jan
14
Stocco lifir í skáldsögu John Grisham!
14. janúar 2008 kl. 8.10 |
John Stocco er ekki nafn sem margir á íslandi þekkja en hann var stjarna háskólanum í Wisconsin og var í nýliðavalinu síðasta vor. Hann var m.a. til reynslu hjá Green Bay Packers og New York Giants en fékk ekki samning. Eftir að NFL draumurinn gekk ekki upp þurfti hann að fara að leita sér af “alvöru vinnu” eins og hann orðaði það sjálfur. En þá hringdu Milan Rhinos í hann og er Stocco á leið til Ítalíu núna í byrjun janúar.
Stocco er vafalaust stærsta erlenda nafnið til að spila þar auk þess að vera hæfileikaríkasti leikstjórnandinn. Stocco segir að hann fyrsta sem hann setur í tösku þegar hann fer til ítalíu er nýjasta skáldsaga rithöfundsins John Grisham “Playing For Pizza” Grisham var staddur í Parma á ítalíu þegar hann sá fyrir tilviljun Amerískan Fótbolta spilaðan þar í borg en Parma er með lið í efstu deild þar og þar kynntist Grisham bandarískum leikmanni sem spilar í þeirri deild og byggist sagan að mörgu leyti af þessum leikmanni. Saga Grisham er um útbrunnin leikstjórnanda sem fer að spila í þessari ítölsku deild. Sjálfur hef ég ekki lesið bókina en ætla að ná mér í eintak fljótlega
Ítalir byrjuðu fyrst að hafa áhuga á Amerískum Fótbolta þegar var byrjað að sýna frá NFL deildinni fyrir rúmlega 25 árum síðan þökk sé nokkrum hörðum áhugamönnum á þeim tíma er þróunin orðin sú að það eru 3 deildir á Ítalíu með 8 liða efstu deild og í heildina eru um 50 lið. Ítalska deildin heitir Lega Nazionale Football Americano en gaman hefði verið að sjá hvernig hlutirnir væru á Íslandi í dag ef ævintýrið sem hófst 1988 hjá Daða of félögum hefði náð fótfestu
Ekki þó örvænta því reglulegar æfingar á Amerískum Fótbolta eru að fara að hefjast og ég minni á menn að skrá sig á á http://isafonline.ning.com/
Ummæli
1 ummæli fram að þessu

Skemmtilegt blog-post. Allt það sem snertir útbreiðslu þessarar íþróttar snertir alltaf strengi hjá mér. Eftir að hafa staðið í þessu á sínum tíma hef ég fundið að áhugi minn á að spila, kenna, og taka þátt í uppbyggingu liða hefur stundum verið meiri en áhugi minn á að horfa á NCAA eða NFL leiki.
Það er semsagt mikil gróska í íþróttinni um allan heim. Tvær nýjar pro-deildir fara í gang í USA í vor. Þessar deildir eru ekki að reyna að keppa við NFL, heldur vera stökkpallur í NFL. En þó eru þegar talsvert margar semi-pro og amateur deildir sem gera það sama. Þessar nýju er þó spes þar sem þær eru í eigu frægra business kalla í USA og hafa fengið sterka menn til að reka þær. Mark Cuban eigandi Dallas liðsins í NBA er til dæmis eigandi eins liðs.
Fyrir áhugasama, hér er nokkuð góður listi yfir deildir um allan heim:
http://en.wikipedia.org/wiki/List_of_leagues_of_American_and_Canadian_football