des
8
Heisman bikarinn afhentur í kvöld
8. desember 2007 kl. 15.35 |
Á laugardag verður “Heisman Trophy” afhentur við hátíðlega athöfn á Hilton Hótelinu í New York og búið er að tilkynna hvaða leikmenn geta hreppt bikarinn. 3 leikstjórnandar og 1 hlaupari eru í úrslitum. Tim Tebow leikstjórnandi hjá Florida Gators gæti orðið fyrsti Sophmore(leikmaður á öðru ári) leikmaður í sögu Heisman til að vinna bikarinn. Heisman verður í beinni á NASN en ekki á íslensku NASN útgáfuni, því miður.
Chase Daniel (Junior) átti frábært ár hjá lágt skrifuðu Missouri liði og leiddi liðið næstum því í úrslitaleikinn en þar sem þeir töpuðu síðusta leik sínum á móti Oklahoma varð ekkert úr því en þeir spila um “Cotton Bowl” þann 1.Janúar gegn Arkansas. Daniel er á Junior ári og gæti farið í nýliðavalið ef hann vill.
Colt Brennan(Senior) Brennan hefur átt stórkostlegan feril með Hawaii sem fóru í gegnum alla leiki sína ósigraðir. Brennan á snertimarksmetið í NCAA og verður líklegast valdur í 1 eða 2 umferð nýliðavalsins.
Darren McFadden (Junior) Arkansas liðið átti erfitt uppdráttar á þessu tímabili og á það eftir að hafa áhrif á möguleika McFaddens að ná Heisman bikarnum. McFadden er einn allra besti hlaupari sem ég hef séð og væri vel af titlinum komin. Hann verður valin í topp 5 í nýliðavalinu í vor, því þori ég að veðja á.
Tim Tebow(Sophmore) Mitt val til að vinna bikarinn er klárlega Tebow sem er einn allra skemmtilegasti leikmaður sem maður hefur séð. Setti met í ár með að senda fyrir yfir 20 snertimörk og hlaupa sjálfur fyrir 20 snertimörkum en það hefur engin annar áður gert. Tebow er örvhentur og er mikið deilt um hvort hann sé góður kastari eða ekki. Sumir halda því fram að hann eigi ekki eftir að eiga góðan atvinnuferil en ég hef trú að að þarna sé næsti Steve Young á ferð.
Ummæli
2 ummæli fram að þessu

Það gæti gerst að það lið sem velji Tebow í nýliðavalinu 2009 eða 2010 muni láta hann spila sem útherja líkt og Jaguars gerðu með Matt Jones fyrir nokkrum árum. Alltaf þegar maður sér highlights með Matt Jones sem leikstjórnandi hjá Arkansas á sínum tíma var hann alltaf hlaupandi og því ákváðu Jaguars að gera hann að útherja sem hefur ekki virkað nógu vel því miður. Ef það verður almennt mat manna að Tebow geti ekki kastað nógu vel þá kæmi mér ekki á óvart ef hann yrði gerður að útherja.
Allir hérna í bandaríkjunum eru búnir að tala um að Tebow vinni þetta enda hefur hann verið að spila frábærlega. Kastað fyrir eitthvað 29 snertimörk og hlupið sjálfur inn fyrir eitthvað 23 ef ég man rétt. Alveg magnað.