Svínafellsjökull. Hvar eru þýsku ferðamennirnir? - Myndir og kort

www.visir.is Leit að þýskum ferðamönnum heldur áfram

Ég átti þess kost að fljúga yfir Svínafellsjökul á mótorsvifdreka og tók þá þessar myndir. Myndirnar sýna vel hversu hrikalegt svæðið er yfirferðar.

Hér byrjar flugið upp skriðjökulinn og má sjá bílastæðið þar sem vinsælt er fyrir ferðamenn að stoppa og þaðan er venjulega gengið upp með jöklinum.




Háls er fyrir ofan bílastæðið og Illuklettar þar fyrir ofan. Fyrir framan jökulinn er síbreytilegt jökullón þar sem jökulárnar Öldukvísl (nær) og Svínafellsá (fjær) renna. Svínafellsheiðin er svo hinu megin við skriðjökulinn (fjær) (klikkið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Auðvelt er að ganga töluverðan spotta upp með jöklinum eins og sjá má á næstu mynd en víða er laust grjót á yfirborðinu sem þarf að passa sig á




Leiðin upp með Svínafellsjökli að vestan verðu (klikkið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Á þessari mynd má sjá hversu hrikalegur og erfiður jökulinn er á að líta




Hér má vel sjá kantinn sem að ferðamenn ganga oftast upp eftir þegar þeir eru að skoða hann (klikkið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Líklegast hafa félagarnir tekið stefnuna á þetta svæði. En hér má sjá Eystra-Hrútsfjall þar sem flogið er upp skriðjökulinn




Eystra-Hrútsfjall (klikkið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Hér er horft niður Svínafellsjökul. Skeiðarársandur í fjarska.




Skriðjökulinn Svínafellsjökull, horft til suðurs (klikkið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Hér er komið nær Eystri-Hrútsfjalli og má sjá hvað úfinn jökulinn verður meira og meira sprunginn því meiri sem brattinn verður




Sjá má tilkomumikinn foss í hlíðum Eystra-Hrútsfjalls (klikkið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Kort af Svínafellsjökli, Skaftafelli, Skaftafellsjökli.




Svínafellsjökull, Skaftafell, Skaftafellsjökull (klikkið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Líklega er einn reyndasti fjallaklifurmaður þessa svæðis Snævarr Guðmundsson. En hann er búinn að fara mikið um fjöllin í nágrenni Skaftafells og þekkir sum þeirra eins og lófana á sér.




Snævarr Guðmundsson kennari í gönguleiðsögu í MK þegar ég var í námi þar á sínum tíma (klikkið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Kjartan

WWW.PHOTO.IS

p.s. en annars var ég að ganga á ís með ferðamenn á Sólheimajökul í gær í um 2 tíma og hef “aldrei” lent í annarri eins rigningu. En eins og við vitum þá er suðurströnd landsins eitt það úrkomumesta og ekki langt frá leitarsvæðinu er eitt úrkomumesta regnsvæði landsins, Kvísker í Öræfum.

Fært undir Ferðalög, Flug, Ljósmyndun, Umræðan þann 22. ágúst 2007 af photo |

4 ummæli við ' Svínafellsjökull. Hvar eru þýsku ferðamennirnir? - Myndir og kort '

Fylgjast með ummælum með RSS eða senda bakvísun á ' Svínafellsjökull. Hvar eru þýsku ferðamennirnir? - Myndir og kort '.

  1. Þorsteinn Ólafur Þorsteinsson ritaði,

    þann 22. ágúst 2007 kl. 20.46

    Kærar þakkir fyrir alveg stórkostlegar myndir. Ég vona að sé í lagi að hafa bent erlendum samferðamönnum mínum á að skoða þær hér. Því miður var rigning og ekkert skyggni þegar við vorum þarna á ferð í sumar.

  2. photo ritaði,

    þann 22. ágúst 2007 kl. 21.42

    Það er í góðu lagi. til þess eru þessar myndir teknar. Þetta sumar hefur verið alveg ótrúlega gott hvað veðurfar snertir nema hvað þú hefur verið sérlega óheppinn að hafa ekki haft sól þegar þú varst þarna á ferð.

    Ég man að ég var á hringferð árið 1996 og þá hafði verið rigning á þessu svæði allt sumarið og þá náði ég að hitta á eina sólardaginn sem var það sumarið!


  3. þann 27. ágúst 2007 kl. 11.08

    [...] sub-glaciares del Vatnajökull se consideran muy peligrosos de cruzar. En estas fotos podéis observar la zona donde aparecieron las tiendas de campaña de los dos alemanes, al sur del [...]

  4. this website ritaði,

    þann 21. apríl 2008 kl. 13.05

    this website…

    It can periodically become challenging to split up the superior fotos afdrukken notes from the dreadful….

Skrifa ummæli

Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Vefmiðlar
Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning