ER EITTHVAÐ MEIRA UM MÁLIÐ AÐ SEGJA :)?

www.visir.is Róbert: Ætla að gleyma leiknum og njóta silfursins

ER EITTHVAÐ MEIRA UM MÁLIÐ AÐ SEGJA :)?

Flaggað í Þórsmörk

(smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Ís er mitt uppáhald

Bananasplitt að hætti norðlendinga. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Til hamingju með silfrið á ólimpíuleikunum í Kína.

Kjartan

WWW.PHOTO.IS

Fært undir Alþjóðamál, Ferðalög, Fjölmiðlar, Ljósmyndun, Menning og listir, Trúarbrögð, Íþróttir þann 24. ágúst 2008 af photo | 7 ummæli

FÓÐURBLANDA, KORNHLAÐAN, KORNAX, SUNDAHÖFN - MYNDIR

www.visir.is Milljónatjón í bruna í Korngörðum

FÓÐURBLANDA, KORNHLAÐAN, KORNAX, SUNDAHÖFN - MYNDIR

Það er gaman að bera saman myndir af svæðinu þar sem bruninn átti sér stað og sjá hvað það hefur tekið miklum breytingum á skömmum tíma

Hér má sjá Kornax, Fóðurblönduna, Kornhlöðuna og svo Sundahöfn. Myndir teknar í apríl 2004. Picture of Sundahofn, Kornax, Fodurblandan, Kornhladan in Reykjavik, Iceland. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Hér er svo mynd tekin í júlí 2007 aðeins nær og mun skýrari.

Smábátahöfnin er núna komin út á hornið þar sem Skarfasker við Laugarnestanga er. Picture of Sundahofn, Kornax, Fodurblandan, Kornhladan in Reykjavik, Iceland. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Hér eru svo myndir teknar í júní 2006

Hér má sjá Fóðurblönduna, Kornhlöðuna, Kornax og svo Sundahöfn. Picture of Sundahofn, Kornax, Fodurblandan, Kornhladan in Reykjavik, Iceland. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Hér er svo önnur mynd úr sama flugi

Þar má sjá afgreiðslu Eimskips fremst í myndinni og svo aftur Kornax, MR, Fóðurblönduna og Kornhlöðuna. Picture of Sundahofn, Kornax, Fodurblandan, Kornhladan in Reykjavik, Iceland. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Fyrir ekki svo löngu síðan, þá kviknaði í þessum turni hér hjá Kornhlöðunni og skemmdist þá einhverjar raflagnir sem þurfti að endurnýja.

Lyftuhúsið á Kornhlöðunni ásamt sílóum en þau geta verið á milli 20 og 30 talsins þar sem verið er að blanda mismunandi kornum saman til að fá mismunandi eiginleika. Picture of Sundahofn, Kornax, Fodurblandan, Kornhladan in Reykjavik, Iceland. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Hér má svo sjá skemmtiferðaskipið Discovery leggjast að nýju bryggjunni við Skarfabakka í Ágúst 2007

Í baksýn má sjá hversu ört uppbygingin á sér stað á svæðinu. Picture of ship Discovery at Skarfabakki, Sundahofn in Reykjavik, Iceland. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Hér má svo sjá annað skemmtiferðaskipið við bryggjunni við bryggju í Sundahöfn Ágúst 2007

Það voru 3 skip í höfn í Reykjavík á menningardaginn og virðist vera að einhverjir séu farnir að gera út á þennan viðburð í Reykjavík. Picture of Sundahofn, Skarfabakki in Reykjavik, Iceland. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Hér má svo sjá hafnarsvæðið nánast fullbyggt hvað Skarfabakka varðar

Myndir teknar fyrir stutt eða um miðjan ágúst 2008, eða sama dag og mót fór fram í siglingum á skútum fyrir utan Reykjavík. Picture of Sundahofn, Skarfabakki in Reykjavik, Iceland. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Hér er svo önnur nýleg mynd sem var líka tekin í ágúst mánuði 2008 og þar má sjá tvö skip sem eru við Skarfabakka í Reykjavík

Hér er stórt skemmtiferðarskip sem heitir AIDA aurora að leggjast að bryggju við Skarfabakka í Reykjavík. Picture of Sundahofn, Skarfabakki in Reykjavik, Iceland. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

En annars þekki ég aðeins til á þessum stöðum eftir að hafa séð um þjónustu á búnaði fyrir Kornax og Kornhlöðuna í nokkur ár.

