Búðarhálsvirkjun - Stöðvarhús - myndir

www.visir.is Búðarháls á undan Þjórsárvirkjunum?

Það kom mér mikið á óvart þegar ég var á ferð með 2 Dani um hálendið sumarið 2003 að ég skyldi rekast á þessa risaframkvæmd sem síðan hefur staðið þarna ónotuð síðan.

Hér má sjá hvar búið er að sprengja fyrir stöðvarhúsi Búðarhálsvirkjunar.


Búðarhálsvirkjun (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Á myndin má sjá hversu litskrúðugt bergið er

Kjartan

WWW.PHOTO.IS

Fært undir Efnahagur, Jarðfræði, Ljósmyndun, Tækni og vísindi, Umhverfi þann 30. janúar 2008 af photo | 0 ummæli

ÓRÓAR Í GRINDAVÍK - MYNDIR

www.visir.is Hátt í 50 skjálftar við Grindavík

Það er ekki nema von að það séu miklir óróar þar sem sprungan, sem skiptir landinu í tvennt, kemur á land á Reykjanesi ekki langt frá Grindavík.

Skammt norðan við Grindavík, er fjallið Þorbjörn og frá bænum má sjá að það er klofið í miðju með stóru skarði. Skarðið er í raun stór sprunga eða sigdalur sem skipti fjallinu í tvo hluta. Eins og flest fjöll á Reykjanesi, þá myndaðist Þorbjörn á kuldaskeiði síðustu ísaldar með gosi undir jökli.




Eldfjallið Þorbjörn við Grindavík (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)



Eldfjallið Þorbjörn við Grindavík (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Við rætur Þorbjörns er svo Bláa Lónið staðsett enda stutt niður á heita hraunkvikuna sem er þar undir.

Ef farið er inn á vef Veðurstofunnar og skoðuð jarðskjálftavirkni á svæðinu, þá má sjá virknina á Reykjanesi eins og hún er núna


Jarðskjálftakort Veðurstofunnar af Reykjanesi (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Kjartan
WWW.PHOTO.IS

Fært undir Jarðfræði, Ljósmyndun, Tækni og vísindi, Umhverfi, Umræðan þann 23. janúar 2008 af photo | 2 ummæli

HÉR ER PLOTTIÐ - PÓLITÍSKUR HRÁSKINNALEIKUR :)

www.visir.is Segir sjálfstæðimenn hafa boðið samstarf

Getur hugsast að allt þetta upphlaup í borgarmálum sé útpælt hjá Sjálfstæðismönnum.

- Til að byrja með þá þurfti að sprengja það samstarf sem nú er sprungið með einhverju móti og til verksins var valin Ólafur F. Magnússon

- Þegar aðeins er liðið á nýja samstarfið, þá verður búin til óbrúanlegur ágreiningur og nýja samstarfið verður látið springa

- Þá myndast ný staða fyrir Sjálfstæðisflokkinn og núna til að semja við hvern sem er. En nú er búið að sá svo mikilli óánægju og vantrausti á milli hinna flokkanna sem hafa ekki lengur fleiri möguleika á nýjum meirihluta og eftir stendur:

Sjálfstæðisflokkurinn kemst í oddastöðu til að velja sér raunverulegan samstarfsflokk þar sem hvorki F-listinn né Framsókn eru inni … :)

- Er ekki hluti af pólitíkinni að eyða pólitískum andstæðingum?

Við skulum sjá hvert framhaldið verður.

Nema þetta endi allt með nýjum kosningum - en þá munu ákveðnir flokkar tapa stórt!

Kjartan

Fært undir Efnahagur, Fjölmiðlar, Slúður, Stjórnmál, Umræðan þann 23. janúar 2008 af photo | 0 ummæli

ÞJÓÐARGRAFREITURINN FYRIR FISCHER - MYNDIR

Þessa dagana er verið að ræða hvar best sé að jarða einn fremsta skákmann sögunar og skáksnillinginn “okkar” Bobby Fischer. Virðist umræðan að mestu snúast um að hann verði jarðsettur í þjóðargrafreitnum á Þingvöllum við hlið Jónasar Hallgrímssonar og Einars Benediktssonar.

Staðurinn er fyrir margt merkilegur og ófáir ferðamennirnir sem hafa virt fyrir sér þennan undarlega grafreit. Guðjón Samúelsson hannaði grafreitinn á sínum tíma og var Einar Benediktsson jarðaður þar árið 1940 og einhver bein sem talin væru af Jónasi Hallgrímssyni árið 1946.

Ég sé ekkert að því að leifa einum mesta skáksnillingi sögunar að fá að hvíla í friði á þessum stað - Um að gera að hafa smá fjölbreytni í þessu eins og öðru. Mikið var haft fyrir því að setja upp friðarsúlu í Viðey og sýnist mér allt stefna í að hún verði eitt helsta tákn borgarinnar.

Hér má svo sjá nokkrar myndir af reitnum sem um ræðir og er ég ekki frá því að þarna sé heiðið tákn á ferð. Ef af þessum gjörningi verður, þá munu blandast mörg ólík trúarbrögð þarna saman á einum stað - sem er hið besta mál :)


Bobby Fischer verður hugsanlega jarðsettur á þessum stað við hlið Jónasar Hallgrímssonar og Einars Benediktssonar á Þingvöllum (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Hér má sjá loftmynd af svæðinu. En í heiðnum siðum voru hringir mikið notaðir við trúarlegar athafnir. Jónas og Einar hvíla við endan á krossinum sem næstur er kirkjunni.


Bobby Fischer verður hugsanlega jarðsettur á þessum stað við hlið Jónasar Hallgrímssonar og Einars Benediktssonar á Þingvöllum (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Þingvallakirkja og Þingvallabærinn sem er að hluta til sumarhús forsætisráðherra og aðstaða fyrir þjóðgarðsverði


Þingvallakirkja og Þingvallabærinn (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Kjartan
WWW.PHOTO.IS

Fært undir Alþjóðamál, Fjölmiðlar, Menning og listir, Slúður, Stjórnmál, Trúarbrögð, Umhverfi, Umræðan þann 20. janúar 2008 af photo | 6 ummæli

SPÖRUM FULLT AF PENINGUM OG TÍMA - EKKI SUNDAGÖNG HELDUR GÖNG Á MILLI LAUGARNES OG KJALARNES

www.visir.is Að skjóta sendiboðann

Ég hef haldið á lofti hugmyndum um að tengja miðsvæðið Reykjavíkur betur og beina þá mestu umferðinni framhjá Árbæ, Grafarvogi og Mosfellsbæ eftir beinni og mun einfaldari leið en núverandi Sundabraut/göng kallar á.

Þar eru á ferðinni gífurlega flókin mannvirki með slaufum og flóknu gangnakerfi neðanjarðar sem væri hægt að leysa með mun einfaldari hætti eins og sjá má á eftirfarandi lausn.

Hér má svo sjá kort af nýrri leiðinni ásamt útreikningum ef göngin fara um Laugarnes, Viðey, Geldinganes, Álfsnes. En heildarvegarlengd er 10 km, vegur 6 km og jarðgöng eða rör 4 km.


Rör eða jarðgöng á milli eyjann frá Laugarnesi að Kjalarnesi (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

ÞVÍ EKKI AÐ FARA Í EINFALDARI, ÓDÝRARI OG HAGKVÆMARI FRAMKVÆMD?

Ef lögð yrðu göng/brýr sem stofnæð í beinni línu á milli eyjanna með betri tengingu við miðsvæði Reykjavíkurborgar, þá myndi skapast góð tenging við Sæbraut, Kringlumýrarbraut og svo ekki síst stuttar leiðir á hafnarsvæðin þrjú, Sundahöfn, Reykjavíkurhöfn og Holtabakka. Einnig verður stutt í nýja miðbæinn í Borgartúni sem verið er að byggja upp.

Kostirnir við þessa tillögu umfram þær tvær tillögur sem nú eru í gangi eru:

1) Nýtt dýrmætt byggingarland verður aðgengilegt eins og Viðey, Geldinganes og Álfsnes. En það bráðvantar byggingarland sem er niður við sjó en ekki lengst inni í landi.

2) Hringvegurinn styttist um heila 10 Km og jafnframt leiðin frá miðbæ Reykjavíkur að Hvalfjarðargöngunum.

3) Umferðin fer utan um byggðirnar í stað þess að fara í gegnum þær sem sparar flókin og dýr umferðarmannvirki á þeirri leið og íbúar þeirra svæða losna við mengun og hávaða sívaxandi umferðar á þeirri leið.

4) Þessi framkvæmd myndi nýtast landsbyggðinni mun betur því fjarlægð frá Reykjavík styttist um 10 Km og sá tími sem tekur að komast í þjónustu þar sem nánast öll stjórnsýslan er - styttist.

5) Í minni hugmynd þarf aðeins að leggja um 4 Km í göng en þó mætti bora meira á landi eins og hugmyndir um Sundagöngin ganga út á. Sundagöngin eru mjög flókið gatnakerfi neðanjarðar og nýtast að mestu aðeins Grafarvogi til að byrja með. Þau eru um 5 km frá Laugarnesi að Gufunesi á meðan göngin sem að ég kem með tillögu að eru samanlagt 4 Km og myndu nýtast mun betur og skapa fullt af nýjum tækifærum!

6) Ef hætt yrða að rukka fyrir aðgang að Hvalfjarðagöngunum, þá væri hægt að spara bygginu á nýjum göngum. En umferðatafir á þeirri leið myndast þar sem gjaldheimtan á sér stað í stað þess að láta umferðina renna óhindrað í gegn. Svo er þetta auka skattur sem landsbyggðarfólkið er að greiða. Ríkið á að greiða Spöl upp verkið og láta þá byrja strax á byggingu nýrra ganga í svipuðum stíl og Hvalfjarðargöngin eru í dag. Svo má tvöfalda það kerfi eftir því sem byggð stækkar og umferð eykst.

Hér má lílega spara fullt af peningum og klára vegatenginguna alla leið á Kjalarnes fyrir líklega sömu upphæð og Sundagöngin ein og sér koma til með að kosta og er þá fullt eftir og aðeins búið að tengja nyrsta hlutann á Grafarvogi!

Eftir því sem byggð myndi stækka og umferð aukast, þá mætti bæta nýjum hliðargöngum við þar sem við á. Þetta myndi líka gefa möguleika á fleiri ódýrum einföldum göngum eins og frá Holtabakka yfir í Grafarvog eða frá Geldingarnesi yfir í Mosfellsbæ/Grafarvog.

Með svona framkvæmd mætti dreifa umferðarálaginu og fjárfestingunni betur en gert væri með einni stórri framkvæmd á borð við Sundagöng!

Sú tillaga sem að ég kom með á teikningunni sýnir einföld jarðgöng sem eru rúmir 4 Km og er það í raun styttra en hugmyndir um Sundagöng ganga út á sem eru að auki tvöföld og má því áætla heildarlengd þeirra um 10 Km! Og það allt innan borgarmarkanna.

7) Varðandi lestarhugmyndir, þá hef ég komið með 3 tillögur að umhverfisvænum lestarsamgöngukerfum og er það 4 í vinnslu fyrir leiðina frá Reykjavík upp í Borgarfjörð. Hugmyndina að jarðgöngum má svo vinna á þeim nótum að hægt sé að aka lest um þau og væri ekki amalegt að hafa beina tengingu við Hafnarsvæðin 3 í Reykjavík á þeirri leið. En hugmyndir af lestarkerfunum má svo sjá hér:

8) Reykjanes - Gullhringurinn - Léttlestarkerfi

Hér má sjá hvernig hægt er að samtengja byggðir á suðvesturhorninu sem myndi nýtast vel byggðum og ferðamönnum sem ferðast um þetta svæði.


Mynd sýnir samgöngukerfi sem gæti leyst umferðarvanda á Reykjanesinu - fyrir íbúa jafnt sem ferðamenn

Lesa má nánar um málið hér:

http://photo.blog.is/blog/photo/entry/372669/

http://photo.blog.is/blog/photo/entry/392155/

En fyrir norðanmenn, þá ætti ekki að vera flókið mál að tengja þessi tvö kerfi saman t.d. í gegnum Kaldadal.

9) Norðurland - Demantshringurinn - Léttlestarkerfi

Á eftirfarandi mynd og korti má sjá hugmyndir af brautarkerfi fyrir DEMANTSHRINGINN (Húsavík - Ásbyrgi - Dettifoss - Mývatn) og Tröllaskagann (Sauðárkrókur - Hofsós - Siglufjörður - Ólafsfjörður - Dalvík - Akureyrir).


Brautarkerfi, lest eða monorail kerfi fyrir Norðurland, Demantshringinn og Tröllaskagann

STYRKJUM LANDSBYGGÐINA - EFLUM SAMGÖNGUKERFIÐ - LÉTTLESTARKERFI FYRIR NORÐURLANDIÐ! http://photo.blog.is/blog/photo/entry/367524/

10) Austurland - Álhringurinn - Léttlestarkerfi

Á eftirfarandi mynd og korti má sjá hugmyndir af brautarkerfi fyrir Norðaustur- og Austurland Möðrudalsöræfin (Mývatn - Egilsstaðir), Álhringurinn (Egilsstaðir - Seyðisfjörður - Norðfjörður - Eskifjörður - Reyðafjörður)


Brautarkerfi, lest eða monorail kerfi fyrir Norðausturland, Möðrudalsöræfi og Álhringurinn

ÞUNGFÆRT, SKAFRENNINGUR, HÁLKA, ÓFÆRT! - ÞAÐ ER HÆGT AÐ LEYSA MÁLIÐ http://photo.blog.is/blog/photo/entry/367893/

Það eru nokkur lönd sem eru byrjuð á svipuðum hugmyndum um léttlestir og er ekki annað að sjá en að það hafi gengið vonum framar.

Það er ekki mikið sem þarf að gera til að byrja á svona verkefni og tillögur að slíku má lesa hér:

BYRJA SEM FYRST Á AÐ LEGGJA 25 KM TILRAUNABRAUT FYRIR LÉTTLEST http://photo.blog.is/blog/photo/entry/379281/

Hugsum samgöngumálin í stærra samhengi!

Kjartan
WWW.PHOTO.IS

Fært undir Efnahagur, Ferðalög, Jarðfræði, Samgöngur, Stjórnmál, Tækni og vísindi, Umhverfi, Umræðan þann 19. janúar 2008 af photo | 2 ummæli

KAFFI KRÓKUR - MYNDIR

www.visir.is Sögufrægt hús eyðilagðist í eldsvoða

MYNDIR AF HÚSINU SEM BRANN Á KRÓKNUM

Það er mikið af gömlum fallegum húsum á Sauðárkróki og er það synd að þetta fallega hús skuli nú vera brunnið nánast til grunna.

Hér er nýleg mynd af Kaffi Krók á Sauðárkróki




Kaffi Krókur á Sauðárkróki (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Annað þekkt og mjög fallegt hús á Króknum lent einnig í bruna hér um árið, en í dag er það uppgert hús og eitt af glæsilegri hótelum landsins.




Hótel Tindastóll á Sauðárkróki (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Kjartan

WWW.PHOTO.IS

Fært undir Efnahagur, Fjölmiðlar, Ljósmyndun, Umhverfi, Umræðan þann 18. janúar 2008 af photo | 4 ummæli

VÆL FRÁ SMÁRÍKI - NÝJAN DÓMARA TAKK!

www.visir.is Lúðvík ósammála ráðherra um dómaraskipan

Þar sem það hefur átt sér stað stórfelld aukning í fjölda mála sem berast sí og æ inn á borð mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna frá litlu smáríki lengst norður í ballarhafi. Þá hafa stjórnvöld viðkomandi smáríkis brugðið á það ráð að reyna að fá að koma “sínum mönnum” að hjá stofnuninni.

Þeirra barnslegu rök eru að sjálfsögðu þau að þar sem flest málin komi hvort eð er frá þessu smáríki að þá ættu líka flestir dómararnir að koma frá þeim.

Þeir býsnast heil ósköp yfir því að einhver dómstóll úti í heimi geti yfir höfuð verið að skipta sér að innanríkismálum sem þeim hreinlega komi ekkert við.

Eitthvað virðist það vefjast fyrir ráðamönnum þessarar sömu þjóðar að á sínum tíma mitt í öllum utanlandsferðunum sömu manna hafi þeir asnast til að skrifað undir einhverja bindandi samninga sem hefðu eitthvað með mannréttindi að gera!

Kjartan

Fært undir Alþjóðamál, Efnahagur, Fjölmiðlar, Slúður, Stjórnmál, Umræðan þann 16. janúar 2008 af photo | 0 ummæli

Stofnannavæðing smáfélaga að hætti Umboðsmanns :)

Þá er það komið á daginn. Það er um að gera að stofnanavæða fisfélag með tilheyrandi reglum, boðum og bönnum. Síst átti ég nú von á að þetta mál myndi nú rata inn á borð Umboðsmanns Alþingis.




Grein af Visi.is (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Það er af sem áður var. Fyrir aðeins örfáum árum var þessi félagskapur án allra boða og banna. Enda hér um grasrótarsamtök í flugi að ræða.

Kjartan

WWW.PHOTO.IS

Fært undir Ferðalög, Flug, Samgöngur, Slúður, Stjórnmál, Umræðan þann 15. janúar 2008 af photo | 0 ummæli

Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Vefmiðlar
Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning