maí
22
Frétt vikunnar
22. maí 2008 kl. 23.08 |
Við á ritstjórninni ætlum að gera smá hlé á einkunnagjöfum og fjalla örstutt um mál málanna í NFL deildinni þessa dagana.
Í gær ákváðu eigendur NFL liðanna að framlengja ekki kjarasamningana við leikmenn til ársins 2013 heldur láta núverandi samninga renna út árið 2011. Í fyrstu gæti þetta mál virst skipta litlu máli og vera þurrt og leiðinlegt fyrir þann sem er nýr að fylgjast með deildinni eða ekki búinn að kynna sér deildina nógu vel en þessi ákvörðun getur haft gífurlega afleiðingar.
Þetta þýðir að næstu 3 tímabil (2008, 09 og 10) munu spilast eins og venjulega með þá breytingu að á 2010 tímabilinu verður ekkert launaþak við lýði eins og hefur verið síðan 1994. 2011 tímabilið yrði síðan í hættu þar sem verkfall leikmann gæti orðið staðreyndin, í fyrsta skiptið síðan 1987. Það er nú bara þannig að launaþakið er eitt af þeim tækjum sem deildin hefur til að liðin verði eins jöfn að styrkleika og mögulegt er. Þegar slíkt kerfi er ekki við lýði gætu stóru strákarnir sem afla mestra tekna á borð við Washington Redskins, Dallas Cowboys og New York Giants farið að láta eins og Roman Abramovich með Chelsea liðið sitt og reynt að kaupa meistaratitla. Í núverandi kerfi þá eru liðin að deila tekjum sem þau afla á milli sín sem gerir það að verkum að liðin geta verið jafnari og erfitt er að kaupa meistaratitla. Það er fyrrverandi framkvæmdarstjóra deildarinnar, Pete Rozelle, að þakka að það kerfi sem nú er við lýði með tekjudeilingu er við lýði.
Aðrir þættir sem spila inn í vegna atburða gærdagsins er að skv. núverandi kerfi þá eru eigendurnir að láta rúm 60% af tekjum sínum renna til leikmannanna og það finnst þeim of mikið. Annar veigamikill þáttur er launamál nýliðinna og launamál þeirra reyndu. Þegar Jake Long skrifaði undir samning við Miami Dolphins sem fyrsti leikmaður valinn í síðasta nýliðavali varð hann undir eins launahæsti sóknarlínumaður deildarinnar. Þetta eru núverandi sóknarlínumenn sem hafa sýnt að þeir geti spilað vel í deildinni auðvitað ekki sáttir með og ekki heldur eigendurnir sem finnst þessi þróun mála út í hött.
Einnig hefur þessi ákvörðun mikil áhrif á Free Agency tímabilið árið 2010 eins og Pat Kirwan á nfl.com bendir á í tveimur greinum á þeim frábæra vef. Sjá má greinarnar hér og hér. Helstu atriðin sem hann nefnir er að leikmenn muni nú þurfa að spila í 6 ár í deildinni í stað fjögurra áður en þeir komast í peningalandið sem Free Agency er fyrir marga leikmenn. Einnig munu liðin geta nýtt þrjá “merkimiða” (tags) á leikmenn, þ.e. franchise tag og tvo transition tag, í stað þess að geta aðeins látið annaðhvort franchise eða transition tag á leikmenn í dag. Þriðji hluturinn er síðan sá að þau 8 lið sem komast í úrslitakeppnina munu geta tekið takmarkaðan þátt í Free Agency og þau 4 sem komast í úrslitaleiki AFC og NFC muni nánast ekki geta tekið þátt í Free Agency. Í síðari greininni sem Kirwan skrifar á nfl.com og linkað er á hér útskýrir hann þennan punkt betur.
Síðast en ekki síst er sú staðreynd að ekkert nýliðaval yrði eftir 2011 tímabilið ef nýjir samningar nást ekki. Þá myndu lið geta nælt sér í hvaða leikmenn sem koma upp úr háskóla sem er og það gæti gert ójöfnuðinn í deildinni meiri.
NFL heimurinn er þó ekki að farast eins og Vic Carucci á nfl.com bendir á. Enn eru tvö heil tímabil eftir undir nýja kerfinu og 2010 tímabil án launaþaks og því nægur tími til viðræðna milli leikmannasamtakanna og eigenda liðanna. Ómögulegt er að segja hvað mun gerast en ég hef það á tilfinningunni að launaþakið muni ekki vera við lýði eftir 2009 tímabilið. Það þarf þó ekki að þýða að deildin muni breytast í ensku úrvalsdeildina í knattspyrnu með nokkrum stórliðum sem eyða eins og brjálæðingar og reyna að kaupa sér titla. Ýmislegt verður eflaust til staðar til að jafna leikvöllinn milli þeirra ríku og ekki svo ríku.
Ekki verður þessi pistill lengri að sinni en ég hvet ykkur til að lesa þær greinar sem vísað er á hér til frekar fróðleiks um deildina fögru og hvað fer fram á bak við tjöldin þegar leikmenn eru ekki að spila.
Hér eru síðan nokkur video af nfl.com til viðbótar um málið:
Eigendur liðanna útskýra ákvörðun sína
Roger Goodell, framkvæmdarstjóri NFL, segir sína skoðun
Gene Upshaw, formaður leikmannasamtakanna, segir sína skoðun
Scott Hanson á nfl.com fjallar um málið
Leikmenn Denver Broncos deila sínum skoðunum til almennings
Ummæli
2 ummæli fram að þessu

takk fyrir að útskýra þessu fyrir mér, var ekki alveg að átta mig á hversu mikilvægt þetta var. Vonandi kippa þeir þessu í lag eftir næsta tímabil svo allt fari ekki í ruglið.
Hér er síðan önnur grein sem fjallar um málið: http://www.jaguars.com/news/article.aspx?id=6976