Shockey til New Orleans Saints

22. júlí 2008 kl. 5.20 |

shockey.jpgHinn litríki og skemmtilegi innherji Jeremy Shockey er nú orðin leikmaður New Orleans Saints eftir að Superbowl meistararnir í  New York Giants skiptu á leikmanninum fyrir valrétt í annari og fimmtu umferð í nýliðavalsins á næsta ári.  Shockey lék ekkert með Giants í úrslitakeppninni á síðasta tímabili vegna meiðsla.

Þá var einum besta varnarmanni deildarinnar síðari ár Jason Taylor skipt frá Miami Dolphins til Washington Redskins fyrir valrétt í 2.umferð nýliðavalsins árið 2009 og valrétt í 6.umferð árið 2010.


Ummæli

3 ummæli fram að þessu

  1. Brynjar þann 22. júlí 2008

    Ég á eftir að sakna þín Shockey
    snökt snökt :(

    ps akkúrat þegar ég fæ Shockey treyju þarf hann endilega að vera seldur!

  2. Daði Guðmundsson þann 23. júlí 2008

    Miami Dolphins eru með allskonar uppstokkanir. Bill Parcels er víst að hrista upp í þeim og er að byggja upp lið til lengri tíma. Það væri flott að fá smá skrif frá NFL bloggurunum um það allt saman. Mér skilst að Parcels byrji á því að byggja upp mjög sterka sóknarlínu, það hefur virkað hjá honum áður.

  3. Loftur þann 25. júlí 2008

    Þetta er eins og ég lendi ítrekað í þegar ég kaupi mér íþrótta treyjur. Leikmennirnir eru alltaf seldir stuttu síðar. Algjörlega óþolandi.

Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Vefmiðlar
Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning