niðrandi um einhvern á netinu eða bera út sögur í gegnum netið eða sms. Þvinga til kynlífs án samþykkis hans/hennar.
Slá utan undir Hóta að skaða sig
(Ég get ekki lifað án þín
/ég mun drepa mig ef þú hættir með mér).
Sparka Setja myndir, t.d. nektarmyndir, á netið eða senda á milli í gsm.
Kýla
Taka einhvern hálstaki (kyrkja)
Það er ekki nóg að vita hvernig gott samband er heldur þarf einnig að þekkja hvenær samband er orðið skaðlegt. Maður getur sjálfur lent í því að vera í skaðlegu sambandi eða átt vini sem eru í slíku.
Það er mikilvægt að þekkja bæði einkenni sem benda til þess að einstaklingur sé að verða fyrir ofbeldi eða kúgun og einkenni þess að einstaklingur sé að beita slíku.
En hvað ef vinur /vinkona beitir ofbeldi?
Það er ekki nóg að bregðast við og aðstoða þolandann, við þurfum að ganga lengra og aðstoða gerandann líka. Vissuð þið að flestir menn sem beita konur sínar heimilisofbeldi byrjuðu þann feril á unglingsárum? Með góðri hjálp má stöðva slíka þróun hjá ungu fólki. Það má heldur ekki gleyma því að konur geta beitt karlmenn ofbeldi, og það er ekki síður alvarlegt.
Stundum sýna sjónvarpsþættir og bíómyndir karlmenn sem verða fyrir ofbeldi en það er oft sett fram á skoplegan hátt, eins og það sé einhver skömm að verða fyrir slíku, eða þá að karlmennirnir eru sýndir eins og þeir séu alltaf tilbúnir til kynlífsathafna. Ekki láta blekkjast, prufið að snúa við hlutverkum karls og konu í slíku atriði og sjáið hvort það er ennþá fyndið.
Hvernig veit ég að einhver er að beita ofbeldi eða er beittur ofbeldi?
Sá sem beitir ofbeldi getur…
- Notað hótanir eða ofbeldi til þess að leysa vandamál
- Átt erfitt með að ráða við reiði eða vonbrigði
- Missir stjórn á skapi sínu
- Átt við vandamál í skóla
- Verið óörugg/ur með sig, með lélegt sjálfstraust
- Átt erfitt í samskiptum við aðra
- Verið undir áhrifum áfengis eða annarra vímuefna
- Átt erfitt með ræða málin (tala saman)
Sá sem er beittur ofbeldi getur…
- Virst óttast kærustu/kærasta
- Verið marin/n eða með klórför eða önnur merki um meiðsl sem ekki eru skýringar á.
- Virst stjórnað af kærasta/kærustu, sem ákveður hvað á að gera, hvernig á að klæða sig, mála sig o.s.frv.
- Afsakað hegðun kærasta/kærustu
- Minnst á ofsafengið skap hins en gerir svo lítið úr því eða snýr því upp í grín
- Misst áhuga á hlutum sem áður skiptu máli, svo sem áhugamálum eða að hitta vini sína
- Skyndilega breytt útlit eða hegðun
Ofbeldi er oft stigvaxandi
Ofbeldi og kúgun í samböndum byrjar gjarnan smátt en vindur svo upp á sig. Ef ofbeldi eða kúgun endurtekur sig eru nánast engar líkur á að það muni allt í einu hætta, nema að viðkomandi fái hjálp hjá sérfræðingum. Þess vegna þýðir ekki að bíða og vona að einhvern daginn geti maður gert kærustu/kærasta til geðs og þá muni hann eða hún ekki taka skapofsaköst eða beita ofbeldi eða hótunum.
Sá sem beitir ofbeldinu ber alltaf ábyrgð á því!
Sá sem verður fyrir ofbeldinu hefur ekki kallað það yfir sig.
Kúgun byrjar smátt og smátt og því getur oft verið erfitt að átta sig á því að hún eigi sér stað. Í byrjun er það kannski bara afbrýðisamur kærasti/kærasta. Kannski er það bara skemmtilegt fyrst að einhver þarfnist manns og sé að vernda mann. En svo fer það að þýða að maður getur ekki verið með vinum sínum af því að kærastinn/kærastan vill það ekki, eða finnst maður hanga of mikið með vinum sínum.
Hvar og hvenær gerist ofbeldið?
