feb
1
SUPER BOWL XLVI og Super Bowl partý og RADIO fm 98.3
1. febrúar 2012 kl. 22.40 | Rita ummæli
Eins og alir vita þá eru ekki nema nokkrir dagar í SUPER BOWL XLVI og í SUPER BOWL PARTÝ IV sem haldið verður á Úrillu Górillunni frá kl 18:00 og fram eftir nóttu.
Ekki nog með að við verðum með geggað partý þá munum við vera með útsendingu á FM 98.3 frá kl 12:00 á Föstudaginn og fram að hádegi á mánudeginum þar sem við förum í gegnum allt sem við kemur NFL og Super Bowl og sjálfu Partýinu á sunnudeginum.
öll dagskráinn er kominn inn á netið ( www.nflsport.is ) og má búsat við frábærri skemmtun.
Við Verðum í góðu samstarfi við 2 útvarpstöðvar frá bandaríkunum WFAN frá New York og THE GAME sem sen.dir beint út frá INDIANAPOLIS en við munum senda út þeira dagskrá eftir miðnætti föstudag og Laugardag en síðan á Sunnudeginum verður hægt að hlusta á beina lísingu frá leiknum sjálfum SUPER BOWL.
Endilega vera á réttri stöð um helgina því að það verður nog um að vera hjá okkur og helling af vinningum og boðsmiðar á SUPER BOWL VIP borð á Úrillu Gorillunni á sunnudaginn.
FM 98.3
jan
28
NFLsport RADIO á FM 98.3 Föstudag til Mánudags ( Super Bowl upphitun )
28. janúar 2012 kl. 19.10 | Rita ummæli
Núna á föstudaginn 3 feb verður NFLsport RADIO beint á FM tíðni sem sagt þú getur hlustað á okkur hvar sem er í 3 daga þar sem við hitum upp fyrir SUPER BOWL XLIV og Super Bowl Partý IV.
Hægt verður að hlusta á umfjallanir íslenskra NFL aðdáenda og viðtöl við þá heima og erlendis við verðum með SUPER BOWL leik þar sem flottir vinningar eru í boði og síðan á sunnudeginum þá beint frá INDIANAPOLIS þar sem super Bowl er leikinn og síðan beint frá Super Bowl partý IV á Górilunni.
jan
24
Ny Giants og NE patriots spila í SUPER BOWL þann 5, Feb
24. janúar 2012 kl. 9.53 | Rita ummæli
Núna eftir rúmar tvær vikur verður úrslitaleikur NFL ( SUper Bowl 46 ) haldin í INDIANAPOLIS og spila leikin liðinn sem spiluðu þann sama úrslitaleik 2007.
Tom Brady leiksjórnandi partiots og Eli Maning munu því hittast aftur og spurningin er hvor mun sigra í þessum leik en báðir hafa þeir spilað frábærlega í vetur.
Hægt verður að horfa á herlegheitin á Úrillu Gorillunni á höfðabakka en NFLsport.is og gorillan hafa gert með sér samning til tveggja ára um að staðurinn sé heimavöllur aðdáenda NFL og Super Bowl.
Unnið er hörðum höndum þessa dagana að skipuleggja þetta partý sem verður á þessum degi og verður helling gert til skemmtunnar og verður dagskrá kominn inn á heimasíðuna www.nflsport.is um helgina og líka á www.facebook.com/nflsport og ef þú gerir ( LIKE )á okkur á facebook þá getur þú unnið flotta aukavinninga daglega fram að SUPER BOWL 46
Núna um helgina er Pro Bowl og er því ekki nein pása en við erum með spurningu á facebook um hvort að þið hafið áhuga á að við skipuleggjum ( madden Mót eða NFL pubb spurningakeppni ) og hvetjum við þig til að fara inn á síðuna og vera með.
jan
11
Langar þér í NFL liðs treyju? erum að fara að panta NFLsport.is
11. janúar 2012 kl. 20.06 | Rita ummæli
Nú erum við á NFLsport.is að fara panta NFL liðs treyur frá Danmörku og er planið að panta strax á mánudag
og tekur þetta sjö daga að koma hingað … ef þið hafið áhuga sendið okkur þá stærðina.( heima eða heiman litur ) hvaða lið og allar upplýsingar á nfl@nflsport.is svo sem ( nafn.gsm.Heimilisfang og fl ) og verðið á þessu hingað komið er um 12.500 kr á treyju… Látið okkur vita strax.
