des
31
Enn sáum við töfra háskólaboltans
31. desember 2009 | Rita ummæli
Ég náði því miður ekki að koma með færslu í dag um hvaða leikir væru í beinni í kvöld en nú var að ljúka leik Bowling Green vs Idaho og var þetta hreint út sagt stórkostlegur leikur sem endaði ótrúlega. Mikið skorar og tveir stórkostlegir framtíðar NFL leikmenn spila í sitthvoru liðinu. Freddie Barnes - [...]
des
29
Tveir Bowl leikir í beinni í kvöld.
29. desember 2009 | Rita ummæli
Tveir leikir í beinni á ESPN America í kvöld en það eru tveir Bowl leikir. Sjá dagskrána hér að neðan. Hafði því miður ekki tíma í að koma með lista yfir þeim leikmönnum sem er vert að fylgjast með en það er helst í liði Miami sem eru flestir leikmenn sem eiga möguleika í atvinnuboltann, [...]
des
29
Nokkrar hugleiðingar
29. desember 2009 | 1 ummæli
Þá er aðeins ein umferð eftir áður en úrslitakeppnin hefst og búast má við miklu fjöri í lokaumferðinni þegar liðin berjast um sæti í úrslitakeppninni. Ekki er allt sem sýnist í deildinni og ætla ég mér að fara yfir nokkra hluti sem vekja áhuga minn á þessum tímapunkti.
Saints og Vikings eru ekki bestu liðin í [...]
des
29
Monday Night Football: Favre og félagar töpuðu í ótrúlegum leik
29. desember 2009 | Rita ummæli
Desember mánuður hefur ekki verið hliðhollur Minnesota Vikings en þeir hafa nú tapað þrem af síðustu fjórum leikjum. Þeir spiluðu við Chicago Bears í Monday Night Football í nótt og voru 17 stigum undir í 3.leikhluta 6-23. Enn ein endurkoma Brett Favre átti sér stað og jöfnuðu Vikings leikinn í 23-23 en Chicago Bears náðu [...]
des
27
Urban Meyer hættur sem þjálfari Florida Gators
27. desember 2009 | 2 ummæli
Í einni óvæntustu frétt síðari ára úr háskólaboltanum þá er Urban Meyer þjálfari Florida Gators hættur með liðið eftir fimm ára starf. Meyer hefur tvisvar þjálfað Florida til Landsmeistara í háskólaboltanum en liðið er ríkjandi meistari. Ekki eru komnar nákvæmar ástæður fyrir ástæðu þess að Meyer sé að hætta en hann kom með eftirfarandi tilkynningu.
““I [...]
des
26
Jólafótboltinn heldur áfram í dag!
26. desember 2009 | Rita ummæli
Það eru þrír Bowl leikir í beinni útsendingu á ESPN America í kvöld og því engin ástæða til að láta sér leiðast á þessum laugardegi. Þetta eru hörkuleikir og mæli ég sérstaklega með Pittsburgh vs North Carolina. Fyrir neðan hvern leik hef ég sett lista yfir þá leikmenn sem ber að fylgjast með. Þeir eru [...]
des
25
Gleðileg jól
25. desember 2009 | 2 ummæli
Stjórnendur NFL Bloggsins óskar lesendum, aðdáendum NFL og háskólaboltans og öðrum landsmönnum gleðilegra jóla.
Við minnum einnig á leik Tennessee Titans og San Diego Chargers sem fer fram kl. 00:30 á Jóladag (þ.e. aðfaranótt annars í jólum). Búast má við hörkuleik þar sem Titans berjast fyrir sæti í úrslitakeppninni á meðan Chargers reyna að gulltryggja stöðu [...]
des
22
Las Vegas Bowl: Oregon State vs Brigham Young
22. desember 2009 | Rita ummæli
Las Vegast Bowl hefst á ESPN America kl 01:00
Fylgstu með
Oregon State: Sean Canfield, QB, Jacquizz Rodgers RB, James Rodgers WR, Stephen Paea DT.
BYU: Max Hall, QB. Harvey Unga RB, Matt Reynolds, OT, Dennis Pitta TE.
des
22
Chris Henry jarðsettur
22. desember 2009 | Rita ummæli
Allt Cincinnati Bengals liðið flaug til New Orleans í dag til að vera viðstaddir jarðaför Chris Henry sem lést í síðustu viku. Alls voru yfir 1000 manns í jarðarförinni og þar á meðal var Roger Goodell stjórnarformaður NFL deildarinnar. Lögreglan hefur ekki enn ákveðið hvort unnusta hans verði ákærð fyrir að hafa valdið dauða Henry.
des
22
AFC Playoffs Picture
22. desember 2009 | Rita ummæli
Baráttan um sæti í úrslitakeppninni í AFC er sú harðasta í manna minnum nú þegar tvær umferðir eru eftir. Það eru 10 lið sem eiga enn möguleika á að komast inn í úrslitakeppnina. Mesta spennan mun verða um wild card sætin tvö en eins og er eru tvö lið, Broncos og Ravens, með 8-6 árangur [...]
des
20
Fyrsti ósigur New Orleans Saints staðreynd
20. desember 2009 | 3 ummæli
Indianapolis Colts eru nú eina ósigraða liðið í deildinni eftir að New Orleans Saints tapaði fyrir Dallas Cowboys í New Orleans í nótt. Dallas voru yfirburðarlið fyrstu þrjá leikhlutana og komust í 24-3. Saints minnkuðu þó munin í fjórða leikhluta í 24-17. Dallas liðið misnotaði síðan vallarmarkstilraun þegar 2 mínútur voru eftir en Saints náðu [...]
des
19
New Mexico Bowl: Fresno State (8-4) vs. Wyoming (6-6)
19. desember 2009 | 1 ummæli
Ryan Matthews og félagar í Fresno State taka á móti Wyoming. Matthews er magnaður hlaupari sem gæti verið valinn í 1.umferð nýliðavalsins í vor. Leikurinn hefst kl 21:30
des
19
Saturday Night Football: Dallas Cowboys vs New Orleans Saints
19. desember 2009 | Rita ummæli
í nótt fer fram leikur Dallas Cowboys og New Orleans Saints. Saints eru ósigraðir eins og Colts en Dallas Cowboys þurfa sárlega á sigri að halda til að færast nær sæti í úrslitakeppni.
Þetta verður hörkuleikur í Beinni á NFL Network og á ESPN America
des
19
Bowl Season hefst í kvöld
19. desember 2009 | Rita ummæli
34 Bowl leikir verða spilaðir í háskólaboltanum á næstu þrem vikum og er fyrsti leikurinn í beinni á ESPN America í kvöld. Það er New Mexico Bowl á milli Fresno State vs Wyoming. Í liði Fresno State er hlauparinn Ryan Matthews sem er búin að eiga frábært tímabil. Hann er á Junior ári og gæti [...]
des
17
Chris Henry er látinn
17. desember 2009 | Rita ummæli
Chris Henry útherji Cincinnati Bengals lést kl 11:46 í morgun að íslenskum tíma. Hann var 26 ára gamall og skilur eftir sig unnustu og þrjú börn. Lögregla hefur ekki gefið neinar yfirlýsingar um hvað gerðist en málið er í rannsókn. Henry fannst útí vegakanti skammt frá heimili sínu eftir að hafa kastast út úr bíl [...]
