Kverkfjöll, Sigurðarskáli, Hveragil - Myndir og kort
Konan sem leitað var að við Kverkfjöll er fundin
Kverkfjöll er staður sem verður pínu útundan og er líklega ástæðan fyrir því að flestir láta sér nægja að fara upp í Öskju og Herðubreiðarlindir og þaðan jafnvel inn að Kárahnjúkum eða áfram suður yfir Gæsavatnaleið.
Ég hef átt þess kost að komast nokkrar ferðir inn í Kverkfjöll og þá bæði yfir Vatnajökul og svo landleiðina.
Hér er horft yfir annan af tveimur sigkötlum í Kverkfjöllum. Þar má líka sjá hóp af jeppamönnum sem voru með þeim fyrstu sem óku yfir frá Grímsfjalli yfir þar sem rann úr Grímsvötnum eftir Gjálpargosið. Skáli jarðvísindamanna í Kverkfjöllum uppi á öxlinni milli sigkatlanna.

Skáli jarðvísindamanna í Kverkfjöllum (klikkið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Útsýnið getur verið gríðarlegt til norðurs á góðum degi. Má þá sjá Öskju og Herðubreið. Eins og sjá má á myndinni, þá er mikill jarðhiti á svæðinu og þarna er virk eldstöð undir.

Horft ofan úr Kverkfjöllum til norðurs og má sjá hluta af sigkatlinum sem er vestanmegin í eldstöðinni (klikkið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Vinsælt er að ganga inn að íshellinum í Kverkjökli. En þar þarf að passa sig vel á hruni úr jöklinum.

Hér er hægt að ganga sunnan megin að íshellinum yfir brú (klikkið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Sigurðarskáli í Kverkfjöllum. hér er starfsmaður að draga fána að húni í hálfa stöng til að mótmæla virkjunarframkvæmdum við Kárahnjúka.

Sigurðarskáli í Kverkfjöllum. (klikkið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Teikning hjá skálaverði sem sýnir gönguleiðir um Kverkfjallasvæðið.

Gönguleiðir: Virkisfell 1-2 klst., Biskupsfell 4-5 klst., Íshellir 1-2 klst., Hveradalur 8-10 klst. (klikkið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Kort af Kverkfjöllum sem sýnir Sigurðarskála, skálann í Hvannalindum og fleiri skála á svæðinu og svo hvar konan var sem verið var að leita af. En hún fannst í Hveragili. Þar ku vera hægt að fara í bað.

Kverkfjöll, Sigurðarskáli, Hvannalindir, íshellirinn í Kverkfjöllum. (klikkið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Kjartan
WWW.PHOTO.IS
Fært undir Ferðalög, Ljósmyndun þann 27. ágúst 2007 af photo | 0 ummæli
Hvaða búnað þarf til að ferðast á jökli og stunda ísklifur?
Til að fólk geti aðeins gert sér grein fyrir þeim aðstæðum sem björgunarsveitarmenn eru að vinna við á Svínafellsjökli, þá má skoða eftirfarandi myndaseríu.
Þessi mynd sýnir vel hversu hrikalegur og erfiður yfirferðar jökul getur orðið.

Mest hætta á svona stað er ef mikið skrið er á jöklinum og ef hann fellur fram af kanti þar sem hann nær að brotna á yfirborðinu og ná þá sumar sprungurnar alveg niður í botn. (klikkið á mynd til að sjá fleiri myndir)
En fyrir þá sem ætla að fara stunda göngur og klifur á jökli ættu að byrja á því að fá sér góða skó eins og þessa hér. En þessir skór eru sérútbúnir til að ganga á ís og eru ekki ósvipaðir skíðaskóm. Nema hvað þessir eru í þægilegri kantinum og henta líka ágætlega sem gönguskór.

Á þessa skó er auðvelt að festa ísbrodda (klikkið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Hér má svo sjá ís- og klifurbroddana sem smelt er á skóna og er svona búnaður algjört lykilatriði þegar verið er að ferðast á jökli.

Einnig er hægt að fá einfaldari brodda sem hægt er að binda á venjulega gönguskó. (klikkið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Næsta öryggistæki sem þarf að hafa með er ísexi eins og þessi mynd sýnir. Hún er mikilvægt öryggistæki þegar verið er að ferðast á ís.

Hér er sýnd notkun á ísexi. (klikkið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Ef aðstæður eru erfiðar og hættulegar, þá er sett öryggislína á milli til að tryggja ef einhver félli t.d. óvænt í gegnum þunna snjóbrú sem gæti legið yfir sprungu.

Hér má sjá notkun á öryggislínu. (klikkið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Fyrir þá sem eru vanir og vel þjálfaðir í ísklifri er lítið mál að fara upp þverhníptan ísvegg eins og þessi kona er að gera hér. En með réttum búnaði þá er ferðamennska á jökli auðveldur ferðamáti.

Hér klifrar kona upp ísvegg og til þess notar hún ísbrodda og tvær ísaxir. (klikkið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Aðstæður á jökli geta verið fjölbreyttar og það sama gildir um veðrið

Hér er rigning eða vel blaut slydda og ef að fólk er vel búið, þá þarf ekki að hafa miklar áhyggjur. (klikkið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Á íslandi er stór hópur fólks sem leggur á sig gríðarmikið óeigingjarnt starf þegar óhöpp gerast. Það eru þrautþjálfaðar fólk út um land allt sem er fljótir að mæta þegar aðstæður kalla eins og við Vatnajökul þessa daganna. Kostnaðurinn er gríðarlegur í sérhæfðum búnaði, tækjum og fatnaði sem þetta fólk þarf að fjárfesta í.

Hér er hópur að undirbúa sig til ferðar og er margt sem þarf að huga að. (klikkið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Og svo í lokin, þá er þetta ein af mörgum ástæðum fyrir því að fólk er að leggja allt þetta erfiði á sig. En jökulinn er síbreytilegur og getur tekið á sig ýmsar kynjamyndir. Hér má sjá hvar lítill foss fellur út um gin á hákarlskjafti!

Gaman getur verið stundum að mynda kynjamyndir úr ís á jöklum. Þeir sem eru að stunda ferðamennsku á jöklum, verða fljótt heillaðir af fjölbreytileika og drungalegri fegurð sem vatnið er að taka á sig í föstu og fljótandi formi. (klikkið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Nánast flestir ferðamenn sem koma til landsins hafa aldrei átt þess kost að komast á jökul og hvað þá að fá að skoða íshelli eins og þessi hópur hér fékk að upplifa.

Hér hefur vatn í upphafi runnið niður um litla sprungu a jöklinum og með tímanum náð að stækka vatnsrásina og að lokum orðið þessi myndalegi svelgur (klikkið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Kjartan
WWW.PHOTO.IS
Fært undir Ferðalög, Ljósmyndun, Umhverfi, Umræðan, Íþróttir þann 25. ágúst 2007 af photo | 0 ummæli
Hvar eru Hrútsfjallstindar? Myndir og kort
Kanna slóð upp að Hrútsfjallstindum
Í einu af fyrstu bloggunum, þá kom ég með tillögu um að líklega hefðu félagarnir tekið stefnuna á þetta svæði. En hér má sjá Vestara-Hrútsfjall, Eystra-Hrútsfjall og Hrútsfjallstinda þar sem flogið er upp Svínafellsjökul.

Vestara-Hrútsfjall, Eystra-Hrútsfjall og Hrútsfjallstindar framundan (klikkið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Hér er komið nær Eystri-Hrútsfjalli og má sjá hvað úfinn jökulinn verður meira og meira sprunginn því meiri sem brattinn verður

Sjá má tilkomumikinn foss í hlíðum Eystra-Hrútsfjalls (klikkið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Kort af Hrútsfjallstindum.

Svínafellsjökull, Vatnajökull, Hrútsfjallstindum (klikkið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Kjartan
WWW.PHOTO.IS
Fært undir Ferðalög, Flug, Ljósmyndun, Umræðan þann 24. ágúst 2007 af photo | 0 ummæli
Er hér með þrjár myndir sem komast næst staðnum þar sem tjöldin fundust!
Ég átti þess kost að fljúga yfir Svínafellsjökul á mótorsvifdreka og tók þá þessar myndir. Myndirnar sýna vel hversu hrikalegt svæðið er yfirferðar.
Hér er fyrri myndin sem sýnir vel svæðið þar sem tjöldin fundust. En svæðið er fyrir miðri mynd.