PS þið getið líka leitað upplýsinga hjá okkur á sama netfangi.
jan
11
NFL undanúrslita helgi og Super Bowl
11. janúar 2012 kl. 14.58 | Rita ummæli
Við þökkum öllum fyrir frábæra skemmtun á gorillunni um síðustu helgi, Frábær hópur að horfa saman á NFL og við gerum enn betur um næstu helgi… enda eru flottir leikir um helgina og er Og bara minna á að nú stittist í SUPER BOWL við erum á fullu að vinna í kvöldinu matseðill fyrir kvöldið er að verða til,NFL tipp leikurinn er til og vinningar eru glæsilegir….Kassar af bjór.út að borða fyrir vinningshafan og 6 vinni hans,Áskrift í eit ár af ESPN, Flug fyrir 2 með gistingu og fl.
Endilega mæta núna um helgina á Gorilluna og vera með.
jan
6
Super Bowl partý 2012
6. janúar 2012 kl. 0.47 | Rita ummæli
Sunnudagurinn 5. feb er stærsti dagur ársins hjá NFL aðdáendum þegar einn stærsti íþróttaviðburður ársins fer fram. Super Bowl 46 fer fram í Indianapolis. Leikurinn sjálfur hefst kl 23:00 en við byrjum snemma á Górillunni eða kl 18:00 en þar verða sýndar NFL svipmyndir á milli 20-22 en við komum með nánari dagskrá af því þegar nær dregur og verður hún þá staðfest og kemur líka inn á heimasíðuna www.nflsport.is
Allir velkomnir og við hvetjum þá sem eiga NFL búninga að mæta í þeim. Tilboð á köldum á krana og amerískur matur á tilboði en meira síðar. Takið sunnudagskvöldið frá og fögnum saman síðasta leik tímabilsins.
Við munum setja upp matseðill hér sem verður í boði um kvöldið ásamt því að við verðum með NFLsport leikinn okkar frá því á fyrsta kvöldinu svona fyrir þá sem muna eftir því en þetta er í fjórða skiptið sem við höldum þessa hátíð.
Við verðum með skráningu fyrir alla sem vilja ganga í klúbbinn og fá að njóta afsláttar sem við bjóðum upp á.
Við bætum við nánari upplýsingum á heimasíðuna núna um helgina og á facebook.
Síðan minnum við á Wild Card leikina um helgina en þeir verða allir sýndir á Úríllu Górillunni og er nánar um á á heimasíðunni www.nflsport.is og á facebook www.facebook.com/nflsport.
okt
28
NFL spurningaleikur — vinningur 20.000 kr
28. október 2011 kl. 1.34 | Rita ummæli
Núna á sunnudaginn er leikur Patriots og Steelers og að því tilefni efnum við til smá spurningaleiks.
spurningar leikurinn fer fram hér á facebook og á nflsport.is
En dregið verður úr leiknum á Úríllu Górillunni sem er heimavöllur okkar í vetur.
Hér fyrir neðan eru fimm spurningar sem verður að svara 100% rétt og í hálfleik á sunnudagskvöldið drögum við út vinningshafa sem verður að vera viðstaddur til að hljóta vinninginn sem er gjafabréf á HEREFORD steikhús að verðmæti 20.000 kr.
Svör sendist á leikur@nflsport.is fyrir kl 12:00 á sunnudag.
Og munið eftir að hafa fult nafn með
Við minnum á að dregnir verða út aukavinningar í boði Úríllu Górillunnar.
SPURNINGAR.
NR.1 — Hvaða ár var fyrsta SUPER BOWL partýið og hvar var það haldið ?
NR.2 — Hvað eru mörg lið að spila NFL á íslandi og hvar eru þau á landinu?
NR.3 — Hvar var fyrsti superbowl leikurinn haldinn og hvaða ár.
NR.4 — Hvað heita leiksjórnendur og Þjálfarar PATRIOTS OG STEELERS
NR.5 — Hvaða lið var það fyrsta í NFL til að ráða klappstýrur ?
okt
27
Bein útsending í kvöld kl 21:00 á NFLsport-radio
27. október 2011 kl. 13.07 | Rita ummæli
Í kvöld er komið að því að NFLsport-radio fari aftur í loftið en við störtum stöðinni alltaf kl 18:00 á Fimmtudögum og sendum út til kl 15:00 á Sunnudögum.
Það er að sjálfsögðu sverrir júll sem hefur dagskránna kl 21:00 en kl 22:00 tekur svo við Jónas Ýmir og fer í síðustu helgi og það sem framundan er þessa helgina.
Við hvetjum ykkur til að kikja á facebook hjá okkur ( www.facebook.com/nflsport ) síðan er það nátúrulega www.nflsport.is þar sem er alltaf nog um að vera.
okt
22
Bein útsending á NFLsport
22. október 2011 kl. 13.21 | Rita ummæli
Í dag kl 14:00 verður útvarpað sérstökum þætti um Bill Belichick sem er þjálfari New England Patriots fyrir ykkur sem hafið áhuga að hlusta þá er það bara að fara á www.nflsport.is og inn á nflradio og hlusta.
Við erum byrjuð að spila tónlist og spjöllum inn á milli.
okt
20
NFLsport.is með útsendingu núna LIVE
20. október 2011 kl. 21.36 | Rita ummæli
Ef þér langar að hlusta á beina útsendingu fá NFLsport.is þá erum við með útsendingu núna en þáttur með Jónasi Ýmir hefst kl 22:00 ( smella hér til að hlusta )
okt
19
Úrílla Górillan og NFLsport.is skrifa undir samning um tveggja ára samstarf um NFL
19. október 2011 kl. 22.17 | Rita ummæli
Skrifað var undir samning núna í kvöld milli NFLsport.is og Úrillu Górillunar um tveggja ára samstarf um sýningar á leikjum deildarinnar og á staðsetningu á SUPER BOWL partýinu næstu 2 árin.
Í samningnum er félagsmönnum tryggður afsláttur upp á 25% af mat og drykk á staðnum og önnur fríðindi sem verða auglýst á heimasíðunni og hér á facebook.
Samningurinn tekur gildi núna strax og verður NFL kvöld núna á sunnudaginn kemur en þá verður leikur í london, nánar tiltekið á Wembley.
NFLsport radio verður með beina útsendingu annað kvöld kl 22:00 - 23:30 þar sem Jónas Ýmir mun fara yfir síðustu leiki og spá í næstu leiki ásamt því að við fáum að heira viðtöl og fl.
Útvarpið okkar verður síðan með útsendingu frá Górillunni á Sunnudaginn kl 18:00 og koma góðir gestir í hljóðstofu og verður þetta upphitun fyrir leikinn á Wembley.
Við bendum öllum sem hafa áhuga að skrá sig í félagið að gera það á heimasíðunni www.nflsport.is og eiga þeir sem skrásig möguleika að vinna sér inn ferð fyrir tvo á SUPER BOWL 2012 í INDIANAPOLLS í febrúar.
okt
16
Bein útsending á nflsport.is
16. október 2011 kl. 0.46 | Rita ummæli
ICE-NFL-SPORT-RADIO bein útsending í ( DAG ) sunnudag kl 15:00 - 17:00 þar sem Jónas Ýmir Jónasson fer yfir leiki helgarinnar í NFL og spilar viðtöl og tekur viðtöl.. Hægt er að hlusta á www.nflsport.is en formleg útsending hósft kl 24:00 í kvöld.
Tvær stöðvar eru í gangi á heimasíðunni en það er ( ICE-NFL-SPORT-RADIO ) og ( SPORTRADIO ) en fyrrnefnda stöðinn verður með útsendingar á þáttum beint en hinn verður 24 tíma stöð með tónlist,viðtölum og beinum útsendingum frá leikjum LIVE um helgar.
Unnið er að því að koma upp NFLsport-TV en vonandi náum við að setja inn fyrsta þátinn í Nov en við erum að vinna í útlitshönnun og fl.
Nú erum við að fara setja upp lista frá fyrirtækjum sem bjóða félagsmönnum afslætti og ætti sá listi að koma inn núna í kvöld ( sunnudag )
Við erum líka búinn að starta leik fyrir þá sem skrá sig á póstlistann en við ætlum að draga út 2 heppna á gamlársdag til að fara með okkur á SUPERBOWL í febrúar en innifalið er flug+gisting+miði en hver útdráttur er fyrir 2 sem sagt fara 4 með okkur.
Næu er bara um að gera að skrá sig í klúbbinn.
okt
14
Íslenskt orða- og hugtakasafn fyrir amerískan fótbolta
14. október 2011 kl. 1.52 | Rita ummæli
Hér er fyrsti hlutinn í orða- og hugtakasafninu. Ég ákvað á að byrja að þýða allar stöður á vellinum jafnt í sókn og vörn auk hugtökum sem eiga við þessar tvær hliðar. Hverri stöðu og hverju hugtaki fylgir útskýring með til útskýringar. Þetta er vissulega ekki fullkominn né endanlegur listi yfir þýðingar á þessum stöðum og margt sem má betur bæta og ég bið ykkur endilega að koma með hugmyndi ef þið hafið einhverjar eða benda á eitthvað sem ykkur finnst ekki passa vel við eða er hreinlega ljótt. Við vinnum bara úr þessu í sameiningu. Svo á næstu dögum mun ég bæta við þetta. Útskýringarnar eru hugsaðar fyrir þá sem eru að byrja að fylgjast með og vilja komast snöggt inn í þennan heim án þess að vera úti á þekju þegar þeir eru að hlusta á lýsingar eða lesa um deildina. Þið sem stundið spjallið eruð vissulega klárir á því hvað þetta allt er en kannski leynist einhver fróðleikur hér sem þið vissuð ekki eða voruð ekki með á hreinu.
Stöður í sókn:
QB (Quarterback) – Leikstjórnandi
Aðalleikmaður hvers liðs. Sér um að gefa hlaupurum boltann og kasta til inn- og útherja liðsins. Sumir leikstjórnendur eru einnig lunknir við það að hlaupa og gera það þegar þeir sjá góðar hlaupaleiðir opnast fyrir framan sig.
HB (Halfback), FB (Fullback), RB (Running back) – Hlaupari
RB hugtakið nær yfir bæði HB og FB. HB er aftasti leikmaðurinn í sókninni og aðal hlaupari liðsins. FB stendur fyrir framan HB í þeim leikskipulögum sem nota tvo hlaupara. Aðalhlutverk FB er að blokka fyrir HB en hann hleypur einnig við sérstök tilefni, t.a.m. þegar liðið er við marklínuna og reynir að skora. FB er venjulega þyngri og kraftmeiri heldur en HB.
WR (Wide Receiver) – Útherji, Vængmaður, Grípari
Leikmaður sem sérhæfir sig í að grípa sendingar frá leikstjórnandanum. Er með fyrirfram ákveðna hlaupaleið í hverju kerfi sem hann hleypur og reynir að komast framhjá þeim leikmanni sem sér um að dekka hann. Blokkar einnig fyrir samherja sína þegar þess er þörf. Til eru tvær aðalgerðir af útherjum. Annarsvegar Speed Receiver (Hraðútherji) en þeir eru gífurlega fljótir og snöggir. Hraðútherjar eru hættulegir þar sem þeir eru vinsæl skotmörk fyrir leikstjórnandann í löngum sendingum og því þurfa varnarmennirnir að geta elt þá uppi. Hraðútherjar teygja völlinn eins og það er kallað því meira af vellinum verður nothæfur fyrir sóknina vegna eiginleika þeirra. Hin gerðin af útherjum eru Possession Receiver (Boltaútherji). Boltaútherjar eru svo nefndir þar sem þeir eru yfirleitt með mjög traustar hendur og missa sjaldan boltann, þ.e. ná góðu gripi um leið og boltinn berst til þeirra og halda honum. Til þeirra er leitað í stuttum sem löngum sendingum og koma boltanum fram á völlinn.
TE (Tight End) – Innherji, Grípari
Leikmaður sem staðsetur sig yst á sóknarlínunni, annaðhvort hægra eða vinstra megin. Hans aðalhlutverk er að blokka en hann er einnig með traustar hendur og til hans er leitað í sumum kastkerfum. Flestir af þekktari innherjum deildarinnar eru meira fyrir það að grípa boltann og eru sóknarvopn fyrir lið sín en þeir sem eru meira í að blokka og grípa endrum og sinnum eru ekki eins mikið í sviðsljósinu. Er hluti af sóknarlínunni.
C (Center) – Miðjumaður, Akkeri
Leikmaður sem er staðsettur í miðju sóknarlínunnar. Akkerið byrjar hvert leikkerfi með því að afhenda leikstjórnandanum boltann gegnum klofið á sér. Eftir að hann hefur afhent leikstjórnandanum boltann sér hann um að blokka í bæði hlaupa og kastkerfum. Á ensku er frasinn „anchors the offensive line“ notað um miðjumennina og því fannst mér orðið akkeri lýsa stöðunni ansi vel þar sem miðjumaðurinn er oftast sá leikmaður sem heldur sóknarlínunni saman. Er hluti af sóknarlínunni.
OT (Offensive Tackle) – Sóknarlínutæklari. Vantar eitthvað betra orð.
Skiptist í LT og RT (Left og Right Tackle) eftir því hvoru megin á sóknarlínunni sem hann stendur. Sóknarlínutæklarinn er ysti maður á sóknarlínu ef innherji er ekki notaður á þeirri hlið. Hlutverk þeirra er að blokka í hlaupa og kastkerfum og verja leikstjórnandann. Þegar leikstjórnandi er rétthentur sér sóknarlínutæklarinn sem stendur á vinstri enda sóknarlínunnar (LT) um að verja „blindu hlið“ leikstjórnandans. Vinstri sóknarlínutæklarinn (LT) er því mikilvægari í flestum tilfellum þar sem hann sér um að halda aðalvarnarlínumanninum frá því að fella leikstjórnandann þar sem leikstjórnandinn snýr bakhliðinni að þeim hluta vallarins og sér því ekki þegar varnarmaðurinn er kominn í gegn og getur fellt hann. Er hluti af sóknarlínunni.
OG (Offensive Guard) – Sóknarlínuvörður, Vörður
Sóknarlínuverðirnir eru staðsettir sitthvoru megin við miðjumanninn (akkerið) og eru með sóknarlínutæklari sér á vinstri eða hægri hönd, eftir því hvoru megin við akkerið þeir eru staðsettir. Skiptist í LG og RG (Left og Right Guard) eftir staðsetningu á sóknarlínunni. Sér um að blokka í hlaupa og kastkerfum. Sú staða í sókninni sem fær venjulega minnsta athygli og er sjaldnast í fréttum. Er hluti af sóknarlínunni.
Hugtök yfir sóknarsvæði:
Offensive Line – Sóknarlínan
Sá hluti sóknarinnar sem er skipuð miðjumanni, vörðum, sóknarlínutæklurum og innherja. Sóknarlínan er staðsett á bardagalínunni. Fær minni athygli en aðrir hlutar sóknarinnar en án góðrar sóknarlínu er ekki hægt að spila vel og því eru sóknarlínuleikmennirnir oftast mjög vanmetnir. Leikstjórnendur og hlauparar vita þó að án sóknarlínunnar væri lífið hjá þeim sjálfum mun erfiðara og því passa þeir að gera þeim til geðs og reyta þá ekki til reiði.
Backfield – Baksvæði, Sóknarbaksvæði
Svæðið fyrir aftan sóknarlínuna þar sem leikstjórnandi og hlauparar eru staðsettir.
Line of Scrimmage – Bardagalínan
Lína sem nær breidd vallarins og er ákvörðuð hverju sinni frá staðsetningu boltans í upphafi kerfis, þ.e. á þeirri línu sem boltinn er, þar er bardagalínan. Sóknarliðið verður að stilla 7 leikmönnum upp á bardagalínunni í hverju leikkerfi, hvorki fleirum leikmönnum né færri. Þar sem sóknarlínan er staðsett á bardagalínunni eru komnir 5 leikmenn á hana en svo er mismunandi eftir leikskipulagi hvort að innherji eða útherji raði sér á bardagalínuna til að fylla upp í 7 manna takmarkið.
Stöður í vörn:
DE (Defensive End) – Endamaður, Varnarlínuendi. Vantar betra orð.
Leikmaður sem er staðsettur á enda varnarlínunnar. Skiptist í LE og RE (Left og Right end) eftir því hvoru megin á varnarlínunni hann er staðsettur. Hlutverk endamannsins er tvíþætt: að setja pressu á leikstjórnandann og reyna að fella hann annarsvegar og stöðva hlaupara frá því að hlaupa útfyrir varnarlínuna hinsvegar, þ.e. halda honum frá því að komast hægra megin við þig ef þú ert staðsettur hægra megin og öfugt. RE staðan er mikilvægari þar sem þar eru hraðari leikmennirnir því þeir sækja að „blindu hlið“ leikstjórnandans og eru því í betri stöðu til að fella hann. Ávallt er leikið með tvo endamenn á varnarlínunni.
DT (Defensive tackle) – Varnarlínutæklari. Þarf að finna betra orð.
Leikmaður sem er staðsettur í miðju varnarlínunnar. Mismunandi eftir varnarskipulagi hjá liðum hvort notaðir eru einn eða tveir varnarlínutæklarar. Í 4-3 leikkerfinu (upplýsingar koma síðar) eru notaðir tveir varnarlínutæklarar en í 3-4 leikkerfinu (upplýsingar koma síðar) eru notaður einn varnarlínutæklari og er hann þá nefndur NT (Nose Tackle) (Ætla að nota sama orð fyrir DT og NT ólíkt Bandaríkjamönnum). Hlutverk varnarlínutæklarans er aðallega að stoppa hlaupara en einnig að setja pressu á leikstjórnandann og reyna að fella hann. Þar sem endamennirnir reyna að halda hlaupurum frá því að hlaupa utarlega hlaupa þeir oftast beint á varnarlínuna og þar eru varnarlínutæklararnir til að stoppa hlauparana.
LB (Linebacker) – Línuvörður, (Aftari varnarlínumaður). Einhver með betra orð??
Leikmaður sem er staðsettur fyrir aftan varnarlínuna en fyrir framan baksvæðið. Skiptist í Inside, Middle og Outside LB (Innri, miðju og ytri línuverði). Þegar 4-3 leikkerfið er notað eru 3 línuverðir og skiptast þeir þá í LOLB, MLB og ROLB (Vinstri ytrilínuvörður, miðjulínuvörður og hægri ytrilínuvörður) en í 3-4 leikkerfinu eru notaðir 4 línuverðir og skiptast þeir í LOLB, ILB og ROLB (Vinstri ytrilínuvörður, tveir innrilínuverðir og hægri ytrilínuvörður). Hlutverk þeirra er mjög misjafnt eftir því hvaða leikkerfi er valið og stöðu leiksins hverju sinni. Meðal hlutverka línuvarðanna er að setja pressu á leikstjórnandann og reyna að fella hann, stöðva hlauparana og að dekka inn- og útherja. Ytri línuverðirnir eru annaðhvort sagðir vera Strongside eða Weakside LB (Sterkhliðar línuvörður og Veikhliðar línuvörður). Sterkhliða línuvörðurinn sér um það að vera þeim megin við miðjulínuvörðinn eða innrilínuverðina sem innherji (TE) andstæðinganna er. Sterkhliða línuvörðurinn er kallaður svo því hann er sterkasti línuvörðurinn og þarf að geta komist framhjá aðalblokkara sóknarinnar. Veikhliða línuvörðurinn er aftur á móti snöggari þar sem hann getur lent í því að þurfa að verjast á tiltörulega opnum velli. Miðjulínuvörðurinn eða annar tveggja innrilínuvarðanna sér um að kanna uppstillingu sóknarinnar og gera tilheyrandi breytingar svo vörnin sé ekki vitlaust stillt upp. Þessvegna eru þeir oft kallaðir fyrirliðar varnarinnar.
CB (Cornerback) – Bakvörður
Leikmaður sem staðsetur sig við sóknarlínuna upp við hliðarlínuna. Ávallt tveir bakverðir í hverju kerfi og skiptast þeir í RCB og LCB (Right og Left CB) eftir því hvoru megin vallarins þeir eru er staðsettur. Hlutverk bakvarðarins er að valda (dekka) útherja andstæðingsins og passa upp á að hann grípi ekki boltann. Bakvörður getur einnig valdað eitthvað sér svæði á vellinum og hindrað leikmenn sem eru á því svæði að grípa boltann. Bakverðir geta annaðhvort slegið boltann úr höndum útherjanna eða gripið boltann sjálfir og ná þar með inngripi þegar þeir eru að verjast gegn sendingum. Í hlaupakerfum sjá bakverðir um að halda aftur af hlauparanum ef hann kemur til þeirra. Ein gerð af bakvörðum er Shutdown Cornerback (Útilokunarbakvörður) sem sérhæfir sig í að vera eins og skuggi útherjans sem hann valdar. Útilokunarbakverðir búa yfir miklum hraða og eru settir hröðustu útherjum andstæðinganna til höfuðs til að hindra stór kerfi frá sókninni. Útilokunarbakverðir eru eins og gefur að skilja frábærir í að dekka einn-á-einn og þurfa enga hjálp frá öðrum við það og eru oftast svo góðir að leikstjórnandinn kastar sjaldan eða aldrei í átt til þeirra í leik.
