BYRJA SEM FYRST Á AÐ LEGGJA 25 KM TILRAUNABRAUT FYRIR LÉTTLEST
Samgöngur í lamasessi vegna illviðris
Nú eiga Sunnlendingar í samstarfi við Reykvíkinga og Orkuveituna að sameinast um að fá að setja upp umhverfisvænt létt-lestarkerfi milli Selfoss og Reykjavíkur.
Hér er aðeins verið að tala um 50 km vegspotta!
Áætla má verð fyrir steypta tvöfalda braut á hvern kílómeter eitthvað í kringum 35 milljónir (35 x 50 = 1750 milljónir!). Til samanburðar, þá kostar að leggja venjulegan tvöfaldan malbikaðan veg um 65 milljónir hvern kílómeter.
Með þessu móti mætti þróa og byggja upp hagkvæmt ódýrt íslenskt lestarkerfi sem myndi notast við umhverfisvæna orkugjafa (vetni, rafmagn, þrýstiloft, heit vatn).
Til að byrja með þyrfti að leggja sem fyrst 25 km tilraunabraut frá Hellisheiðarvirkjun til Reykjavíkur sem myndi jafnframt nýtast sem hitaveituleiðsla þar sem hluti af orkunni yrði notuð til að tryggja að brautin yrði snjófrí og þar með fær í öllum veðrum.
Eins og staðan er í dag, þá eiga framkvæmdaraðilar í stökustu vandræðum með að losa sig við allt það umfram heitavatn sem kemur upp á Hellisheiðarsvæðinu. En þeir leita með logandi ljósi eftir stöðum til að bora á þar sem hægt er að dæla þessu vatni og ónýttu orku niður í jörðina aftur!
Í dag sækir fjöldi fólks reglulega vinnu frá þessum svæðum inn á Stórreykjavíkur svæðið. Sökum ófærðar og veðurs þessa daganna, þá er það ekki auðvelt.
Lesa má nánar um útfærslu á þessari hugmynd og öðrum sambærilegum hér:
http://photo.blog.is/blog/photo/entry/372669/
Lesa má nánar um útfærslu á svipuðum hugmyndum fyrir Norðausturrhorn landsins hér:
http://photo.blog.is/blog/photo/entry/367893/
Lesa má nánar um útfærslu á svipuðum hugmyndum fyrir Norðurlandið hér:
http://photo.blog.is/blog/photo/entry/367524/
Kjartan
WWW.PHOTO.IS
Fært undir Efnahagur, Ferðalög, Samgöngur, Stjórnmál, Tækni og vísindi, Umhverfi, Umræðan þann 30. nóvember 2007 af photo | 5 ummæli
Stórviðrasamt á Stórhöfða í Vestmannaeyjum - Myndir
Það hefur löngum verið stórviðrasamt á Stórhöfða í Vestmannaeyjum.

Á þessari mynd má vel sjá alla eyjuna og hvernig Eldfell og nýja hraunið þekur eyjuna (klikkið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Veðrið var hreint út sagt æði þetta kvöld og sjórinn spegilsléttur.
Miðnætursólinn komin lágt á loft og við félagarnir urðum hreinlega að finna upp á einhverju að gera þarna úti í eyju fyrst að við vorum á annað borð lentir þarna. Eins og venja er, þá er Árni uppátektarsamur í svona ferðum og datt honum í hug að hringja í annan Árna (þó ekki Árna Johnsen) búsettan þarna úti í eyjum innti hann eftir loforði að fara með sig í siglingu um eyjarnar. Það stóð ekki á Árna og ákveðið var að fara í smá siglingu sem endaði með hringferð um eyjuna í flottum aðstæðum.
Hér er sólin að setjast út við sjóndeildarhringinn

Miðnætursólin (klikkið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Hér er horft út úr Fjósini í Stórhöfða. Horft er í áttina að Smáeyjum.
Klettshellir í Vestmannaeyjum

Klettshellir í Vestmannaeyjum (klikkið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Skerin/stöplarnir þarna heita Drengir

Drengir í Vestmannaeyjum (klikkið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Dranginn hér heitir Latur

Latur í Vestmannaeyjum (klikkið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Stóri Örn og Litli Örn nær Klifinu, Eiðið fyrir aftan vinstra megin við bátinn.

Stóri Örn, Litli Örn nær Klifinu í Vestmannaeyjum (klikkið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Hér er verið að fara að sigla í gegnum Gatið. Sögurnar segja að þarna hafi brú legið yfir á klettinn og flott gat í gegn að neðanverðu.

Gatið í Vestmannaeyjum (klikkið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Drangarnir eða klettarnir Hani og Hæna í Vestmannaeyjum.

Hani og Hæna í Vestmannaeyjum (klikkið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Hér er siglt á bát inni í Kafhelli í Hænu. Horft er í áttina að Dalfjalli og er Blátindur þar efsti punktur. Einnig sést inn í Stafanesvík.

Kafhellir, Hæna, Dalfjall og Stafanesvík í Vestmannaeyjum (klikkið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Víðmynd eða panorama mynd af Vestmannaeyjum tekin sunnan megin við eyjuna. Horft til norðurs.

Víðmynd eða panorama mynd af Vestmannaeyjum (klikkið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Kapplagjóta er rás í berginu ekki langt frá gólfvellinum.

Kapplagjóta í Vestmannaeyjum (klikkið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Litadýrðin getur verið stórkostleg í Fjósinu í Stórhöfða,

Fjósið í Stórhöfða í Vestmannaeyjum (klikkið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Hér má sjá kort að Vestmannaeyjum í lokin

kort af Vestmannaeyjum (klikkið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Spurning um að einhverjir staðkunnugir geti sent inn linka á þessar myndir og segi hvað þessir staðir heita.
Heimildir fyrir flestum þessara örnefna eru komnar frá Árna Sigurði Péturssyni
Kjartan
WWW.PHOTO.IS
Fært undir Ferðalög, Flug, Ljósmyndun þann 30. nóvember 2007 af photo | 0 ummæli
HAGAVATN - Hvar á virkjun að rísa? Myndir og kort
Orkuveita Reykjavíkur er með plön um að virkja víða eins og sjá má. Hér má sjá myndir og kort af svæðinu
Hér má svo sjá panorama mynd af Jarlhettum, Hagavatni þar sem horft er til suðurs. Smellið á mynd til að skoða myndina enn stærri.

Víð-ljós-mynd af Hagavatni úr lofti (smellið á mynd til að sjá myndina enn stærri)
Loftmyndir af svæðinu við Jarlhetturnar, Hagafell og af Hagavatni

Hagavatn - Hagavatnsvirkjun - Farið - Sandvatn - Leynifoss - Jarlhetturnar (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Loftmyndir af svæðinu við Jarlhetturnar, Hagafell og af Hagavatni

Hagavatn - Hagavatnsvirkjun - Farið - Sandvatn - Leynifoss - Jarlhetturnar (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Hér má sjá kort af svæðinu í kringum Hagavatn og þar sem virkjun er ætlað að rísa.

Hagavatn - Hagavatnsvirkjun - Farið - Sandvatn - Leynifoss - Jarlhetturnar (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Kjartan
Fært undir Ferðalög, Flug, Jarðfræði, Ljósmyndun, Tækni og vísindi, Umhverfi, Umræðan þann 29. nóvember 2007 af photo | 0 ummæli
Flott, umhverfisvænt, hljóðlaust og afkastamikið kerfi fyrir ferðamenn
Farþegar skemmtiferðaskipa ánægðir með Íslandsdvölina
Hér leggst skemmtiferðarskipið Discovery að bryggju við Skarfabakka.

Skemmtiferðarskipið Discovery við Skarfabakka í Reykjavík (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Um borð í svona skipi er allur hugsanlegur lúxus og stundum getur áhöfnin verið jafn fjölmenn og farþegarnir

Skemmtiferðarskipið Discovery við Skarfabakka í Reykjavík (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Farþegarnir bíða spenntir eftir að fá að stíga frá borði á íslenska grund. Þar bíður ýmis afþreying eftir þessum ferðamönnum.

Skemmtiferðarskipið Discovery við Skarfabakka í Reykjavík (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
En það er gríðarlegur fjöldi að koma með svona skipum til landsins og ekki óalgengt að það bíði 10-20 rútur og fjöldi breyttra jeppa á hafnarbakkanum eftir komu svona skips.
Hvernig væri að nota íslenskt hugvit og þekkingu til að sérsmíða okkar eigið samgöngukerfi og bæta þar með stórlega ímynd okkar út á við?
Samgöngukerfi á brautum gæti verið umhverfisvæn lausn til að flytja mikið magn af ferðamönnum á stuttum tíma á helstu ferðamannastaðina á suðvestur horni landsins.
Hvernig væri að koma með varanlega framtíðarlausn þar sem ekki er bara hugsað til morgundagsins?
Hér má sjá hugmynd af vagni sem ekið getur eftir spori með ferðamenn í óvissuferð út í íslenska náttúru þar sem skoða má jökla og svarta sanda á ferð um hálendi íslands.

Mynd sýnir rafdrifið ökumannslaust farartæki (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Á eftirfarandi mynd og korti má sjá hugmyndir af brautarkerfi fyrir suðvesturhorn landsins.

Brautarkerfi, lest eða monorail kerfi fyrir Reykjanes, Gullna hringinn og Suðurland (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Væri þá ekki ráð til að vernda svæði eins og Þingvöll betur að lágmarka alla umferð ökutækja um svæðið nema með svona hljóðlausum og umhverfisvænum vögnum. Ferðamenn tækju ferðavagninn til Þingvallar með því a velja viðkomandi hnapp og réðu svo sínum tíma sjálfir með því að ganga um svæðið og þegar viðkomandi telur sig búinn að fá nóg, þá er stigið upp í næsta vagn og haldið áfram á næsta áfangastað. Með þessu myndi fást mun meiri dreifing og álagstoppar lækka og ferðamaðurinn fær ekki á tilfinninguna lengur að það séu 20 rútur á sama tíma eins og oft vill gerast við Gullfoss og Geysi.
Samkvæmt könnunum, þá hafa erlendir gestir einkum áhuga á náttúrutengdri afþreyingu og býður Græna leiðin nánast upp á alla þá möguleika í einni hringferð.
Ástæðan fyrir því að græna leiðin er lögð upp að Langjökli er að við eigum að leggja stóraukna áherslu á að fólk fái að komast á jökla, á skíði, ísklifur, skíðagöngu, vélsleða jeppaferðir í snjó og allt við topp aðstæður. En eins og hefur áður komið fram hjá mér, þá á að leggja niður núverandi skíðasvæði og flytja þangað upp eftir.
http://photo.blog.is/blog/photo/entry/293926/
http://photo.blog.is/blog/photo/entry/263922/
http://photo.blog.is/blog/photo/entry/268551/
http://photo.blog.is/blog/photo/entry/267781/
http://photo.blog.is/blog/photo/entry/262950/
Nýjar byltingakenndar hugmyndir - Breytum vinsælustu ferðamannaleið landsins “The Golden Circle” í “The Golden Circle Delux”!
Leiðin milli jökla. Þórisjökull - Geitlandsjökull. Ný “The Golden Circle Delux” leið. Aðeins lenging um 30 km miða við núverandi leið.

Loftmynd af Þórisjökli og Geitlandsjökli (klikkið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Nú skora ég á borgaryfirvöld, sveitastjórnir og stjórnvöld þessa lands að hugsa að alvöru um þessi mál.
Undirritaður býður sig fram til að safna saman hópi af hönnuðum, hugvitsmönnum og fyrirtækjum til að setjast niður og kortleggja möguleika í svona verkefni.
Kjartan
WWW.PHOTO.IS
Fært undir Efnahagur, Ferðalög, Samgöngur, Tækni og vísindi þann 25. nóvember 2007 af photo | 0 ummæli
Dominos Pizza í Spönginni - Myndir
Réðust grímuklæddir og vopnaðir inn í verslun
Hér má svo sjá hinar umræddu bakdyr á Dominos Pizzu matsölustaðnum í Spönginni í Grafarvogi þar sem hinir óreyndu glæpamenn reyndu að stíga sín fyrstu spor á glæpabrautinni.
En þeir mættu harðri mótstöð starfsmanna staðarins og var nánast hent öfugum út aftur um sömu bakdyr og hlupu að lokum í burtu með skottið á milli lappana :)
Spöngin Grafarvogi

Verslunarmiðstöðin Spöngin Grafarvogi (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Krua Mai - tælenski veitingastaðurinn í Spönginni er hiklaust hægt að mæla með fyrir góðan mat sem að þeir bjóða upp á
Kjartan
WWW.PHOTO.IS
Fært undir Efnahagur, Ljósmyndun, Matur og drykkur þann 24. nóvember 2007 af photo | 2 ummæli
Viðskiptahugmynd - Nú getur Spölur fari að undirbúa næstu verkefni!
Hagnaður Spalar eykst milli ára
Það gæti verið hagkvæmt að byggja upp samgöngukerfi byggt á léttum vögnum sem aka eftir brautum á nokkrum stöðum á landinu og er hér dæmi um eina tillögu af þremum sem að ég hef viðrað í fjölmiðlum síðustu vikur.
Ef byggð yrði upphituð braut með svipuðu snið og hitaveitustokkarnir fyrir íslenskt léttlestarkerfi, þá yrði ekki vandamál með “beðið með mokstur”, “þungt færi”, “hálkubletti”, “snjóþekja”, “skafrenningur”, “ekkert ferðaveður” og fl. Allt vel þekkt orð sem notuð eru í fjölmiðlum þegar vetur konungur leggst yfir
Á eftirfarandi mynd og korti má sjá hugmyndir af brautarkerfi fyrir Norðaustur- og Austurland Möðrudalsöræfin (Mývatn - Egilsstaðir), Álhringurinn (Egilsstaðir - Seyðisfjörður - Norðfjörður - Eskifjörður - Reyðafjörður)

Brautarkerfi, lest eða monorail kerfi fyrir Norðausturland, Möðrudalsöræfi og Álhringurinn (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Eins og sjá má þá er ekki verið að tala um neinar stórar vegalengdir. Möðrudalsöræfin Mývatn - Egilsstaðir 149 km, Álhringurinn Egilsstaðir - Seyðisfjörður - Norðfjörður - Eskifjörður - Reyðafjörður 112 km
Heildstæð og samræmd hugsun í uppbyggingu ferðaþjónustu á Norðaustur- og Austurlandi. Með þessu móti væri hægt að stórbæta aðgengi ferðamanna að öllum helstu ferðamannastöðunum - ALLT ÁRIÐ.
Lesa má nánar um útfærslu á svipuðum hugmyndum fyrir Suðvesturhorn landsins hér:
http://photo.blog.is/blog/photo/entry/364368/
Lesa má nánar um útfærslu á svipuðum hugmyndum fyrir Norðurlandið hér:
http://photo.blog.is/blog/photo/entry/367524/
Kjartan
WWW.PHOTO.IS
Fært undir Efnahagur, Ferðalög, Samgöngur, Stjórnmál, Tækni og vísindi, Umhverfi, Umræðan þann 21. nóvember 2007 af photo | 0 ummæli
Greinilega enn mikil virkni á svæðinu - Kort + myndir
Jarðskjálfti upp á 3,5 á Richter við Selfoss
Það skal engan undra að jarðskjálftavirknin sé mjög mikil á öllu suðurlandsundirlendinu. Svæðið er í raun lítil sjálfstæður fleki sem liggur á milli stóru flekaskilana, Norður-Ameríku flekans og Evrasíuflekans. Upptök síðasta stóra Suðurlandsskjálftans var rétt sunnan við Hestfjall eða um 20 km til austur frá því svæði sem nú er hvað virkast.
Ég man þá tíð að hafa oft slysast á traktornum ofan í sprungur sem lágu víða í gegnum túnin á Kílhrauni á Skeiðum. En Kílhraun er um 4 km frá þeim stað þar sem upptök síðasta stóra skjálftans varð vart árið 2000 (6,5 stig á Richter).
Hér má sjá sprungu sem myndaðist 17 júní árið 2000 þegar síðasti stóri Suðurlandsskjálftinn reið yfir.

Suðurlandsskjálftinn 17 júní árið 2000 (Smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Myndin er tekin rétt vestan við gamla hlaðna hraunrétt sem hægt er að aka niður að á leiðinni milli Skeiðavegamóta og nýju brúnna yfir Þjórsá og til samanburðar má sjá á þar næstu mynd ummerki eftir skjálftann sem reið yfir 88 árum áður.
Þessi mynd sýnir svelg sem myndaðist á söndunum sem eru ekki langt frá ósum Þjórsár. En þá opnast stór sprunga ofan í jörðinni og jarðvegurnn sem liggur ofan a sem er sandur í þessu tilfelli sígur svo ofan í sprunguna og djúp hola myndast og fyllist svo af grunnvatni af svæðinu.

Suðurlandsskjálftinn 17 júní árið 2000 (Smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
88 árum áður, þá myndaðist þessi sprunga um 100 m frá hinni sprungunni og var sá skjálfti um 7 stig á Richter

Suðurlandsskjálftinn 17 júní árið 2000 (Smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Ef farið er inn á vef Veðurstofunnar og skoðuð jarðskjálftavirkni á svæðinu, þá má sjá virkni á Suðurlandsundirlendinu eins og þessi mynd sýnir.

Jarðskjálftakort Veðurstofunnar (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Ef farið er inn á vef Veðurstofunnar og skoðuð jarðskjálftavirkni á svæðinu, þá má sjá virkni á Suðurlandsundirlendinu eins og þessi mynd sýnir.

Jarðskjálftakort Veðurstofunnar (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Kjartan
WWW.PHOTO.IS
Fært undir Ferðalög, Jarðfræði, Ljósmyndun, Tækni og vísindi þann 21. nóvember 2007 af photo | 0 ummæli
Jarðskjálftahrina á Selfossi
Jarðskjálfti suðvestur af Gróttu
Ef farið er inn á vef Veðurstofunnar og skoðuð jarðskjálftavirkni á svæðinu, þá má sjá virkni á Suðurlandsundirlendinu eins og þessi mynd sýnir.

Jarðskjálftakort Veðurstofunnar (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Fyrir stuttu voru jarðskjalftar við Ingólfsfjall, þar sem Kögunarhóll er.
Ingólfsfjall er um 551m hátt móbergsfjall. Í lok ísaldar var suðurlandsundirlendið stór flói þegar sjávarstaða var mun hærri en hún er í dag.
Kögunarhóll er höfði sem er rétt suðvestan við fjallið og liggur Suðurlandsvegur á milli fjallsins og hólsins.
Á hryggnum sem er á móts við Kögunarhól má finna silfurberg. Fyrir stuttu voru settir upp krossar við hólinn og segir fjöldi krossanna til um hversu margir hafa látist í umferðarslysum á Suðurlandsvegi.
Fjallið fær nafn sitt eftir landnámsmanninum Ingólfi Arnarsyni og hann er sagður grafinn í grágrýtishæðinni Inghóli uppi á því. Landnáma segir frá þriðju vetursetu Ingólfs að Fjallstúni við sunnanvert fjallið,
Hér má sjá loftmynd af Ingólfsfjalli og Kolviðarhóli sem er vinstra megin við endan á fjallinu (ef smellt er á myndina, þá má skoða risa panorama mynd af svæðinu)

Ef klikkað er á myndina, þá opnast stór panorama mynd af svæðinu frá Hveragerði að Selfossi (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Hér er ekið á milli Kolviðarhóls og Ingólfsfjalls og er talið að upptök skjálftanna séu á þessu svæði

Krossar við Kögunarhól (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Kjartan
WWW.PHOTO.IS
Fært undir Flug, Jarðfræði, Ljósmyndun, Tækni og vísindi, Umhverfi þann 20. nóvember 2007 af photo | 0 ummæli
STYRKJUM LANDSBYGGÐINA - EFLUM SAMGÖNGUKERFIÐ - LÉTTLESTARKERFI FYRIR NORÐURLANDIÐ!
Kosið um sameiningu í Suður-Þingeyjarsýslu
TENGJUM BYGGÐIRNAR SAMAN
… og eflum þar með samgöngur og ferðamennsku á Norðurlandinu.
Á eftirfarandi mynd og korti má sjá hugmyndir af brautarkerfi fyrir DEMANTSHRINGINN (Húsavík - Ásbyrgi - Dettifoss - Mývatn) og Tröllaskagann (Sauðárkrókur - Hofsós - Siglufjörður - Ólafsfjörður - Dalvík - Akureyrir).
Brautarkerfi, lest eða monorail kerfi fyrir Norðurland, Demantshringinn og Tröllaskagann (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Það var haft samband við mig fyrir stuttu og ég beðin um að útfæra svipaða samgönguhugmynd fyrir Norðurlandið eins og ég hafði gert fyrir suðvestur horn landsins.
Eins og sjá má þá er ekki verið að tala um neinar stórar vegalengdir. Demantshringurinn 241 km, Akureyrir - Siglufjörður 73 km og svo Siglufjörður - Sauðárkrókur 90 km.
Svona lausn myndi efla stórlega atvinnu-, skóla-, heilbrigðis-, ferðamálmál fyrir Norðurlandið.
Heildstæð og samræmd hugsun í uppbyggingu ferðaþjónustu á Norðurlandi. Með þessu móti væri hægt að stórbæta aðgengi ferðamanna að öllum helstu ferðamannastöðum á Norðurlandi - ALLT ÁRIÐ.
Lesa má nánar um útfærslu á svipuðum hugmyndum fyrir suðvestur horn landsins hér:
http://photo.blog.is/blog/photo/entry/364368/
Kjartan
Fært undir Efnahagur, Ferðalög, Samgöngur, Stjórnmál, Tækni og vísindi, Umhverfi, Umræðan þann 17. nóvember 2007 af photo | 0 ummæli
NÝJAR MYNDIR AF BRUNANUM!
Umferðaröngþveiti vegna logandi bíls
Ég var að tilviljun viðstaddur þegar eldur kom upp í Cadillac við Vesturlandsveg í dag og hér er ein af mörgum myndum sem að ég tók við erfiðar birtuaðstæður á litla myndavél.
Hér má sjá slökkviliðið vinna við það að slökkva eldinn sem kom upp í gömlum Cadillac á Vesturlandsvegi við Úlfarsfell

Cadillac brennur við Vesturlandsveg (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Ekki gaman þegar svona flottur fornbíll verður eldinum að bráð
Hér má sjá slökkviliðið vinna við það að slökkva eldinn sem kom upp í gömlum Cadillac á Vesturlandsvegi við Úlfarsfell

Cadillac brennur við Vesturlandsveg (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Kjartan
Fært undir Fjölmiðlar, Ljósmyndun, Samgöngur þann 14. nóvember 2007 af photo | 0 ummæli
Skíðaþorp og jöklaparadís í boði Orkuveitunnar - Hægjum á uppbyggingunni á Hengilssvæðinu.
Það er rétt hjá Davíð, orkan í iðrum jarðar er ekki að hverfa. Enn sem komið er, þá er nýtingarprósentan frekar lág á varmaaflsvirkjunum eða á milli 10-15%. Í dag, þá fer 85-90% af orkunni út í umhverfið - ónotuð!
Hvernig væri að huga að nýjum leiðum til að nýta umfram orkuna betur?
Væri ekki ráð að byggja upp lítið skíðþorp og jöklaparadís í boði Orkuveitunnar á nýjum stað og um leið hægjum við aðeins á uppbyggingunni á Hengilssvæðinu.
Til að lægja ófriðaröldurnar sem skapast hafa um Bitruvirkjun og Hengilssvæðið, þá gæti verið möguleg lausn að byggja upp nýtt orkusvæði við Geitlands- og Þórisjökul eða nánar tiltekið undir hlíðum Presthnjúks.
Í leiðinni væri hægt að vera með stórfenglegar hugmyndir á uppbyggingu á nýju skíða- og útivistarsvæði eða eins konar jöklaparadís samhliða þróun og rannsóknum á sviði orkuframleiðslu á svæðinu, en í dag vantar gott jaðarsvæði til að þróa djúpborunarverkefnið nánar!
Við Presthnjúka sem er úr alfaraleið, langt frá mannabyggðum, er lítt kannað háhitasvæði sem stjórnvöld ættu að gefa rannsóknarleyfi á strax til að flýta fyrir útrás á íslenskum orkurannsóknum.
Ég átti skemmtilegt spjall við yfirmann jarðfræðideildar OR eftir kynningarfund OR um Bitruvirkjun í gær og bar ég þá undir hann eftirfarandi hugmyndir:
Til að byrja með þarf að gera eftirfarandi:
Breytum vinsælustu ferðamannaleið landsins “The Golden Circle” í “The Golden Circle Deluxe”!
Leiðin milli jökla. Þórisjökull - Geitlandsjökull. Ný “The Golden Circle Delux” leið. Aðeins lenging um 30 km miða við núverandi leið.

Loftmynd af Þórisjökli og Geitlandsjökli (klikkið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Næsta skref er að kanna hvort að það séu ekki ákjósanlegar aðstæður til að nálgast gufuorku á svæðinu og þar með mikið magn af heitu vatni.
Ef niðurstaðan reynist jákvæð, þá er hægt að byggja upp flott skíðasvæði, heitar laugar og fjallaparadís sem ætti engan sinn líkan í veröldinni, allt í boði Orkuveitunnar.
Ef vel yrði staðið að málum, þá væri hægt að búa til nýtt Bláa Lóns ævintýri, en þó með aðeins öðrum hætti!
Þarna gæti farið saman vistvæn notkun og eftirsótt útivistarsvæði fyrir Íslendinga og ferðamenn ALLT árið.
Til að búa til mikið magn af snjó á svæðið, þá er hægt að nýta umfram vatnið og þá 85% orku sem venjulega færi til spillis frá svona orkuveri til framleiðslu á snjó og svo hin 15% eins og vanalega til rafmagnsframleiðslu.
Til að fullkomna verkið, þá mætti síðan leggja upphitaða snjófría braut til Reykjavíkur og niður á Gullfoss/Geysi fyrir rafdrifna lest sem myndi meðal annars fá orku sína frá umræddu orkuveri.
Hér yrði um að ræða skíðasvæðið, raf-létt-lestarkerfi og orkuver, allt hannað, þróað og smíðað af íslendingum sjálfum!
Þessa sömu lausn má svo flytja út til annarra landa sem einn pakka :)
Allt um rafdrifna lest má lesa nánar um hér:
http://photo.blog.is/blog/photo/entry/339910/
Hér er svo hreyfimynd af sömu hugmynd.
http://photo.blog.is/blog/photo/entry/341355/
og hér nánar um málið:
http://photo.blog.is/blog/photo/entry/348834/
Sjá má nánar eldri umfjöllun um nýja útfærslur á Gulla Hringnum hér:
http://photo.blog.is/blog/photo/entry/263922/
http://photo.blog.is/blog/photo/entry/268551/
http://photo.blog.is/blog/photo/entry/267781/
http://photo.blog.is/blog/photo/entry/262950/
Á næstu mynd má sjá nánar hugmyndir af nýrri og mikið endurbætta leið fyrir ferðamenn frá Reykjavík. En um “Gullna Hringinn” fara um 400 þúsund ferðamenn á ári!

Kort af nýrri leið þar sem farið er á milli Þórisjökuls og Geitlandsjökuls (klikkið á mynd til að sjá fleiri myndir)
og svo hugmynd þar sem leiðin er útfærð með rafdrifinni léttlest!
Á eftirfarandi mynd og korti má sjá hugmyndir af brautarkerfi fyrir suðvesturhorn landsins.

Brautarkerfi, lest eða monorail kerfi fyrir Reykjanes, Gullna hringinn og Suðurland (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Núna á Orkuveitan í samstarfi við framsækna einkaaðila að sæta lagi og útbúa sjóð sem styrkja mun þróun á léttlestarkerfi samkvæmt umræddum hugmyndum fyrir íslenskar aðstæður.
Núna er bara að bíða og sjá hvenær menn fara að taka við sér?
Kjartan
Fært undir Efnahagur, Jarðfræði, Tækni og vísindi þann 7. nóvember 2007 af photo | 0 ummæli
Næsta síða »