Ofbeldi og kúgun á sér gjarnan stað þegar engin vitni eru. Ungt fólk er hins vegar oft saman í hóp og þá getur verið að vinirnir verði vitni að skaðandi hegðun eða framkomu. Mikilvægt er að hafa hugrekki til þess að skipta sér af því ef mann grunar að vinur eða vinkona beiti ofbeldi eða verði fyrir því. Við getum ekki stjórnað því hvað aðrir gera en oft getur hjálparhönd skipt miklu máli.
Ungt fólk leitar oft frekar til vina sinna heldur en foreldra eða annarra fullorðinna og þess vegna er gott að vita hvað maður getur sagt eða gert.
Sjá meira:Hvað get ég gert?
(framhald af Ofbeldi og kúgun)
Ef þig grunar að vinur eða vinkona sé að verða fyrir ofbeldi eða kúgun eða beitir því er gott að velja vandlega stað og stund til þess að ræða málin. Vertu viðbúin/n að viðkomandi neiti öllu eða bregðist illa við.
Að tala við þann sem er beittur ofbeldi eða kúgun:
Hvað geri ég?
Dæmi:
Hlusta án þess að dæma.
Spyr spurninga sem krefjast nákvæmra svara.
„Hvað gerði hann sem hræddi þig?”
Ber virðingu fyrir tilfinningum hans eða hennar gagnvart sambandinu.
Ekki segja: „Hún er nú bara ekkert þess virði.”
Fæstir eiga bara slæmar hliðar og stundum eru slæm hegðun alveg í mótsögn við margar góðar hliðar einstaklingsins.
Læt viðkomandi vita að mér er umhugað um hann eða hana.
„Ég spyr af því að mér þykir vænt um þig og hef áhyggjur af þér.”
Læt viðkomandi vita að ofbeldi eða kúgun er ekki eðlilegur þáttur í sambandi.
„Nei, mér finnst ekki í lagi að hún öskri á þig þó að þú hafir ekki haft tíma til að hitta hana í gærkvöldi.”
Kem því á framfæri að sá sem beitir ofbeldi eða kúgun ber ábyrgðina.
„Það er ekki þér að kenna að hann/hún missir stjórn á skapi sínu, þó hann/hún kenni þér um” (t.d. af því að þú neitaðir að skipta um bol, eða fórst í partí með besta vini þínum).
Hjálpa viðkomandi að leita aðstoðar ef hann eða hún vill það.
„Ég get komið með þér til námsráðgjafans ef þú vilt.”
Svo er líka hægt að hringja í 1717, hjálparsíma Rauða krossins, og spjalla.
Virði ákvarðanir viðkomandi. Ef vinur kýs að halda áfram að vera í skaðlegu sambandi er samt mikilvægt að hafa einhvern til að tala við.
Búa til öryggisáætlun.
Ég fann þessa grein á síðu landlæknis embættisinns
og má til með að deila þessu með ykkur ..kæru vinir.
Hvet vin minn/vinkonu mína til að taka þátt í félagslífi fyrir utan sambandið.
Hvettu hann/hana til að koma í bíó, partí eða bíltúr eða að hanga með vinum sínum.
Gef ekki misvísandi skilaboð.
„Þetta er ekki þér að kenna” og á sama tíma segja „þú hefðir ekki átt að drekka svona mikið, - fara í partíið, - svara þegar hann/hún kallaði þig fífl.”
Gætið þess líka að hugsa um ykkur sjálf, það er erfitt að aðstoða fólk í þessum sporum og gott að geta sjálfur talað við einhvern eins og vini, eða einhvern fullorðinn.
Stundum er sagt að samfélagið líði ekki ofbeldi. En til þess að það geti verið satt þurfum við öll að taka ábyrgð, bæði með því að sýna það í hegðun og með því að gera sömu kröfu til þeirra sem eru í kringum okkur.
Það krefst hugrekkis að ganga á vin sinn og spyrja hvort að hann eða hún sé í skaðlegu sambandi.
Áður en farið er að ræða málin er gott að velja vel stund og stað og vera búin/n að velta fyrir sér hver viðbrögðin gætu orðið. Viðkomandi gæti orðið reið/ur, sár, neitað öllu eða farið að gráta.
Mikilvægt er að tala af virðingu við fólk.
Spyrja spurninga sem krefjast nákvæmra svara og vera tilbúin/n að hlusta án þess að að dæma eða sýna hneykslun. Það er auðvelt að segja vini sínum eða vinkonu að „dömpa” viðkomandi eða segja fólki fyrir verkum „þú átt bara að…”, en veltu fyrir þér hvernig þessi vinur á eftir að geta átt samskipti við þig í framtíðinni ef að hann eða hún ákveður að halda áfram að vera í sambandinu.
Að tala við vin eða ættingja sem beitir ofbeldi eða kúgun:
Ekki líta framhjá ofbeldi eða kúgun. Ef þú þegir hjálpar það viðkomandi að neita því að eitthvað sé athugavert við framkomu hans eða hennar.
Látið vin ykkar vita að hegðun hans eða hennar sé ekki í lagi.
Útskýrið fyrir vini ykkar hvað það er í hegðun hans/hennar sem er ofbeldisfullt.
Hjálpið vini ykkar að skilja hvað áhrif þetta hefur á þann sem fyrir verður (ótti, treystir ekki, gæti slitið sambandinu).
Sá sem beitir ofbeldi eða kúgun telur sér oft trú um að þetta sé þolanda að kenna. Ekki taka undir þá skoðun, þetta er notað til að réttlæta hegðunina.
Hjálpið vini ykkar að leita sér aðstoðar.
Bendið á að breytt hegðun mun gera sambandið betra fyrir báða aðila.
Af hverju beitir fólk ofbeldi og/eða kúgun?
- Til þess að stjórna hinum aðilanum, hvað hann gerir og hvernig honum líður.
- Viðkomandi heldur að um sé að ræða eðlilega hegðun.
- Viðkomandi finnst hann hafa eignarhald yfir hinum.
- Viðkomandi finnst hann alltaf þurfa að hafa völdin í sínum höndum.
- Viðkomandi óttast að missa virðingu haldi hann eða hún ekki völdunum.
- Viðkomandi kann ekki aðrar leiðir til að takast á við reiði og vonbrigði.
- Viðkomandi hefur komist upp með að fá sitt fram með því að beita ofbeldi eða kúgun.
Hvað er Andlegt ofbeldi ??
- Fært af minna þann 21. febrúar 2011. Flokkað undir Efnahagur, Fjölmiðlar
- 30 ummæli »
Hvað er andlegt ofbeldi
Andlegt ofbeldi er eitt af þeim hugtökum sem er oft farið frjálslega með án þess að skilningur fylgi. Andlegt ofbeldi karla gagnvart konum verður þegar sjálfsmynd konunnar fer að brotna niður og maður nýtir sér það sem stjórntæki. Stjórnunin felst þá í því að maðurinn hefur meiri áhrif á líðan, hegðun og skoðanir konunnar en hún sjálf. Margar konur sem koma í Kvennaathvarfið búa við andlegt ofbeldi jafn sem líkamlegt og kynferðislegt en þó að sár utan á líkamanum gróa fljótt gróa ósýnileg ör andlegs ofbeldis seint. Fleiri konur leita stuðnings hjá Kvennaathvarfinu vegna andlegs ofbeldis en líkamlegs og er það til marks um hversu alvarlegt það getur verið.
Andlegt ofbeldi karla gegn konum getur birst með mörgum hætti en það hefur verið skýrt með þessum hætti:
Einangrun
Þegar komið er í veg fyrir að kona hitti vini og fjölskyldu og jafnvel komið í veg fyrir að hún stundi nám eða vinnu. Tekin eru af konunni persónuskilríki, dvalarleyfi og fylgst er með hverri hreyfingu. Maðurinn hringir stöðugt í konuna til að fylgjast með ferðum hennar, við hverja hún talar, hvað hún sé að gera og hvernig samskiptum hennar við annað fólk er háttað.
Efnahagsleg stjórnun
Maðurinn takmarkar aðgang konunnar að peningum og skammtar henni jafnvel fyrir brýnustu nauðsynjum. Konan þarf að biðja um hverja krónu og hún veit ekki hvernig fjármálum heimilisins er háttað eða hvernig peningunum er ráðstafað. Stundum eru teknir af konunni peningar sem hún á og hún hefur ekki fjárráð yfir eigin aflafé.
Hótanir og ógnanir
Konunni er ógnað með svipbrigðum og bendingum, jafnvel eyðilagðir hlutir sem hún á og eru henni kærir. Maðurinn meðhöndlar vopn eða aðra skaðlega hluti og hótar að beita þeim gagnvart konunni eða meiða börnin. Stundum er konum hótað lífláti eða að maðurinn fremji sjálfsmorð. Ef konan er af erlendum uppruna er jafnvel hótað að láta vísa henni úr landi eða kona er sögð geðveik og réttast væri að vista hana á geðdeild.
Tilfinningaleg kúgun
Konan er brotin niður og niðurlægð með háði og uppnefnum. Hún er stöðugt gagnrýnd og látin finna fyrir vanmetakennd, að hún sé heimsk, barnaleg eða jafnvel geðveik. Hróp og öskur eru hluti af tilfinningalegri kúgun og stöðugar ásakanir fyrir eitthvað sem hún hefur enga stjórn á og er jafnvel verk mannsins sjálfs.
Andlegt ofbeldi getur verið mjög lúmskt og ferlið tekið mörg ár án þess að nokkurn tíman séu lagðar hendur á konuna. Án þess að fólk átti sig á því getur ofbeldið verið orðið mjög gróft en viðmiðin hafa færst til og það sem eru óeðlileg samskipti þykja hversdagsleg. Samskipti geta byrjað með ástúð og hlýju og til dæmis afbrýðisemi þótt vottur um ást og umhyggju. Þegar kona er farin að breyta hegðan sinni og lífi sínu þannig að maðurinn þurfi ekki að hafa ástæðu til afbrýðisemi, til dæmis að forðast að tala við aðra karlmenn, er maðurinn farinn að stjórna konunni og ástandið orðið óeðlilegt. Sömuleiðis ef konunni er sagt hvað hún eigi að segja og hugsa, í hverju hún eigi að vera og svo framvegis.
Til að konur geti metið hvort þær búi við andlegt ofbeldi er hægt að notast við matslista eins og þennan:
Óttastu hann undir einhverjum kringumstæðum?
Er hann uppstökkur, skapbráður og/eða fær bræðisköst?
Verður hann auðveldlega reiður undir áhrifum áfengis?
Reynir hann að koma í veg fyrir að þú farir þangað sem þú vilt fara, eða að þú stundir þína vinnu, skóla eða áhugamál?
Fylgist hann með þér hvar og hvenær sem er?
Ásakar hann þig sífellt um að vera sér ótrú?
Gagnrýnir þig, vini þína og/eða fjölskyldu?
Áskar þig stöðugt - ekkert sem þú gerir er rétt eða nógu vel gert?
Segir að “eitthvað sé að þér” þú sért jafnvel “geðveik”?
Gerir lítið úr þér fyrir framan aðra?
Hefur yfirráð yfir fjármálum ykkar og krefst skýringa á hverri krónu?
Eyðileggur persónulegar eigur þínar af ásettu ráði?
Hrópar/öskrar á þig eða börnin?
Ógnar þér með svipbrigðum, hreyfingum eða bendingum?
Hótar að skaða þig, börnin eða aðra þér nákomna?
Ef eitthvað af þessu á við maka þinn er kominn tími til að staldra við og meta hvort þú búir við andlegt ofbeldi. Starfskonur Kvennaathvarfsins eru alltaf til í að veita aðstoð, ráðgjöf og stuðning í síma 561 1205.
VONA AÐ FORSETINN SENDI ICE SAVE Í ÞJÓÐARATKVÆÐAGREIÐSLU
- Fært af minna þann 17. febrúar 2011. Flokkað undir Alþjóðamál, Fjölmiðlar
- 3 ummæli »
Forsetinn fær 38 þúsund undirskriftir á morgun Ég vona að forsetinn setji Ice save málið í Þjóðar atkvæðagreiðslu
…kv minna
ER RÉTTARKERFIÐ AÐ BREGÐAST BÖRNUM Á ÍSLANDI ???
- Fært af minna þann 16. febrúar 2011. Flokkað undir Alþjóðamál, Fjölmiðlar
- 66 ummæli »
Ég var hræddur um að maðurinn myndi meiða mömmu - Bréfið allt Þetta finst mér alveg hræðilegt og vona að Stjórnvöld geri í þessu máli STRAX.
þeir gátu sett fram þingsáligtar tillögu um að
KONU SEM AÐ VÍSAÐ VAR FRÁ NOREGI
myndi fá ÍSLENSKANN RÍKISBORGARA RÉTT
( hvað kemur okkur við hvernig Norsk stjórnvöld haga sér)???
En þessi börn eru Íslensk og ég vil að þeim sé hjálpað
..ég vísa í barnasáttmála sameinuðu þjóðanna,
hef reindar byrt hann hér á blogginu mínu og get alveg gert það aftur..
Íslenskt réttarkerfi og stjórnvöld..farið að lögum og filgið sáttmálanum
…..kv minna
Grátlegt að !!!
- Fært af minna þann 15. febrúar 2011. Flokkað undir Efnahagur, Fjölmiðlar
- 587 ummæli »
Gullsmiður yfirbugaði lambúshettuklædda ræningja Grátlegt finnst mér að lögreglan skuli bregðast svona við..
ER Í BORG ÓTTANNS !!! OG ÓFÆRÐ ÞAR Á GANGSTÉTTUM..
- Fært af minna þann 7. febrúar 2011. Flokkað undir Efnahagur, Fjölmiðlar
- 8 ummæli »
Er stödd í borg óttanns
og hef undanfarið fylgst með manni sem ekur um á hjólastól,
hann hefur svo til ekkert getað komist um
hér í Borginni vegna ófærðar á gangstéttum.
Þetta finst mér alveg út í hött Jón Gnarr geimvera…
kannski að það væri betra að Tortímandinn réði yfir Borg óttanns
hann mundi kannski láta skafa gangstéttarnar ,svo að menn geti gengið um
strætin hér ..já og eða rúllað Hjólastólunum sínum
GEIMVERA Jón Gnarr bættu um betur og láttu moka gangstéttir
borgarinnar
….kv minna
Skil ekki þetta Bensín flakk??
- Fært af minna þann 25. janúar 2011. Flokkað undir Efnahagur, Fjölmiðlar
- 16 ummæli »
Bensínverð aldrei hærra í krónum talið einn daginn er bensínið lækkað um 10 krónur ,þarnæstadag um 7krónur
svo allt í einu núna er verið að hækka lítrann aftur ..
hvað er eiginlega í gangi er ekki bara verið að plata fólk þarna
og að þeir segist verða að hækka dropann til að fá meira í vasan
vegna þessara lækkuna sem komu til vegna markanna hjá drengjunum
í Hm …bara spyr ..því að mér finnst þetta ekki eðlilegt orðið
…..kv minna
AFMÆLI DAVÍÐS STEFÁNSSONAR FRÁ FAFGRASKÓGI
- Fært af minna þann 21. janúar 2011. Flokkað undir Efnahagur, Fjölmiðlar
- 30 ummæli »
Í Dag er afmæli Davíðs Stefánssonar frá fagraskógi
…kv minna
HVAÐ ER EIGINLEGA Í GANGI …SKIL ÞETTA EKKI ALVEG SKO..
- Fært af minna þann 21. janúar 2011. Flokkað undir Efnahagur, Fjölmiðlar
- 632 ummæli »
Er að vellta fyrir mér afslættinum sem að Olíufélöginn hafa verið að veita í
tilefni sigra handboltaliðsinns okkar …???
af hverju geta þeir gefið þennan afslátt er ekki spurning um að þeir
séu bara að okra á okkur af hverju lækka þeir ekki bara líterinn??
er ekki að fatta þetta ????
….kv minna
Herjólfs ruglið !!!
- Fært af minna þann 12. janúar 2011. Flokkað undir Efnahagur, Fjölmiðlar
- 5 ummæli »
Herjólfur siglir til Þorlákshafnar Hvar er verið að spara núna …
ég skil ekki þessa þráhyggju með Herjólf
finnst að þeir ættu að sygla bara á Þorlákshöfn og
hætta þeirri þráhyggju að reina að troða sér ínn í Landeyjahöfn
þar gæti sparast tug miljónir og kannski að
sá aur gæti gengið upp í gatnagerð og Alþingi hætt
að hugsa um vegatolla til og frá Reykjavík
……kv minna
Ég er alllveg sámmála
- Fært af minna þann 12. janúar 2011. Flokkað undir Efnahagur, Fjölmiðlar
- 2 ummæli »
Menn eiga ekki að gera svona Ég er sammála því að svona gerir maður ekki
öðruvísi en að byðja um leifi það er klárt
……kv minna
UFFFF MÉR FINNST ÉG VERA AÐ KAFNA!!!
- Fært af minna þann 11. janúar 2011. Flokkað undir Alþjóðamál, Fjölmiðlar
- 7 ummæli »
Hér á Akureyri hefur kingt niður snjó undanfarna daga og snjórinn orðinn
svo mikill að mér finnst ég hreinlega vera að kafna!!
en við búum nú einusinni á Íslandi svo að þessu má alveg
búast við á þessum árstíma.
Ég ætla nú að vera svo frökk að spá um veðrið á komandi sumri
og spái ég því að það verði ,sólarmesta, sumar hér norðanheiða
sem komið hefur í manna mynnum,
Svo vil ég nú mynna ykkur á að þar sem að hér hefur kingt niður snjó
þá er nú skíðaparadísin okkar alveg frábær og stórsniðugt að gera
sér ferð til Akureyrissss,…og gista svo hjá mér í gistingunni minni
AKgistingu ..sem er frábær lítil og róleg gistinng nálægt
sundlaug Akureyrar.
Stórt vetrar og skíðaknús til ykkar kæru landar
….kv minna
VÁÁÁÁÁ HVAÐ ER AÐ ÞESSUM MANNI ???
- Fært af minna þann 7. janúar 2011. Flokkað undir Efnahagur, Fjölmiðlar
- 567 ummæli »
Jón Steinar vill sleppa byssumanni - Hann vildi bara komast inn Ætli að hann sé kanski þekktur í undirheimim Íslands þessi dómari?????
eða var honum kannski hóta einhverju af undirheima mönnum??
hef reindar heyrt að það séu frammámenn í þjóðfélaginu sem að halda uppi eiturlyfjasölu
hér á landi,
maður fer allavegana að hugsa marrgt eftir að hafa lesið þessa grein
ég trúi bara ekki að dómarinn ætli sér að hafa dóma sína svona…
….kv minna
ÓTRÚLEGT VEÐUR !!!
- Fært af minna þann 7. janúar 2011. Flokkað undir Efnahagur, Fjölmiðlar
- 17 ummæli »
Reindar er það ekkert ótrúlegt..við búum jú á Íslandi!!!
en það er orðið ansi langt síðann síðast að krakkarnir
séu heima og fara ekki í skóla vegna ófærðar,
en Akureyrarbær sparar..og mokar sem fæstar götur,
mér finst einhvern veginn að við séum aftur komin til fortíðar
til 1978 -1979 eða svo ..
þá var nú líka kreppa og verðtryggin og vísitölutrygging
sett á öll lán…það átti að bjarag landinu þá.
og enn er þessi andsk,,á öllum lánum og enn er
landið á vonarvöl
…kv minna
ER OKKUR BARA ALVEG SAMA EÐA !!!!
- Fært af minna þann 6. janúar 2011. Flokkað undir Efnahagur, Fjölmiðlar
- 44 ummæli »
Mig langar að óska þjóðinni, lesendum bloggsins míns og, sambloggurum gleðiles árs og friðar á nýju ári…
Þó er ég skíthrædd um að ekki verði mikill friðurinn á nýju ári.
Ég á td ekki orð yfir launum manna sem sátu í slitastjórn bankanna
TD eins og Ólafur Garðarsson…53.000,000 í árslaun..Ég segin nú bara hvernig (Vogar hann sér)
Allaveganna er frétt um þetta á dv og þar segir að hann hafi TEKIÐ SÉR þessa upphæð í laun
ef einhver tekur eithvað þá er það stuldur….hvað var maðurinn að gera…stela…eða
og enginn segir eitt einasta orð nei nei allir sáttir með þetta ?????
….kv minna
Yndislega fólk
- Fært af minna þann 1. janúar 2011. Flokkað undir Efnahagur, Fjölmiðlar
- 32 ummæli »
mikið rosalegar kvejur til ykkar og gleðilegt ár
ég þakka fyrir ynddislegar stundir elsku vinir á
liðnu ári
knus og kossar til ykar frá mér
..kv minna
ERUM VIÐ DAUÐ…eða …..????
- Fært af minna þann 27. desember 2010. Flokkað undir Alþjóðamál, Fjölmiðlar
- 5 ummæli »
Erum við dauð hér á blogginu eða hvvvvvvað????
Er alvarlega að hugsa um samráð í bensín og eða olíusölu
halllló… ég er alveg með á hreynu að þar eru samráð með bensín og olíu líterin
það er orðið sama verð á olíu og bensíni á öllum sölustöððvum ,
mér þætti ekki verra að samkepnisráð skoðaði þetta núna sko
…kv minna






Hér á þessu bloggi segi ég það sem að mér býr í brjósti hverju sinni og jafnvel skrifa það sem aðrir þora ekki að skrifa, en mundu vilja það sjálfir.