Hvannadalshnjúkur í bakgrunni (klikkið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Hér er seinni myndin tekin aðeins nær sem sýnir vel svæðið þar sem tjöldin fundust. En svæðið er neðarlega hægra megin

Hvannadalshnjúkur í bakgrunni (klikkið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Hér er ég komin aðeins upp fyrir svæðið þar sem tjöldin fundust.

Horft niður með Svínafellsjökli þar sem tjöldin fundust (klikkið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Auðvelt er að ganga töluverðan spotta upp með jöklinum eins og sjá má á næstu mynd en víða er laust grjót á yfirborðinu sem þarf að passa sig á

Leiðin upp með Svínafellsjökli að vestan verðu (klikkið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Á þessari mynd má sjá hversu hrikalegur og erfiður jökulinn er á að líta

Hér má vel sjá kantinn sem að ferðamenn ganga oftast upp eftir þegar þeir eru að skoða hann (klikkið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Líklegast hafa félagarnir tekið stefnuna á þetta svæði. En hér má sjá Eystra-Hrútsfjall þar sem flogið er upp skriðjökulinn

Eystra-Hrútsfjall (klikkið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Hér er horft niður Svínafellsjökul. Skeiðarársandur í fjarska.

Skriðjökulinn Svínafellsjökull, horft til suðurs (klikkið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Hér er komið nær Eystri-Hrútsfjalli og má sjá hvað úfinn jökulinn verður meira og meira sprunginn því meiri sem brattinn verður

Sjá má tilkomumikinn foss í hlíðum Eystra-Hrútsfjalls (klikkið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Kort af Svínafellsjökli, Skaftafelli, Skaftafellsjökli.

Svínafellsjökull, Skaftafell, Skaftafellsjökull (klikkið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Vonum að þessar myndir hjálpi eitthvað
Kjartan
WWW.PHOTO.IS
Fært undir Ferðalög, Flug, Ljósmyndun þann 24. ágúst 2007 af photo | 2 ummæli
Svínafellsjökull. Hvar eru þýsku ferðamennirnir? - Myndir og kort
Leit að þýskum ferðamönnum heldur áfram
Ég átti þess kost að fljúga yfir Svínafellsjökul á mótorsvifdreka og tók þá þessar myndir. Myndirnar sýna vel hversu hrikalegt svæðið er yfirferðar.
Hér byrjar flugið upp skriðjökulinn og má sjá bílastæðið þar sem vinsælt er fyrir ferðamenn að stoppa og þaðan er venjulega gengið upp með jöklinum.

Háls er fyrir ofan bílastæðið og Illuklettar þar fyrir ofan. Fyrir framan jökulinn er síbreytilegt jökullón þar sem jökulárnar Öldukvísl (nær) og Svínafellsá (fjær) renna. Svínafellsheiðin er svo hinu megin við skriðjökulinn (fjær) (klikkið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Auðvelt er að ganga töluverðan spotta upp með jöklinum eins og sjá má á næstu mynd en víða er laust grjót á yfirborðinu sem þarf að passa sig á

Leiðin upp með Svínafellsjökli að vestan verðu (klikkið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Á þessari mynd má sjá hversu hrikalegur og erfiður jökulinn er á að líta

Hér má vel sjá kantinn sem að ferðamenn ganga oftast upp eftir þegar þeir eru að skoða hann (klikkið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Líklegast hafa félagarnir tekið stefnuna á þetta svæði. En hér má sjá Eystra-Hrútsfjall þar sem flogið er upp skriðjökulinn

Eystra-Hrútsfjall (klikkið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Hér er horft niður Svínafellsjökul. Skeiðarársandur í fjarska.

Skriðjökulinn Svínafellsjökull, horft til suðurs (klikkið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Hér er komið nær Eystri-Hrútsfjalli og má sjá hvað úfinn jökulinn verður meira og meira sprunginn því meiri sem brattinn verður

Sjá má tilkomumikinn foss í hlíðum Eystra-Hrútsfjalls (klikkið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Kort af Svínafellsjökli, Skaftafelli, Skaftafellsjökli.

Svínafellsjökull, Skaftafell, Skaftafellsjökull (klikkið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Líklega er einn reyndasti fjallaklifurmaður þessa svæðis Snævarr Guðmundsson. En hann er búinn að fara mikið um fjöllin í nágrenni Skaftafells og þekkir sum þeirra eins og lófana á sér.

Snævarr Guðmundsson kennari í gönguleiðsögu í MK þegar ég var í námi þar á sínum tíma (klikkið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Kjartan
WWW.PHOTO.IS
p.s. en annars var ég að ganga á ís með ferðamenn á Sólheimajökul í gær í um 2 tíma og hef “aldrei” lent í annarri eins rigningu. En eins og við vitum þá er suðurströnd landsins eitt það úrkomumesta og ekki langt frá leitarsvæðinu er eitt úrkomumesta regnsvæði landsins, Kvísker í Öræfum.
Fært undir Ferðalög, Flug, Ljósmyndun, Umræðan þann 22. ágúst 2007 af photo | 4 ummæli
Víti við Öskju - myndir og kort
Við skulum vona að allt hafi farið vel í umræddu óhappi.
Víti við Öskjuvatn er mjög vinsæll baðstaður og er þekktur sprengigígur sem talin er hafa myndast við öfluga gufusprengingu. Gígurinn er lítill samanborin við stóra bróður sem Öskjuvatn er í.
Á meðan Víti er um 100 m breiður og um 60 m hár (frá brún), þá er Öskjuvatn 3.2 x 4.5 km á breidd og jafnframt dýpsta vatns landsins, um 224 m þar sem það er dýpst.! Askjan myndaðist í stórgosi árið 1875.
Svæðið hefur verið mjög virkt og síðasta gos var árið 1961. Rann þá hraunið Vikrahraun úr Vikraborgum. Í dag liggur vegur að hluta til yfir þetta úfna hraun að vinsælli gönguleið þar sem ferðamenn geta gengið í 30-40 mín inn að Víti og Öskjuvatni.
Hér má sjá Herðubreið og Öskjuvatni og er stærsta hraunflæmi í Evrópu fremst í myndinni, Ódáðahraun

Herðubreið, Öskjuvatni og Ódáðahraun (klikkið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Hér má sjá þekkta mynd frá mér af Öskjuvatni með litla gíginn Víti fremst í myndinni

Askja og Víti (klikkið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Það eru mikið um umbrot og óhöpp á Öskjusvæðinu þessa dagana. Ég lenti í því fyrir nokkrum dögum síðan að það brotnaði gormur sem heldur við framhásinguna að framan hjá mér og var þá útlitið orðið frekar svart. Með fullan bíl af fólki og eftir að aka nokkuð hundruð kílómetrar. Þar er Gæsavatnaleið meðtalin sem er ein af erfiðari fjallvegum landsins.
Hér eru tveir félagar sem létu sér lítið muna um að hjálpa til við að laga festingarnar fyrir brotin gorm á meðan ferðahópurinn labbaði inn að Víti á meðan. Eins og sjá má, þá var þoka yfir svæðinu og allt frekar drungalegt.

Hér er búið að tjakka upp bílinn og tína í burtu brotin af gorminum (klikkið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Karl Þórir Bjarnþórsson var á Bláum Unimoc E414 og Hallur Hilmarsson frá Blönduósi á rútu frá SBA-Norðurleið. Þeir létu sig litlu muna um að tína til þau tól og tæki til að bjarga því sem bjarga varð þarna á staðnum og vil ég þakka þeim báðum sérstaklega fyrir veitta aðstoð.
Hér má sjá Karl og Hall virða fyrir sér brotinn gorminn eftir að hafa tjakkað bílinn upp. Hér er Hallur að máta botnstykkið fyrir gorminn.

Þakka mátti fyrir að bremsuslangan yrði ekki fyrir skemmdum líka (klikkið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Botnsætinu fyrir gorminn var snúið 180° til að hægt væri að stinga brotna gormendanum inn í stýringuna aftur. Þetta átti að vísu eftir að koma mér í koll seinna inni á miðri Gæsavatnaleið, en þá náði hólkurinn sem samsláttargúmmíið er í að narta aðeins utan í botnplötuna og brjóta 2 bolta sem halda henni. En götin í gegnum plötuna eru ekki alveg fyrir miðju. Þá var ekki annað að gera en að tjakka bílinn upp aftur, taka gorminn alveg í burtu og svo festa hásinguna fasta við bílinn með strekkibandi og svo var hleypa vel úr dekki! Þannig var ekið alla leið til Reykjavíkur og komið þangað um kl. 4-5 sömu nótt. Á leiðinni voru farþegarnir skildir eftir inni á Hótel Hálandi við Hrauneyjafossvirkjun. Þröstur félagi minn kom á móti mér um nóttina og sá jafnframt um viðgerð á bílnum næsta dag.
Um nóttina náðist einnig að blogga og setja inn glænýjar myndir á netið af flugóhappi sem að ég náði myndum af í Nýadal á Sprengisandsleið sjá má myndirnar af flugvélinni HÉR http://photo.blog.is/blog/photo/entry/279376/
Næsta morgun á mánudeginum, frídegi verslunarmanna, var vaknað um kl. 7 og leitað á náðir nokkurra aðila sem hugsanlega ættu nýjan gorma. Þeir voru allir að vilja gerðir og opnuðu búðir sínar, en allt kom fyrir ekki og var ákveðið að gera bráðabirgðaviðgerð á sama máta og gert var inni í Öskju nema hvað núna var plötunni ekki snúið.
Haldið var síðan af stað upp úr hádegi sama dag og náð í ferðahópinn. Það náðist að klára Landmannalaugar, Fjallabak Nyrðra og Suðurströndina þann daginn og gist var að lokum á Hótel Rangá.
Á meðan fundust nýir gormar hjá Ljónstaðarbræðrum sem eru með aðstöðu við Selfoss og veru þeir teknir næsta dag um leið og farin var Gullni Hringurinn með hópinn.
Hér er flogið yfir Öskjuvatn og svo sjálfan Víti í september mánuði 2005.

Hér má sjá litlar mannverur á labbi á gígbarmi Vítis (klikkið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Ég var þarna á ferð fyrir nokkrum dögum og átti þá spjall við skálaverði í Dreka og fékk þá þær upplýsingar að það væri farið að hitna aftur í Víti. En segja má að það séu merki þess að að kvikan sem er þarna undir hlýtur að vera eitthvað nær yfirborðinu en áður. Sem dæmi, þá hefur ekki verið hægt að baða sig í Gjánni við Mývatn vegna þess að jarðvatnið sem rennur í gegnum svæðið hefur hitnað svo mikið eftir síðasta Kröfluævintýri.
Skála Ferðafélags Akureyrar í Dreka. Þar gista margir ferðamenn sem eiga leið sína um Öskjusvæðið. Í dag er öll aðstaða þarna orðin allt önnur en áður var.

Gamli skálin hægra megin og sá nýi fyrir miðju og salernis- og sturtuaðstaða til vinstri (klikkið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Hér má svo sjá skála jarðvísindamanna sem fáir vita af en hann er rétt norðan við skála Ferðafélags Akureyrar í Dreka.

Skáli jarðvísindamanna við Öskju (klikkið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Kort af Öskjusvæðinu. Þar má sjá Víti þar sem slysið átti sér stað.

Askja, Víti og Dreki (klikkið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Og til að bæta smá varnarorðum við hér í lokin fyrir þá sem stefna á að baða sig í Víti, að þá er töluvert bratt þar sem fara þarf niður. Eftir miklar rigningar, þá getur leirinn sem er yfir öllu svæðinu fljótt orðið eitt drullusvað og því mjög sleipt þar sem fara þarf niður og erfitt getur reynst að stoppa ef einhverjum skrikar fótur.
Annað er að þarna getur ríkt vetrarveður á skömmum tíma og jafnvel á miðju sumri. En það var jafnfallin snjór um 5-10 cm þykkur og þoka yfir svæðinu þegar ég var þarna fyrir um 2-3 vikum síðan! Því er nauðsynlegt að vera með regn- og vindheldan fatnað á þessari leið. En að öðru leiti er svæðið vel merkt.
Hér er danskur ferðamaður á besta aldri sem féll í drulluna við Víti og var takmarkið hjá honum að komast í bað á þessum fræga stað, hvað sem tautaði og raulaði!

Hér er staðið á sleipum kantinum við Víti í íslensku slagveðri og erfitt getur verið að þurfa að hætta við að fara í bað eftir þessa löngu og ströngu ferð til íslands (klikkið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Hér er það sem þetta snýst svo allt um, en það er að komast í bað í Víti.

Það skiptir litlu þó svo að maður lykti af brennisteini í nokkra daga á eftir. Upplifunin er stórkostleg. Þetta er eins og að vera í stórum suðupotti hjá mannætum í Afríku þar sem eldurinn krauma undir og heldur vatninu heitu! (klikkið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Ferðamenn koma til Íslands til að UPPLIFA en “Vítin” eru til þess að varast þau!
Kjartan
WWW.PHOTO.IS
Fært undir Ferðalög, Flug, Ljósmyndun, Umhverfi, Umræðan þann 19. ágúst 2007 af photo | 1 ummæli
Nýjar glóðvolgar myndir úr Reykjavíkurmaraþoninu
Ég lenti í því að vera beðin um að taka myndir í Reykjavíkurmaraþoninu í dag og að lokum gat ég ekki skorast undan þeirri bón.
Dagurinn var flottur og ég var ákveðin í að reyna nú einu sinni að ná flottum myndum. Til að svo mætti vera, þá þurfi að brjóta fullt af umferðareglum og vera leiðinlegur til að fá að komast á þá staði sem gætu talist góðir til myndatöku.
Hópurinn sem var að hlaupa var stór og dreifðist um alla borgina og þurfti því að halda vel á spilunum til að ná umræddum myndum. Ég vona að ég hafi ekki misboðið neinum meðan akstri mínum um borgina á meðan á myndatöku stóð. Það er bara því miður þannig að ef á að ná góðum myndum, þá þarf að vera pínu frekur og ósvífinn. En útkommuna má svo sjá hér og fleiri myndir ef smellt er á myndirnar með músinni.
Megi þið vel nóta.
1. Hér hefst hlaupið niður í miðbæ Reykjavíkur og eins og sjá má, þá eru mörg góð móment í hlaupinu.

Hér er keppnin í Reykjavíkurmaraþoni að hefjast í Lækjargötu við Tjörnina (klikkið á mynd til að sjá fleiri myndir)
2. Mikil er mannmergðin á Skothúsvegi

Hér er hlaupið yfir brúnna á Skothúsvegi (klikkið á mynd til að sjá fleiri myndir)
3. Það er líka troðið á Nesveginum og ekki enn farinn að grisjast hópurinn

Hér er hlaupið eftir Nesveginum (klikkið á mynd til að sjá fleiri myndir)
4. Hér er fyrsta stoppið þar sem hægt er að fá sér eitthvað svalt að drekka. Ekki veitir af enda heitt í veðri.

Hér er hægt að fá sér svalandi að drekka á Nesveginum (klikkið á mynd til að sjá fleiri myndir)
5. Hér kemur hópurinn hlaupandi inn á Norðurströnd frá Lindarbraut

Hlaupið eftir Norðurströndinni (klikkið á mynd til að sjá fleiri myndir)
6. Næsti vatnspóstur er rétt hjá JL húsinu og er daman eitthvað að spá í hvað sé í glasinu

Góður er sopinn? (klikkið á mynd til að sjá fleiri myndir)
7. Aldurinn skiptir ekki máli í svona hlaupi og hér reyna allir að vera með

Hvað er betra en holl hreyfing (klikkið á mynd til að sjá fleiri myndir)
8. Skildi þetta vera ljósið í myrkrinu?

Hér er stuðningshópur sem kallar sig LJÓSIÐ (klikkið á mynd til að sjá fleiri myndir)
9. Frá hvaða landi er þessi?

Spurning hvaða trúarbrögð þessi stundar? (klikkið á mynd til að sjá fleiri myndir)
10. Ætli íslensk fegurð sé hérna á ferðinni?

Mikið af fallegu kvenfólki í hlaupinu (klikkið á mynd til að sjá fleiri myndir)
11. Fólk kemur víða að til að hlaupa í maraþoni á Íslandi

Reykjavíkurmaraþonið er fyrir löngu orðið alþjóðlegur viðburður (klikkið á mynd til að sjá fleiri myndir)
12. Sólfarinu er mætt með breiðu brosi

Reykjavíkurmaraþonið er greinilega gleðistund fyrir marga (klikkið á mynd til að sjá fleiri myndir)
13. Það er greinilegt að þessi ætlar sér að vinna þessa keppni og var hann sá fyrsti sem að ég mætti á þessari leið.

Sá fyrsti á þessari leið - Líklega er hann frá Kenýa (klikkið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Simon Tonui kom fyrstur í mark í heilu maraþoni eftir tvo tíma og 24 mínútur. Annar í mark var Joseph Mbithi einnig frá Kenýa 23 sek. seinna.
14. Heyrðu vinur, hvert þykist þú vera að fara. Þú heldur að þú komist allt bara af því að þú ert á stórum bíl?

Það þurfti smá lagni á þennan og stuttu seinna, þá var leiðin greið :) (klikkið á mynd til að sjá fleiri myndir)
15. Ég bara verð að vinna. Hvað er þessi ljósmyndari að þvælast þarna?

Það tekur á að hlaupa svona - Ólíkt þægilegra að sitja í bíl og aka sömu leið með fína tónlist í útvarpinu - Sagði einhver að ég væri stríðinn? (klikkið á mynd til að sjá fleiri myndir)
16. Pínu þreyttur?

Þetta tekur á - en það er þess virði (klikkið á mynd til að sjá fleiri myndir)
17. Ertu nokkuð að taka mynd af mér?

Hvaða skelfingarsvipur er þetta (klikkið á mynd til að sjá fleiri myndir)
18. Þessi kona er líklega á topp tíu listanum í þessu hlaupi

Erlend kona í hlaupinu (klikkið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Fyrstu konur í heilu maraþoni voru Sarah Kathryn Knudson 3:21:19 og Sari Yrjölä 03:22:32
19. Þarna er kona fyrir mig, best að hlaupa á eftir henni :P

Svipbrigðin leyna sér ekki - enda flott dama að hlaupa á undan honum :) (klikkið á mynd til að sjá fleiri myndir)
20. Glitnir eiga hrós skilið fyrir flottan aðbúnað fyrir keppendur.

Aðstaða fyrir framan Glitnisbanka (klikkið á mynd til að sjá fleiri myndir)
21. Ekki að spyrja að því. Diskótekið Ó-Dollý mætt á staðinn.

Hér er spiluð þétt tónlist í boði Glitnisbanka á meðan keppendur svolgra í sig veigunum (klikkið á mynd til að sjá fleiri myndir)
22. Ívari grimma þykir sopinn góður

Það er ekki neitt lítið sem að maður verður þyrstur í svona hlaupi (klikkið á mynd til að sjá fleiri myndir)
23. Puff… Íslenskt vatn?

Það getur stundum verið gaman að fylgjast með viðbrögðum fólks (klikkið á mynd til að sjá fleiri myndir)
24. Þetta er klassa þjónusta sem að maður fær hér í þessu hlaupi

Vökvatap er gríðarlegt í svona hlaup. Íþróttamenn nota ýmis ráð til að fá þá aukaorku sem þarf í svona hlaupi og eru orkudrykkir vinsælir (klikkið á mynd til að sjá fleiri myndir)
25. Hvað er þessi bíldrusla að þvælast hér - burtu með hana.

Spurning um að fá aðra til að hjálpa sér - bílinn hreyfist ekki! (klikkið á mynd til að sjá fleiri myndir)
26. Hitinn - svitinn, hvað er annað hægt að gera?

Hér gildir að vera léttklæddur (klikkið á mynd til að sjá fleiri myndir)
27. Á þessi að vera hér? Hvar eru jakkafötin?

Hér er greinilega fólk að hlaupa úr öllum stéttum og allir aldurshópar. (klikkið á mynd til að sjá fleiri myndir)
28. Hér er ástæðan fyrir því að ég lét til leiðast og tók þessar myndir. Ingólfur Bruun úti að hlaupa, kerrast og hjóla með fjölskylduna

Ingólfur Bruun og synir (klikkið á mynd til að sjá fleiri myndir)
29. Það er um að gera að kæla sig vel á svona hlaupi. Er hræddur um að liturinn á “vatninu” sé ekki réttur!

Aðferðirnar eru fjölbreyttar til að kæla sig (klikkið á mynd til að sjá fleiri myndir)
30. Það er stranglega bannað að gera teygjuæfingar þegar ljósmyndari er nálægt :P

Vöðvar stífna og stundum fær fólk krampa og verður að hætta keppni (klikkið á mynd til að sjá fleiri myndir)
31. Og þá er þessu lokið og vísitölufjölskyldan heldur heim á leið hlaðin verðlaunum

Það eru svona dagar sem sitja eftir í minningunni (klikkið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Látum þetta duga í bili!
Kjartan
WWW.PHOTO.IS
Fært undir Ljósmyndun, Menning og listir, Íþróttir þann 19. ágúst 2007 af photo | 0 ummæli