Kjartan

WWW.PHOTO.IS

Fært undir Efnahagur, Flug, Ljósmyndun, Tækni og vísindi, Umhverfi, Umræðan þann 22. ágúst 2008 af photo | 0 ummæli

NÝLEGAR LOFTMYNDIR AF HELLISHEIÐARVIRKJUN

NÝLEGAR MYNDIR AF HELLISHEIÐARVIRKJUN

Hér má sjá loftmyndir sem að teknar voru af Hellisheiðarvirkjun í júní í sumar og eins og sjá má, þá eru framkvæmdir víða á svæðinu


Hellisheiðarvirkjun er ætlað að framleiða raforku fyrir álver Norðuráls á Grundartanga og fyrir almennan markað. Picture of Hellisheidarvirkjun Geothermal Power Plant is in Hengill in Iceland. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Hellisheiðarvirkjun er jarðvarmavirkjun og er á sunnanverðu Hengilssvæðinu. Til að byrja er framleitt 90 MW afl og þegar framkvæmdum lýkur þá má reikna með framleiðslu verði í kringum 300 MW.


Virkjað er með því að bora um 30 - 40 borholur sem eru að jafnaði um 2000 metra djúpar. Estimate production for the Hellisheiði Plant is 300 MW electricity and 400 MW thermal energy. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Skilja sem skilur vatnið frá gufunni áður en gufan er svo send áfram inn á túrbínur virkjunarinnar.


Hér má einnig sjá þrjár borholur baka til þar sem líklega hefur verið skáborað í ýmsar áttir. Haustið 2007 var ræstur 35 MW lágþrýstihverfill sem er nýjung og gerir jafnframt þessa virkjun með þeim tæknilega fremstu sem þekkjast í dag. Picture of Hellisheidarvirkjun Geothermal Power Plant is in Hengill in Iceland. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Hér er svo ein borholan látin blása til að hreinsa sig áður en hægt er að nota gufuna til framleiðslu á raforku

Eins og sjá má, þá myndast regnbogi í vatninu sem fellur til jarðar í formi rigningu. Árið 2009 er reiknað með að um 400 MW af varmaafli eða heitu vatni 80°C heitt muni streyma til Reykjavíkur. En það samsvara um 2400 lítrar á sek. Picture of Hellisheidarvirkjun Geothermal Power Plant is in Hengill in Iceland. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Orkuveita Reykjavíkur er eigandi og ábyrgðaraðili Hellisheiðarvirkjunar.

Lesa má nánar um Hellisheiðarvirkjun í eldra bloggi hér:

http://photo.blog.is/blog/photo/entry/273793/

Kjartan

WWW.PHOTO.IS

Fært undir Efnahagur, Fjölmiðlar, Flug, Jarðfræði, Ljósmyndun, Tækni og vísindi, Umhverfi, Umræðan þann 20. ágúst 2008 af photo | 0 ummæli

Ljósmyndir af Esjunni

www.visir.is Manns leitað í Esjuhlíðum

Ljósmyndir af Esjunni

Það er ekki annað að sjá en að það sé bara þoka á blátoppnum á Esjunni þessa stundina.

Mig langar til að prófa smá nýjung hér á blogginu og athuga hvort að það sé hægt að vera með margar smá myndir í einu með einföldum hætti.

En annars er stutt síðan ég bloggaði um gönguleiðina upp á Esjuna og má lesa nánar um hana hér:

http://photo.blog.is/blog/photo/entry/579994/

Previous page 6 of 14 Next
kps04081100
kps04081100.jpg
kps04081101
kps04081101.jpg
kps04081102
kps04081102.jpg
kps04081103
kps04081103.jpg
kps04081104
kps04081104.jpg
kps04081105
kps04081105.jpg
kps04081106
kps04081106.jpg
kps04081107
kps04081107.jpg
kps04081108
kps04081108.jpg
kps04081109
kps04081109.jpg
kps04081110
kps04081110.jpg
kps04081111
kps04081111.jpg
kps04081112
kps04081112.jpg
kps04081113
kps04081113.jpg
kps04081114
kps04081114.jpg
kps04081115
kps04081115.jpg
kps04081116
kps04081116.jpg
kps04081117
kps04081117.jpg
kps04081118
kps04081118.jpg
kps04081119
kps04081119.jpg
Previous page 6 of 14 Next

Photographer Kjartan Petur Sigurdsson ©2007
KPS • www.photo.is
Order to: (C)2008 KPS - www.photo.is - gsm 8923339

Kjartan

WWW.PHOTO.IS

Fært undir Ferðalög, Jarðfræði, Ljósmyndun, Nám, Samgöngur, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda þann 19. ágúst 2008 af photo | 3 ummæli

RISA MYND - FOSSINN GLYMUR Í HVALFIRÐI

www.visir.is Eldfjallasérfræðingar funda

RISA MYND - FOSSINN GLYMUR Í HVALFIRÐI

Hér gefur að líta foss sem hefur verið byggður upp með hjálp náttúrunnar, ólíkt með manngerða fossinn sem kemur úr Hálslóni og nefnist Kárahnjúkafoss.

Myndin sýnir risa víðmynd af fossinum Glym sem er í Botnsá innst inni í botni Hvalfjarðar. Fossinn Glymur er jafnframt hæsti foss landsins eða um 198 metrar á hæð.


Ef myndin er skoðuð nánar, þá má sjá fólk sem er á göngu allt í kringum gljúfrið sem fossinn fellur í. Að fossinum Glym liggja 3 gönguleiðir (Vegalengd: um 4 km, 2-3 kl.st., hækkun 300 m) (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Botnsá kemur úr Hvalvatni og rennur meðfram Hvalfelli. Hvalfell myndaðist í gosi undir ís í miðjum dalnum og myndar eins konar tappa sem stíflar dalinn. Því er að finna eitt dýpsta vatn landsins þar sem Hvalvatn hefur safnast upp.


Að neðan er fjallið móberg, en ofan hefur þunnfljótandi hraunið náð upp á yfirborðið og náð að mynda hraunhellu ofan á fjallið (hatt) og mynda eins konar móbergsstapa í líkingu við Hlöðufell, Herðubreið og fleiri sambærileg fjöll. Með þessu móti er auðvelt að átta sig á hversu þykkur ísinn hefur verið þegar gosið átti sér stað. Picture of Hvalfell and Botnsa river and waterfall Glymur. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Glymur kemur fram í þjóðsögu þar sem hvalur á að hafa synt inn fjörðinn, upp Botnsá og upp Glym og endað að lokum örmagna í Hvalvatni.


Í fossinum barðist hvalurinn mikið við að komast upp og komu þá miklar drunur og dregur fossins nafn sitt af þeim. Picture of waterfall Glymur in Hvalfjord, Iceland. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Hér má sjá víðmynd af Hvalfjarðarbotni og ber við himinn Selfjall, Háafell, Miðhamrafjall, Hvalfell, Botnssúlur, Miðsúla, Súlnaberg, Syðstasúla og svo Múlafjall


Í botni fjarðarins rennur svo Botnsá. Picture of Botnsa river, mountain Selfjall, Haafell, Midhamrafjall, Hvalfell, Botnssulur, Miðsula, Sulnaberg, Sydstasula og svo Mulafjall in Iceland, Hvalefjord. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Skemmtilegur hellir er neðarlega í gljúfrinu þar sem jafnframt er hægt að fara yfir ánna á lítilli göngubrú.


Einnig er hægt að ganga niður með gljúfrinu austanverðu en þá þarf að vaða Botnsá fyrir ofan fossinn. Ekki er mælt með því að ganga eða vaða inn eftir gljúfrinu. Þar hafa orðið alvarleg slys á fólki vegna hruns. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Hér eru svo tengingar á ýmsar spennandi hugmyndir varðandi Glym og Hvalfjörð sem gæti verið vert að skoða nánar:

Lausnin er að hafa tvær leiðir http://photo.blog.is/blog/photo/entry/262950

Það eru til fleiri góðar leiðir til að fjölga spilum á hendi í ferðaþjónustu á suðausturhorni landsins. http://photo.blog.is/blog/photo/entry/267781

Flott - Nýjar hugmyndir! leiðir http://photo.blog.is/blog/photo/entry/268551

Hér má svo sjá fossanna við Hálslón, útbúnir af guði og … endurgerðir af mönnum :)


NÝJAR MYNDIR ÚR FERÐ LEIÐSÖGUMANNA - SKOÐUNARFERÐ UM KÁRAHNJÚKA (þar má svo sjá þessa frægu rennu) http://photo.blog.is/blog/photo/entry/584517


SVÆÐIÐ OG FOSSARNIR SEM HURFU - MYNDIR. (það sem manngerði fossinn kom í staðin fyrir) http://photo.blog.is/blog/photo/entry/379467

Kjartan

WWW.PHOTO.IS

Fært undir Ferðalög, Flug, Jarðfræði, Ljósmyndun, Nám, Samgöngur, Stjórnmál, Umhverfi, Umræðan þann 19. ágúst 2008 af photo | 4 ummæli

VEISTU HVAÐ ÞETTA ER?

www.visir.is Lokað fyrir innhringingar

VEISTU HVAÐ ÞETTA ER?


Veistu hvað þetta er?

Svarið er neðst


Þetta er nýtt breskt fangelsi! (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)


Þetta er nýtt breskt fangelsi!

af því tilefni er hér:
Samanburður á
lífi fanga og frjálsra manna

Þetta gæti bætt skilning á aðstæðum fanga borið saman við frjálsa menn

í fangelsi

á vinnumarkaðinum

er meirihluta tímans varið í 3 x 3 m klefa
 
er meirihluta tímans varið í
1,8 x 1,8 m rými /skrifstofu
- eru þrjár fríar máltíðir á dag
 
- fá menn eitt matarhlé á dag og verða að borga fyrir matinn
- er gefið frí fyrir góða hegðun
 
- er hlaðið verkefnum á þá sem standa sig vel
- er vörður sem læsir eða opnar allar hurðir  
 
- þarf oft að bera öryggispassa og opna allar hurðir sjálfur
- er sjónvarp og tölvuleikir
 
- eru menn reknir fyrir að horfa á sjónvarp eða vera í tölvuleik
- eru einka salerni
 
- verður að deila salerni með fólki sem stundum mígur á setuna
- er fjölskyldu og vinum leyft að koma í heimsókn
 
- er ætlast til að þú talir ekki einusinni við fjölskyldu þína
- bera skattgreiðendur allan kostnað án þess að nokkurrar vinnu sé krafist af þeim sem þar dvelja
 
- bera starfsmenn allan kostnað við að komast til frá vinnu og skattar eru dregnir af laununum til þess að greiða kostnað vegna fanganna
@ PRISONYou spend most of your life inside bars wanting to get out
 
@ WORKyou spend most of your time wantingto get out and go inside BARS !
@ PRISON- You must deal with sadistic wardens
 
@ WORK- They are called managers
Komdu þér nú að verki !
Það er ekki verið að borga þér fyrir að vera að blogga eða lesa blogg alla daga.
Now get back to work. You’re not getting paid for blogging

(Stílfærði aðeins, en fékk þetta sent frá Kela kunningja mínum)

Hér má svo lesa meira um málefnið í öðrum bloggum hjá mér

Væri ekki ráð að byggja Hilton lúxus fangelsi á íslandi http://photo.blog.is/blog/photo/entry/231629

KVÍABRYGGJA ER FLOTTUR STAÐUR http://photo.blog.is/blog/photo/entry/389120

Kjartan

WWW.PHOTO.IS

Fært undir Alþjóðamál, Efnahagur, Fjölmiðlar, Heilbrigði, Matur og drykkur, Menning og listir, Slúður, Stjórnmál, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda þann 18. ágúst 2008 af photo | 2 ummæli

EKKI BARA BITRUVIRKJUN! KRAFLA, GJÁSTYKKI, ÞEISTAREYKIR LÍKA - MYNDIR OG KORT

www.visir.is Bitruvirkjun gerði útslagið fyrir Óskar Bergsson: Dagur sló R-lista af borðinu

EKKI BARA BITRUVIRKJUN! KRAFLA, GJÁSTYKKI, ÞEISTAREYKIR LÍKA - MYNDIR OG KORT

Hér er flogið til suðurs frá Ásbyrgi í átt að Kröflu meðfram nýja hrauninu sem kom upp í eldsumbrotunum í Leirhnjúk 1975 til 1984. Hér má sjá hvernig hraunið hefur komið upp úr nýrri sprungu og flætt ofan í aðra gamla samsíða sprungu sem er aðeins austar.


Hraunið nær að fljóta yfir stórt svæði og eru skilin á milli eldra og nýja hraunsins mjög greinileg. Fly from Asbyrgi to Leirhnjukur and Krafla close to Myvatn. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Stuttu eftir eldgosið við Kröflu, þá var lagður vegur yfir nýrunnið hraunið


Myndin er tekin í Júlí 2003. Picture of the road over the new lava close to Leirhnjukur. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Hér má svo sjá hæð eina sem rétt nær að gægjast upp úr nýja hrauninu


Í svona gosi getur komið upp gríðarlega mikið magn af hrauni á skömmum tíma. Melurinn er greinilega eldra hraun sem komið er með rauðan blæ. A hill close to Leyrhnjukur and Krafla. Myvatn. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Hér sjást svo gamlir og nýir gígar í bland


Landið hleðst upp lögum á milljónum ára. New and old crater on a long fissure close to Leirhnjukur in north east of Iceland. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Hér sést ein af mörgum gígaröðum mjög vel. En hraunið sem kom upp á tímabilinu 1975 til 1984. Hraunið var mjög þunnfljótandi og náði að renna yfir stórt svæði á skömmum tíma


Flott var að sjá myndir þar sem hraunið kom upp á einum stað en féll ofan í næstu sprungu jafn harðan. One of many fissure close to Leirhnjukur. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Hér er horft í áttina að Kröflu, Leirhnjúk og Mývatni. Í baksýn sést í Sellandafjall, Bláfjall og Heilagsdalsfjall


Þar sem reykur stígur upp er Kröflusvæðið. Á myndinni sést vel hvernig sprungusveimurinn liggur frá Leirhnjúk í áttina að Gjástykki. Picture of Krafla, Leyrhnjukur and Myvatn. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Hér má sjá kort af svæðinu. Gjástykki er ofarlega fyrir miðri mynd. Neðst á kortinu má sjá leiðina inn að Kröflu við Mývatn.


Kort af Gjástykki. En það virðast vera um 8-10 Km frá Gjástykki að Kröfluvirkjun. Map of Krafla, Gjastykki and Myvatn area (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Hér er horft í áttina að Leirhnjúk. Í baksýn sést í Sellandafjall, Bláfjall og þar fyrir framan hægra megin sést aðeins í Hverfjall eða Hverfell og Námafjall. En mönnum ber ekki alveg saman um nafnið á gígnum Hverfjalli sem er sprengigígur sem myndast hefur við gos í vatni og því að mestu byggður upp úr sandi.


Vinstra megin við Hverfjall eða fell er svo hraun sem heitir Búrfellshraun. Picture of Leirhnjuk, Sellandafjall, Blafjall, Hverfjall and Namafjall in north east of Iceland. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Rétt við Leirhnjúk má svo sjá hversu þunnfljótandi hraunið hefur verið. Þar sem hraunið mætir kaldri fyrirstöðu getur það krumpast upp eins og myndin sýnir. En hitastigið hefur greinilega verið mjög hátt. Hitastig á hrauni getur verið frá 700 - 1200°C.


Gríðarleg hitamyndun er í iðrum jarðar og stafar hún einkum af niðurbroti geislavirkra efna. Hér er greinilega um flæðigos að ræða þar sem nær eingöngu myndast hraun og gjóskuframleiðsla verður óveruleg. Eins og myndin sýnir, þá er hraunin frekar slétt, rákuð og nefnast helluhraun, og eru úr basalti. Picture of thin flooding lava from Leirhnjukur. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Leirhnjúkur er vinsælt göngusvæði og er búið að bæta aðstöðu fyrir ferðamenn til muna á svæðinu. Búið er að reisa trépalla og öryggisgirðingar svo að fólk verði sér ekki að skaða í brennheitum leirhverunum sem mikið er af á svæðinu.


Vinsælt er að ganga hringleið, en það er stígurinn sem er fjær. Leirhnjukur is a popular hiking area. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Hér sést göngusvæðið betur við Leirhnjúk


Nóg er af leirhverum á svæðinu eins og sjá má. Hiking area around Leirhnjukur and the new crater. Lot of active mud spring seen on the picture. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Hér sést bílaplanið þar sem gönguleiðin inn að Leirhnjúk hefst. Á myndinni má einnig sjá framkvæmdir við Kröflu ásamt lögnum sem tengir virkjunina við um 35 borholur. Leiðslurnar eru lagðar frá Kröflu í stöðvarhúsið sem er hægra megin í myndinni.


Búrfell sést í baksýn ásamt Vestari-Skógarmannafjöllum. En talið er að Búrfellshraun hafi komið úr Kræðuborgum sem er gígaröð lengst til vinstri á myndinni bak við Kröflu sem er framalega vinstra megin í myndinni. Picture of the Leirhnjukur area and parking space close to Viti. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Hér er svo Víti (eða Helvíti eins og hann heitir fullu nafni) er sprengigígur sem myndaðist þegar gaus í Kröflu 1724 Gígurinn er um 300 m í þvermál. Gígurinn varð til þegar rakur jarðvegur yfirhitnar svo mikið að það verður sprenging og jarðvegurinn þeytist í allar áttir.


Með þessu hófst lengsta gos íslandssögunar (5 ár) og fékk það viðurnefni Mývatnseldar. The famous Víti craters “Hell” in Icelandic. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Hver virkjun þarf fjölda borhola eins og þessi mynd sýnir. Fyrir Kröfluvirkjun er búið að bora um 35 borholur og féllu sumar þeirra saman í eldsumbrotunum í Leirhnjúk 1975 til 1984


Nú stendur til að reisa 150 MW jarðhitavirkjun við Kröflu. Virkjunin, Kröfluvirkjun II, er hugsuð sem viðbót við virkjunina sem fyrir er og verður byggt nýtt stöðvarhús. Krafla is a caldera of about 10 km in diameter with a 90 km long fissure zone! (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Hér er svo sjálf Kröfluvirkjun sem er líklega erfiðasta framkvæmd Íslandssögunar og mátti litlu muna að illa færi og munaði litlu að Íslendingar gæfust upp á gufuaflsvirkjunum. Kröflustöð var gangsett árið 1977 (30MW) og 1996 var hún stækkuð (60MW).


Það mátti litlu muna að Kröfluvirkjun yrði ekki að neinu eftir að gos hófst í Leirhnjúk og við Kröflu í röð af 9 gosum frá 1975 til 1984. This is the first “steam” or geothermal energy power station in Iceland. It has been in operation since 1977 and give around 60 MW power. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Kort af Kröflu, Kröfluvirkjun, Leirhnjúk og Víti.


Krafla, Kröfluvirkjun, Leirhnjúkur, Víti - Map of Krafla, Krofluvirkjun, Leirhnjukur, Viti in north east of Iceland close to Myvatn (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Námaskarð eða Hverarönd vinsæll ferðamannastaður


Mikið er af bullandi leirhverum og hér áður fyrr var unnin brennisteinn í Hlíðarnámum og fluttur út. Picture of Namaskard or Hverarond close to Myvatn. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Hér má sjá loftmynd tekna af Þeistarreykjarsvæðinu í september 2005. Hér má sjá gufu stíga til himins víða á svæðinu. Horft er til suðurs á myndinni.


Landsvirkjun og Norðurþing standa sameiginlega að tilraunaborunum á svæðinu vegna virkjanna sem stendur til að reisa á svæðinu vegna Álvers á Bakka við Húsavík. Picture of Theistarreykir geothermal area that will be used for Aluminum company at Bakki close to Husavik. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Hér má sjá kort af svæðinu þar sem verið er að bora.


Kort af Þeistareykjum, Þeistareykjabungu (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Áður hefur verið ritað um Ölkelduháls eða Bitruvirkjun og sitt sýnist hverjum um þá framkvæmd. En hér má skoða myndaseríu sem að ég tók á sínum tíma af svæðinu.

SPILLUM EKKI SVÆÐINU Í KRINGUM ÖLKELDUHÁLS !!! http://photo.blog.is/blog/photo/entry/351625/

En þetta var annars stutt samantekt að hinum 3 svæðunum sem verið er að fara í frakvæmdir í á sama tíma, þ.e. Krafla, Gjástykki (það sem þeir kjósa að kalla Krafla II en það er um 10 km á milli þessa svæða) og svo Þeistareykjarsvæðið.

Það er greinilega ekkert slegið slöku við hjá ráðamönnum þessara þjóða þessa dagana. Það virðist virka vel að henda svona sprengjum í fjölmiðla (Bitruvirkjun) svo að það sé hægt að athafna sig í friði á öðrum svæðum á meðan :)

Kjartan
WWW.PHOTO.IS

Fært undir Alþjóðamál, Efnahagur, Ferðalög, Fjölmiðlar, Flug, Jarðfræði, Ljósmyndun, Samgöngur, Slúður, Stjórnmál, Tækni og vísindi, Umhverfi, Umræðan þann 16. ágúst 2008 af photo | 0 ummæli

SNYRTISTOFAN DÖGG - TIL HAMINGJU :)

TIL HAMINGJU KRISTÍN DÖGG :)

Ég má til með að óska þessari fallegu ungu konu til hamingju með nýja fyrirtækið hennar.

Kristin Dögg Kjartansdóttir snyrtifræðingur opnaði nýverið sína eigin snyrtistofu að Smiðjuvegi 4 í Kópavogi.

Stofan ber nafnið “Snyrtistofan Dögg” og er ný standsett og búin fullkomnum tækjum þar sem öll aðstaða er eins og best verður á kosið. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Eftir námið, hóf hún störf hjá Snyrtistofu Ólafar á Selfossi. Í maí 2007 flutti Kristín til Reykjavíkur og hóf jafnframt störf hjá snyrtistofunni Carítu í Hafnafirði.

Nú ári seinna opnar nú Kristín sína eigin stofu og er jafnframt með aðstöðu hjá Hársmiðjunni.

Hjá Kristínu Dögg er boðið upp á flest allt sem snýr að snyrtingu. Þar má nefna hinar einstöku andlitsmeðferðir frá Guinot, litun og plokkun, vaxmeðferðir fyrir andlit og líkama, meðferðir fyrir hendur og fætur, gel á táneglur og svo förðun.

Markið Kristínar Daggar hefur ávalt verið að veita sínum viðskiptavinum fagmannlega og góða þjónustu og skapa notalegt umhverfi.

Stofan er opin alla virka daga frá kl. 9 til 17 (sumartími) og kl. 9 til 18 (vetratími). Einnig verður opið á laugardögum frá 10 til 14.

Frá 18 – 29 ágúst býður Snyrtistofan Dögg upp á 20% afslátt á litun og plokkun og ef pöntuð er andlitsmeðferð þá fylgir litun á augnbrúnum frítt með.

Kristín Dögg býður alla nýja sem gamla viðskiptavini sína velkomna á nýju snyrtistofuna sína.

Kristín Dögg er með aðstöðu í Kópavogi á Smiðjuvegi 4 og er með síma 55 22 333

Hún er einnig að koma sér upp heimasíðu www.dögg.is

Félagi minn og vinur Sigurður Valur myndskreytir hjálpaði til við að útbúa þetta fallega “logo” eða merki fyrir Kristínu Dögg

Merki Snyrtistofunnar Daggar, hannað af Sigurði Val myndskreyti (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Nú er bara að vona að þetta gangi allt upp hjá henni og til að svo geti nú orðið, þá skora ég á konur og “menn” að bóka tíma hjá henni í síma 55 22 333, sem fyrst :)

Ég verð nú að viðurkenna að ég lét plata mig í einn svona tíma þegar hún var að læra (svona meira upp á grínið) og má sjá mynd sem tekin var af því tilefni (árið 2005).

Kjartan í andlits …. hjá Kristínu (veit ekki alveg hvað þetta er kallað)! (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

(mátti til með að monta mig aðeins því að daman er dóttir mín :))

Kjartan

WWW.PHOTO.IS

Fært undir Efnahagur, Fjölmiðlar, Ljósmyndun, Menning og listir, Nám, Slúður, Umræðan, Vinir og fjölskylda þann 15. ágúst 2008 af photo | 0 ummæli

ÞEISTAREYKIR - MYNDIR OG KORT

www.visir.is Þeistareykir gætu sótt skaðabætur á hendur ríkinu

ÞEISTAREYKIR - MYNDIR OG KORT

Hér má sjá loftmynd tekna af Þeistarreykjarsvæðinu í september 2005. Hér má sjá gufu stíga til himins víða á svæðinu. Horft er til suðurs á myndinni.

Landsvirkjun og Norðurþing standa sameiginlega að tilraunaborunum á svæðinu vegna virkjanna sem stendur til að reisa á svæðini vegna Álvers á Bakka við Húsavík. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Hér má sjá kort af svæðinu þar sem verið er að bora.


Kort af Þeistareykjum, Þeistareykjabungu (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Kjartan

WWW.PHOTO.IS

Fært undir Efnahagur, Fjölmiðlar, Jarðfræði, Ljósmyndun, Stjórnmál, Tækni og vísindi, Umhverfi, Umræðan þann 15. ágúst 2008 af photo | 2 ummæli

SVÍNSLEGA ERFIÐAR MYNDASPURNINGAR MEÐ ÞJÓÐLEGU ÍVAFI

www.visir.is Neitar þreifingum við sjálfstæðismenn

SVÍNSLEGA ERFIÐAR MYNDASPURNINGAR MEÐ ÞJÓÐLEGU ÍVAFI

Myndaspurningarnar eru þrjár.

[A] 1) Hvaða riðkláfur er þetta? 2) Í hvað var hann notaður? 3) Hvaðan kemur riðkláfurinn? 4) Hvar er hann staðsettur? 5) Hver ritaði orðin “Bókin Blífur” og fyrir hvað er sú persóna merkileg? 6) Hvar var eins stærsta hvalstöð í heimi staðsett og hver er saga hennar?


Mynd A. Myndagetraun. Ljósmynd Kjartan Pétur Sigurðsson, www.photo.is. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

[B] 1) Hvaða fjall er þetta? 2) Fyrir hvað er þetta fjall merkilegt? 3) Hver á hestinn? 4) Hvaðan kemur allur þessi sandur? 5) Hvar er stærsta eyðimörk í Evrópu?


Mynd B. Myndagetraun. Ljósmynd Kjartan Pétur Sigurðsson, www.photo.is. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

[C] og svo ein auðveld í lokin. Hvað er þetta?


Mynd C. Myndagetraun. Ljósmynd Kjartan Pétur Sigurðsson, www.photo.is. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Þeir sem geta svarað þessu munu að sjálfsögðu vinna vegleg verðlaun í boði …. :)

Gangi ykkur vel.

Kjartan
WWW.PHOTO.IS

p.s. þessar áttu víst að koma líka … Hverjar verða lokatölurnar í næstu Borgarstjórnarkosningum og hvað verða margir “Borgarstjórar” á biðlaunum í lok þessa kjörtímabils í Reykjavíkurhreppi?

Fært undir Efnahagur, Ferðalög, Fjölmiðlar, Ljósmyndun, Menning og listir, Nám, Slúður, Stjórnmál, Umhverfi, Umræðan þann 14. ágúst 2008 af photo | 0 ummæli

TVÆR MJÖG ERFIÐAR MYNDAGETRAUNIR FYRIR LESENDUR BLOGGSINS

www.visir.is Landbúnaðarháskóli gerir engar athugasemdir við rányrkju á landinu.

TVÆR MJÖG ERFIÐAR MYNDAGETRAUNIR FYRIR LESENDUR BLOGGSINS

Spurningarnar eru tvær og eru báðar myndaspurningar.

Veit einhver þessi Jón er. Ef vel er skoðað, þá má lesa nafnið hans fyrir ofan bústaðinn.


Spurning hvort einhver veit hvar þessi mynd er tekin, hver á bæinn og hversvegna er búið að skrifa JÓN í hlíðina fyrir ofan? (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Seinni myndin er tekin á allt öðrum stað á landinu. Hér má sjá hlut sem liggur hálf grafin í sand. 1) Hvað er þetta? 2) Hvar á landinu er þetta? 3) Því liggur þetta þarna?


(smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Þeir sem geta svarað þessu munu að sjálfsögðu vinna vegleg verðlun í boði …. :)

Gangi ykkur vel.

Kjartan

WWW.PHOTO.IS

Fært undir Ferðalög, Ljósmyndun, Menning og listir, Nám, Umhverfi, Umræðan þann 11. ágúst 2008 af photo | 4 ummæli

Næsta síða »
Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Vefmiðlar
Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning