Stórleikur í dag - En engin leikur á SÝN

2. desember 2007 kl. 13.44 |

kennison.jpgSÝN hefur í fjölda ára kallað sig bestu sjónvarpsstöð í heimi og kannski ekki að ástæðulausu því þeir eru vissulega með stærstu íþróttirnar á sinni dagskrá. Þeir hafa undanfarin ár verið að auka við leikjum NFL í beinni og í ár hafa þeir staðið sig einstaklega vel. Allir leikir í þráðbeinni í frábæri lýsingu Henry Birgis. Ég hrósaði SÝN mikið eftir að tilkynnt var að ætti að sýna NFL leik á fimmtudegi en núna kemur í ljós að það er engin leikur á sunnudag á S’YN þrátt fyrir að það séu fjöldi spennandi leikja í dag.

Jacksonville - Indianapolis er t.d. stórleikur liða í sama riðli en SÝN er með endursýndan leik Green Bay - Dallas frá því á fimmtudag. Mjög svekkjandi að þegar maður hélt að SÝN væri að auka sýna þjónustu til aðdáenda NFL á Íslandi þá sleppa þeir leik á sunnudag í staðinn. Samt sem áður er auglýst bein útsending á www.syn.is - Ég gerði copy/paste af vefsíðu þeirra og þið sjáið hér að neðan beinar útsendingar í dag. New England@Pittsburg er auglýstur en hann er reyndar ekki fyrr en eftir viku. Það má því búast við að einhver setjist við sjónvarpið í kvöld til að horfa á þann leik. Reyndar ekki í fyrsta sinn sem maður sér slíkar villur á þeirri heimasíðu.

 

Beint í dag á Sýn

 

sun. 02. des | 17:50 | Spænski boltinn

Betis - Atl. Madrid

sun. 02. des | 19:50 | Spænski boltinn

Valencia - Ath. Bilbao

sun. 02. des | 21:50 | NFL deildin

New England - Pittsburgh


Ummæli

14 ummæli fram að þessu

  1. Kristján B þann 2. desember 2007

    Ég átti nú alveg von á því að þeir myndu sleppa beinum leik á sunnudaginn og ég yrði ekki hissa ef þeir myndu sýna 6 af 11 leikjum í úrslita keppninni eins og alltaf. Þetta sýnir líka bara hversu dýrmæt það yrði ef hægt væri að fá aðgang að NFL útsendingum NASN þar sem eru lámark 4 leikir beint á viku og svo þegar eru allir leikir sem falla á fimmtudaga og laugar daga beint. Allir leikir í úrslita keppninni og framvegis og þar að auki 2 leikir til viðbótar sem ekki voru síndir yfir helginna en þá sýndir í heildsinni en ekki eins og sýn gerir endur sína leiki sem þeir eru þegar búnir að sýna.

  2. Kristján B þann 2. desember 2007

    Þegar ég átti við sleppa beinum/leik leikjum þá sleptu þeir leik kl 8 til að geta sýnt leik kl 12.

    Ég hef ákveðið að vera ekki með sýn í vetur bæði út af verðlagningu og þessu metnaðar leysi þeirra þegar kemur að NFL leikjum.

    Ættli maður reini ekki að fara að fá sér gerfihnött fljótlega þar sem SMÁÍS má ekki blokkera sölu á slíkum áskriftum hér. Samkvæmt nýlegum dómi.

  3. Tjörvi þann 2. desember 2007

    Þetta er enn eitt dæmið um það hversu illa Sýnar menn eru búnir að gera í buxurnar. ákveða að sýna leikinn á fimmtudagsnótt, “hype-a” það þvílíkt upp svo að fólk haldi að þeir séu loksins byrjaðir sinna NFL að alvöru en NEI Sýn verður alltaf Sýn! Lélegasta “besta” íþróttrás í heim!!!!

