Pro Bowl í nótt

31. janúar 2010 | 1 ummæli

Í nótt fer fram stjörnuleikur NFL deildarinnar, Pro Bowl. Er hann leikinn í Miami í Florida líkt og Super Bowl sem verður eftir viku. Í Pro Bowl mætast helstu stjörnur deildarinnar úr AFC og NFC. Undanfarin 30 ár eða svo hefur leikurinn verið leikinn á Hawaii viku eftir Super Bowl en sökum mjög lélegs áhorfs [...]

Kurt Warner hættur

31. janúar 2010 | Rita ummæli

Kurt Warner leikstjórnandi Arizona Cardinals tilkynnti í gær að hann væri hættur.  Hann fer úr NFL eftir 12 ára feril í deildinni.  Ef ætti að gera kvikmynd um feril einhvers leikmann í NFL þá myndi ég mæla með ævisögu Kurt Warner en hans saga er í raun lygileg. Hann var óvalin í nýliðavalinu þegar hann [...]

Síðari leikur gærdagsins var úrslitaleikur NFC á milli Minnesota Vikings og New Orleans Saints, í Superdome, heimavelli Saints.
Það voru gestirnir sem hófu leikinn í sókn og þrátt fyrir ummæli Brad Childress þjálfara um að þeir myndu halda jafnvægi í sóknarleiknum þá hóf hann leikinn á 6 kastkerfum í röð. Adrian Peterson fékk þó að hlaupa [...]

Fyrri leikur gærdagsins var úrslitaleikur AFC á milli New York Jets og Indianapolis Colts á Lucas Oil Stadium, heimavelli Colts.
Colts menn hófu leikinn í sókn en voru fljótt stoppaðir af Jets vörninni. Jets vörnin var sú besta í deildinni á tímabilinu og eitt aðalsmerki hennar eru blitz-in sem þeir nota óspart á þriðju tilraun. Við [...]

Úrslitaleikir Þjóðardeildar og Ameríkudeildar verða í beinni útsendingu á SPOT Bæjarlind 6, í kópavogi í kvöld.  Fyrri leikurinn hefst kl 20:00 og sá seinni strax eftir það.  SuperBowl partýið verður síðan haldið þar 7.Febrúar en við komum nánar að því síðar.  SPOT Á Facebook
ESPN America byrjar með upphitun kl 16:00 í dag en hér má [...]

Upphitun fyrir Superbowl partýið er á morgun á SPOT en þeir ætla að sýna báða leikina í beinni annað kvöld.  Þeir sem eru ekki með ESPN America eða NFL Gamepass geta því farið þangað.  Nánar um þetta á morgun.

Í ár sem önnur ár fara fram þrír stjörnuleikir þar sem leikmenn úr háskólaboltanum sýna sig og sanna fyrir njósnurum atvinnumannaliðanna. Hér má sjá nánari upplýsingar um leikina.
Fyrsti leikurinn fer fram núna í kvöld. Það er East-West Shrine leikurinn sem fer fram í kvöld. Þar eru aðallega leikmenn sem búist er við að muni verða [...]

Þá er síðasta leik divisional umferðarinnar í úrslitakeppni NFL lokið en þar áttust við New York Jets og San Diego Chargers á Qualcomm Stadium, heimavelli Chargers.
Það var nokkuð ljóst í fyrsta leikhluta að þessi leikur myndi skera sig úr hinum leikjum helgarinnar og minna meira á gamla skólann. Fyrstu tvær sóknir leiksins enduðu báðar með [...]

Þá er síðari leiknum í NFC hluta divisional umferðarinnar lokið en það voru Dallas Cowboys og Minnesota Vikings sem áttust við á Mall of America Field at the Hubert H. HumphreyMetrodome, heimavelli Vikings.
Cowboys hófu leikinn í sókn og sókn þeirra leit ágætlega út til að byrja með og þeir voru við það að komast í [...]

Gaines Adams látinn

17. janúar 2010 | Rita ummæli

Varnarlínumaðurinn Gaines Adams, 26 ára, lést í dag eftir að hafa fengið hjartaáfall. Adams var á mála hjá Chicago Bears. Adams hafði víst átt við einhverskonar heilsuvandræði að stríða og kærasta hans hringdi á sjúkrabíl nú í morgun. Hann kom á sjúkrahús kl. 8 að staðartíma í Greenwood, South Carolina og var úrskurðaður látinn 21 [...]

Síðari leikur gærdagsins var á milli Baltimore Ravens og Indianapolis Colts sem fór fram á Lucas Oil Stadium, heimavelli Colts.
Colts menn byrjuðu í sókn og fóru hægt og rólega upp völlinn þangað til Ravens vörnin stöðvaði þá loks á sinni eigin 26 yarda línu. Matt Stover, sparkari Colts, fór létt með 44 yarda vallarmarkstilraun sína. [...]

Fyrsti leikur Divisional umferðarinnar í úrslitakeppninni er nú lokið. Leikurinn milli Arizona Cardinals og New Orleans Saints fór fram í Superdome, heimavelli Saints.
Leikurinn byrjaði heldur betur fjörlega. Á fyrsta kerfi leiksins hljóp Tim Hightower, hlaupari Cardinals, 70 yarda inn í endamarkið. Góð útsjónarsemi og kvikar hreyfingar Hightower gerðu honum kleift að ná þessu langa hlaupi [...]

Verðlaunin veitt

16. janúar 2010 | Rita ummæli

Árlega veitir Associated Press fréttastofan þeim leikmönnum sem skarað hafa fram úr í NFL viðurkenningu fyrir afrek sín. Verðlaunin er alls 7 talsins. Rennum yfir verðlaunin og hvað leikmennirnir gerðu til að vinna þau.
Verðmætasti leikmaður deildarinnar (MVP): Peyton Manning, QB, Indianapolis Colts
Manning hlaut heiðurinn verðmætasti leikmaður deildarinnar í fjórða skiptið á ferlinum en það er [...]

Þetta er draumahelgi fyrir NFL aðdáendur en það eru tveir leikir í kvöld í úrslitakeppninni og tveir á morgun.  Leikirnir eru………
Arizona Cardinals@New Orleans Saints kl 21:30 (spá JYJ, Saints sigur 17-38)
Baltimore Ravens@Indianapolis Colts kl 01:00 (spá JYJ, Colts sigur 14-17)
Sunnudagur.
Dallas Cowboys@Minnesota Vikings kl 18:00 (spá JYJ, Vikings sigur 33-36)
New York Jets@San Diego Chargers kl 21:40 [...]

Undanfarin þrjú tímabil hefur NFL deildin leikið einn leik í London og mun deildin halda uppteknum hætti á næstkomandi tímabili þegar San Francisco 49ers og Denver Broncos mætast. Þetta var tilkynnt fyrir örskömmu síðan á nfl.com.
Leikurinn verður 31. október og hefst kl. 17 að staðartíma (kl. 13 á Austurstrandartíma í Bandaríkjunum). Þetta er skráður sem [...]

leita áfram »
Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Vefmiðlar
Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning