FLUG Í NORÐURÁRDALNUM Í ÁTT AÐ HOLTAVÖRÐUHEIÐI - MYNDIR
Tvennt slapp ómeitt í nauðlendingu á Holtavörðuheiði
FLUG Í NORÐURÁRDALNUM Í ÁTT AÐ HOLTAVÖRÐUHEIÐI - MYNDIR
Hér er horft upp Norðurárdalinn og má vel sjá hvernig skýin liggja ofan á heiðinni og því illfært fyrir sjónflug. Þarna má sjá tvær brýr og liggur sú efri yfir Norðurá í Norðurárdal. Þar fyrir ofan má sjá bæjarstæðið þar sem Sveinatunga var.

Sveinatunga er fyrsta steinsteypta íbúðarhúsið á Íslandi, reist 1895. Sement og annað byggingarefni var allt flutt frá Borgarnesi um 50 km leið á hestum. Steypan var handhrærð og síðan hífð upp í fötum með handafli. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Holtavörðuheiðin hefur reynst mörgum flugmanninum erfið, enda oft þoka á heiðinni. Heiðin liggur líka á milli tveggja veðrakerfa og getur því oft verið sitthvort veðrið við heiðina _ Hér er flogið aðeins lengra upp Norðurárdalinn. Greinilegt er að þessi leið er þrællokuð og verður ekki farin á flugvél

(smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Kjartan
Fært undir Ferðalög, Fjölmiðlar, Flug, Ljósmyndun, Samgöngur, Tækni og vísindi, Umhverfi, Umræðan þann 30. júní 2008 af photo | 2 ummæli
HELLA, GADDSTAÐAFLATIR, HESTAMANNAMÓT - MYNDIR
Landsmót hestamanna sett á Gaddstaðaflötum
HELLA, GADDSTAÐAFLATIR, HESTAMANNAMÓT - MYNDIR
Hér má sjá einn glæsilegasta reiðvöll landsins á Hellu

Horft til suðurs yfir reiðvellina á Gaddstaðaflötum á Hellu. Pictures of Gaddstadaflotum at Hella village in south of Iceland. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Hér er svo loftmynd af hesthúsahverfinu á Hellu

Hverfið er staðsett norðan við bæinn. Every town and villages in Iceland have there own riding club. Pictures of Hella’s riding clubs houses. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Ein þekktasta veiðiá landsins Ytri-Rangá rennur í gegnum Hellu. Rétt fyrir ofan bæinn má sjá þennan fallega foss sem heitir Árbæjarfoss

Tveir fossar eru í ánni, Árbæjarfoss og Ægissíðufoss. Nokkur veiði hefur verið í ánni frá fornu fari, Ytri Rangá er í dag einhver besta laxveiðiá landsins með yfir 5000 laxa veidda á síðasta ári. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Svo má ekki gleyma flottum flugvelli sem er við Hellu en þar halda svifflugmenn einnig landsmót eins og hestamenn enda aðstaða til svifflugs þar mjög góð.

Fisflugmenn og einkaflugmenn njóta líka góðs af flugvellinum á Hellu sem er löng grasflugbraut. Airport for gliding at Hella. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
En annars er fín ferðaþjónusta rétt við hliðina á reiðvellinum á Gaddstaðarflötum

Árhús er smáhúsagisting á eystri bakka Ytri Rangár við Hellu. Árhús is accommodation in cottages located on the east bank on the Ytri Rangá-river in the small village of Hella. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Ferðaþjónustan Árhús rétt við hliðina á reiðvellinum á Gaddstaðarflötum

Árhús á eystri bakka Ytri Rangár við Hellu. Árhús is accommodation in cottages located on the east bank on the Ytri Rangá-river in the small village of Hella. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Kjartan
Fært undir Alþjóðamál, Ferðalög, Fjölmiðlar, Flug, Ljósmyndun, Menning og listir, Samgöngur, Slúður, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda, Íþróttir þann 30. júní 2008 af photo | 2 ummæli
GENGIÐ Á ESJUNA, ÞVERFELLSHORN - MYNDIR
Esjudagurinn haldinn hátíðlegur í dag
GENGIÐ Á ESJUNA, ÞVERFELLSHORN - MYNDIR
Fyrir þá sem hafa hug á að ganga á Esjuna. Þá má sjá vinsælustu gönguleiðina hér. Neðst liggur hún upp í gegnum lúpínubreiðurnar, sem breiða úr sér og setja fallegan lit á umhverfið fyrri hluta sumars. Neðst til vinstri á myndinni er bílastæðin við Mógilsá og efst til hægri er svo Þverfellshorn sem flestir reyna að ganga á.

Gönguleið frá bílastæðinu við Mógilsá getur verið hringleið eða upp og niður sömu leið. Vegalengdin jafngildir um 6 km og göngutíminn 1 til 3 klst. eftir því hversu langt er farið upp og hversu hratt er farið. Hlíðin er aflíðandi neðst með hömrum efst og hækkun upp að stóra stein er 760 m en mesta hæð 780 m. Hallinn fellur í flokk C sem er nokkuð erfið gönguleið. Esjan Mountain (914 meters above sea level) is a popular place for Icelanders to go hiking. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Við bílastæðin er gott að gera sig kláran fyrir gönguna. Nauðsynlegt er að taka með sér góðan búnað, hlífðarföt, stafi, góða gönguskó og jafnvel bakpoka og nesti og eitthvað að drekka á meðan á göngunni stendur.

Staðreyndin er sú að fólk fer oft á Esjuna vanbúið til gönguferða og gerir sér ekki grein fyrir mörgum þeim hættum sem þar eru. Vetrarferðir kalla að auki á mannbrodda, ljós m.m. Gangan upp ætti ekki að taka lengri tíma en tvær klukkustundir. Þetta er án efa vinsælasta gönguleið á öllu Íslandi og er geysilega skemmtileg. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Hér er lagt á Esjuna og er stefnan tekin upp að Steininum í 597 metra hæð

Eins og sjá má, þá er búið að leggja fína göngustíga upp fjallið. Framundan grillir í Kistufell og Gunnlaugsskarð. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Ferðahraðinn og aldur þeirra sem leggja á Esjuna er misjafn. Á meðan sumir dóla sér upp í rólegheitunum, þá reyna sumir að hlaupa upp í einum rykk eins og ferðafélagi minn ákvað að gera. Á þessum stað er hægt að velja um svo kallaða Skógarleið og er þá gengið í gegnum skóginn á leið upp Esjuna

Oft er miðað við að gengið sé upp að stóra stein á um 1 kl.st. og góðir hlauparar geta náð upp á 30-45 mínútum. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Hér er komið að göngubrú áður en gengið er upp Þvergil sem er skammt frá Búðarhömrum. Þar fyrir ofan er svo Smágil

Hér er brattinn að aukast töluvert (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Víða er búið að laga gönguleiðina og eins og oft vill vera með mannanna verk, þá fer náttúran sínu fram

Mikið af svona vinnu er framkvæmd víða um land af áhugamannahópum. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Hér greinist leiðin í tvennt og völdum við félagarnir að fara brattari leiðina fyrst og taka svo hina leiðina til baka. Eins og sjá má, þá er slóðinn sem gengið er eftir í misjöfnu ástandi. Í Einarsmýri er jarðvegurinn blautur sem er að koma undan snjónum og getur verið óskemmtilegt svæði til yfirferðar.

Gamla leiðin, liggur upp Langahrygg sem einnig er nefndur Gljúfradalsháls. Gengið er í bröttum skriðum uns komið er í mýrina. Handan hennar tekur svo bratti Þverfellshorns við. Leiðin hentar þeim sem vilja fara hratt yfir. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
STEINN, er sá viðkomustaður sem flestir stefna á og þeir sem treysta sér lengra taka því næst stefnuna á toppinn eða sjálft Þverfellshornið

Upp að steini er um 6,6 km upp í 597 m hæð með hækkun um 587 m. Just outside the Reykjavík capital of Iceland is Mt. Esjan. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Töluverður bratti er frá Steininum upp að klettabeltinu eins og sjá má á þessari mynd, aðallega er um tvær leiðir úr að velja, sú fyrri sem að við fórum var nánast beint upp klettabeltið þar sem fylgt vegvísum, tröppum og keðjum

Seinni leiðin er aðeins vestar en þar sem var mikill snjór á þeirri leið og sér í lagi í kverkinni og við ekki með neinn búnað til að ganga á snjónum. Þessi kafli leiðarinnar getur verið pínu erfiður fyrir óvana og lofthrædda. Að vetrarlagi skal þó fara að öllu með gát. Árið 1979 féll á þessum slóðum snjóflóð og létust 2 menn. Esja is not a single mountain, but a volcanic mountain range, made from basalt and tuff-stone. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Hér er svo takmarkinu náð, Þverfellshornið sjálft. Vinsælasta leiðin á Esju frá Mógilsá. Hún er auðrötuð enda mörkuð af sérstökum göngustíg á fjallinu. Efst eru nokkur klettaþrep sem auðvelt er að klífa en rétt er að fara varlega vegna hættu á grjóthruni frá fólki sem kann að vera fyrir ofan.

Lofthræddum er bent á að ganga aðeins vestan við hornið og finna sér leið þar upp. Esjan is situated in about 20 min. drive from Reykjavík and looks over the fjord and the city. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Á útsýnisskífunni er gott að átta sig á örnefnum, enda útsýnið stórkostlegt ofan af Þverfellshorni yfir Stórreykjavíkursvæðið

Hér horfir Ingólfur Bruun eftir útsýnisskífunni. Í vörðunni, sem er í 750 m hæð má finna gestabók sem komið hefur verið fyrir í stálhólki. Rétt er að skrá nafn sitt í bókina, afrekinu til sönnunar. From the top there is a great view over Reykjavik city and in good weather you can see pretty far. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Niðurgangan getur oft verið sumum þrautin þyngri, en ef svo er, þá er bara um að gera að fara rólega yfir og spjalla við þá sem eru á leiðinni

Um að gera að spjalla í símann við sína nánustu þegar veðrið er svona gott. Í raun eru nokkrar leiðir úr að velja og eru þær mis vel merktar. Esjan is a bit steep, especially the last part. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Þetta er rétta leiðin kallar Ingólfur til eins göngumanns sem er að leggja á klettabeltið

Þverfellshornið er ein vinsælasta gönguleiðin á Esjuna og miða við þann fjölda sem leggur leið sína á fjallið, er með ólíkindum að ekki hefur orðið meira um slys á fjallinu. Iceland Equals Adventure. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Hér er svo gengið niður hina leiðina frá Steininum til austurs. Ekki er óalgengt að hundruð manna séu á ferð í Esjuhlíðum þegar vel viðrar. Fjölmargir ganga upp nokkrum sinnum í viku sér til heilsubótar.

Sumarið 1994 var gerð ný gönguleið upp að Þverfellshorni. Hún klofnar frá gömlu leiðinni og stefnir yfir Mógilsá og þar upp austan árinnar. Þar er ekki eins bratt og á gömlu leiðinni og því aðeins léttari. Göngustígarnir koma aftur saman fyrir neðan hamrana í Þverfellshorni. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Rétt eftir þessa brú sameinast svo leiðirnar aftur

Hægt er að fá göngukort af Esjunni og Leggjabrjót hjá Ferðafélagi Íslands, Mörkinni 6. Vegna mikillar straums göngufólks upp Þverfellshorn hafa troðist margar slóðir hingað og þangað og ber því að virða þær merkingar sem eru á svæðinu. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Sagt er að fjallið sé ekki sigrað fyrr enn hinum eina sanna tindi er náð.
Um klukkustundar gangur frá vörðunni að Hábungu Esju sem rís hæst 914 m
Kjartan
Fært undir Ferðalög, Jarðfræði, Ljósmyndun, Samgöngur, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda, Íþróttir þann 29. júní 2008 af photo | 0 ummæli
LOFTMYNDIR - FLÓINN, SKEIÐ, TUNGUM, ÞYKKVIBÆR M.M.
Þurrkar á Suðurlandi raktir til Suðurlandsskjálftans
MYNDIR ÚR FLÓANUM, SKEIÐUM OG TUNGUM
Í jarðskjálftanum árið 2000, þá myndaðist þessi sandsvelgur hér ekki langt frá Þjórsárbökkum í Villingaholtshreppi ekki langt frá bænum Syðri-Gróf