S (Safety) – Björgunarmaður, öryggismaður
Leikmaður sem er staðsettur aftast á baksvæðinu og sérhæfir sig í að stöðva langar sendingur niður völlinn. Skiptist í FS og SS (Free og Strong Safety). SS (Sterkbjörgunarmaður) er yfirleitt sterkari en FS (Fríbjörgunarmaður) og stendur nær bardagalínunni en hann. Sterkbjörgunarmaðurinn hjálpar til við að stoppa hlaupakerfi með því að hlaupa í átt að bardagalínunni þegar hlauparinn fær boltann. Fríbjörgunarmaðurinn er aftur á móti snöggur og sér til þess að skilja ekki útherja eða innherja einan og óvaldaðan eftir aftarlega á vellinum. Björgunarmennirnir hjálpa bakvörðunum í dekkningu, jafnt mann-á-mann og svæðis dekkningu.
Hugtök yfir varnarsvæði:
Defensive Line – Varnarlínan
Sá hluti varnarinnar sem skipuð er endamönnunum og varnarlínutæklaranum. Er ýmist skipuð 3 eða 4 mönnum eftir því hvort 3-4 eða 4-3 leikkerfið er notað. Aðalhlutverk hennar er að stöðva hlaupaleik sóknarinnar í fæðingu og að setja pressu á leikstjórnandann. Á í ævilangri baráttu við sóknarlínuna og yfirleitt er það þannig að sú lína (þ.e. sóknar- eða varnarlína) sem hefur betur í þeirri baráttu í hverjum leik stendur uppi sem sigurvegari.
Secondary – Baksvæðið, Varnarbaksvæðið
Sá hluti varnarinnar sem skipaður er björgunarmönnunum og bakvörðunum. Mjög stórt svæði þar sem passa þarf að út- og innherjar sóknarinnar séu ekki einir og óvaldaðir. Leikmaður sem er staðsettur á baksvæðinu þarf að vera góður í völdun (dekkun), jafnt mann-á-mann völdun og svæðis völdun.
okt
14
Nóg um að vera hjá aðdáendum NFL á ÍSLANDI
14. október 2011 kl. 1.16 | Rita ummæli
Nú er um að gera að skrá sig inn á póstlistann hjá okkur á síðunni www.nflsport.is en við ásamt góðum aðilum ætlum að bjóða nokkrum heppnum á SUPERBOWL 2012. 5 feb í INDIANAPOLIS ( USA ) með flugi+gistingu+miða og glæsilegri fararsjórn. Ásamt því að bein útsending verður frá SUPERBOWL á Úríllu Górillunni og munu íslenskir lýsendur verða á staðnum úti.
Nú um helgina verður settur upp listi á heimasíðuna þar sem við skráum niður nöfn allra fyrirtækja sem við fáum notið afsláttar frá en það er einungis fyrir þá sem eru skráðir meðlimir og eru búinnir að fá afsláttar og meðlimakort sent heim.
Unnið er í því að gera jólahlaðborð séstaklega fyrir aðdáendur NFL á íslandi og munum við segja frá því þegar nær dregur og er planið að vera með bjórkvöld fljótlega til að hittast og spjalla svo að sjálfsögðu er planið að gera MADEN mót en það er um að gera að filgjast bara með síðunni.
… endilega skrá sig strax
okt
11
NFL sport kominn aftur á stað
11. október 2011 kl. 16.49 | Rita ummæli
Heimasíðan okkar lá niðri um helgina vegna bilunnar en það er búið að laga hana núna.
við höfum lagað hana smá og erum reindar enn að vinna í henni,
Við erum búnnir að setja upp skráningarform á forsíðuna fyrir þá sem vilja skrá sig í nflsport félagskapinn og njóta afsláttarkjara við fyrirtæki sem stiðja við bakið á okkur.
Endilega kikið inn á www.nflsport.is og skoðið og verið með okkur í að gera þessa síðu skemmtilega.








