ER STUNDAÐ NÚTÍMA ÞRÆLAHALD Á ÍSLANDI?
Alvarlegt mál fyrir fjölskyldur
ER STUNDAÐ NÚTÍMAÞRÆLAHALD Á ÍSLANDI?
Peningamenn og stjórnvöld hafa löngum vitað að krumla lánaklafans á landann hefur verið ein virkasta svipan sem alþýða manna hefur þurft að beygja sig undir.
Með því móti er hægt að fá landann til að brauðstritast myrkranna á milli í 2-3 vinnum án þess að það sjái nokkur tímann fyrir endann á baslinu.
Hvað skildi trikkið vera - Jú, ein leiðin er að hafa svimandi háa vexti á þeim lánum sem fólk þarf nauðsynlega að taka til að fjárfesta m.a. í eigið húsnæði.
Nú hefur seðlabankinn og Davíð Oddsson áttað sig á því að gengið hefur verið “aðeins of langt” í þessum efnum sem m.a. hefur mátt merkja í óeirðum síðustu daga.
Nýjasta útspilið er því:
SEÐLABANKINN OG DAVÍÐ ODDSSON GEFA FULLT AF PENINGUM TIL NAUÐSTADDRA
Á vefsíðunni Seðlabankans www.sedlabanki.is er hægt að prenta út ávísanir, sem hver um sig gildir sem 1.000.000 króna greiðsla upp í uppsafnaðar skuldir vinnandi stéttar á Íslandi.
Landsmenn geta prentað út eins margar ávísanir og þeir kjósa. “Í tvær vikur gefum við ótakmarkað magn af peningum inn í hagkerfið,” segir Davíð Oddsson Seðlabankastjóri. Vika almúgans hófst í gær og frá og með deginum í dag og til 4. maí gilda ávísanirnar í öllum bönkum landsins nema KAUPÞING Banka.
Hér má svo sjá hina umdeildu ávísun sem á án efa eftir að koma mörgum Íslensku fjölskyldum vel sem bera þunga byrðar þessa dagana

Ávísun frá Seðlabankanum og Davíð Oddsyni sem má prenta út eins mikið af og hver vill (smellið á mynd til að sjá nánari skilmála)
Fyrir þá sem vilja nálgast ávísunina á PDF formi geta náð í hana hér:
áhugasömum er bent á að gúmmítékkinn getur verið þungur í downloadi
Heyrst hefur að Davíð hafi tekið upp á þessu sjálfur því að honum var farið að leiðast seinagangurinn og aðgerðaleysið hjá Geir Haarde forsætisráðherra.
Kjartan
p.s. og svona í lokin, þá vona ég að “ráðamenn” nái að gefa sér tíma til að lesa þessa grein hér
Soraöfl í djúpum skít http://magnusthor.eyjan.is/2008/04/sorafl-djpum-skt.html
Það er vel skiljanlegt að það sé lítill tími hjá þessum 63 “utanríkisráðherrum” til að sinna aðkallandi verkefnum hér heima fyrir. Einnig fer mikill tími í að sinna eiginhagsmunapoti af ýmsum toga, eyða 109 daga sumarfrí, semja eftirlaunafrumvörp sér til handa og fl. Var annars óvart búinn að gleyma þessum nýju pólitísku og vellaunuðu “aðstoðarmönnum” sem eiga víst að koma þessum þingmönnum “okkar” til aðstoðar!
Fært undir Alþjóðamál, Efnahagur, Fjölmiðlar, Heilbrigði, Slúður, Stjórnmál, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda þann 27. apríl 2008 af photo | 1 ummæli
HVALASKOÐUN MEÐ ELDINGU VETNISVÆDD - MYNDIR
Vetnisknúin ljósavél í Eldingu
HVALASKOÐUN MEÐ ELDINGU VETNISVÆDD - MYNDIR
Tek heils hugar undir þau orð Þórunnar Sveinbjarnardóttur „Losun gróðurhúsalofttegunda er meiri á hvert mannsbarn á Íslandi en í flestum öðrum löndum heims. Stór hluti af þeirri losun fellur til við eldsneytisbruna. Við þurfum að finna nýjar lausnir. Þetta verkefni er prýðilegt dæmi um frumkvæði Íslendinga í rannsóknum og nýtingu visthæfs eldsneytis,“
Hér siglir bátur frá Eldingu með ferðamenn í hvalaskoðun

Hvalaskoðunarbáturinn Elding á siglingu með ferðamenn. Whale watching boat Elding with tourist close to Reykjavik (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Hér siglir bátur frá Eldingu með ferðamenn í hvalaskoðun

Hvalaskoðunarbáturinn Elding á siglingu með ferðamenn. Whale watching boat Elding with tourist close to Reykjavik (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Hér eru þau undur sem ferðamenn eru að koma til landsins til að fá að sjá með eigin augum

Hvalur kemur upp til að blása. Whale come up to the surface, Humpback (Megaptera novaengliae) close to Husavik (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Hér er mynd sem sýnir vel hvað hægt er að komast nálægt hvalnum

Það er von að ferðamenn verða spenntir þegar þeir komast svona nálægt hval eins og þessi mynd sýnir. Tourist get exited when they get closer to the whale as this picture show. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Kjartan
Fært undir Alþjóðamál, Efnahagur, Ferðalög, Ljósmyndun, Samgöngur, Tækni og vísindi, Umhverfi, Umræðan þann 24. apríl 2008 af photo | 0 ummæli
SETBERGSLAND, FLÓTTAMANNALEIÐ OG URRIÐAVATN - MYNDIR
Sinueldur kveiktur í Setbergslandi
SETBERGSLAND, FLÓTTAMANNALEIÐ OG URRIÐAVATN - MYNDIR
Það virðast vera stöðugir sinueldar í Setbergslandi í Hafnarfirði þessa dagana.
Ekki langt frá Setbergsland er Flóttamannaleið eða öðru nafni Elliðavatnsvegur sem liggur á milli uppsveita Garðabæjar og Hafnafjarðar rétt fyrir ofan Urriðavatn.
Flóttamannaleið er vestan við Urriðavatn austan við golfvölinn Setbergvöll

Golfklúbburinn Oddur rekur Setbergsvöll sem er í hrauninu á mörkum Garðabæjar og Hafnarfjarðar (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Í forgrunni er golfvölurinn Urriðarvöllur við Tjarnholt, næst kemur Urriðarvatn og því næst golfvölurinn Setbergvöllur sem er fjærst hinu megin við Urriðavatn

Golfklúbbur Oddfellowa og golfvöllurinn Urriðavatnsdölum (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Í forgrunni er golfvölurinn Urriðarvöllur við Tjarnholt, næst kemur Urriðarvatn

Golfklúbbur Oddfellowa og golfvöllurinn Urriðavatnsdölum (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Kjartan
Fært undir Fjölmiðlar, Flug, Ljósmyndun, Slúður, Umhverfi, Umræðan þann 23. apríl 2008 af photo | 0 ummæli
HÉR MÁ SVO SJÁ FOSSINN SEM SVEITASTJÓRNIN Í FLÓA HAFNAR AÐ VERÐI VIRKJAÐUR
Yfir helmingur íbúa Flóahrepps á móti Urriðafossvirkjun
HÉR MÁ SVO SJÁ FOSSINN SEM SVEITASTJÓRNIN Í FLÓA HAFNAR AÐ VERÐI VIRKJAÐUR
Þetta er víst fossinn sem er verið að stressa sig yfir.
Þetta ku vera vatnsmesti foss landsins
Hér er einn að kanna hvort að það sé fiskur í ánni. Umræddur flugmaður kom víst úr laxveiðiferð frá Rússlandi á síðasta ári. Þar veiddi hann ásamt föður sínum um 30 stórlaxa, þar sem meðalþyngdin var rúm 19 pund. Sá stærsti var um 40 pund á þyngd! Ég taldi mig góðan að hafa náð einum sem var 22.5 pund hér um árið. Eftir veiðina góðu, sem fékkst á breiðunni fyrir ofan brúnna í Soginu, þá hætti ég öllum dýrum laxveiðiferðum :(
Hér má sjá flug yfir þá 3 staði þar sem fyrirhugað er að reisa næstu virkjanir í Þjórsá.
Flug við Urriðafoss á góðum degi - Urriðafoss í Þjórsá er vatnsmesti foss landsins og einn sá tignarlegasti. Fossinn er nokkrum km ofan Þjórsárvers og stutt sunnan Þjórsárbrúar
Þessi fallegi foss kemur til með að hverfa (klikkið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Flug frá Árnesi í Gnúpverjahrepp eftir að búið er að taka bensín :)
Ekkert er eins gaman og fljúga eins og fuglinn fljúgandi á góðum degi (klikkið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Séð fram af Búrfelli í átt að Þjórsá - Íslandsmót í svifdrekaflugi 2005
Hér er í gangi Celtic Cup svifdrekamót (klikkið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Kjartan
Fært undir Efnahagur, Ferðalög, Flug, Jarðfræði, Ljósmyndun, Stjórnmál, Tækni og vísindi, Umhverfi, Umræðan þann 22. apríl 2008 af photo | 0 ummæli
HVAR ER KASSAGERÐIN - MYNDIR
Sérsveitin kölluð út vegna tilkynningar um skothvelli
HVAR ER KASSAGERÐIN - MYNDIR
Húsakynni Kassagerðarinnar eru stór enda um 9000 fermetrar og því ekki auðvelt að finna menn sem gætu verið í byssuleik á svæðinu :)
Annars er Kassagerðin er rótgróið fyrirtæki sem hefur starfað samfellt síðan 1932. Fyrirtækið er eini framleiðandi á bylgjupappa á Íslandi og vinnur úr um 8.000 tonnum af hráefni á ári. Til framleiðslunnar þarf stórar og flóknar vélar og mikið af orku. Fyrirtækið fær þunnan pappír á stórum rúllum erlendis frá sem er síðan límdur saman í lögum þar sem millilag er bylgjað og síðan límt saman eins og samloka. Þannig fæst aukin burður eða styrkur sem gerir kassana sem við þekkjum svo vel nothæfa.
Kassagerðin í Reykjavík við Köllunarklettsvegi

Loftmynd af Kassagerðinni horft til austurs (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Kassagerðin í Reykjavík við Köllunarklettsvegi

Loftmynd af Kassagerðinni horft til suðurs (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Í sama húsi er einnig að finna fyrirtækið Formfast sem sérhæfir sig í að smíða ótrúlega flotta hluti út bylgjupappa og nota til þess fullkomin tækjabúnað sem getur skorið út pappann nánast í hvaða form sem er. Magnað er að sjá hvernig þeir hafa smíðað hverdagslega hluti eins og skrifborð algjörlega úr pappa.
Kassagerðin rekur vöruhótel sem er í þessum húsum hér. Hér var áður Umbúðamiðstöðin sem nú hefur verið sameinuð Kassagerðinni

Afgreiðsla og Vöruhótel Kassagerðarinnar við Héðinsgötu 2 (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Það er alveg óhætt að segja að ég þekki aðeins til því að ég hef eitthvað haft með að gera viðgerðir á stýribúnaði í þessum flóknu og sérhæfðu vélum sem þarf til framleiðslunnar.
Kjartan
Fært undir Fjölmiðlar, Flug, Ljósmyndun, Tækni og vísindi, Umhverfi, Umræðan þann 22. apríl 2008 af photo | 0 ummæli
ÞEIR SEM HAFA ÁHUGA Á AÐ KYNNA SÉR MÁLEFNI VESTMANNAEYJAR Í SAMGÖNGUMÁLUM KYNNI SÉR ÞETTA HÉR
Segir samgöngur til Vestmannaeyja gjörbreytast 2010
ÞEIR SEM HAFA ÁHUGA Á AÐ KYNNA SÉR MÁLEFNI VESTMANNAEYJAR Í SAMGÖNGUMÁLUM KYNNI SÉR ÞETTA HÉR
Vísa á fyrri skrif um málið fyrir þá sem hafa áhuga á að kynna sér það nánar:
Hér má sjá kort og nánari hugmyndir:
JARÐGÖNG FYRIR VESTMANNAEYJAR ER LAUSNIN Á VANDA BAKKAHAFNAR :)
http://photo.blog.is/blog/photo/entry/489680/
Höfnin í Þorlákshöfn séð úr lofti
http://photo.blog.is/blog/photo/entry/283931/
JARÐGÖNG, LEST OG HRAÐSKREIÐ FERJA FYRIR VESTMANNAEYJAR ER LAUSNIN
http://blogg.visir.is/photo/2008/03/31/jarðgong-lest-og-hraðskreið-ferja-fyrir-vestmannaeyjar-er-lausnin/
Kjartan
WWW.PHOTO.IS
Fært undir Alþjóðamál, Efnahagur, Ferðalög, Fjölmiðlar, Jarðfræði, Ljósmyndun, Samgöngur, Stjórnmál, Tækni og vísindi, Umhverfi, Umræðan þann 21. apríl 2008 af photo | 0 ummæli
Á AÐ BANNA VEIÐAR Á LUNDA? - MYNDIR
Á AÐ BANNA VEIÐAR Á LUNDA?
Það er ekki laust við að maður hafi orði fyrir smá áfalli við að sjá ekki neinn lunda út í Dyrhólaey þegar ég var þar á ferð með ferðamenn á síðasta ári.
Lundi er oft kallaður „prófastur“ eða „prestur“ á íslensku. Lundinn er af svartfuglsætt sem lifir við sjó og kafa sér til matar. Þeir verpa í djúpum holum sem þeir grafa. Lundinn er staðfugl en heldur sig úti á rúmsjó yfir veturinn.
En hér kemur smá myndasería af lunda sem teknar hafa verið víða um land.
Lundinn er sætur fugl eins og sjá má á þessari mynd

Mynd tekin í heyvagnaferð út í Ingólfshöfða árið 2005 (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Ef lundinn hefur ekki það æti sem hann þarf sem er að stórum hluta sandsíli eins og sjá má á þessari mynd, þá fer hann eitthvað annað

Hér er lundi með gogginn fullann af sandsíli, mynd tekin úti í Ingólfshöfða (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Hér er lundamamma eða lundapabbi að færa ungunum sínum mat

Hér er mynd af lundum úti í Drangey (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Hér er vanur lundaveiðimaður að sýna ferðamönnum hvernig á að bera sig að við að háva lundann

Hér er beðið eftir að lundinn fljúgi fram hjá klettasyllunni til að verða hávaður (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Lundi í Dyrhólaey 2006

Greinilegt að lundanum hefur eitthvað fækkað á svæðinu í kringum Dyrhólaey, hvort það er út af veðurfari eða einhverjum öðrum orsökum. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Hér sýnir veiðikona ferðamönnum hvernig á að bera sig að með hávinn til að fanga lundann í netið

Hér er sýnd staðan sem veiðimaðurinn notar þegar verið er að háfa lundann (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Frekar var lítið um lunda í Papey 2006

Einn af þeim fáu sem var á staðnum þegar okkur bar að garði var fljótur að forða sér þegar við nálguðumst (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Annars er lundi einn sá besti matur sem að ég fæ - því miður :|
Kjartan
WWW.PHOTO.IS
Fært undir Ferðalög, Fjölmiðlar, Ljósmyndun, Matur og drykkur, Stjórnmál, Umhverfi, Umræðan þann 21. apríl 2008 af photo | 0 ummæli
GRÓTTA, GRÓTTUVITI - MYNDIR
Fjölskyldudagur í Gróttu í dag
GRÓTTA, GRÓTTUVITI - MYNDIR
Það er oft fallegt úti á Gróttu þar sem Gróttuviti stendur

Á fjöru er auðvelt að labba út í Gróttuvita (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Grótta á Seltjarnarnesi

Loftmynd af vitanum á Gróttu (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Vitinn á Gróttu yrst á Seltjarnarnesi

Gróttuviti er á Gróttu sem er yzti hluti Seltjarnarness (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Hér má sjá golfvölinn úti á Gróttu á Snæfellsnesi

Golfvöllur Golfklúbbsins Ness (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Stefnuviti fyrir flug sem er að koma inn til lendingar á flugbraut 31/13 á Reykjavíkurflugvelli

Stefnuviti fyrir flug á Reykjavíkurflugvöll (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Grótta er yzti hluti Seltjarnarness. Hún er í rauninni eyja, sem tengist landi með skerjum sem standast upp úr á fjöru.
Hér má sjá vel lukkaða ljósmynd af Seltjarnarnesi sem tekin er að vori til árið 2004.
Sjálfsagt hafa margir gaman að því að renna yfir stækkaða útgáfu af myndinni og sjá hvað hefur breyst síðan þá.
Loftmynd af bæjarfélaginu á Seltjarnarnesi. Ef smellt er á mynd, þá má sjá stækkaða panorama-loftmynd af svæðinu

Seltjarnanes (smellið á mynd til að sjá myndina stærri)
Kjartan
WWW.PHOTO.IS
Fært undir Ferðalög, Flug, Jarðfræði, Ljósmyndun, Umhverfi, Vinir og fjölskylda þann 20. apríl 2008 af photo | 0 ummæli
ÍSBJÖRN OG HUNDUR Í FAÐMLÖGUM - MYNDIR
Gekk 130 kílómetra heim til sín
ÓTRÚLEGAR ÍSBJARNAMYNDIR
Hér rakst ég á skemmtilega myndaseríu á Norskum netmiðli.
En myndirnar eru frá ljósmyndara í Churchill, Kanada og heitir Norbert Rosings

Ísbjörn að leik við hund. Ekki annað að sjá en að það fari vel á með þessum 2 óskyldu dýrategundum (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Kjartan
WWW.PHOTO.IS
Fært undir Ljósmyndun, Umhverfi þann 19. apríl 2008 af photo | 0 ummæli
FERÐ LEIÐSÖGUMANNA TIL GRÆNLANDS 2005 - HLUTI-1
FERÐ LEIÐSÖGUMANNA TIL GRÆNLANDS 2005 - HLUTI-1
Ég átti þess kost á að komast í ferð með leiðsögumönnum til Grænlands snemma árs 2005. Hér má svo sjá fyrsta hlutann úr þeirri ferð.
Ferðin heppnaðist í alla staði vel. Þarna fékk hópurinn að kynnast af eigin raun frumstæðum aðstæðum sem þetta fólk býr við. Ekki laust við að sumir yrðu fyrir smá áfalli.
Kulusuk er á eyju og hefur þorpið byggst upp ekki langt frá flugvellinum. Samgöngur eru erfiðar og þarf að ganga í ca. 40 mín til þorpsins. Þar búa nú rétt rúmlega 300 manns. Hundar hafa verið fleiri en íbúar þorpsins! En þegar mest var, þá voru þeir um 800 talsins.
Það var árið 2005 sem hópur leiðsögumanna hélt í ferð snemma vors til Kulusuk í Grænlandi

Hér er samankomin glaðbeittur hópur leiðsögumanna á göngu á leið frá flugvellinum til þorpsins Kulusuk (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Það var margt sem varð á vegi þessa hóps sem kom vægast sagt undarlega fyrir sjónir eins og þessi kirkjugarður

Hér má sjá kirkjugarðinn í Kulusuk og takið eftir hversu litfögur blómin eru á leiðunum. Í ljós kom að þetta voru gerviblóm enda ekki nema von því veður eru válind og jarðvegur fyrir plöntur af skornum skammti (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Á leið okkar þurftum við að ganga í gegnum þessi stóru snjógöng

Hér mætum við ungum grænlendingi sem er að hlaupa út á flugvöll sem er í 30 mín. göngufæri frá bænum Kulusuk (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Hundar eru margir í Kulusuk og hefur lengi vel eina farartækið sem íbúar svæðisins höfðu. Á tímabili voru í Kulusu hundar 2-3 sinnum fleiri en fólkið sem bjó í bænum og þegar mest lét um 800

Hér passar grænlenskur hundur vel upp á matinn sinn sem er illa lyktandi selkjöt. Hundurinn er í keðju og ekki er ætlast til að ferðamenn séu mikið að klappa þessum hundum, enda ekki nein gæludýr hér á ferð. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Hér má sjá ískáp náttúrunnar, Tilvalið er að geyma matinn áfram í sjónum

Hér má sjá sel sem geymdur er í sjónum þangað til hann verður verkaður í næstu máltíð. Ein fjölskylda gæti þurft 30-40 seli til að fæða hundahópinn (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Íslendingar eru að vonum ánægðir með harðfiskinn sinn, en hér má sjá þurrkaða loðnu hengda út til þerris

Grænlendingar matreiða loðnu á ýmsa vegu og mættu íslendingar gjarna rifja upp þá gömlu matarmenningu sína. Enda er loðna mikið lostæti (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Hér aka feðgar heim aflanum í hjólbörum. Aflinn er loðna og fékk íslenski leiðsöguhópurinn einnig að smakka þessu góðgæti sem bragðaðist vel þegar búið var að heilsteikja á pönnu

Hér sjá hvorki Eimskip né Samskip um flutning á afla dagsins! (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Meðhjálparinn er búinn að taka að sér messuhaldið á staðnum. Presturinn farinn og organistinn komin á aldur og ekki neinir til að taka við þessum mikilvægu embættum. Tónlistakennslan í lamasessi og sjá má hvernig þorpsbúum fækkar smátt og smátt og húsum fjölgar sem leggjast í eyði. Unga fólkið flytur til stóru byggðakjarnanna eða til Danmerkur.
Komið var við í kirkjunni í Kulusuk og var þar meðhjálparinn einn eftir til að sinna kirkjulegum skyldum. Presturinn horfinn og aldraður organisti og engin til að taka við því hlutverki heldur

Fólksfækkun er mikil á svæðinu og því erfitt að halda uppi lágmarks þjónustu sem samfélagið þarfnast (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Það finnast líka sannir víkingar á Grænlandi, annars er merkilegt hvað það voru lítil tengsl á milli Íslendinga og Grænlendinga hér á árum áður og ekki mikið um blóðblöndun á milli þessa tveggja samfélaga

Hér eru grænlensk börn í fullum víkingaherklæðum (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Vestræn menning mætti þakka fyrir margt sem hún hefur í dag. Hér þarf að bera inn allt vatn til drykkjar, matar og þvottar, Í forgrunni má svo sjá klósettið sem er fata sem er sótt af aðila sem ekur um þorpið og safnar þeim saman til losunar þegar þær eru orðnar fullar af …

Hér má sjá leiðsögumenn bera inn vatn til matargerðar. Ekkert rennandi vatn er í húsinu. Fara þarf með þvott á annan stað í þorpinu. Sama gildir með þá sem vilja komast í sturtu. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Á 5 stjörnu hótelinu var sofið á gólfinu, hitað upp með olíuofni, ná þurfti í allt vatni í fötur í þar til gerða vatnspósta, klósettið var fata og engin sturta í húsinu. Hægt var að komast í sameiginlega sturtu og þvottaaðstöðu á öðrum stað í bænum.
Á göngu um Grænland getur stundum verið vissara að vera vel vopnum búinn ef vera skyldi að svangur grænlenskur ísbjörn myndi skyndilega birtast

Hér eru leiðsögumenn frá Íslandi að búast í langa gönguferð frá Kulusuk í Grænlandi (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Þetta er algeng sjón á Grænlandi, allir firðir og flóar fullir af ís

Hér er leiðsöguhópurinn búinn að klifra upp á stóran ísjaka í fjörunni (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Haukur Hauksson “ekki” fréttamaður tekur hér hraustlega til matar síns og voru menn sammála um að það hefði stórséð á grænlenskum jöklum eftir veru hans þar

Hér ræðst Haukur fréttamaður á ísjaka og skömmu seinna var jakinn horfinn (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Víða mátti sjá yfirgefin hús og greinileg merki þess að íbúar svæðisins fór óðum fækkandi

Mikið var af tómum húsum í Kulusuk og mörg merki þess að þarna væri hnignandi byggð á ferð (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Leiðsöguhópurinn var svo heppin að honum var boðið í heimahús á staðnum, en þar bjó grænlensk kona með dönskum eiginmanni. Þau hjónin brugðu á leik fyrir okkur og hér er eiginkonan í dönskum þjóðbúning

Hér er Haukur að mynda skemmtilega uppákomu (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Loðna steikt á pönnu var orðin vinsæl hjá hópnum

Hér er Haukur að verka leifarnar af loðnunni frá deginum áður. Sannkallaður herramans matur (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Það er annars fróðlegt að sjá þessa frétt sem lítið hefur farið fyrir að Grænlendingar eru líklega að verða sjálfstæð þjóð áður en langt um líður.
Fært undir Alþjóðamál, Ferðalög, Fjölmiðlar, Ljósmyndun, Matur og drykkur, Menning og listir, Samgöngur, Stjórnmál, Trúarbrögð, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda þann 18. apríl 2008 af photo | 0 ummæli
MÁ BJÓÐA ÞÉR EINA MEÐ ÖLLU?
Það er einhver undarleg stemmning sem ríkir á þessum fjölsóttasta veitingarstað landsins. Maður hreinlega sogast að honum ósjálfrátt og áður en maður veit af, þá er maður búinn að kaupa sér eina með öllu :)

Bæjarins beztu - Ein með öllu og kók (klikkið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Staðurinn er svo lítill að hann sést ekki einu sinni á þessari mynd og það vinnur aðeins einn starfsmaður á þessum vinnustað :)

Loftmynd af Bæjarins beztu (klikkið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Þarna kemur ótrúlegur fjöldi fólks reglulega úr öllum stigum þjóðfélagsins til að fá sér í svanginn. Ef vel er skoðað, þá má sjá fræga mynd teiknaða af Sigmund þar sem Bill Clinton er að fá sér eina „Clinton“ en það ku vera pylsa í brauði aðeins með sinnepi
Kjartan
WWW.PHOTO.IS
Fært undir Alþjóðamál, Efnahagur, Ferðalög, Fjölmiðlar, Heilbrigði, Ljósmyndun, Matur og drykkur, Menning og listir, Slúður, Umhverfi, Umræðan þann 15. apríl 2008 af photo | 0 ummæli
Næsta síða »