    Hlakkar til að sjá hversu “frábærlega” Sýn ætlar að covera úrslitakeppnina

  4. AMM þann 2. desember 2007

    Ég er með ráð fyrir ykkur sem ekki getið séð leikina á sýn. Farið á síðu sem heitir myp2p.eu og þar er hægt að horfa á flesta leikina í NFL.

  5. Stefán Sölvi Pétursson þann 2. desember 2007

    Snilld!! Takk fyrir þennan link!

  6. MSM þann 2. desember 2007

    Svo þegar Henry Birgi er bent á þetta þá lítur hann undan. En þegar þeir dröslast til að viðhalda þessum sýningarrétt sínum þá er hann óhræddur við að dásama Sýn til hæstu hæða..

  7. Coach þann 2. desember 2007

    MSM , Henry Birgir er ekki sjónvarpsstjóri á SÝN, ef hann væri ekki að lýsa leikjum þá væri eflaust ekkert sýnt frá NFL á íslandi því það væri engin að lýsa.

  8. Henry Birgir þann 2. desember 2007

    Strákar,
    Nenni venjulega ekki að taka þátt í svona umræðum þar sem ég hef ekkert vald í þessum málum. Menn eru aftur á móti að draga mig á ósanngjarnan hátt inn í málið.

    Við ákváðum að brjóta út af vananum og sýna fimmtudagsleikinn þar sem við viljum sýna góða leiki. Það þýddi aftur á móti að við yrðum að sleppa sunnudagsleiknum.

    Þannig er mál með vexti að það eru ekkert sérstaklega spennandi leikir í gangi í kvöld og því var valið auðvelt. Síðuhaldari bendir á Jaguars-Colts en við tökum ekki leiki sem byrja klukkan 1 ytra þar sem við viljum sýna beint. Því kom sá leikur einfaldlega ekki til greina.

    Þeir leikir sem eru í gangi núna eru ekki spennandi. Hefðu menn frekar viljað einhvern leik núna en ekki leikinn á fimmtudag? Með því að skipta töldum við okkur vera að bæta þjónustuna en það virðist hafa farið fyrir ofan garð og neðan.

    Mér finnst persónulega að Sýn standi sig mjög vel í umfjöllun. Höfum markvisst bætt við okkur útsendingum í takt við vaxandi áhorf á NFL sem er jákvætt en NFL er ekki eitt af því vinsælasta sem stöðin sýnir. Því miður að mínu mati en við erum að bera út fagnaðarerindið og blessunarlega eru sífellt fleiri að opna augun fyrir þessu frábæra sporti.

    Svo er boðið upp á frábæra þætti um leiki hverrar helgi. Sýn er íþróttastöð en ekki NFL-stöð og mér finnst margir hverjir vilja fullmikið miðað við þá staðreynd og eru síðan fljótir að drulla allt niður um leið og allt er ekki þeim að skapi.

    Reynum frekar að vera jákvæðir, höldum áfram að bera út fagnaðarerindið svo íþróttin nái þeim vinsældum hér á landi sem hún á skilið.

  9. Kristján B þann 2. desember 2007

    Sæll Henrý,
    Aðal ástæðan fyrir því ég hef rekið á róður fyrir NASN er sú að sú stöð virðist ráða við að sýna mun fleyri leiki en þið sýnar menn hafið tök á að sýn þeir gera nátturulega út á að nota amrísku þulina og alla þætti af NFL network. Það verður þó að segjast að ég hef aldrei sett út á þýnar lýsingar Henrý en ef ég væri að setja út á lýsingar þá værum við sennilega að tala enska boltan. hér er línkur inn á þýsku útgáfuna af NASN sem sýnir NFL. http://nasn.com/content/nasn/portal.nsf/content/index-nfl
    og annar línkur
    http://nasn.com/content/nasn/portal.nsf/systemcontent/nflonnasn
    og einn í viðbót
    Það er að til vísu önnur útgáfa af NASN sem ekki sýnir NFL og er sú útgáfa fyrir Bretland og er sú útgafa notuð á skjánum og þeim rásum og þar stendur einmmt hnífurinn í kúnni stöðinn er á skjánum. Þó svo að flótt á litið þá eru allar aðrar íþrótta stöðvar á fjölvarpi 365 þær sömu utan við NASN. Það sem ég hef séð fyir mér með NASN er að hún myndi virka sem nokurskonar NBA TV en Sýn hafa ekki tekið ýkja vel í þá hugmyndir að setja NASN í sportpakan á fjölvarpinu og nota hana sem einhverskonar NBATV fyrir NFL. Sýn er nú ekkert með mjög marga NBA leiki beint svo gæti NASN verið góð viðbót við þá áskrifendur sýnar sem hafa almennt áhuga á öðrum amerískum íþróttum en nenna ekki að borga skjáinn bara til þess að geta horft NHL (Íshokkí).
    Þannig að í lokinn standa 2 spurningar hvað þyrftu margir fara fram á NASN í sportpakkan á fjölvarpinu til þess að nota megi hana fyrir NFL?
    En hvað er sýningar rétturinn á NFL mörg ár? Ef það sýst um það að NASN verði notuð sem nokkurs konar NBATV ef semja þar bæði við deildinna og NASN.
    Þá ætti mér mjög got Hennrý að þú kæmir þessum skilaboðum á yfirmenn þína svo Íslenskir NFL aðdáendur eigi ekki á hættu að verða eftir bátar annara evrópulanda þegar kemur að NFL og þú gætir þá svarað því á blogginu hérna eða á þínu bloggi.
    kv. Kristján B.

  10. Árni Stefán þann 2. desember 2007

    Góður punktur Henry, skulum ekki vera að hengja lýsanda fyrir smið.

    En varðandi skort á spennandi leikjum tel ég að það hefði verið alveg tilvalið að sýna Cleveland-Arizona.

    Cleveland liðið búið að koma gríðarlega á óvart, með ungt og spennandi lið og Arizona að sama skapi með hörkusókn og bæði þessi lið eru ullandi baráttu um að komast í úrslitakeppnina.

    Fimmtudagsleikurinn var gargandi snilld og frábært framtak, en því miður voru þetta 2 skref áfram og 1 tilbaka fyrst það var ekkert sýnt í dag/kvöld.

    En, það þýðir ekkert að vera að væla í Birni bónda endalaust, heldur halda bara áfram að breiða út boðskapinn. Eftir að þessi bloggsíða fór í loftið hafa nokkrir nýjir virkir notendur látið sjá sig á NFL spjallinu, því fleiri því betra, þannig að það er klárlega markaður fyrir þetta hér á Fróni. Menn eru að týnast úr felum hægt og rólega…

  11. Oddur þann 3. desember 2007

    Ekki spennandi leikir!! HA!!

    Hafa menn ekki fylgst með NFL nógu lengi til að vita að “Any Given Sunday” er ekki bara nafn á lélegri bíomynd heldur líka staðreynd um NFL deildina!!

    Það getur allt gerst, en það er nákvæmlega það sem gerir NFL deildina að því sem hún er. Að segja að engin “spennandi leikur” hafi verið í gangi er ekki rétt.

    Það eru allir leikir spennandi!

    Það versta við þetta allt saman er, að sýn skuli halda þessu tangarhaldi á sjónvarpsréttinum hér, þegar NASN býður upp á FRAMÚRSKARANDI umfjöllun.

    Fyrst NFL fær ekki mikið áhorf á SÝN, af hverju eru þeir þá að sýna leiki almennt!?!

  12. Kristján B þann 4. desember 2007

    Ég hvet síðuhaldara að taka saman ítarelga umfjöllun af á vininginum af því ef NFL efni á NASN væri aðgengilegt íslendingum.

  13. » Á Kiddi Jak séns í lokaumferð meistaradeildarinnar? tom þann 5. desember 2007

    [...] er á Goodison í kvöld á hinni umdeildu stöð, [...]

  14. Kristján B þann 5. desember 2007

    Síðast þegar ég visi þá var þetta NFL blogg en ekki meistaradeilar blogg.

Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Vefmiðlar
Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning