Ómar Stefánsson


Prófkjör 101 –Breytt færsla (Léttöl í mjög smáu letri)

Fært undir Umræðan af Ómar Stefánsson þann 23. febrúar 2010.

Í tilefni af símtali Framkvæmdastjóra Framsóknarflokksins, hef ég ákveðið að breyta þessari færslu.
Málið er ósköp einfalt. Gunnar Ingi Birgisson helsti stuðningsmaður Einars Kristjáns, kom á Pressan.is og fullyrti að hundruðir Framsóknarmanna hefðu gengið í Sjálfstæðisflokkinn til þess að fella hann. Það er auðvitað kjaftæði hann sá um það sjálfur.

Prófkjör ganga á vissan hátt út að fjölga í flokkum. Enginn hefur verið betri í því í Kópavogi en einmitt Gunnar Ingi fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Nú hinsvegar er hann búinn að vera smala í Framsóknarflokkinn fyrir Einar Kristján, það er ekkert ólöglegt við það. Ég bara vinn út frá því. Hér fyrir neðan er því breytt færsla, svona eins og bjór auglýsing er bara auglýsing um léttöl.

 

Í gær var fyrrihluti viðtals við Gunnar Inga Birgisson á Pressunni, þar sagði hann frá því að einhverjir hundruðir Framsóknarmanna hefðu tekið þátt í prófkjöri þeirra. Á honum mátti skilja að það m.a. hefði orðið honum að falli. Fljótlega eftir að ég hafði horft á þetta viðtal vorum við frambjóðendur Framsóknarflokksins saman kominn að pakka niður bæklingum sem við erum að senda til flokksbundinna Framsóknarmanna.

Það var greinilega mikið um nýskráningar hjá okkur. Það vakti töluverða athygli í hópnum að þekktir sjálfstæðismenn væru í hópnum og dætur og tengdasynir þekktra aðila sem vissulega eiga töluvert stóran þátt í uppbyggingu bæjarins.

Síðan er það trompið, öflugur verkfræðingur er einnig gengin til liðs við Framsókn. Ekki er ég að fara grenja yfir því, heldur fagna ég þessum nýju félögum. Því ég veit að þau eru að gera þetta af góðum hug fyrir Einar Kristján. Hugsanlega gætu þessir aðilar unnið eitthvert kynningarefni “pro bono” fyrir hann.

Ég hef fundið fyrir því sjálfur að það er gott að eiga góða að sem eru tilbúin að hjálpa við prófkjör. Engu að síður þýðir þetta auðvitað að ég þarf að halda vel á spilunum til þess að tryggja að mitt stuðningsfólk mæti á laugardaginn og kjósi mig í 1. sætið.

Það var einn galli á myndatökunni hjá Pressunni. Það var mjög þröngur rammi þannig að það var erfitt að sjá hvort Gunnar væri með geislabaug og það hefði verið gaman að sjá eitt skot á bakið á Gunnari, hvort það væru ekki að vaxa á hann vængir.

Lokað er fyrir ritun ummæla.


Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Sjónvarp Útvarp Fréttablaðið
Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning