MÓÐIR MÍN VERÐUR 70 ÁRA 24. DESEMBER!
Mikið hlýtur það að vera hræðilegt að eiga afmælisdag 24. desember!
En þannig er því nú farið með hana móður mína, Kristjönu Kjartansdóttur.
Hún hefur í raun aldrei átt afmæli svo heitið geti og er ástæðan vel skiljanleg.
Hér er mynd af henni móður minni að láta skýra nöfnu sína Kristjönu Ásu Þórðardóttur.

Sr Pálmi Matthíasson skírir Kristjana Ása Þórðardóttir 15 júlí ‘06 (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Ég verð því miður ekki á landinu þegar þessi merki viðburður rennur í garð hjá henni.
Fyrir utan það að hafa eignast mig, þá á hún til viðbótar 2 stráka, Þórð Jóhann og Valgarð og 3 stelpur, Fanney, Dröfn og Kolbrúnu!
Hún bað mig um að koma á framfæri að það verður morgunkaffiboð hjá henni að morgni 24. Desember fyrir þá sem vilja heiðra hana með nærveru sinni.
Og þar sem jólin eru að koma þá er spurning um að láta þessar myndir hér tala sínu máli. En þær eru af friðarsúluni í Viðey sem er listaverk eftir Yoko Ono til minningar um John Lennon

Friðarsúlan í Viðey, listaverk eftir Yoko Ono til minningar um John Lennon (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Að lokum langar mig til að óska öllum bloggvinum mínum Gleðilegra jóla og
farsældar á komandi ári.
Þakka ykkur fyrir skemmtilega umræður á árinu og fyrir frábæra móttökur hér á blogginu.
Jólakveðja og til hamingju með afmælið MAMMA.
Einnig vil ég óska tvíburasystur hennar, Unni Kjartansdóttur til hamingju með afmælið.
Kjartan
WWW.PHOTO.IS
Fært undir Ljósmyndun, Vinir og fjölskylda þann 22. desember 2007 af photo | 0 ummæli
HVAR ER FLOTTASTA SELASVÆÐI LANDSINS?
Fann fjóra dauða selskópa í rusli
Rauðisandur - Náttúran, dýralífið og mannfólkið á staðnum
Hér flýgur einn nýr furðufugl í lágflugi eftir ströndinni á Rauðasandi.

Fis TF-133 Kjartans Sigurðssonar í lágflugi eftir Rauðasandi (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Hópur fisflugmanna var á ferð um Vestfirðina fyrir nokkrum dögum og má sjá hér kort með GPS ferli sem sýnir lágflug eftir Rauðasandi ásamt hvar var lent við bæinn Stakkar. Þar var spjallað við heimamenn og gengið frá því að fá að koma í gæs aftur að hausti. En við félagarnir Nonni kokkur fengum að veiða hjá óðalsbóndanum Sigurði í fyrra með góðum árangri.
Á kortinu má sjá nákvæmt ferli sem fisið flaug eftir á leið sinni um Rauðasand

Hér má sjá kort með GPS feril eftir láflugi á Rauðasandi ásamt því hvar var lent og flogin hringflug yfir selnum á svæðinu (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Þegar flogið var lengra inn eftir sandinum, þá mátti sjá torfu af óvenju stórum dýrum syndandi og sólandi sig í ósnum. Þvílíkt og annað eins magn, ekki af fiskitorfu, heldur sel!
Þetta var ótrúleg sýn og ekki skal undra staðsetningin, en gjöful fiskimið eru skammt undan Rauðasandi

Mikið magn af sel í fjörunni og ósnum við Rauðasand (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Hér má sjá hvernig sandurinn er formaður á fjölbreytilegan máta.