Líklegt er að stór sprunga hafi opnast neðanjarðar sem veldur því að þykkt sandlag sem mikið er af á þessum stað, nær að leka ofan í sprunguna og myndast þá líklega þessi svelgur eða djúp hola í yfirborðinu. Hole in the ground after earthquake from year 2000 close to Thjorsa river. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Ef svo þessi mynd sem er tekin núna fyrir nokkrum dögum þann 25. júní 2008 er skoðuð nánar, þá má sjá að holan sem var áður full af vatni er orðin nánast tóm

Skýringin er líklega sú að grunnvatnið á svæðinu hefur lækkað eins og fram kemur í fréttinni. Hole in the ground after earthquake from year 2000 close to Thjorsa river. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
En í jarðskjálftunum á Suðurlandinu sem átti upptök í Hestfjalli árið 2000 dagana 17 til 21 júní, að þá mynduðust stórar sprungur á yfirborðinu víða eins og þessi hér sem er rétt vestan megin við Dælarétt. Jarðskjálftinn var 6,5 richterstig að styrkleika.

Dælarétt er ævaforn fjárrétt sunnan við Suðurlandsveg, nokkru fyrir vestan Þjórsárbrú. Er vel þess virði að aka malarslóðann þangað niður eftir til að berja augum þetta mikla mannvirki og fyrrum helstu skilarétt svæðisins. Þar má einnig sjá mikil ummerki eftir jarðskjálftann sem reið yfir árið 1896. Daelarett earthquake fissures from year 2000 close to Thjorsa river. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Annar góður mælikvarði á stöðu grunnvatnsins er líklega hæðin á vatninu í gígnum Kerinu í Grímsnesi sem fjallað er um í blogginu hér á undan.
En ég bjó á bænum Kílhrauni á Skeiðum á sínum tíma og í kringum þann bæ eru þrjú flóð eða vötn. Í flugi þar yfir um daginn, þá tók ég eftir því að tvö af þremur flóðunum voru alveg þornuð upp og horfin með öllu og mjög lítið eftir af því þriðja. En það er eitthvað sem ég hef aldrei séð áður.

Hér má sjá tjörn, flóð eða kíl (sem bærinn Kílhraun dregur líklega nafnið sitt eftir) sem er sunnan við bæinn Kílhraun á Skeiðum. Hinar tvær tjarnirnar eru svo norðan megin við bæinn. Pictures of the farm Kilhraun at Skeidum, Arnessuysla. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Ef smellt er á síðustu myndirnar, þá má sjá mikið af góðum myndum af sveitabæjum í uppsveitum Árnessýslu. Hér er flogið yfir Brautarholt á Skeiðum en þar er skóli og sundlaug.

Í kringum Brautarholt á Skeiðum hefur verið að byggjast upp lítill byggðarkjarni, enda er öll aðstaða þar til fyrirmyndar og nóg af heitu vatni og rekin öflug ferðaþjónusta á staðnum þar sem stutt er í ýmsa þjónustu. Eldfjallið Hekla skartar sínu fegursta í kvöldsólinni í baksýn. Pictures of Brautarholt, Skeidum, Arnessuysla and mountain Hekla Vulcan. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Flóaáveitan (við Þingborg) var grafin árin 1918 - 1927 og var talin mesta mannvirki norðan Alpafjalla er hún var gerð

Flóaáveitan var byggð til að veita jökulvatni úr Hvítá á Flóann sem er mýrarsvæði á milli Hvítá og Þjórsá. Framkvæmdin átti að auka uppskeruna til muna en mikið af jarðefnum og áburði leynast í jökulvatni og eru áhrifin vel þekkt þar sem gjöful fiskimið eru oft við ósa jökuláa (góð spurning hvaða áhrif virkjanir hafa svo á fiskimiðin í kringum landið!). (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Kjartan
Fært undir Ferðalög, Flug, Jarðfræði, Ljósmyndun, Tækni og vísindi, Umhverfi, Umræðan þann 29. júní 2008 af photo | 0 ummæli
Umboðsmaður Skattgreiðanda - Því fyrr því betra!
Auðveldara að leita réttar síns sem neytandi en skattgreiðandi
Davíð Oddsson kom með tillögu á sínum tíma um að stofna embætti Umboðsmanns Skattgreiðanda. Það er gott að vita til þess að sú umræða sé komin upp á yfirborðið aftur.
Nú er bara vonandi að það verði loksins að veruleika.
Fært undir Alþjóðamál, Efnahagur, Fjölmiðlar, Heilbrigði, Stjórnmál, Umræðan þann 28. júní 2008 af photo | 0 ummæli
HOLTAVIRKJUN, HVAMMSVIRKJUN, URRIÐAFOSSVIRKJUN - MYNDIR
Baráttan gegn Þjórsárvirkunum ekki töpuð
HOLTAVIRKJUN, HVAMMSVIRKJUN, URRIÐAFOSSVIRKJUN - MYNDIR
Hér má sjá víðmynd af svæðinu þar sem Hvammsvirkjun kemur til með að rísa

Hagalón, verður myndað með stíflu í Þjórsá ofan við Minnanúpshólma og stíflugörðum á austurbakka árinnar. Pictures of Hvammsvirkjun, one of the newest hydro Power Plant in lower part of the River Thjórsá. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Hér er svo önnur mynd tekin aðeins nær þar sem Hvammsvirkjun kemur til með að rísa

Hvammsvirkjunar verður u.þ.b. 80 MW og orkugeta hennar verður um 630 GWst/ári. Pictures of Hvammsvirkjun, one of the newest hydro Power Plant in lower part of the River Thjórsá with power around 80MW. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Stöðvarhús verður staðsett nærri norðurenda Skarðsfjalls í Landsveit í landi Hvamms og verður það að mestu leyti neðanjarðar.

Pictures of Hvammsvirkjun, one of the newest hydro Power Plant in lower part of the River Thjórsá. Location of the power station in Skardsfjall. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Hér má svo sjá Minnanúpshólma sem er vel gróðri vaxin, enda fara hvorki menn né skeppnur mikið út í þessa eyju

Eyjan Minnanúpshólmi í Þjórsá liggur á milli Skarðsfjalls og Núpsfjalls. Pictures of Hvammsvirkjun, one of the newest hydro Power Plant in lower part of the River Thjórsá. A small island in Thjorsa. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Hér má sjá hvar efri mörk á Holtavirkjun kemur til með að vera út frá Árnesi við Búðafoss

Búðafoss er einn af fossunum í Þjórsár sem fer undir lónstæði Holtavirkjunar í Gnúpverjahrepp. Þjórsá er lengsta á Íslands, alls 230 km löng. Hún á upptök sín í Hofsjökli og rennur í suður til sjávar vestan Þykkvabæjar. Pictures of Holtsvirkjun, one of the newest hydro Power Plant in lower part of the River Thjórsá. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Her er flogið nær fossinum Búðafoss þar sem efri mörk á Holtavirkjun liggja

Árneslón, verður myndað með stíflu í Árneskvísl við bæinn Akbraut í Holtum og stíflugörðum í Árnesi. Pictures of Holtsvirkjun, one of the newest hydro Power Plant in lower part of the River Thjórsá. Waterfall Budafoss. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Stíflan fyrir Holtsvirkjun mun rísa út frá þessum fossi hér sem heitir Hestafoss í Árneskvísl

Holtavirkjun verður u.þ.b. 50 MW að afli og orkugeta hennar verður allt að 390 GWst/ári. Pictures of Holtsvirkjun, one of the newest hydro Power Plant in lower part of the River Thjórsá with power around 50MW. Waterfall Hestfoss. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Hér má sjá víðmynd af svæðinu þar sem Urriðafossvirkjun kemur til með að rísa

Inntakslón fyrir Urriðafossvirkjun, Heiðarlón, verður myndað með stíflu í Þjórsá við Heiðartanga og stíflugörðum upp eftir vesturbakka árinnar. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Þjótand er jörð sem fór í eyði fyrir nokkrum árum, þar til hliðar má sjá gömlu Þjórsárbrúnna. Einnig má sjá Heiðartanga, Lambhaga, Þjórsártún og Krók á myndunum

Inntaksmannvirki verða í Heiðartanga og stöðvarhús neðanjarðar nærri Þjórsártúni. Frá stöðvarhúsinu munu liggja frárennslisgöng sem opnast út í Þjórsá nokkru neðan við Urriðafoss. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Hvaða foss er þetta sem liggur út frá Heiðartanga?

Virkjun við Urriðafoss verður u.þ.b. 125 MW að afli og orkugeta virkjunarinnar verður um 930 GWst/ári. Pictures of Urriðafossvirkjun, one of the newest hydro Power Plant in lower part of the River Thjórsá with power around 125MW. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Og svo má sjá í lokin myndir af Urriðafossi sem mestu deilurnar hafa staðið um

Urriðafoss í Þjórsá. Waterfall Urriðafoss. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Kjartan
Fært undir Alþjóðamál, Efnahagur, Flug, Jarðfræði, Ljósmyndun, Stjórnmál, Tækni og vísindi, Umhverfi, Umræðan þann 25. júní 2008 af photo | 0 ummæli
HOLTAVIRKJUN MYNDIR
Virkjanir í Þjórsá komnar á beinu brautina
HOLTAVIRKJUN MYNDIR
Hér má sjá hvar efri mörk á Holtavirkjun kemur til með að vera

Hér er einn af fossum Þjórsár sem fer undir lónstæði Holtavirkjunar í Gnúpverjahrepp. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Kjartan
Fært undir Efnahagur, Ferðalög, Flug, Jarðfræði, Ljósmyndun, Umhverfi, Umræðan þann 24. júní 2008 af photo | 0 ummæli
ÍSBJÖRN SÆKIR Í HEITU LAUGINA Á HVERAVÖLLUM - EINSTAKAR MYNDIR
Umhverfisstofnun í viðbragðsstöðu ef bjarndýr finnst
ÍSBJÖRN SÆKIR Í HEITU LAUGINA Á HVERAVÖLLUM - EINSTAKAR MYNDIR
Það kemur ekki á óvart að bangsi skuli sækja í íslenskar náttúruperlur eins og aðrir erlendir ferðamenn

Hvað er betra en að baða sig í heitri laug og láta þreytuna líða úr líkamanum eftir langt og erfitt sund frá norðurpólnum. Polar bear taking bath in Icelandic natural hotspring at Hveravellir. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Á myndinni má sjá danska ferðamenn njóta sín í heita vatninu ásamt bangsa.
Hér tekur ísbjörninn stökkið fyrir ljósmyndarann út í laugina á Hveravöllum

Ekki er seinna vænna en að fara að venja sig strax við “Global warming” enda allur ís að hverfa á norðurpólnum samkvæmt nýjustu fréttum. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Víða má sjá fallegar jarðmyndanir á háhitasvæðinu við Hveravelli inni á Kili

Hér hefur kísilinn safnast upp og myndað fallega strýtu þar sem gufustrókurinn stendur upp úr. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Litadýrðin er oft mögnuð þar sem heita vatnið hefur leikið um jarðveginn í þúsundi ára

Spúandi hver á Hveravöllum (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Heitur lækur rennur frá hverasvæðinu á Hveravöllum

Hér má sjá útfellingar í læknum sem rennur frá hverasvæðinu á Hveravöllum (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Kjartan
p.s. myndirnar voru í myndavél sem fannst á Hveravöllum. Ekki hefur sést til dönsku ferðamannana síðan þessar myndir voru teknar.
Fært undir Ferðalög, Jarðfræði, Ljósmyndun, Slúður, Trúarbrögð, Tækni og vísindi, Umhverfi, Umræðan þann 20. júní 2008 af photo | 0 ummæli
ENDURBÆTT KORT OG MYNDIR - JARÐSKJÁLFTINN
JARÐSKJÁLFTINN - ENDURBÆTT KORT OG MYNDIR
Ég átti þess kost á að fljúga um jarðskjálftasvæðið skömmu eftir að ósköpin dundu yfir og flaug meðal annars í kringum Ingólfsfjall.
Mér datt í hug að leggja nýja kort veðurstofunnar með jarðskjálftalínunum yfir nákvæmara kort þar sem sjá má flugferil tveggja fluga sem ég fór yfir svæðið sama dag.
Hér má svo sjá endurbætt kort af Ingólfsfjalli, Hveragerði og Selfoss. Búið er að merkja inn á kortið nokkra af þeim stöðum sem myndir voru teknar. Einnig má sjá hvar Hans flugkappi var á svifvængnum sínum þegar jarðskjálftinn reið yfir.
Hér má svo sjá kort af Ingólfsfjalli, Hveragerði og Selfoss (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Svona var svo virknin á svæðinu 31. okt. 2008 og er búið að vera samfeldir jarðskjálftar á svæðinu eins og sjá má. Ef farið er inn á vef Veðurstofunnar og skoðuð jarðskjálftavirkni á svæðinu, þá má sjá virkni á Suðurlandsundirlendinu eins og þessi mynd sýnir
Það ætti því ekki að koma á óvart að áhrif skjálftans ættu að vera mest eins og við þennan sveitabæ hér sem heitir Gljúfur við hliðina á samnefndu Gljúfri.

Hinu megin við gljúfrið er svo réttargeðdeildina að Sogni í Ölfushreppi. Picture of the farm Gljufur in Olfus. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Þar skammt frá má svo sjá þessi ummerki hér í hlíðum Ingólfsfjalls sem eru líklega greinilegustu ummerkin um jarðskjálftann. Hér má sjá hvar stór grjótskriða hefur fallið niður hlíðina í Ingólfsfjalli.

Skriða í Ingólfsfjalli þar sem stór björg hafa klofnað efst út hlíðum fjallsins. Pictures of falling rocks down mountain Ingolfsfjall close to Hveragerdi. A strong earthquake measuring 6.3 has hit southern Iceland, 50km (30 miles) from the capital, Reykjavik. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Ég flaug einnig inn á svæðið norðan við Hveragerði í seinna fluginu án þess að taka myndir (myndavélin ekki með) og mátti sjá mikla virkni á svæðinu og á einum stað þar sem risastór jarðskriða hafði fallið úr einni hlíðinni innarlega í Grænsdal þar sem mótordrekinn er að hringa sig upp úr dalnum eins og sjá má á kortinu.
Hér má svo sjá kort af Ingólfsfjalli, Hveragerði og Selfoss (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Hægt er að nálgast GPS flugferlanna hér:
http://www.wikiloc.com/wikiloc/view.do?id=139302
og fyrir seinna flugið þar sem skriðan er hér:
Hér má svo sjá kort af Ingólfsfjalli, Hveragerði og Selfoss (smellið á mynd til að ná í GPS feril)
Við skulum vona að það hafi ekki væst illa um íbúanna að Sogni í Ölfusi

Réttargeðdeildina að Sogni í Ölfushreppi er líklega sá staður sem er einna næst upptökum jarðskjálftans. Picture of Sogn in Olfus. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Hvergerðingar fengu víst heldur betur sinn skerf af hamförunum. En hér má sjá grjótskriðu sem falið hefur úr hamrabelti rétt norðan við bæinn.

Í stórum jarðskjálftum losnar mikið um berg í jarðlögunum og þá myndast oft nýjar leiðir fyrir jarðvarma upp á yfirborðið. Nú er lítill geysir farin að gjósa í Hveragerði. Pictures of rock falling down close to Hveragerdi. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Kjartan
Fært undir Efnahagur, Ferðalög, Flug, Jarðfræði, Ljósmyndun, Tækni og vísindi, Umhverfi, Umræðan þann 1. júní 2008 af photo | 0 ummæli





