nóv
24
Hversu góður er Colt Brennan?
24. nóvember 2007 kl. 15.38 |
Horfði á leik Boise State vs Hawaii í nótt og ekki var maður fyrir vonbrigðum með þann leik. Boise hafa einungis tapað einum leik af síðustu 47 og yfirleitt sigrað viðureignir þessara liða. Leikurinn var ótrúlega spennandi en liðin skiptust á því að skora, staðan í hálfleik var 17-19. Þriðja leikhluta átti Colts Brennan sem átti frábæran leik og endaði leikurinn með 27-39 sigri Hawaii, Brennan með 5 snertimörk. En það eru allir ekki alveg sammála hversu góður Colt Brennan er. Hann hefur slegið fjölda meta í háskólaboltanum eins og sjá má á listanum hér að neðan. Hans helstu kostir er að hann er nákvæmur, fljótur að koma boltanum frá sér og góður að hlaupa. Brennan er hinsvegar “system quarterback” og spilar í svokallaðri “spread offence” sem er ekki algeng í NFL, nánast allar sendingar hans eru úr skotstöðunni(shotgun). Það verður því rifist um það á næstu mánuðum hversu góður hann er til að fara í NFL. Eins og staðan er núna verður hann líklegast valdur í 1 eða 2 umferð í nýliðavalinu.
NCAA Met fyrir flest snerimörk (126).
NCAA Met fyrir flest snertimörk á einu tímabili árið 2006 (58)
NCAA Flest snertimörk yfir tvö tímabil 93 samtals. 2005-2006)
NCAA met yfir flesta kastaða metra yfir 2 tímabil 9,850 (2005-2006)
NCAA Met yfir flest stig 384. (2006)
L.S.U. sem eru ranked nr 1 í NCAA töpuðu fyrir Arkansas Razorbacks 50-48 í þríframlengdum leik en Darren McFadden átti stórleik í gær. Tap L.S.U. þýðir að möguleikar þeirra að komast í “National Championship Game” eru nánast úr sögunni.
Minni alla á að fylgjast með leikjum dagsins á NASN
Ummæli
2 ummæli fram að þessu

Frábært framtak hjá þér…þetta blogg styttir manni stundir. Alveg hreint ótrúlegt að NFL er ekki með meiri vinsældir…frábær skemmtun…þó að fótbolti sé skemmtilegasta íþróttin…
Ég horfði örlítið á þennan leik í gær og Hawaii kastar bara boltanum. Ég sá ekki eitt einasta hlaupakerfi. En Brennan leit skuggalega vel út og grípararnir hans einnig áttu mjög góðan leik. Ætti þessi gæji ekki bara vel heima með Patriots eða Lions? Lið sem elska að kasta boltanum þessa dagana.