Spor í sandi, en eftir hvað? (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Þó svo að sveitin sé fámenn, þá er sagan og mannlífsflóran þarna mjög merkileg. En þarna býr merkilegt samansafn af fólki. Fyrst til söguna ber að nefna nafna minn Kjartan Gunnarsson varaformaður í stjórn Landsbankans og fyrrverandi framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins. Kona hans, Sigríður Ásdís Snævarr sendiherra er 55 ára gömul og ný orðin móði (5. júlí. 2007). Hún er elst íslenskra kvenna til að ala barn svo vitað sé. Spurning hvort að Kári hafi haft eitthvað eitthvað með hönd í bagga til að tryggja hin réttu gen sveinbarnsins? En til hamingju með erfingjann Sigríður og Kjartan.
Kjartan og frú láta sig litlu muna að kaupa nokkrar jarðir á Rauðasandi. En kirkjujörðin Saurbær á Rauðasandi er nú í þeirra umsjón ásamt gömlu uppgerðu fjárhúsi og kaffihúsi sem byggt hefur verið upp af miklum myndarskap.
Hér má svo sjá nýuppgerða Saurbæjarkirkju

Saurbæjarkirkja á Rauðasandi (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Hér er lítið kaffihús í umsjón þeirra hjóna og er að heyra að það sé vel sótt af ferðamönnum.

Kaffihús á Rauðasandi (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Öfugt við Kjartan og Sigríði, þá búa hjón á þar næsta bæ sem eru í yngri kantinum. En þau eru að stíga sín fyrstu skref í búskap og er ekki annað að heyra en að það gangi bara vel.
Hér er Jón Sveinsson kokkur að sýna Sigurði bónda hvernig á að verka gæs sem honum áskotnaðist fyrir öll liðlegheitin gagnvart okkur veiðifélögunum

Sigurður bóndi á Stekkjum fylgist með aðförum Jóns Sveinssonar við gæsaverkunina (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Okkur Styrmi munaði ekki mikið um að lenda á túninu hjá þeim feðgum á Stekkjum. Ekki var annað að sjá en að Sigurður bóndi myndi vel eftir gæsaveiðimanninum frá síðasta ári.
Hér brosir Sigurður bóndi allan hringinn af gleði. Það er ekki daglega sem lenda tvö fis í túnfætinum hjá honum til að heilsa upp á hann.

Sigurður bóndi tekur vel á móti gestum ásamt föður sínum (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Hvaðan í ósköpunum koma þessir ótrúlega fallegu litir? Hér liðast áin iðagrænn í gegnum gullinn sandinn á leið sinni í gegnum ósinn til sjávar á Rauðasandi. Litadýrðin er ótrúleg. Margur málarinn myndi gjarnan vilja ná í þessa litarsamsetningu í málvekum sínum.
Litirnir í landslaginu geta stundum verið alveg ótrúlega fallegir eins og sjá má á þessari mynd. Náttúran getur oft verið á við flottasta málverk.

Bæjaroddi, Bæjarvaðall, Hafnarvogur, Torfavogur, Rifshaus, Bæjarós, Melanesrif (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Svo við höldum áfram að telja upp þá sem búa á Rauðasandi, þá má ekki gleyma hjólastólabóndanum fræga Ástþóri Skúlasyni frá Melanesi. En hann lenti í slysi þegar hann var að aka einu leiðina niður á Rauðasand sem er brattur og hættulegur vegur sem liggur niður Bjarnagötudal.
Þrátt fyrir fötlun sína, þá nær hann að sinna öllum helstu landbúnaðarstörfum. Hann hefur t.d. látið sérútbúa traktor með hjólastólalyftu svo að hann geti sinnt sínum störfum betur!

Hér býr Ástþór Skúlason á bænum Melanesi ásamt fjölskyldu (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Margt fleira væri gaman að nefna sem tengist Rauðasandi eins og Sjöundá sem er afskekkt eyðibýli. Jörðin fór í eyði 1921. Bærinn er sagður draga nafn sitt af sjö ám, flestum litlum, sem falla til sjávar á Rauðasandi. Bærinn stóð við innstu ána, í bröttu og þýfðu túni. Neðan við bæinn heitir Bæjarvík þar sem lending var. Beitiland er gott á dalnum og í hlíðinni.
Á Sjöundá gerðust þeir hörmulegu atburðir árið 1802 að ábúendurnir, þau Bjarni Bjarnason og Steinunn Sveinsdóttir, myrtu maka sína, Guðrúnu Egilsdóttur og Jón Þorgrímsson. Hlutu þau bæði dauðadóm fyrir. Þessa atburði gerði Gunnar Gunnarsson rithöfundur fræga að nýju í sögu sinni Svartfugl.
Hér má sjá rústir af bænum Sjöundá úr lofti

Sjöundá úr lofti (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Kjartan
WWW.PHOTO.IS
Fært undir Flug, Ljósmyndun, Menning og listir, Samgöngur, Slúður, Stjórnmál, Umhverfi, Umræðan þann 19. desember 2007 af photo | 0 ummæli
Eyrarhlíð - Óshlíð - Myndir
Bifreið var ekið í aurskriðu á Eyrarhlíð
Hér má sjá veginn sem liggur á milli Hnífsdals og Ísafjarðar. Ætli umrædd aurskriða hafi ekki fallið úr fjalli sem heitir Þórólfshnúkur.

Hnífsdalur, Þórólfshnúkur, Miðhlíð (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Óshlíðina þekkja margir úr fréttum í gegnum árin. En hún hefur löngum verið erfiður farartálmi fyrir Bolvíkinga. Mikið grjóthrun hefur verið úr hlíðum fjallana yfir veginn á milli Bolungarvíkur og Hnífsdals.

fjöllin Óshyrna, Arafjall, Búðarhyrna ásamt Ófæru (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Í gegnum þessi fjöll er búið að skipuleggja jarðgöng. En á myndunum má sjá að vegurinn meðfram ströndinni hefur víða verið settur í stokka til að verja umferð, sem fer um veginn, grjóthruni.
Hér má sjá kort af flugleiðinni yfir Bolungarvík sem farin var á mótordrekanum.

kort af flugleiðinni yfir Bolungarvík og nágreni (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Rétt eftir að búið er að aka fyrir Óshlíðina á leið til Bolungarvíkur, þá blasir Bolafjall við hinu megin við lítinn fjörð. Þá er stutt í Minjasafnið Ósvör sem er uppgerð verbúð frá árabátatímanum. Verbúðin er ein elsta sinnar tegundar á landinu.

Minjasafnið Ósvör (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Kjartan
WWW.PHOTO.IS
Fært undir Flug, Jarðfræði, Ljósmyndun, Samgöngur, Umhverfi þann 18. desember 2007 af photo | 0 ummæli
HÉR ER SMÁ SAMANTEKT UM JARÐSKJÁLFTANA Í UPPTYPPINGUM
Auknar líkur taldar á jarðskjálfta við Upptyppinga
Þökk sé nýjum vef Veðurstofunnar að þá geta leikmenn orðið fylgst vel með jarðskjálftum um allt land með auðveldum myndrænum hætti.
Það er gaman að vita til þess að stundum hittir maður naglann á höfuðið. En á sínum tíma vakti ég athygli á óróanum við Upptyppinga hér á blogginu.
Ég var að fara yfir bloggið hjá mér og vakti ég fyrst athygli á þessum óróum 31.7.07 og síðan þá hafa orðið þúsundir jarðskjálfta á svæðinu þar sem Upptyppingar eru.
Hér má sjá samantekt á fyrri skrifum um málið ásamt kortum og fl.
31.7.2007 | 23:18
Er að byrja gos í Upptyppingum rétt austan við Öskju?
http://photo.blog.is/blog/photo/entry/275335
1.8.2007 | 08:01
Er meira í kortum veðurstofunnar - Er að byrja gos í Upptyppingum rétt austan við Öskju?
http://photo.blog.is/blog/photo/entry/275513/
2.8.2007 | 20:30
Ég hafði þá rétt fyrir mér :)
http://photo.blog.is/blog/photo/entry/276849
17.8.2007 | 08:10
Skjálfti upp á 3.5 á Richter á Tjörnesbeltinu
http://photo.blog.is/blog/photo/entry/288610/
21.10.2007 | 09:07
Það er æsispennandi að fylgjast því sem er að gerast þarna á svæðinu. Hér eru kort og myndir.
http://photo.blog.is/blog/photo/entry/343518/
22.10.2007 | 22:39
Það verður fróðlegt að sjá hvað er að gerast þarna á svæðinu. Hér eru kort og myndir.
http://photo.blog.is/blog/photo/entry/344977/
9.12.2007 | 16:35
Kort og myndir - Smá viðbót út af skjálftunum við Upptyppinga
http://photo.blog.is/blog/photo/entry/386846/
10.12.2007 | 19:55
Nýtt nákvæmt kort að jarðskjálftum við Upptyppinga!
http://photo.blog.is/blog/photo/entry/387755/
Kjartan
WWW.PHOTO.IS
Fært undir Jarðfræði, Tækni og vísindi þann 17. desember 2007 af photo | 0 ummæli
KVÍABRYGGJA ER FLOTTUR STAÐUR
Mamma vill að Kalli Bjarni afpláni á Kvíabryggju
Óhætt er að segja að eitt fallegasta bæjarstæði á Íslandi er undir fjallinu Kirkjufelli í Grundarfirði.
Undir fjallinu að norðan verðu, má sjá lúxus fangelsið Kvíabryggju sem er hannað fyrir þá sem stunda hvítflippaglæpi.
Þarna þurfti ónefndur stjórnmálamaður að gista óvart vegna tæknilegra mistaka sinna.
Hann var ekki lengi að beita pólitískum áhrifum sínum til að fá að stunda ríkisstyrkta listsköpun og ný lúxus rúm voru pöntuð snarlega á staðinn svo að það færi nú örugglega betur um kauða.

Kvíabryggja séð úr lofti með fjallið Kirkjufell í baksýn (klikkið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Ég skora svo á stjórnvöld að verða við beiðni móður Kalla um að hann fái að taka út sinn dóm á Kvíabryggju eins og ónefndir þingmenn.
Kjartan
WWW.PHOTO.IS
Fært undir Efnahagur, Fjölmiðlar, Flug, Ljósmyndun, Umræðan, Vinir og fjölskylda þann 16. desember 2007 af photo | 16 ummæli
REFUR, TÓFA, MELRAKKI, HEIMSKAUTSREFURINN - MYNDIR
Íslenski heimskautarefurinn eða fjallarefurinn var eina spendýr landsins þegar landnámsmenn námu land um 800. Talið er að refurinn hafi orðið eftir í lok ísaldar. Dýrið breytir um lit á feldi eftir árstíðum og er mógrátt á sumrin og hvítt á veturna.
Kvendýrið (tófa, læða, bleyða, keila …) er 20% léttari en karldýrið (steggur, refur) og er meðgöngutíminn rúmar 7 vikur. Yrðlingarnir fæðast blindir og er gotið 5 til 6 yrðlingar.
Bústaðurinn er oft í urð eða sundurgrafið barð og heitir greni.
Rebbi er mikið ferðinni en þó mest í ljósaskiptunum.
Hér er lítill yrðlingur að naga legg af íslenskri sauðkind við Hólaskjól á Fjallabaksleið.

Ylfingur að naga bein af íslenskri sauðkind í Hólaskjól á Fjallabaksleið (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Hér erum við orðnir pínu stærri og mun sætari :)

Tveir ylfingar við greni í Hólaskjól á Fjallabaksleið (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Hver ert þú? Hvað viltu mér gæti rebbi verið að spyrja.

Refur horfir hissa á ljósmyndarann (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Hér er örugglega eitthvað gott að borða

Fæðan rebba fer eftir aðstæðum eins og ýmislegt sjórekið, skeldýr, egg og fuglar, hræ, ber, mýs o.fl. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Það er hvergi friður fyrir ljósmyndurum

Refur að gera þarfir sínar úti í Íslenskri náttúru (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Refur að leik við Hólaskjól að Fjallabaki (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Kjartan
WWW.PHOTO.IS
Fært undir Jarðfræði, Ljósmyndun, Umhverfi þann 16. desember 2007 af photo | 0 ummæli
NÝJAR MYNDIR AF FLUGVÉL SEM FAUK Í VONDA VEÐRINU
Það er ýmislegt sem fékk að fjúka Í vonda veðrinu síðasta sólahringinn.
Þessi fisflugvél má muna fífil sinn fegri. Ný vél sem aðeins er búið að fljúga 40 tíma er mjög illa farin eins og sjá má á eftirfarandi mynd.

Mynd af fisflugvél sem fauk í vonda veðrinu (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Mynd af fisflugvél sem fauk í vonda veðrinu (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Mynd af fisflugvél sem fauk í vonda veðrinu (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Kjartan
WWW.PHOTO.IS
Fært undir Flug, Ljósmyndun þann 13. desember 2007 af photo | 1 ummæli
Brýnt er að koma sem flestum lögnum í jörðu á viðkvæmum stöðum
Hvað er eiginlega að gerast hjá þingheimi þessa daganna. Nú kemur hver þingsályktunartillagan á fætur annarri þar sem annars þessi ósamstíga hópur virðist geta komið sér saman um fullt af flottum málum.
Það er víða sem að maður er á ferð um ósnortna náttúru landsins að maður lendir í því að háspennulínur blasa fyrir augum þar sem síst skyldi.
Spurning um að bæta inn í svona hugmyndavinnu að reyna að samræma lagnir á vegum, vatnslögnum, raf- og háspennulögnum.
Það verður þó að viðurkennast að framkvæmdir við virkjanir og fleira á hálendi landsins hefur kallað á vegakerfi sem ísendingar og ferðamenn hafa fengið að njóta.
Hér má sjá sjá 2 háspennulínur sem liggja rétt við Háafoss sem er efst í Þjórsárdal.

Háspennulínur við Háafoss fyrir ofan Þjórsárdal (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Línan vinstra megin er ný og var lögð á mettíma vegna stækkunar á Norðurál.
Nú hefur kostnaður við að leggja jarðstrengi lækkað mikið. Verð á lagningu á jarðstreng samanborið við loftlínur er frá því að vera lítið hærri upp í tífallt verð sem hlýtur þá að ráðast af því hvað háa spennu er verið að flytja og svo hvernig jarðvegurinn er.
Háafoss sem er efst í Þjórsárdal.

Háiafoss fyrir ofan Þjórsárdal (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Kjartan
WWW.PHOTO.IS
Fært undir Efnahagur, Ferðalög, Ljósmyndun, Samgöngur, Stjórnmál, Umhverfi, Umræðan þann 12. desember 2007 af photo | 0 ummæli
Nýtt og uppfært kort af jarðskjálftunum við Upptyppinga
Það er magnað að fylgjast með kvikuhreyfingum við Upptyppinga. Hér útbjó ég nýtt og nákvæmt kort út frá nýjustu gögnum Veðurstofunnar.
Svo er að sjá að óróinn á svæðinu færist stöðugt í aukana og ef tölugildin á vef Veðurstofunnar eru skoðuð nánar, þá má sjá að það grynnkar stöðugt á óróanum við Álftarnesdyngju.
Ég útbjó kort sem er í meiri gæðum en það sem Veðurstofan er að bjóða upp á á sínum vef og lagði þeirra gögn yfir kortið og fékk ég þá þetta kort hér:

Kort af svæði þar sem virknin er mest í kringum Upptyppinga (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Þarna má sjá svæðið frá Kárahnjúkum að Öskju. Einnig er ég búinn að útbúa hæðargraf eða þversnið af svæðinu þar sem rauða línan er teiknuð inn á kortið. Það graf má sjá í athugasemdum sem koma með þessari færslu.
Samkvæmt kortinu, þá virðist mesta virknin vera aðeins til hliðar austan megin við Upptyppinga.
Það má vera að mörgum þyki þessi skjálftavirkni óþægilega nálægt Hálslóni sem er um 15 - 20 Km fjarlægð. En þó svo að það yrði eldgos á þessum stað þá eru margir þröskuldar á milli eins og sjá má á þessu hæðargrafi sem að ég teiknaði.

Svo myndi hraunið líklega að mestu renna til norðurs ef af gosi yrði og niður þá 2 - 3 dali sem yrðu á leiðinni áður en hraun myndi ná inn að Kárahnjúkum. En annars, þá liggja sprungur að mestu frá suðri til norðurs á þessu svæði
Ef farið er inn á vef Veðurstofunnar og skoðuð jarðskjálftavirkni á svæðinu, þá má sjá virknina á Vatnajökli eins og hún er núna

Jarðskjálftakort Veðurstofunnar af Vatnajökli (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Kjartan
WWW.PHOTO.IS
Fært undir Jarðfræði, Tækni og vísindi, Umræðan þann 11. desember 2007 af photo | 0 ummæli
FRÓÐLEGT AÐ FYLGJAST MEÐ JARÐHRÆRINGUM VIÐ UPPTYPPINGA - KORT OG MYNDIR
Það hefur mikið verið að gerast í kringum Vatnajökul síðustu daga eftir að hlaupið í Skeiðará byrjaði. Svo er að sjá að allt hafi farið af stað eftir endilöngu rekbeltinu sem liggur meðal annars um Grímsvatnasvæðið og áhrifin virðast tengja sig langt norður í land.
Jarðhræringar virðist hafa aukist mikið á svæðinu við Upptyppinga.
Ef farið er inn á vef Veðurstofunnar og skoðuð jarðskjálftavirkni á svæðinu, þá má sjá virknina á Vatnajökli eins og hún er núna

Jarðskjálftakort Veðurstofunnar af Vatnajökli (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Ég útbjó kort sem er í meiri gæðum en það sem Veðurstofan er að bjóða upp á á sínum vef og lagði þeirra gögn yfir kortið og fékk ég þá þetta kort hér:

Kort af svæði þar sem virknin er mest í kringum Upptyppinga (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Þarna má sjá svæðið frá Kárahnjúkum að Öskju.
Samkvæmt kortinu, þá virðist mesta virknin vera aðeins til hliðar austan megin við Upptyppinga.
Það hafa oft orðið flóð eða hlaup ekki langt frá þar sem óróinn er núna.
Þessi brú liggur yfir Kreppu, en þar verða oft mikil flóð. Síðast þegar það gerðist, þá hvarf vegurinn á stórum kafla við brúnna.

Brúin yfir Kreppu (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Hér má sjá flug yfir svæðið ef einhver getur áttað sig á þessum myndum. En flogið er frá Öskju í átt að Grágæsavötnum.

Flug yfir Jökulsá á Fjöllum, Kreppu (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Þessi mynd er tekin 2006 af gömlum Volvo herbíl sem var stopp úti á miðri sandauðninni nánast á svæðinu þar sem skjálftamiðjan er núna.
Hér var á ferð hópur af ungmennum sem voru að “stytta” sér leið frá suðurlandinu norður í land. Þau völdu bara Gæsavatnaleið sem er ekki talin sú þægilegasta.

6 hjóla Volvo bilaður (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Bílinn var vægast sagt frekar illa búinn til að takast á við svona erfiða ferð. Eldsneyti búið og ýmsi vandamál búinn að vera á leiðinni.
Hér má sjá Herðubreið og Herðubreiðartögl og Upptyppinga eða svæðið þar sem upptök skjálftana hafa verið.

Herðubreið og Herðubreiðartögl (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Hér má sjá brúnna yfir Jökulsá á Fjöllum og hvar líklegt svæði gæti verið þar sem eldgos gæti hafist

Jökulsá á Fjöllum (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Kjartan
WWW.PHOTO.IS
Fært undir Jarðfræði, Ljósmyndun, Tækni og vísindi, Umhverfi þann 9. desember 2007 af photo | 0 ummæli
HÖFNIN Í VOGUM Á VATNSLEYSUSTRÖND - LOFTMYNDIR
Átta bílar brunnu í Vogum - grunur um íkveikju
Hér má sjá myndaseríu tekna úr lofti af höfninni í Vogum á Vatnsleysuströnd.
Spurning hvar þetta port við höfnina sem brann?

Vogar á Vatnsleysuströnd (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Sveitarfélagið Vogar (áður Vatnsleysustrandarhreppur) er sveitarfélag á norðanverðum Reykjanesskaga. Flestir íbúar lifa af sjávarútvegi eða sækja vinnu annars staðar, t.d til Reykjavíkur eða Keflavíkur. Í hreppnum er þorpið Vogar, þar búa um 1.000 manns. Vogar hétu til forna Kvíguvogar og Vogastapi sunnan þorpsins hét Kvíguvogabjörg. Í Stakksfirði undan Vogastapa voru góð fiskimið, sem hétu Gullkistan.
Vogar á Vatnsleysuströnd

Vogar við Vatnsleysuströnd (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Vogar á Vatnsleysuströnd.

Vogar á Vatnsleysuströnd (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Kort af Vogum á Vatnsleysuströnd

Kort af Vogar á Vatnsleysuströnd og nágreni (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Kjartan
WWW.PHOTO.IS
Fært undir Flug, Ljósmyndun, Slúður, Umhverfi, Umræðan þann 9. desember 2007 af photo | 0 ummæli
Næsta síða »







