JARÐGÖNG, LEST OG HRAÐSKREIÐ FERJA FYRIR VESTMANNAEYJAR ER LAUSNIN
JARÐGÖNG, LEST OG HRAÐSKREIÐ FERJA FYRIR VESTMANNAEYJAR ER LAUSNIN
Ég hefði nú haldið að maður með þá reynslu sem Ísleifur Jónsson hefði að hann ætti að vita að það hefur verið mikið um vatnsgang í jarðgöngum á Íslandi. Nóg er að nefna nýjustu göngin á Vestfjörðum og svo núna síðast göngin í Kárahnjúkum.
Líklega eru hugmyndir Árna Johnsen ekki svo vitlausar eftir allt saman.
Hvernig væri að hætta við höfnina á Bakka í Landeyjum og útbúa 10 Km jarðgöng til Vestmannaeyjar í staðin?
Hér má sjá kort sem sýnir jarðgöng til Vestmannaeyjar og svo lestarkerfi sem liggur frá norður, norðausturlandi og svo frá suðvestur horni landsins.
Kort sem sýnir möguleika á höfn fyrir stóran hluta af þungaflutningum til og frá landinu ásamt skipaleið fyrir ferðamenn (smellið á kort til að sjá fleirri myndir)
Með því að setja upp stórskipahöfn í Vestmannaeyjum og safna þangað öllum fisk-, ál- og útflutningsafurðum landsmanna með öflugu lestarkerfi á einn stað eða til Vestmannaeyjar og sigla þeim síðan út til Evrópu og Ameríku - STYSTU LEIÐ :)
Fiskinn væri hægt að flytja ferskan og nýjan á 2 dögum á öll helstu markaðssvæði Íslendinga með bátum eins og sjá má hér:
Hér má sjá dæmi um ferju sem getur siglt á miklum hraða milli Íslands og helstu hafna í Evrópu og Ameríku.
Ferja sem siglir á milli eyja á Kanarí (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Í leiðinni væri hægt að bjóða upp á hraðferðir fyrir ferðamenn til landsins með bátum og þannig stórauka þjónustuna.
Hér er tenging á upplýsingar um ferjuna sem siglir með 60 bíla og 400 farþega og er í dag hægt að fá svona ferjur sem ná á milli 40 til 60 sjómílna hraða!
Linkur á Fred. Olsen Express
Ég var á ferð með ferju á milli eyja úti á Kanarí og þá gjörsamlega stakk ferjan Fred. Olsen Express af ferjuna sem ég var á. En líklega er siglingahraði á svona ferju eitthvað háður veðri. En þessi ferja er orðin nokkuð gömul og líklega komin ný og betri tækni í dag.
Ferja sem siglir á milli eyja á Kanarí (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Vandamálið með suðurströnd landsins, er að hún er nánast öll úr sandi og því frekar erfitt að búa til góð hafnarmannvirki þar. Á um 400 kílómetra langri strönd eru einu hafnirnar í Þorlákshöfn, Höfn á Hornafirði og svo í Vestmannaeyjum.
Einnig mætti frekar skoða hugmyndir um að nota hraðskreiðari ferju frá Þorlákshöfn til Vestmannaeyjar.
Herjólfur getur í dag tekið um 60 fólksbíla og allt að 524 farþega. Tvær vélar um 2700 kW eru um borð og siglingahraði aðeins 15,5 sjómílur (28,7 km/klst.) sem gefur siglingartíma um 2:40 í siglingartíma + tími sem fer í að leggja úr höfn og leggjast að bryggju.
Ef það yrði keyptur bátur sem siglir á milli 40 - 60 sjómílur, þá fer heildar siglingartími niður í 1 klst!
Við það myndi sparast hafnarmannvirki á Bakka og mætti nota þá peninga í að laga höfnina í Þorlákshöfn og kaupa betri ferju.
Svona fyrir þá sem vilja kynna sér málið betur með aðkomu að Bakkahöfn, ættu að skoða nánar þetta myndaband hér sem lýsir þeim hrikalegu aðstæðum sem þarna eru:
http://www.youtube.com/watch?v=cqJVDQPRe0k
Hér má svo sjá loftmynd af Vestmannaeyjum sem tekin var 1996.
Á þessari mynd má vel sjá alla eyjuna og hvernig Eldfell og nýja hraunið þekur eyjuna (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Hér má svo sjá kort af leiðinni frá Bakka á Landeyjasandi yfir á Heimaey þar sem hægt væri að koma upp stórri hafnaraðstöðu fyrir hraða flutninga til og frá landinu.
Vestmannaeyjar jarðgöng fyrir lest frá Bakka á Landeyjasandi (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Og svo í lokin, þá er hægt að vera með alla þessa þungaflutninga á landi - Umhverfisvæna :)
En fyrir þá sem hafa áhuga á jargöngum um sundin blá og þá um eyjarnar, geta lesið um þær hugmyndir hér:
Hrafninn flýgur í skipulagsmálum - sem er vel http://photo.blog.is/blog/photo/entry/359257
Önnur áhugaverð frétt í þessu sambandi, birtist í morgun á mbl.is. Þar kom fram að Rússneski auðkýfingurinn Roman Abramovich hefur keypt stærsta bor í heimi og er talað um hugmyndir að bora
og svo í lokin ef Ísleifur Jónsson vill kynna sér nánar þessa bortækni, þá eru til borar sem bora nánast í gegnum hvað sem er og þétta göngin um leið hér:
Kjartan
Fært undir Efnahagur, Ferðalög, Jarðfræði, Ljósmyndun, Samgöngur, Tækni og vísindi, Umhverfi, Umræðan þann 31. mars 2008 af photo | 2 ummæli
ÆÐISLEG PÁSKAFERÐ - MYNDIR
ÆÐISLEG PÁSKAFERÐ - MYNDIR
Var að koma úr ferð um páskana þar sem farið var inn í Landmannalaugar og yfir Vatnajökul. Byrjað var á því að fara á nokkrum bílum inn í Landmannalaugar.
Hér má sjá myndaseríu úr ferðinni ásamt stuttum texta:
Eins og sjá má á myndinni, þá hefur snjóað töluvert á svæðinu og voru sum skiltin nánast horfin
Skilti við Frostastaðavatn á kafi í snjó (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Skilti við Frostastaðavatn á kafi í snjó link to pictures + link to pictures
Það var farið að líða að kveldi þegar komið var að ánni sem er á leið inn í Landmannalaugar
Ekið yfir ánna á leið inn í Landmannalaugar að nóttu til (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Ekið yfir ánna á leið inn í Landmannalaugar að nóttu til link to pictures + link to pictures
Það er orðið langt síðan það hefur verið svona mikill snjó inni í Laugum en hér má sjá nýja skálann í Landmannalaugum á kafi í snjó!
Nýi skálinn í Landmannalaugum á kafi í snjó (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Nýi skálinn í Landmannalaugum á kafi í snjó link to pictures
Á meðan sumir lögðu land undir fót á gönguskíðum, þá fór hluti af hópnum gangadi um Laugarhraunið á tveimur jafnfljótum. Gott var að ganga í slóð eftir vélsleða sem höfðu átt leið um svæðið.
Gengið upp í átt að Brennisteinsöldu - allt á kafi í snjó (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Gengið upp Brennisteinsöldu - allt á kafi í snjó link to pictures + link to pictures
Hér er brugðið á leik við skiltið sem vísar á hina frægu gönguleið “Laugavegurinn”
Skilti við Brennisteinsöld á gönguleiðinni við Laugaveg (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Skilti við Brennisteinsöld á gönguleiðinni við Laugaveg link to pictures + link to pictures
Finna mátti þennan fallega íshelli á hverasvæðinu á leið til baka
Íshellir við Brennisteinsöld á gönguleiðinni við Laugaveg (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Kristín skálavörður hefur dundaði sér við að útbúa snjó hótel fyrir þá sem vilja gista í snjóhúsi frekar en í skála.
Snjóhús Landmannalaugum made by Kristínu (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Hér er Guðmundur að prófa að “tjakka” upp “Pamelu” eða plása upp 3ja tonna Landcruser með blöðru sem tengd er pústinu á bílnum, því miður sprakk blaðran með miklum látum :|
Landcruser blásinn upp eða tjakkaður upp með pústinu (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Pamela er fræg fyrir að hafa farið yfr Grænlandsjökul hér um árið. Ég get hiklaust mælt með þessari tegund af bílum. En bílinn stóð sig ótrúlega vel í ferðinni með sína öflugu 24 ventla díselvél.
Landrover nærri oltin við Landmannalaugar link to pictures
Það er falegt um að litast í blíðuni við sjálfar laugarnar sem Landmannalaugar hafa fengið nafn sitt eftir
Þreyttir ferðalangar baða sig í Landmannalaugum (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Hópur kveður skálavörð í Landmannalaugum link to pictures
Ekið yfir ánna link to pictures
Það þarf að huga að mörgu þegar verið er að fara í erfiðar ferðir inn á hálendið og sér í lagi þegar verið er að fara yfir Vatnajökul eins og í þessari ferð
Guðmundur herðir upp á ró bakvið drifskaft í framhásingu (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Rebbi varð á leið leiðangursmanna á leið inn í Jökulheima og náðust nokkrar myndir af honum áður en hann forðaði sér upp á næstu hæð til að virða frekar fyrir sér þá sem áttu leið hjá
Refur á leið ferðalanga inn í Jökulheima (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Hver týndi kerru á leið inn í Jökulheima link to pictures
Hér er komið inn í Jökulheima, skála jöklarannsóknarmanna. Skálinn er fyrir vestan Vatnajökul þar sem Tungaá (Tungná) kemur undan jöklinum.
Komið að skála jöklarannsóknarmanna inni í Jökulheimum (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Þar voru nokkrar fjölskyldur samankomnar til að njóta útiverunnar á 4×4 bílum og vélsleðum.
Skáli Jökulheimum á kafi í snjó link to pictures
Fjölskylda á ferð á vélsleðum link to pictures
Færi erfitt á Vatnajökli - allir að festa sig link to pictures
Það er auðveldara að bruna niður jökulinn en upp hann. Hér nýtur bílstjórinn sín í “botn”
Sá gamli góði - Landcruser - Páll á leið niður Vatnajökul (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Sá gamli góði - Landcruser - Páll á leið upp og svo niður Vatnajökul link to pictures + link to pictures
Pajero á siglingu niður Vatnajökul link to pictures
Kona á Landcruser 70 á leið niður Vatnajökul link to pictures
Ekki tókst að láta félaga Steinar falla þrátt fyrir að mikið væri reynt. Hann stóð af sér hverja raunina á fætur annarri eins og sjá má
Steinar Þór Sveinsson ákveður að taka áskorun og prófa nýju skíðin og lætur draga sig eftir jöklinum (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Steinar Þór Sveinsson ákveður að taka áskorun og prófa nýju skíðin link to pictures + link to pictures
Félagar Steinar og Haraldur landroverast upp Vatnajökul í flottu veðri link to pictures
Það eru fleiri bílategundir sem láta gamminn geysa á jöklinum. Hér er Landróver á öðru hundraðinu … eða var bílinn kannski bara á … :)
44″ Landroverinn hans Haraldar Arnar á kafi í snjó ryðst hér áfram upp Vatnajökul (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
44″ Landrover á kafi í snjó link to pictures + link to pictures
Skálarnir við Grímsvötn framundan link to pictures
Guðmundur við skálann í Grímsvötnum link to pictures
Steinar að vonum ánægður með að vera komin á þennan fræga stað link to pictures
Þá er loksins komið á áfangastað sem er skáli jöklarannsóknafélagsins á toppi Grímsfjalls. Skálinn er uppi á toppi fjallsins þar sem næðir vel um og þarf því oft að moka sér leið inn í þá
Hér er verið að moka sér leið inn í skála jöklarannsóknarmanna á Grímsfjalli (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Þá er að moka sig inn í skálann link to pictures + link to pictures
Horft í áttina þar sem síðasta gos var í Grímsvötnum link to pictures
Veðrið var flott og því um að gera að skella sér strax á gönguskíðin. Hætturnar eru víða á Grímsfjalli, enda er þar eitt mesta háhitasvæði á jörðinni. Stórar sprungur voru nálægt brúninni sem rauk úr.
Steinar og Haradur komnir á gönguskíðin uppi á Grímsfjalli (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Ekki eru mörg ár síðan að jarðfræðingur ók fram af hömrunum ekki langt frá þessum stað. Allt fór þó vel að lokum þrátt fyrir nokkur hundruð metra fall.
Steinar og Haraldur komnir á gönguskíðin link to pictures + link to pictures
Það rýkur upp úr hryggnum á Grímsfjalli / Svíahnúk Vestari link to pictures
Guðmundur myndar á háhitasvæðinu við Grímsfjall link to pictures
Hrikalegt að horfa niður af brún Grímsfjalls, brúnin öll sundur sprungin link to pictures
Snjórinn í kringum skálana sannkallað listaverk, Hvannadalshnjúkur í bakgrunni link to pictures + link to pictures
Kvöldið er fagurt á Grímsfjalli link to pictures
Innviðir skálans á Grímsfjalli link to pictures
Grímsvötn virkasta eldstöð á Íslandi link to pictures
Naktir menn í gufu á toppi Grímsfjalls link to pictures
Klósett eins og þau gerast best link to pictures
Ekið niður af Grímsfjalli til austurs í slæmu skyggni link to pictures + link to pictures
Mikið er Steinar ánægður núna link to pictures
Bograð yfir biluðum Landróver upp á miðjum Vatnajökli - Útlitið ekki gott link to pictures
Er það loftsían - Nei link to pictures
Er loft á kerfinu? - Já - vantar vatn link to pictures
Þá er bara að bræða snjó og bæta á vatnskassann link to pictures
Fljótt að skafa í förin aftur - en það er að birta til link to pictures
Meira skjól í Landrover til að bræða snjóinn link to pictures
Þá byrjar hinn bílinn að bila - hvar endar þetta - það brakar óþægilega mikið í liðnum að framan link to pictures
Þarna er tumi Þumall í Vatnajökli - gígtappi link to pictures
Hvannadalshnjúkur - Öræfajökull - Þuríðartindur link to pictures
Landrover einn á ferð - enn eftir 8 km að Hermannaskarði link to pictures + link to pictures
Glitský link to pictures
Færið að versna og Landrover dregur kúluna link to pictures + link to pictures
Sólsetur link to pictures
Landcruser í sólsetri link to pictures
Ekið niður Hermannaskarðið og enn versnar færið link to pictures
Færið var orðið gríðarlega erfitt, þunn skel ofan á snjónum og svo botnlaust púður undir. Því þurfti allt að virka og var eins og læsingin að framan væri ekki að virka á Landrover. Að lokum voru þeir þrír félagarnir komnir undir bílinn til að finna út hvað væri að. Núna varð Landroverinn hreinlega að vera á undan það sem eftir var ferðarinnar. En það var farið að braka ótæpilega að framan á Landcruser og stutt í að allt myndi brotna. Útlitið var ekki bjart!
Allt fast og ekkert virkar - læsingin að framan biluð (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Þegar komið var niður Hermannaskarðið, þá fyrst fór færið að þyngjast verulega. Stefnan var tekin á skála Jöklarannsóknafélagsins í Esjufjöllum, en ferðin sóttist MJÖG hægt og var meðalhraðinn oft ekki meira en 1-2 km/klst!
Þrátt fyrir að báðir bílarnir væru á 44″ dekkjum og með allt læst að framan og aftan og ló-ló gírinn notaður, þá urðu þreyttir ferðalangar að lokum að játa sig sigraða kl. 3 að nóttu fyrir móður náttúru.
En það kom ekki að sök. Því skyndilega varð allur himininn lifandi grænn og norðurljósin dönsuðu út um allt.
Norðurljósin með Landcruser í forgrunni og Mávabyggðirnar og Fingurbjörg í bakgrunni (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Nóttin var þess virði þrátt fyrir aðeins 1 km/klst hraða - Norðurljósin í öllu sínu veldi link to pictures + link to pictures + link to pictures
Ótrúleg norðurljós með Landcruser í forgrunni link to pictures + link to pictures
Rosabaugur um tunglið link to pictures
Þar sem ekki náðist inn í Esjufjöll og kl. orðin rúmlega þrjú að nóttu, þá var ákveðið að slá upp tjaldbúðum út á miðjum Breiðamerkurjökli
Sofið í tjöldum á miðjum Breiðamerkurjökli (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Næturbirtan er falleg á jöklinum - Steinar og Halli komnir ofan í pokana sína link to pictures
Frekar þungbúið þegar vaknað er næsta dag kl. 9 link to pictures
Ekið niður af Breiðamerkurjökli í erfiðu færi og slæmum skilyrðum - meðalhraðinn 1-2 Km/klst link to pictures
Ekki enn runnið af Steinari eftir bjórinn frá … link to pictures
Ekið á ísnum niður jökulsporðinn á Breiðamerkurjökli link to pictures
Fagnaðarfundur - fyrstu jeppar sem sjást á leið upp á jökulinn - fáum leiðbeiningar niður jökulinn í talstöð link to pictures
Íslenskur voffi link to pictures
Hópur kveður á Selfossi, liður að framan brotnaði á Hvolsvelli og öryggisbolti í afturhásingu í Landcruser hjá Guðmundi. Sluppum rétt fyrir horn eftir 773 Km ferð link to pictures
Kjartan
Fært undir Ferðalög, Ljósmyndun, Samgöngur, Tækni og vísindi, Umhverfi, Vinir og fjölskylda þann 30. mars 2008 af photo | 3 ummæli
HUGMYND ER TIL ALLS FYRST :)
HUGMYND ER TIL ALLS FYRST :)
Ég bloggaði um eftirfarandi hugmynd á sínum tíma hér, ekki er að sjá annað en sumir hafi stokkið á hugmyndina.
=================================
HUGMYND FYRIR NÝJAN SKIPULAGSSÉRFRÆÐING :) http://photo.blog.is/blog/photo/entry/438283/
Mikið er það flott að það skuli vera komin skipulagssérfræðingur og arkitekt við stjórnvölin í borginni. Einnig er ótvíræður kostur að hún skuli líka hafa áhuga á umhverfi og landvernd.
Það er staðreynd að samgöngumál og skipulag er það sem verður sett á oddinn í borgarmálum á næstunni og er þá ekki vel við hæfi að kasta fram þessari hugmynd hér :)
Hvernig væri að kanna kosti þess að setja upp neðanjarðarlestarkerfi eða metró í borginni?
Hér er hugmynd að einu slíku:

Hugmynd að 21 Km neðanjarðarlestarkerfi í Reykjavík (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Hugmyndin gengur út á að tengja saman 14 staði með 21 Km neðanjarðarlestarkerfi sem liggja myndi um Reykjavík og Kópavog.
Þau svæði sem yrðu líklegust til að tengjast slíku kerfi til að byrja með gætu verið:
Nýja samgöngumiðstöðin í Vatnsmýrinni, Háskóli Íslands, KR svæðið, Miðbær Reykjavíkur, Hlemmur/Borgartún, Laugardalur, Sundahöfn, Holtagarðar, Skeifan, Bústaðarvegur, Mjódd, Smáralind, Hamraborg í Kópavogi og Kringlan/Háskóli Reykjavíkur
Næst er það spurningin, hvernig á að standa að svona framkvæmdum?
Reykjavíkurborg á að stofna enn eitt útrásarfyrirtækið og kaupa þann bor sem eftir er vegna framkvæmdanna við Kárahnjúka.
Síðan yrði borinn settur í gang og heilboruð hringleið um svæðið undir alla borgina og ekki þarf að fjárfesta í dýru landsvæði því öll framkvæmdin er neðanjarðar.
Svona bor kostar um 1.2 milljarð sem eru smáaurar miða við margt annað sem fjárfest er í samgöngum þessa daganna.
Afköstin eru að minnsta kosti 24 - 100 metrar á sólarhring og er þvermálið um 6 metrar. Borinn vegur um 600 tonn og gengur borinn fyrir rafmagni.
Að bora einn kílómeter getur verið á bilinu 10 til 40 dagar og myndi borun á slíkum göngum vera eitthvað um 2 ár
Nú er bara að bíða og sjá hvað Ólöf Guðný Valdimarsdóttir nýráðin aðstoðarmaður Ólafs F. Magnússonar borgarstjóra muni taka sér fyrir hendur á næstu vikum :)
=================================
Nú er bara að bíða og sjá hvað Ólafur ætlar að gera í stöðuni.
Kjartan
Fært undir Ferðalög, Samgöngur, Stjórnmál, Tækni og vísindi, Umhverfi, Umræðan þann 28. mars 2008 af photo | 0 ummæli
FANGELSI Á ÍSLANDI - MYNDIR
Allar fangageymslur yfirfullar
FANGELSI Á ÍSLANDI - MYNDIR
Við fisflugmenn fljúgum ansi oft eftir suðurströndinni í góðum veðrum og hér má sjá myndaseríur úr slíkum ferðum af Litla-Hrauni.
Ekki annað að sjá en þarna sé fín aðstaða (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Loftmynd af hrauninu tekin árið 2007.
Loftmynd tekin í löngu flugi ofan úr Borgarfirði á leið til Reykjavíkur (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Myndir teknar til suðurs árið 2006
Loftmynd tekin í flugi á leið til Reykjavíkur (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Á sínum tíma varð ég þess heiðurs aðnjótandi að fá að hanna loftnets-, síma- og kallkerfi fyrir fangelsið og var ekki annað að sjá en að það væri veglega staðið að verki.
Líklega er eitt af fallegri bæjarstæðum á Íslandi undir fjallinu Kirkjufelli í Grundarfirði.
En hér má sjá lúxus fangelsið Kvíabryggju sem er hannað fyrir þá sem stunda hvítflippaglæpi.
Þarna þurfti ónefndur stjórnmálamaður að gista óvart vegna tæknilegra mistaka sinna.
Hann var ekki lengi að beita pólitískum áhrifum sínum til að fá að stunda ríkisstyrkta listsköpun og ný lúxus rúm voru pöntuð snarlega á staðinn svo að það færi nú örugglega betur um kauða.
Kvíabryggja séð úr lofti með fjallið Kirkjufell í baksýn (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Kjartan
Fært undir Flug, Ljósmyndun, Stjórnmál, Umhverfi, Umræðan þann 27. mars 2008 af photo | 0 ummæli
SKEMMTILEG FERÐ UM PÁSKANA - GPS SLÓÐ AF LEIÐINNI
SKEMMTILEG FERÐ UM PÁSKANA - GPS SLÓÐ AF LEIÐINNI
Fór í flotta og mjög erfiða ferð yfir páskana og má sjá GPS slóðann á kortinu hér sem Haraldur Örn Ólafsson pólfari á heiðurinn af. Með því að smella á kortin, þá er hægt að ná í GPS leiðina.
Kort með GPS leið af Páskaferð. Kjartans P. Sigurðsson, Guðmundar Halldórsson, Haraldur Örn Ólafsson, Steinar Þór Sveinsson. Reykjavík, Landmannalaugar, Jökulheimar, Grímsvötn, Hermannaskarð, Breiðamerkurjökull, Reykjavík (smellið á mynd til að sjá GPS kort)
Tók mikið af fallegum myndum sem verða að koma seinna þegar tími gefst til.
Var annars að prófa að setja inn flug sem að við flugum nokkrir félagarnir á fisum um Vestfirðina síðasta sumar og má sjá kost og GPS slóða af leiðinni hér
Kort með GPS leið af flugi Kjartans P. Sigurðssonar um Vestfirði (smellið á mynd til að sjá GPS kort)
Hér er svo seinni hluti leiðarinnar um Vestfirðina
Kort með GPS leið af flugi Kjartans P. Sigurðssonar um Vestfirði (smellið á mynd til að sjá GPS kort)
Myndir úr fluginu má svo sjá hér:
Kjartan
Fært undir Ferðalög, Fjölmiðlar, Flug, Ljósmyndun, Samgöngur, Tækni og vísindi þann 26. mars 2008 af photo | 0 ummæli
MANNABEIN FINNAST VÍÐA - MYNDIR
Mannabein fundust í Kjósarhreppi
MANNABEIN FINNAST VÍÐA
Einn er sá staður sem mér hefur þótt gaman að koma til, en það er í litla vík austur á landi sem Húsavík heitir. Húsavík liggur á milli Loðmundarfjarðar að sunnan og Breiðavíkur (Herjólfsvíkur) að norðan.
Á þessum stað er lítil kirkja sem hefur verið endurbyggð.
Lítil kirkja í Húsavík sem er á milli Loðmundarfjarðar að sunnan og Breiðavíkur (Herjólfsvíkur) að norðan (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Það sem merkilegt er við þennan stað er að þar liggur gamall kirkjugarður út við sjávarsíðuna. Vegna ágangs sjávar, þá hefur grafið svo mikið úr bakkanum að mannabein og og leifar af líkkistum standa út úr bakkanum. Þetta er staður sem er ekki fyrir viðkvæma að fara á!
Annar merkilegur beinastaður sem að ég hef komið til er í beinakirkjuna í Tékklandi (Kostnice Ossuary, Kutna Hora, Sedlec, Church of Bones, Kostnice Sedlec)
Þar er að finna kirkju eða grafhýsi sem hefur verið skreitt listilega með mannabeinum eins og sjá má á eftirfarandi myndum (ekki fyrir viðkvæma).
Hér er gengið inn í beinakirkjuna í Kutna Hora í Tékklandi og eins og sjá má, þá er anddyrið ekki beint fyrir þá sem eru hræddir við mannabein.
Beinakirkjan í Tékklandi, Kostnice Ossuary, Kutna Hora, Sedlec, Church of Bones, Kostnice Sedlec (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Eins og sjá má á myndunum, þá eru innanstokksmunir og skraut kirkjunnar nánast alfarið búnir til úr mannabeinum.
Skjaldamerki úr beinum í beinakirkjunni í Tékklandi, Kostnice Ossuary, Kutna Hora, Sedlec, Church of Bones, Kostnice Sedlec (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Hér er horft upp í loftið og yfir salinn í átt að altarinu í beinakirkjunni
horft upp í loftið og yfir salinn í átt að altarinu í beinakirkjunni í Tékklandi, Kostnice Ossuary, Kutna Hora, Sedlec, Church of Bones, Kostnice Sedlec (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Eins og sjá má, þá eru furðuleg mörg mannanna verk.
Kjartan
Fært undir Alþjóðamál, Ferðalög, Heilbrigði, Ljósmyndun, Menning og listir, Trúarbrögð, Umhverfi, Umræðan þann 24. mars 2008 af photo | 1 ummæli
LJÓSMYNDARAR ERU BILAÐ FÓLK - Crazy photographers - MYNDIR
LJÓSMYNDARAR ERU BILAÐ FÓLK - Crazy photographers - MYNDIR
Ég mátti til með að sýna ykkur myndirnar sem að Sigurður Valur myndlistamaður sendi mér. En þær eru af ljósmyndurum sem leggja stundum ansi mikið á sig til að ná góðum myndum.
Hér látum við svo myndirnar tala sínu máli :)

Ljósmyndari að taka myndir (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Ljósmyndari að taka myndir (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Ljósmyndari að taka myndir (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Ljósmyndari að taka myndir (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Ljósmyndari að taka myndir (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Ljósmyndari að taka myndir (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Ljósmyndari að taka myndir (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Ljósmyndari að taka myndir (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Ljósmyndari að taka myndir (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Ljósmyndari að taka myndir (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Ljósmyndari að taka myndir (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Ljósmyndari að taka myndir (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Ljósmyndari að taka myndir (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Ljósmyndari að taka myndir (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Ljósmyndari að taka myndir (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Ljósmyndari að taka myndir (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Ljósmyndari að taka myndir (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Ljósmyndari að taka myndir (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Ljósmyndari að taka myndir (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Ljósmyndari að taka myndir (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Ljósmyndari að taka myndir (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Ljósmyndari að taka myndir (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Það kemur oft fyrir að ljósmyndarar slasast við vinnu sína - eins og gefur að skilja.
Svo í lokin, þá er linkur hér á einn sem lagði töluvert á sig til að ná mynd :)
http://www.photo.is/bb2/viewtopic.php?t=72
Kjartan
WWW.PHOTO.IS
Fært undir Ferðalög, Kvikmyndir, Ljósmyndun, Slúður, Tækni og vísindi, Umræðan þann 19. mars 2008 af photo | 5 ummæli
FRIÐASÚLAN - MYNDIR
Friðarsúlan tendruð í viku í kringum páska
FRIÐASÚLAN - MYNDIR
Það verður gaman að sjá kveikt á listaverki Yoko Ono, Imagine Peace Tower í Viðey. Mér finnst að það eigi að vera kveikt á þessu fallega listaverki yfir alla vetrarmánuðina.
Ljósmyndasýning verður opnuð í hesthúsinu í Viðey þar sem næturljósmyndun af friðarsúlunni verður líklega viðfangsefnið.
Var þarna fyrir jól á síðasta ári og tók þá þessa myndaseríu hér, En þær eru af friðarsúlunni í Viðey sem Yoko Ono lét útbúa til minningar um mann sinn John Lennon:
Friðarsúlan í Viðey, listaverk eftir Yoko Ono til minningar um John Lennon (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Friðarsúlan í Viðey, listaverk eftir Yoko Ono til minningar um John Lennon (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Friðarsúlan í Viðey, listaverk eftir Yoko Ono til minningar um John Lennon (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Friðarsúlan í Viðey, listaverk eftir Yoko Ono til minningar um John Lennon (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Friðarsúlan í Viðey, listaverk eftir Yoko Ono til minningar um John Lennon (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Friðarsúlan í Viðey, listaverk eftir Yoko Ono til minningar um John Lennon (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Friðarsúlan í Viðey, listaverk eftir Yoko Ono til minningar um John Lennon (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Friðarsúlan í Viðey, listaverk eftir Yoko Ono til minningar um John Lennon (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
En svona í tilefni dagsins, þá mátti ég til með að birta þessar myndir aftur.
Ef mig minnir rétt, þá komu PK arkitektar eitthvað að gerð þessa listaverks.
Kjartan
Fært undir Ljósmyndun, Menning og listir, Tækni og vísindi, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda þann 18. mars 2008 af photo | 0 ummæli
Á VÆNGJUM VIÐ URRIÐAFOSS Í ÞJÓRSÁ - MYNDIR
Á VÆNGJUM VIÐ URRIÐAFOSS Í ÞJÓRSÁ - MYNDIR
Hér má sjá flug yfir þá 3 staði þar sem næstu virkjanir í Þjórsá koma til með að rísa.
Flug við Urriðafoss á góðum degi - Urriðafoss í Þjórsá er vatnsmesti foss landsins og einn sá tignarlegasti.
Þessi fallegi foss kemur til með að hverfa (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Á myndinni má sjá hvar áhugasamur laxveiðimaður er að kanna hvort að það sé fiskur í ánni. Umræddur flugmaður er víst ný komin úr laxveiðiferð frá Rússlandi. Þar veiddi hann ásamt föður sínum um 30 stórlaxa, þar sem meðalþyngdin var rúm 19 pund. Sá stærsti var um 40 pund! Ég taldi mig góðan að hafa náð einum sem var 22.5 pund hér um árið. Eftir veiðina góðu, sem fékkst á breiðunni fyrir ofan brúnna í Soginu við Þrastalund, þá hætti ég öllum dýrum laxveiðiferðum :(
Flug frá Árnesi í Gnúpverjahrepp eftir að búið er að taka bensín :)
Ekkert er eins gaman og fljúga eins og fuglinn fljúgandi á góðum degi (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Séð fram af Búrfelli í átt að Þjórsá - Íslandsmót í svifdrekaflugi 2005
Hér er í gangi Celtic Cup svifdrekamót (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Kjartan
Fært undir Ferðalög, Flug, Ljósmyndun, Umhverfi, Umræðan þann 17. mars 2008 af photo | 0 ummæli
HAFSKIPSMÁLIÐ - BÓKADÓMUR
HAFSKIPSMÁLIÐ - BÓKADÓMUR
Það verður fróðlegt að glugga í bókina um Hafskipsmálið sem JPV forlag er að gefa út þessa dagana.
Mig rennur í grun að það eigi eftir að koma margt upp á yfirborðið sem verður miður óþægilegt fyrir suma.
Þarna verður líklega opinberað hvað margir þingmenn hafa í raun fyrir stafni inni á hinu háa Alþingi annað en að láta sér leiðast.
En ljósu punktarnir í þessu öllu saman er að þetta verður ákjósanleg handbók fyrir nýliða sem huga á frama innan ónefndra stjórnmálaflokka.
Annars var ég að sækja um að fá að stofna bankareikning fyrir smá rekstur hjá bankanum hans Björgólfs um daginn og var hafnað.
Spurning hvort að Björgólfur og félagar séu að falla í sömu gryfjuna sjálfir :)
Fært undir Efnahagur, Fjölmiðlar, Slúður, Stjórnmál, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda þann 16. mars 2008 af photo | 2 ummæli
TIL HAMINGJU MEÐ JARÐGÖNGIN NORÐANMENN
Vaðlaheiðargöng gera Norðurland að einu atvinnusvæði
TIL HAMINGJU MEÐ JARÐGÖNGIN NORÐANMENN
Jarðgöng um Vaðlaheiði gera ekki annað en að styrkja svæðið fyrir norðan sem eitt atvinnusvæði. Hér má sjá hugmynd sem ég kom með af heildstæðu lestarkerfi fyrir norðurland sem gæti verið gott að hafa til hliðsjónar þegar verið er að huga að framtíðarskipulagi í samgöngumálum eins og jarðgöngum m.m.
Norðurland - Demantshringurinn - Léttlestarkerfi
Á eftirfarandi mynd og korti má sjá hugmyndir af brautarkerfi fyrir DEMANTSHRINGINN (Húsavík - Ásbyrgi - Dettifoss - Mývatn) og Tröllaskagann (Sauðárkrókur - Hofsós - Siglufjörður - Ólafsfjörður - Dalvík - Akureyrir).

Brautarkerfi, lest eða monorail kerfi fyrir Norðurland, Demantshringinn og Tröllaskagann
Það eru nokkur lönd sem eru byrjuð á svipuðum hugmyndum um léttlestir og er ekki annað að sjá en að það hafi gengið vonum framar.
Það er ekki mikið sem þarf að gera til að byrja á svona verkefni og tillögur að slíku má lesa hér:
Og í lokin, þá er skemmtileg umræða í gangi um lestarkerfi fyrir Reykjavík og Kópavog hér:
http://photo.blog.is/blog/photo/entry/474061/
Hugsum samgöngumálin í stærra samhengi!
Kjartan
WWW.PHOTO.IS
Fært undir Efnahagur, Ferðalög, Samgöngur, Stjórnmál, Tækni og vísindi, Umhverfi, Umræðan þann 15. mars 2008 af photo | 3 ummæli
Næsta síða »















































