GRÓTTA - GRÓTTUVITI - SELTJARNARNES - MYNDIR
Börn festust úti í Gróttu - heil á húfi
GRÓTTA - GRÓTTUVITI - SELTJARNARNES - MYNDIR
Hér er horft til vesturs út nesið þar sem sjá má Gróttuvita yrst á Seltjarnarnesi. Grótta er yzti hluti Seltjarnarness. Hún er í rauninni eyja, sem tengist landi með skerjum sem standast upp úr á fjöru. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Grotta island on Seltjarnarnes peninsula, Reykjavik, Iceland (to view gallery: click image) (C)2009 Kjartan P. Sigurðsson
Hér er horft í norður átt í áttina að Gróttu. Hér má sjá vel lukkaða ljósmynd af Seltjarnarnesi sem tekin er að vori til árið 2004. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Grotta island on Seltjarnarnes peninsula, Reykjavik, Iceland (to view gallery: click image) (C)2009 Kjartan P. Sigurðsson
Hér sjást svo húsakynnin betur (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Grotta island on Seltjarnarnes peninsula, Reykjavik, Iceland (to view gallery: click image) (C)2009 Kjartan P. Sigurðsson
Hér er svo sumarmynd af Gróttu og Gróttuvita (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Grotta island on Seltjarnarnes peninsula, Reykjavik, Iceland (to view gallery: click image) (C)2009 Kjartan P. Sigurðsson
Grótta og Gróttuviti (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Grotta island on Seltjarnarnes peninsula, Reykjavik, Iceland (to view gallery: click image) (C)2009 Kjartan P. Sigurðsson
Það er oft fallegt úti á Gróttu þar sem Gróttuviti stendur. Á fjöru er auðvelt að labba út í Gróttuvita (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Grotta island on Seltjarnarnes peninsula, Reykjavik, Iceland (to view gallery: click image) (C)2009 Kjartan P. Sigurðsson
Tjörnin úti á Gróttu. Bakkatjörn, Búðatjörn og Tjörn í Dal eru á Nesinu. Bakkatjörn var áður leiruvogur inn úr Bakkavík en ósnum var lokað um 1960. Að norðanverðu eru Vatnavík, Vesturvik, Austurvik og Eiðisvík. Að sunnan má nefna Sandvik og Bakkvík. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Grotta island on Seltjarnarnes peninsula, Reykjavik, Iceland (to view gallery: click image) (C)2009 Kjartan P. Sigurðsson
Sjálfsagt hafa margir gaman að því að renna yfir stækkaða útgáfu af myndinni og sjá hvað hefur breyst síðan þá.
Loftmynd af bæjarfélaginu á Seltjarnarnesi. Ef smellt er á mynd, þá má sjá stækkaða panorama-loftmynd af svæðinu (smellið á mynd til að sjá fleirri myndir)

Seltjarnarnes peninsula, Reykjavik, Iceland Iceland (to view more picture: click image) (C)2009 Kjartan P. Sigurðsson
![]()
Kjartan
WWW.PHOTO.IS
Fært undir Ferðalög, Fjölmiðlar, Flug, Jarðfræði, Ljósmyndun, Samgöngur, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda þann 1. maí 2009 af photo | 0 ummæli
ÓLAFSDALSHÁTÍÐ Í ÓLAFSDAL - MYNDIR OG KORT
Kjósa í sparifötum fyrir vestan
ÓLAFSDALSHÁTÍÐ Í ÓLAFSDAL - MYNDIR OG KORT
FERÐ Á VESTFIRÐI Á ÓLAFSDALSHÁTÍÐ 10. ÁGÚST 2008 - TRIP TO WEST-FJORD IN ICELAND
Síðasta sumar fór ég í skemmtilegt flug með einum félaga mínum á Ólafsdalshátíð á Vestfjörðum í kaffi og kleinur. En félagsskapur sem var að gera upp gamla skólahúsið á staðnum var með samkomu í tilefni dagsins.
Hér er lent á fisi á veginum við Kirkjuna í Tjarnarlundi í Saurbæ í Dölum á Vestfjörðum. Við félagarnir þurftum að fá bensín í Skriðulandi í Dalasýslu. Við vorum orðnir svo tæpir á bensíni að við völdum að aka veginn frekar en að fara loftleiðina síðasta spölinn að bensínstöðinni (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Landing on site of the church Saurbaer in Dölum in Tjarnalundur on way to fest in Olafsdalur in West-fjord Iceland. (to view gallery: click image) (C)2009 Kjartan P. Sigurðsson
Hér stígur flugnemandinn Ingólfur Bruun út úr fisi sínu við bensínstöðina Skriðuland í Dalasýslu á leið sinni á Ólafsdalshátíð 10. ágúst 2008. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Taking fuel on Ultralight in West-Fjord in in Iceland. (to view gallery: click image) (C)2009 Kjartan P. Sigurðsson
Hér má sjá auglýsinguna um hátíðina Ólafsdalshátíð 10. ágúst 2008 á bensínstöðinni Skriðulandi. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Taking fuel on Ultralight in West-Fjord in in Iceland. (to view gallery: click image) (C)2009 Kjartan P. Sigurðsson
Eins og á öllum hefðbundnum alvöru hátíðum úti á landi, að þá eru veglegar veitingar að hætti heimamanna. Kökur og bakkelsi á íslenska vísu. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Icelandic traditional cakes. (to view gallery: click image) (C)2009 Kjartan P. Sigurðsson
Gilsfjörður var einn af stærstu er fjörður sem skilur milli Vestfjarða og Vesturlands. Hann gengur til austurs inn úr Breiðafirði og nær til Akureyja milli Tjaldaness og Krókfjarðarness. Á háfjöru myndast miklar leirur í firðinum með ál í miðju. Fuglalíf er mikið. Brú var sett yfir Gilsfjörð árið 1997 og stytti hún leiðina milli sunnanverðra Vestfjarða og Vesturlands um 14 km. Vegur sem lagður var við mynni Gilsfjarðar í tengslum við brúna breytti firðinum í sjávarlón. Lónið er 33 ferkílómetrar. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Gilsfjord in West-Fjord in Iceland (to view gallery: click image) (C)2009 Kjartan P. Sigurðsson
Við sunnanverðan Gilsfjörð gengur Ólafsdalur inn í landið til norðausturs. Þar stofnaði Torfi Bjarnason fyrsta búnaðarskólann á Íslandi, Búnaðarskóla Vesturamtsins, árið 1880 og starfaði hann til ársins 1907. Upp úr botni fjarðarins liggur vegur um Steinadalsheiði yfir í Kollafjörð á Ströndum. Hann er aðeins opinn á sumrin en var aðalleiðin til Hólmavíkur og Stranda á árabilinu 1933-1948. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

First farming school in Iceland in Olafsdalur, Gils-fjord (to view gallery: click image) (C)2009 Kjartan P. Sigurðsson
Fyrsta búnaðarskólann á Íslandi, Torfi Bjarnason Búnaðarskóla Vesturamtsins, árið 1880 og starfaði hann til ársins 1907. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

First farming school in Iceland in Olafsdalur, Gils-fjord (to view gallery: click image) (C)2009 Kjartan P. Sigurðsson
Torfi Bjarnason og kona hans Ólöf Sakaríusdóttir settu á fót fyrsta landbúnaðarskólann á Íslandi um 1880 og ráku í 27 ár, oft við erfiðan fjárhag.
Hér má svo sjá styttu sem var reist þeim til heiðurs. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

First farming school in Iceland in Olafsdalur, Gils-fjord (to view gallery: click image) (C)2009 Kjartan P. Sigurðsson
Hér er svo einn stjórnmálafrömuðurinn, Einar Kristinn Guðfinnsson, að þruma yfir lýðnum síðasta sumar í Ólafsdal. Hann talaði líka mikið inni á þingi fyrir stuttu til að koma í veg fyrir breytingar á stjórnarskránni. Annars má rekja nokkra fleirri til svæðisins sem eru í stjórnmálum. Eins og Gunnar I. Birgisson sem sá um að þvera Gilsfjörð. Dofri Hermannsson sem sá um að moka skít út úr fjárhúsi á einum bænum. Einnig er Svavar Gestsson, sendiherra í Kaupmannahöfn með sumarhús þarna í sveitinni. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Picture from an old school in Olafsdalur in Westfjord in north west of Iceland (to view gallery: click image) (C)2009 Kjartan P. Sigurðsson
Hér má svo sjá kort af Gilsfirði, Ólafsdal og hluta af Reykhólasveit á Vestfjörðum (smellið á mynd til að sjá fleirri myndir)

Map of Gilsfjord, Ólafsdal valley and part of Reykhólasveit in Westfjord on north west of Iceland (to view more picture: click image) Kjartan P. Sigurðsson
![]()
Kjartan
WWW.PHOTO.IS
Hér má svo sjá meira af myndum af svæðinu og Vestfjörðum
http://www.photo.is/07/07/4/index_4.html
http://photo.blog.is/blog/photo/entry/271979/
http://photo.blog.is/blog/photo/entry/274631
http://www.photo.is/07/07/4/index_35.html
http://photo.blog.is/blog/photo/entry/640259/
http://photo.blog.is/blog/photo/entry/221241/
http://photo.blog.is/blog/photo/entry/235910
http://photo.blog.is/blog/photo/entry/262809
http://photo.blog.is/blog/photo/entry/270735
http://photo.blog.is/blog/photo/entry/273972
http://photo.blog.is/blog/photo/entry/276232
http://photo.blog.is/blog/photo/entry/287840
http://photo.blog.is/blog/photo/entry/622792/a>
http://photo.blog.is/blog/photo/entry/651030
http://photo.blog.is/blog/photo/entry/651884
http://photo.blog.is/blog/photo/entry/654610
Fært undir Ferðalög, Fjölmiðlar, Flug, Ljósmyndun, Matur og drykkur, Menning og listir, Nám, Samgöngur, Stjórnmál, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda þann 25. apríl 2009 af photo | 0 ummæli
FERÐ KVENNA YFIR VATNAJÖKUL - MYNDIR OG KORT
Konurnar komnar niður af Öræfajökli
FERÐ YFIR VATNAJÖKUL - MYNDIR OG KORT
FERÐ YFIR VATNAJÖKUL - TRIP OVER VATNAJÖKULL GLACIER
Ekki er ólíklegt að dömurnar hafi farið í skálanN á Grímsfjalli en vegalengdin þaðan í Tjaldaskarð er um 52 km. Frá JökUlheimum eru svo aðrir 50 km í Grímsvötn. Þannig að þær hafa verið búnar að leggja af baki um 100 km vegalengd. Ef einhverjir eru að huga að ferð á svipaðar slóðir á næstu dögum, að þá er gott að fara inn á
Sem dæmi, þá verður gríðarleg mikil ofankoma næstkomandi miðvikudag um kl. 3 og má þá búast við í nokkra daga á eftir geti verið mikið magn af púðursnjó á svæðinu og færi mjög erfitt. Hér má sjá skjáskot af veðrinu þennan dag í kringum Öræfajökul og suður hluta landsins (smellið á mynd til að fara inn á gamli.belging.is)

Wether map of Vatnajökull. Biggest glacier in Iceland placed on the east-coast of Iceland (to view more picture: click image) (C)2009 Kjartan P. Sigurðsson
Hér er horft upp eftir Svínafellsjökli, en í fjarska efst upp á brúninni er Tjaldskarði á Öræfajökli. Á þessum stað hlémegin við Hvannadalshnjúk getur verið gríðarlega mikil úrkoma og oft mjög erfitt færi. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

A view up the glacier tong Svinafellsjökul (to view gallery: click image) (C)2009 Kjartan P. Sigurðsson
Hér er komið nærri brúninni og má sjá hvernig skriðjökulinn lekur niður á milli fjallshrygga sem eru sinn hvoru meginn. Nokkurn vegin þarna efst á brúninni er staðurinn þar sem konurnar voru með tjöldin sín. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

A view up the glacier tong Svinafellsjökul (to view gallery: click image) (C)2009 Kjartan P. Sigurðsson
Hér má svo sjá mynd af svæðinu uppi á jöklinum með Öræfajökul og Hvannadalshnjúk í baksýn. Það var einmitt á þessum sama kafla sem færið fór að verða verulega erfitt fyrir mikið breytta bíla. Það var þó ekki fyrr en við komum niður á sléttuna fyrir neðan Hermannaskarðið að færið varð virkilega erfitt og var þá meðalhraðinn ekki nema 2-3 km/klst! Myndir af jeppaleiðangri sem farin var páskana svipaða leið (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

On top of glacier Vatnajökull close to Svinafellsjökul and Tjaldskarð (to view gallery: click image) (C)2009 Kjartan P. Sigurðsson
Hér er stoppað til að taka nokkrar myndir (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

A super 4×4 jeep trip over glacier Vatnajökull close to Svinafellsjökul and Tjaldskarð. Stop to make pictures (to view gallery: click image) (C)2009 Kjartan P. Sigurðsson
Ógleymanleg fegurð á fjöllum þegar veðuraðstæður eru eins og voru þetta kvöldið hjá okkur. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

A super 4×4 jeep trip over glacier Vatnajökull close to Svinafellsjökul and Tjaldskarð. Stop to make pictures (to view gallery: click image) (C)2009 Kjartan P. Sigurðsson
Hér má svo sjá kort af Vatnajökli, Öræfajökli, Hvannadalshnjúki og svo Tjaldskarði þar sem konurnar tjölduðu eftir 10 daga ferð á jöklinum (smellið á mynd til að sjá fleirri myndir)

Map of Vatnajökull glacier on south coast of Iceland (to view more picture: click image) (C)2009 Kjartan P. Sigurðsson
![]()
Kjartan
WWW.PHOTO.IS
Ferð yfir Vatnajökull - Trip over Vatnajökull Glacier http://photo.blog.is/blog/photo/entry/839736/
Vatnajökull Klofajökull þíðjökull Ísland Evrópa 8.100 km² meðalþykkt hans 400 metrar Saga jökull Eldvirkni Þjóðgarður rýrnun Klofajökull eldstöðvar Grímsvötn Öræfajökull Gjálp Gos jarðvísindamenn goshrina friðun Skaftafell Vatnajökulsþjóðgarður Glacier of Rivers largest glacier Iceland south-east Europe volume average thickness ice highest peak Hvannadalshnúkur 2110 m Skaftafell National Park ice cap glacier volcanoes Grímsvötn glacial lake outburst flood eruption ice age eruptions occurred under Vatnajökull subglacial tuyas Herðubreið shrinking climatic changes phenomenon Jökulhlaup Guinness World Records longest sight line Slættaratindur highest mountain Faroe Islands atmospheric refraction British sailor
Fært undir Ferðalög, Fjölmiðlar, Heilbrigði, Jarðfræði, Ljósmyndun, Samgöngur, Slúður, Umhverfi, Umræðan, Íþróttir þann 21. apríl 2009 af photo | 0 ummæli
DJÚPIVOGUR - PAPEY - SMYGLARAR - MYNDIR OG KORT
Smyglskútan leigð frá Belgíu - Myndir
DJÚPIVOGUR - PAPEY - SMYGLARAR - MYNDIR OG KORT
DJÚPIVOGUR - PAPEY
Á milli Berufjarðar og Hamarsfjarðar má finna 350 manna þorp Djúpivogur sem stendur á Búlandsnesi í Djúpavogshreppi.
Hér eru myndir frá Djúpavogi þar gúmmíbáturinn mun hafa verið átt viðdvöl sem fjallað er um í fréttinni í stóra smyglmálinu. Höfnin á Djúpavogi þar sem gúmmíbáturinn á að hafa verið (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

The harbor and main port in town Djupivogur in east Iceland (to view gallery: click image) (C)2009 Kjartan P. Sigurðsson
Spurning hvað þessi fjölskylda er að fiska hér upp úr sjónum í höfninni í Djúpavogi (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

A family fishing in the harbour and main port in the town Djupivogur in east Iceland (to view gallery: click image) (C)2009 Kjartan P. Sigurðsson
Fjallið Búlandstindur er eins og stór nattúrulegur píramídi séð frá bænum og eitt ef kennileitum svæðisins (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

The most famous mountain in Djupavogur area is Bulandstindur (to view gallery: click image) (C)2009 Kjartan P. Sigurðsson
Hér má svo sjá eyjuna Papey. Efst á eyjunni er viti. Við skulum vona að lundanum verði ekki bumbult af einhverjum undarlegum efnum sem gætu fundist óvænt á eyjunni. Papey var eina byggða eyjan við austurströnd landsins en byggð lagðist þar af árið 1966. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Papey is about 2 km² in area and the largest island off the east coast of Iceland with several smaller islands around. The island got its name from Irish monks called “papar”. Tourist can take on a boat trips to the island from Djupivogur. (to view gallery: click image) (C)2009 Kjartan P. Sigurðsson
Hér er svo landgangurinn upp á eyjuna Papey (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Tourist can take on a boat trips to the island from Djupivogur. The harbour and main port on the island Papey close to Djupivogur in east Iceland. (to view gallery: click image) (C)2009 Kjartan P. Sigurðsson
Á Papey má finna nokkur hús eins og uppgerða kirkju, (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

A small old rebuild church on the island Papey close to Djupivogur in east Iceland. (to view gallery: click image) (C)2009 Kjartan P. Sigurðsson
Hér má svo lesa nánar um lundann http://photo.blog.is/blog/photo/entry/511281/
Hér má svo lesa nánar um Djúpavog http://is.wikipedia.org/wiki/Djúpivogur
Hér má sjá víðmynd eða panorama mynd af Djúpavogi, Berufirði, Búlandstindi og nágrenni. Berufjörður er um 20 km langur fjörður á Austfjörðum á Íslandi. Upp úr honum ganga 3 dalir, Búlandsdalur, sem liggur fyrst þvert á fjörðinn og síðan inn eftir, því næst Fossárdalur upp af Fossárvík að sunnan, og Berufjarðardalur úr botni fjarðarins. Þorpið Djúpivogur liggur við sunnanverðan fjörðinn. Næstu firðir eru Breiðdalsvík að norðan, og Hamarsfjörður að sunnan. (smellið á mynd til að sjá stækkaða mynd)

Panoramic picture from Djupavogur, a small fishing town on east coast of Iceland (to view large panorama: click image) (C)2009 Kjartan P. Sigurðsson
Hér má sjá kort af Djúpavogi, Berufirði, Búlandstindi og svæðinu í kring (smellið á mynd til að sjá fleirri myndir)

Map of Djupavogur, a small fishing town on east coast of Iceland (to view more picture: click image) (C)2009 Kjartan P. Sigurðsson
![]()
Kjartan
WWW.PHOTO.IS
Fært undir Alþjóðamál, Efnahagur, Ferðalög, Fjölmiðlar, Heilbrigði, Ljósmyndun, Slúður, Stjórnmál, Umhverfi, Umræðan þann 20. apríl 2009 af photo | 0 ummæli
AKRANES - SAFNIÐ Á AKRANESI - MYNDIR OG KORT
Safnafólk gagnrýnir Akraneskaupstað
AKRANES - SAFNIÐ Á AKRANESI - MYNDIR OG KORT
AKRANES - SÖFN
Á milli Hvalfjarðar og Leirárvoga 6500 manna þorp Akraneskaupstaður eða Skipaskagi sem stendur á vesturodda Akraness á Vesturlandi.
Líklega er safnið á Akranesi þekktast fyrir þennan gamla uppgerða bát hér. Kútter Sigurfari, 86 smálesta eikarseglskip. Kútterinn er sá eini sem hefur verið varðveittur úr fyrri tíðar þilskipastóli Íslendinga og færður í upprunalegt horf, til minja um merkilegan kafla í skipa- og útgerðarsögu Íslands, skútuöldina. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

The Akranes Museum. Among the museum’s more notable relics of early seafaring is a 125 year old fishing boat with full rigging, as well as the cutter “Sigurfari”, an 86 tonne oak ship of 1885, the only fishing vessel of its kind preserved in Iceland. The Akranes Museum - Görðum Akranes (to view gallery: click image) (C)2009 Kjartan P. Sigurðsson
Hér má sjá gamalt trésmíðarverkstæði (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

The museum has a large collection of mostly 19th century tools and household objects that bear witness to farming, housekeeping and social conditions in the township and vicinity of Akranes. The Akranes Museum - Görðum Akranes (to view gallery: click image) (C)2009 Kjartan P. Sigurðsson
Á safninu á Akranesi má sjá mikið úrval af tólum og tækjum sem læknar og ljósmæður notuðu hér fyrr á árum. _ Various tools for doctors in The Akranes Museum - Görðum Akranes (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

The Akranes Museum. The museum has also rebuilt Iceland’s oldest concrete house, built in 1876 -1882, as well as the township’s oldest timber family house of 1875. - Görðum Akranes (to view gallery: click image) (C)2009 Kjartan P. Sigurðsson
Akranes er þekkt fyrir fiskveiðar og sjósókn. Á safninu á Akranesi má finna mikið magn af veiðafærum og búnaði frá fyrri tíð. Meðal annarra merkra gripa er gott úrval sjóminja, skipslíkön, áraskip frá árinu 1874, fallbyssa af varðskipi og togvíraklippur úr þorskastríðum Íslendinga við Breta. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

The Akranes Museum. The museum has also rebuilt Iceland’s oldest concrete house, built in 1876 -1882, as well as the township’s oldest timber family house of 1875. - Görðum Akranes (to view gallery: click image) (C)2009 Kjartan P. Sigurðsson
Hér má svo önnur blogg frá mér um Akranes http://photo.blog.is/blog/photo/entry/284603/
Hér má svo lesa nánar um Akranes http://is.wikipedia.org/wiki/Akranes
Hér má sjá kort af Akranesi, Akrafjalli og hvar safnasvæðið er (smellið á mynd til að sjá fleirri myndir)

Map of Akranes, a small fishing town on vest coast of Iceland (to view more picture: click image) (C)2009 Kjartan P. Sigurðsson
![]()
Kjartan
WWW.PHOTO.IS
Byggðasafn Akraness Görðum safn Safnaskálinn Jóns M. Guðjónssonar sóknarprestur kirkjustaður prestssetur sveitarfélög Skarðsheiði Akraneskaupstaður munir búskaparhættir saga áhöld læknir ljósmóðir eldsmiðja gamlar bifreiðar og smíðatól smiður handverksmenn ljósmyndun ljósmyndatækni kvikmyndatækni póst símamál afþreying Kútter Sigurfari eikarseglskip þilskipastóli Íslendingar skipasaga útgerðarsaga Íslands skútuöld sjóminja skipslíkön áraskip fallbyssa varðskip togvíraklippur þorskastríð Bretar Safnasvæðið Byggðasafn Akraneskaupstaður Skipaskagi Hvalfjarðar Leirárvoga Akrafjall Akraneshrepps Skilmannahrepps þéttbýli sjósókn verslun Ytri-Akraneshreppi en sveitin inn með Akrafjalli að Innri-Akraneshreppi Ytri-Akraneshreppur Akraneskaupstaður sjávarútvegur iðnaður sementsverksmiðja Grundartanga Faxastígur Knattspyrna Í Hvalfjarðargöngin Akraborgin History fishing village aluminum smelting plant fishing industry town industry transportation Hvalfjörður underwater road tunnels Icelandic football league Akranes, IA, museum The Akranes Museum collection tools household farming housekeeping social conditions township vicinity
Fært undir Ferðalög, Fjölmiðlar, Kvikmyndir, Ljósmyndun, Menning og listir, Nám, Stjórnmál, Tækni og vísindi, Umhverfi, Umræðan þann 20. apríl 2009 af photo | 0 ummæli
ÞINGMENN ÞURFA MEIRA KYNLÍF TIL AÐ ÖRVA ÞINGSKÖP!
Stórauknar líkur á stuttu kjörtímabili
ÞINGMENN ÞURFA MEIRA KYNLÍF TIL AÐ ÖRVA ÞINGSKÖP!
Ef Þingheimur Alþingis Íslendinga hefði verið svona sprækur eins og þessi gamli Ef Þingheimur Alþingis Íslendinga hefði verið svona sprækur eins og þessi gamli maður hér, að þá væri þjóðin örugglega í betri málum í dag. Þess í stað er verið að rífast og karpa um hvort að það eigi að banna súludans hjá Geira i Goldfinger eða hvort einhver bóndi austur á fjörðum megi hafa hreindýrakálf í garðinum hjá sér.
http://uk.reuters.com/news/video?videoId=102037
En núna eru að koma kosningar og það grátlega við þær er að í raun er verið að kjósa 63 þingmenn ásamt fullt af aðstoðarmönnum í 109 daga sumarfrí!
Ég bara spyr, því þarf allan þennan fjölda af ráðherrum, þingmönnum, aðstoðarmönnum, ráðuneytum, sendiráðum og ríkisstofnunnum … og síðast þegar ég vissi hátt í 800 nefndir til að stjórna 320 þúsund manna þjóðfélag?
Á eyjunni Fjóni (Fyn) í Danmörku býr svipaður fjöldi af fólki. Ég er ansi hræddur um að margir myndu reka upp stór augu ef þeir sæju annað eins bruðl og vitleysu þar eins og er látið viðgangast á Íslandi.
Ég er á því að þetta sé aðeins of mikill lúxus. Er ekki bara allt þetta lið á fullu í því að hossa hvert öðru.
Annars var ég á skemmtilegum kosningafundi í Jónshúsi í gær og voru þingmenn flestra flokka mættir á staðin. Þetta er í fyrsta skiptið sem að ég fer á svona fund og verð ég að segja að þetta hafi bara verið hin ágætasta skemmtun þegar upp var staðið. Fróðlegt væri að vita til hvers þarf svo að senda fullt af liði á Norðurlandaráð með tilheyrandi dagpeningum og hóteluppihaldi og að sjálfsögðu allur kostnaður greiddur að auki þó svo að lögin kveði á um annað! En fundur Norðurlandaráðs var víst í gangi sömu dagana í Köben.
![]()
Kjartan
WWW.PHOTO.IS
Fært undir Alþjóðamál, Efnahagur, Ferðalög, Fjölmiðlar, Heilbrigði, Kvikmyndir, Menning og listir, Nám, Slúður, Umhverfi, Umræðan, Íþróttir þann 18. apríl 2009 af photo | 0 ummæli
Er Ísland með fallegustu náttúru í heimi?
Vaxtarmöguleikar í vanræktum greinum
Er Ísland með fallegustu náttúru í heimi?
Arab Republic of Egypt
جمهورية مصر العربية
Gumhūriyyat Miṣr al-ʿArabiyyah
The White Desert National Park, Bahariya Oasis, Egypt
BLESSUÐ SÓLIN ELSKAR ALLT Í EGYPTALANDI
Ég varð þeirra ánægju aðnjótandi að fá að upplifa sólsetur, sólarupprás, fullt tungl og stjörnubjartan himin í Egyptalandi fyrir stuttu. Fyrst varð ég vitni að því þegar sólin settist á alveg á hreint ótrúlegum stað og síðan náði ég að vakna snemma næsta morgun og verða vitni að sólarupprás. Staðurinn var hreint ævintýri líkastur og draumastaður fyrir þá sem hafa áhuga á að taka myndir.
Ég varð þeirra einstöku upplifunar aðnjótandi að fá að sofa eða vaka úti undir berum himni, skjálfandi úr kulda, lengst úti í Sahara eyðimörkinni, með alla þá guðs dýrð sem núna ber fyrir augunum og eftirfarandi myndir sýna. Það er greinilega víða til falleg náttúra en bara á Íslandi!
Það er alveg með ólíkindum að þessi klettur skuli geta staðið einn og óstuddur. Vindur og sandur hafa líklega í sameiningu mótað og formað þennan klett. Eins og Sjá má, þá er ekki mikið eftir. Staðurinn er á stað sem kallast The White Desert. En þar má finna ótrúlegar kalkmyndannir sem hafa myndast á löngum tíma. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

A 4×4 desert Safaris in Egypt and Evening walk in Sunset in The White Desert or Mushroom Desert in National Park, Bahariya Oasis, Egypt. A Big, Giant Mushrooms made of agabat rocks. (to view gallery: click image) (C)2009 Kjartan P. Sigurðsson
Spurning hvort að það þurfi að styðja við þennan hnullung. En líklega hefur hann staðið óstuddur í nokkuð marga mannsaldra. Skuggamynd með sólsetur í baksýn. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

A shadow picture. A 4×4 desert Safaris in Egypt and Evening walk in Sunset in The White Desert or Mushroom Desert in National Park, Bahariya Oasis, Egypt. A Big, Giant Mushrooms made of agabat rocks. (to view gallery: click image) (C)2009 Kjartan P. Sigurðsson
Hér er hver kletturinn öðrum fegurri. Það er nánast sama hvert litið er (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

A shadow picture. A 4×4 desert Safaris in Egypt and Evening walk in Sunset in The White Desert or Mushroom Desert in National Park, Bahariya Oasis, Egypt. A Big, Giant Mushrooms made of agabat rocks. (to view gallery: click image) (C)2009 Kjartan P. Sigurðsson
Náttúran getur stundum verið mögnuð. Líklega er þessi sveppur búinn að standa lengi. Hvítur kalksteinn. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

A main geographic attraction of Farafra is its White Desert (known as Sahara el Beyda, with the word sahara meaning a desert). The White Desert of Egypt is located 45 km (30 miles) north of Farafra. The desert has a white, cream color and has massive chalk rock formations that have been created as a result of occasional sandstorms in the area. The Farafra desert is a typical place visited by some schools in Egypt, as a location for camping trips. (to view gallery: click image) (C)2009 Kjartan P. Sigurðsson
Á wikipedia má lesa nánar eftirfarandi þaðan sem fyrrgreindar upplýsingar eru fengnar (enska).
Gæti hugsast að þessi unga kona ætti eitthvað vandtalað við þennan stóra haus. Það fer allt eftir ímyndun hvers og eins hvaða form og myndanir er hægt að sjá út úr þeim náttúruvættum sem þarna eru. Ég er ekki frá því að þetta sé mynd af Steingrími Hermanssyni fyrrum forsætisráðherra. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

The Calcium rich White Desert was once a sea bed and the fantastic shapes are created by sand, wind and water erosion. white desert I giant rock formation talking to a young women. The White Desert National Park, Sunset, Bahariya Oasis, Egypt (to view gallery: click image) (C)2009 Kjartan P. Sigurðsson
Hér eru 3 vinkonur að mynda hvor aðra (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

The White Desert covers an area of about 6,000 square kilometers and lies 500 km southwest of Cairo. (to view gallery: click image) (C)2009 Kjartan P. Sigurðsson
Hér horfir ung dama á sólina setjast niður út við sjóndeildarhringinn. Við hlið hennar er tröllaukin haus (Steingrímur Hermannsson). (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

The White Desert National Park, Sunset, Bahariya Oasis, Egypt (to view gallery: click image) (C)2009 Kjartan P. Sigurðsson
Ég lofa að gera betur grein fyrir þessu svæði í 2-3 bloggum til viðbótar.
![]()
Kjartan
WWW.PHOTO.IS
Hér má svo sjá önnur blogg úr sömu ferð:
Blogg um flug með loftbelg sem Hassan útvegaði má svo sjá hér ásamt meiru:
Hluti-I http://photo.blog.is/blog/photo/entry/815725/
Hluti-II http://photo.blog.is/blog/photo/entry/816250/
Hluti-III http://photo.blog.is/blog/photo/entry/818496/
Hluti-4 http://photo.blog.is/blog/photo/entry/819322/
Skólahald í Egiptalandi http://photo.blog.is/blog/photo/entry/847341/
NEFERTITI DROTTNING http://photo.blog.is/blog/photo/entry/843600/
Fært undir Alþjóðamál, Efnahagur, Ferðalög, Fjölmiðlar, Jarðfræði, Ljósmyndun, Menning og listir, Umhverfi, Umræðan þann 9. apríl 2009 af photo | 2 ummæli
EGYPTALAND - SKÓLAHALD - MYNDIR
EGYPTALAND - SKÓLAHALD - MYNDIR
Arab Republic of Egypt
جمهورية مصر العربية
Gumhūriyyat Miṣr al-ʿArabiyyah
Luxor - Abydos Temple, Dendera Temple 16. Feb. 2009 Mánudagur - kl. 7 til 17
Þennan dag stóð til að fara á tvo staði, Abydos Temple og Dendera Temple. Við vorum búin að semja við Hassan vin okkar að fá akstur + leiðsögn á 300 egypsk pund, en slík ferð kostar venjulega 500 - 600.
Ég vaknaði snemma þennan morgun. Ég vissi að skólahald myndi hefjast á ákveðnum tíma með tilheyrandi uppákomum á skólalóð við hliðina á hótelinu sem að ég gisti á. En við hliðina á hótelinu var barnaskóli og í honum voru eingöngu stúlkur. Það var magnað að horfa á skipulagið og agann sem ríkti greinilega á svæðinu og læt ég myndirnar tala sínu máli. Hér gengur skólastýran með prik á milli nemenda til að koma aga á hópinn (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

A children school close to Hótel Bob Marley (Hotel Sherif) in Luxor, Egypt. (to view gallery: click image) (C)2009 Kjartan P. Sigurðsson
Á meðan nemendur streymdu að og gerðu sig klár fyrir skólahaldið, að þá hljómaði upplestur og söngur úr kóraninum með miklum látum yfir allt svæðið. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

The Egyptian educational system is highly centralized, and is divided into three stages: Basic Education (Arabic: al-Taʿaleem al-Asassī), Primary Stage, Preparatory Stage, Secondary Education (Arabic: al-Taʿaleem al-Thanawī), Post-Secondary education (Arabic: al-Taʿaleem al-Gammeʿī). A children school close to Hótel Bob Marley (Hotel Sherif) in Luxor, Egypt. (to view gallery: click image) (C)2009 Kjartan P. Sigurðsson
Á meðan þurftu nemendur að klappa og syngja í takt og máta reglulega hvort að röðin væri í lagi með því að leggja hendur á þann nemanda sem er fyrir framan til að fjarlægðin yrði rétt. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

A children school close to Hótel Bob Marley (Hotel Sherif) in Luxor, Egypt. (to view gallery: click image) (C)2009 Kjartan P. Sigurðsson
Klappa saman höndunum og syngja. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Clap Your Hands Say Yeah. A children school close to Hótel Bob Marley (Hotel Sherif) in Luxor, Egypt. (to view gallery: click image) (C)2009 Kjartan P. Sigurðsson
Röðin og klæðnaðurinn þarf að vera rétt, allt undir ströngu eftirliti kennaranns (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

School uniforms are common in primary and secondary schools in many nations. A children school close to Hótel Bob Marley (Hotel Sherif) in Luxor, Egypt. (to view gallery: click image) (C)2009 Kjartan P. Sigurðsson
Nánar má lesa nánar um skólaklæðnað / More about school uniform:
http://en.wikipedia.org/wiki/School_uniform
Fyrir hverjum hópi mátti svo sjá nema sem voru útvaldir og höfðu líklega það hlutverk að passa upp á sinn hóp. En þarna mátti sjá þær sem voru yfir hverjum hóp ganga í skrúðgöngu með tilheyrandi látbragði. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

A children school close to Hótel Bob Marley (Hotel Sherif) in Luxor, Egypt. (to view gallery: click image) (C)2009 Kjartan P. Sigurðsson
Nánar má lesa um nám í Egyptalandi hér / Education in Egypt:
http://en.wikipedia.org/wiki/Education_in_Egypt
![]()
Kjartan
WWW.PHOTO.IS
Hér má svo sjá önnur blogg úr sömu ferð:
Blogg um flugið sem Hassan útvegaði má svo sjá hér:
Hluti-I http://photo.blog.is/blog/photo/entry/815725/
Hluti-II http://photo.blog.is/blog/photo/entry/816250/
Hluti-III http://photo.blog.is/blog/photo/entry/818496/
Hluti-4 http://photo.blog.is/blog/photo/entry/819322/
Fært undir Alþjóðamál, Efnahagur, Ferðalög, Fjölmiðlar, Heilbrigði, Ljósmyndun, Menning og listir, Nám, Stjórnmál, Trúarbrögð, Umhverfi, Umræðan, Íþróttir þann 7. apríl 2009 af photo | 0 ummæli
KÍNAFERÐ - FERÐAMANNAÞORPIÐ Zhu Jia Jiao, Quingpu
KÍNAFERÐ - FERÐAMANNAÞORPIÐ Zhu Jia Jiao, Quingpu - 14
Dagur - 14 / Day - 14 Fimmtudagur 1. jan. 2009
Zhu Jia Jiao, Quingpu China, Kína, The People’s Republic of China (中华人民共和国, 中華人民共和國)
Þar sem ferðasagan frá Kína var ekki lokið, að þá kemur framhald hér með fullt af nýjum myndum:
Dagurinn byrjaði með því að fara með lest á Stadium, en Heng vildi kynna sér aðstæður fyrir næstu samkeppni sem við vorum að spá í að taka þátt í. Hún plataði mig síðan rækilega. Sagði að við þyrftum að fara og kanna þorp fyrir utan borgina sem þyrfti að endurskipuleggja (kom svo í ljós að það var rétt að sumu leiti) og til þess þurfti að taka tvo strætisvagna. Sá fyrir var frekar hrörlegur og bílstjórinn skoraði ekki hátt fyrir stórhættulegt aksturslag. Ef vélin var ekki á yfirsnúning, þá var stigið svo harkalega á bremsuna að fólkið í vagninum mátti hafa sig alla við að halda sjó í látunum.
Næst komum við í nýlegt þorp (ca. 600.000 íbúar) og fórum við inn á lítinn veitingastað þar sem hitastigið var líklega við frostmark. Fengum okkur hádegismat sem voru súpur þar sem mátti finna í þurkaða svínapuru og svínamaga. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

To keep food fress in China, the best way it to keep it live! A small resturant in town on way to Qingpu District (青浦区) district of Shanghai Municipality, China. There we got a delicious soup which include stomage and skin from pig! (to view gallery: click image) (C)2009 Kjartan P. Sigurðsson
Næst var haldið aftur út á götuna þar sem reynt var að finna vagn sem færi áfram á staðinn sem Heng var með í huga. Það gekk ekki þrautalaust fyrir sig, enda allir vagnar troðnir út úr dyrum. Hér var ekki annað að gera en að treysta á frumskógarlögmálið og á milli þess sem að við hlupum á milli vagna, eltu okkur 2-3 betlarar. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

In China they can easily handle rush-hour loads, they only put more people into the bus! A overloaded bus in town on way to Qingpu District (青浦区) district of Shanghai Municipality, China. (to view gallery: click image) (C)2009 Kjartan P. Sigurðsson
Að lokum komumst við inn í vel troðin strætó. Þar var ung og falleg kona sem réði þar ríkjum (ásamt bílstjóra) þar sem hún reyndi sem best hún gat að troða sem flestum inn í vagninn á hverri stoppustöð og alltaf tókst henni að troða fleirrum. Hún lét mig snúa mér 180° svo að það raðaðist betur inn í vagninn. Á meðan tróð hún sér á milli með seðlabúntið í annarri og rukkaði stíft með hinni. Gengið virtist vera mismunandi eftir því hver átti í hlut og rukkaði hún mig meira en aðra og líklega út af því að hún hefur séð að ég væri útlendingur. Ég skildi annars ekki orð af því sem að hún sagði. Þetta var annars mögnuð upplifun og náði ég videói af atburðinum og þessari óvenjulegu nálægð sem að ég lenti í við fjölda fólks. Ég mæli ekki með þessari reynslu fyrir þá sem þjást af innilokunarkennd.
Hér er myndband sem að ég tók á síman hjá mér sem sýnir þegar aðstoðarkonan í vagninum fer á milli farþega og rukkar þá:
http://www.youtube.com/watch?v=uPrgqlfqZkM
Hálftíma síðar var þrýstingnum létt og við bárumst út úr vagninum með mannhafinu. Núna vorum við komin í gamalt þorp með þröngum götum.
Það fyrsta sem tók á móti okkur voru nokkrir dansandi kjúklingar sem búið var að hengja upp á þvottasnúru til þerris innan um annan nærfatnað. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

It is winter, it is cold the trip with overloaded bus to the town Zhu Jia Jiao, Quingpu, Zhujiajiao. The first to see was a strange things: 14 chicken legs hanging for drying on the washing lines with some bra and knickers! (to view gallery: click image) (C)2009 Kjartan P. Sigurðsson
Þetta var eins og að ferðast aftur í tímann. Þarna var allt orginal með gömlum húsum og allt var troðið af fólki! Í ljós koma að þetta var ferðamannaþorpið Zhu Jia Jiao með hundruðum smáverslanna í þessum þrögnu götum. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

It was like going back in time. An old orginal Chines town, which now is very popular for the tourist to visit. Town Zhu Jia Jiao, Quingpu, Zhujiajiao. (to view gallery: click image) (C)2009 Kjartan P. Sigurðsson
Hér er verið að baka risa pönnukökur. En það er gert á stórri eldavélahellu sem snýst á meðan skafið er með sköfu til að gera pönnukökuna þunna. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Chinese Super Size thin pancake. Jian bing guo zi is a breakfast fast food sold on the streets of China (煎餅). (to view gallery: click image) (C)2009 Kjartan P. Sigurðsson
Ferðamönnum var jafnframt boðið og að sigla með gondólum með undirspili með rómantískri tónlist um síkin sem lágu allt um kring. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Boat trip in Zhou Zhuang close to Shanghai in China. (to view gallery: click image) (C)2009 Kjartan P. Sigurðsson
Þarna var mikið úrval af mat og öðru góðgæti ásamt flottu handverki. Heng viðurkenndi að hún hefði verið að plata mig, það átti EKKI að fara að leggja þennan stað niður og hanna einhverja stórborg í staðin, að vísu átti að hanna stórborg á stórt akursvæði sem tengja átti þetta litla þorp við borgina sem að við vorum ný komin frá! Næstu klukkutímarnir fóru síðan í að skoða ótrúlegt mannlíf og skraut.
Heng keypti lifandi fiska og skjaldböku sem hún henti svo í kanalinn fram af hárri göngubrú. Áður þurfti hún að labba hring í kringum tákn á miðri brúnni. Á meðan pössuðu 2 gamlar konur upp á að allt færi fram samkvæmt ritualinu. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Heng is throwing turtle and fish into the canal in town Zhu Jia Jiao, Quingpu, Zhujiajiao in China. (to view gallery: click image) (C)2009 Kjartan P. Sigurðsson
Þar sem lífeyrirskerfið er ekki sterkt í Kína, að þá þarf mikið að fólki að finna sér aðrar aðferðir til að komast af. Her er ein gömul kona að biðja um smá aur og bregst Heng vel við beiðni hennar. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Old women in town Zhu Jia Jiao, Quingpu, Zhujiajiao in China. (to view gallery: click image) (C)2009 Kjartan P. Sigurðsson
Heimferðin var allt annar lúxus, fundum nýlega rútu sem var öll í leðri og flottheitum. Ferðin byrjaði rólega og hafði ég á orði að þessi bílstjóri kynni sko að keyra. En Adam var ekki lengi í paradís. Það færðist skyndilega mikið kapp í bílstjórann sem sönglaði hástöfum á milli þess sem hann byrjaði að æpa á farþeganna um að drífa sig nú fljótt inn eða út úr rútunni. En það var stoppað víða til að safna fólki í rútuna og það sem verra var að hann var í kappakstri við aðra rútu við að ná sem flestum farþegum inn á leiðinni og skiptust rúturnar um foristuna. Það kemur manni ekki á óvart að maður varð vitni að 2-3 árekstrum á dag. Líklega mætti bæta umferðarmenninguna töluvert en flautan er mikið notað samskiptsatæki í umferðinni.
Kvöldið endaði svo með ENN EINU MATARBOÐINU. Það var eitthvað um 20 réttir og má þar nefna lifandi rækjur í sojasósu, sterkt vín með sporðdreka, þunnar sneiðar í raspi.
En hér má svo sjá tillögur sem að við sendum inn í keppni sem tengdist gagnaöflun í þessari ferð:
Green Water City, Shanghai Qingpu New City West Region International Competition of Conceptual Urban Design

(C)2009 Heng Shi & Kjartan P. Sigurdsson (click image to enlarge picture - smellið á mynd til að stækka mynd)
Green Water City, Shanghai Qingpu New City West Region International Competition of Conceptual Urban Design

(C)2009 Heng Shi & Kjartan P. Sigurdsson (click image to enlarge picture - smellið á mynd til að stækka mynd)
Green Water City, Shanghai Qingpu New City West Region International Competition of Conceptual Urban Design

(C)2009 Heng Shi & Kjartan P. Sigurdsson (click image to enlarge picture - smellið á mynd til að stækka mynd)
Green Water City, Shanghai Qingpu New City West Region International Competition of Conceptual Urban Design

(C)2009 Heng Shi & Kjartan P. Sigurdsson (click image to enlarge picture - smellið á mynd til að stækka mynd)
![]()
Kjartan
WWW.PHOTO.IS
p.s. fyrir þá sem hafa áhuga á fleirri myndum, þá fór ég í ferð til Kína 2003 og þá sem ferðamaður og leiðsögumaður.
http://www.photo.is/kina/index.html
Fært undir Alþjóðamál, Efnahagur, Ferðalög, Fjölmiðlar, Ljósmyndun, Matur og drykkur, Menning og listir, Nám, Samgöngur, Stjórnmál, Tækni og vísindi, Umhverfi, Umræðan þann 9. mars 2009 af photo | 0 ummæli
LOFTBELGUR Í EGYPTALANDI
LOFTBELGUR Í EGYPTALANDI
Arab Republic of Egypt
جمهورية مصر العربية
Gumhūriyyat Miṣr al-ʿArabiyyah
Luxor - Flug með loftbelg - Mannlífið í Lúxor séð úr lofti! Hluti-I 15. Feb. 2009 Sunnudagur kl. 5 til 9 … sólin að koma upp.
Það vill svo til að ég og konan erum ný komin úr ferð frá Egyptalandi. Þó að það sé mikið til af spilltum stjórnmálamönnum (eins og þeir sem verið er að ræða um í fréttinni), að þá er margt þar merkilegt að sjá fyrir ferðamenn.
Upphaf þessa bloggs er að ég las fyrir stuttu skemmtilega sögu frá Ómari Ragnarssyni um hrakfarir hans í sínu fyrsta flugi með loftbelg.
Minnir mig á skelfileg augnablik.
Sagan Ómars rifjaðist upp fyrir mér þegar mér var boðið í slíkt flug í Egypska bænum Lúxor fyrir stuttu af eineygðum og vægast sagt sérkennilegum hótelhaldara, Hassan að nafni (hægt að skrifa heila bók um karlinn).
Upphaflega átti ferðin að kosta 350 egypsk pund, en eftir skemmtilega rimmu við tvo hóteleigendur sem voru að bítast um okkur, að þá fengum við ferðina lækkaða niður í 200 egypsk pund á mann og umræddur Hassan endurgreiddi konunni minni 300 pund til baka þá um kvöldið og í kjölfarið grét hann stórum krókódílatárum og hélt mikla ræðu um hvað hann væri slæmur maður. En kvöldið var hin ágætasta skemmtun og verður lengi í minnum haft.
Loftbelgurinn átti að fljúga snemma næsta morgun yfir hluta af bænum Luxor sem liggur ofarlega upp með Nílarfljóti yfir á svæði sem oft er nefnt “staður hinna dauðu”! (þar sem sólin sest, vestan við ánna). Austan megin við ánna er svo bærinn Luxor (staður hinna lifandi þar sem sólin kemur upp).
Við þurftum að vakna kl. 5:00 og vera mætt á hótel Venus fyrir kl. 5:30 (Hótel Venus sem Hassan á sem að ég kalla oft Hótel Viagra). Þegar við komum niður í anddyrið á hótelinu okkar (Hótel Bob Marley House Hostel), að þá lágu þar 4 sofandi manneskjur. Ekki vildum við vekja neinn svo að við læddumst út á götu til að finna leigubíl (10 egypsk pund). Við komum tímalega á Hótel Venus þar sem rútubíll ók okkur svo áfram um borð í bát sem beið eftir okkur. Í bátnum var uppábúið borð með te og kaffi ásamt meðlæti sem gestir fengu á meðan siglt var með hópinn yfir ánna Níl. Í okkar hóp voru að mestu þjóðverjar frá skemmtiferðarskipi sem siglir reglulega með stóra hópa upp og niður Níl.

At 5:30 in the morning. A boat trip over Nile river to west bank at town Luxor in Egypt. On way to an Adventure Hot Air Balloon trip. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Hinu megin við ánna biðu svo litlar rútur eftir okkur sem keyrðu á mikilli ferð með okkur í átt að fjöllunum (Valley of the Kings and Valley of the Queens) þar sem um 500 grafir (Tomb, 4-5000 ára gamlar) eru ásamt nokkrum þekktum hofum. Ekið var að stóru bílaplani þar sem verið var að gera risastóran loftbelg kláran til flugs.
Loftbelgurinn lá á hliðinni og sáu fjórir stórir gasbrennarar um að hita upp loftið inn í belgnum. Byrjað var á því að fara yfir öryggisatriði varðandi flugtak og lendingu ásamt því að finna út þyngd á farþegum.

Egypt sunshine Hot Air Ballooning trips over town Luxor. Early in the morning heating up the air so the balloon can fly over the area of West Bank of Luxor. Flying over Valley of the Kings and Valley of the Queens (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Hér er belgurinn búinn að lyfta sér upp og að verða klár. Það þarf mikið af fólki til að halda svona útgerð gangandi eins og sjá má á myndunnum.

Egypt sunshine Hot Air Ballooning trips over town Luxor. Early in the morning heating up the air so the balloon can fly over the area of West Bank of Luxor. Flying over Valley of the Kings and Valley of the Queens (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Fljótlega varð loftbelgurinn klár og um 20 manna hópur kom sér fyrir í stórri körfunni. Flugtakið tókst vonum framar og liðum við í hægum morgunvindinum rólega upp í loftið á meðan flugmaðurinn hitaði loftið í belgnum.

Soon the Air Balloon trip could start when the air was getting hot enough to lift up those 20 people. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Hér er svo loftbelgurinn komin á loft og eins og sjá má, þá eru fjöldi starfsmanna sem veifa

Hot air balloon flying is one of the oldest successful human-carrying flight technology. Around 20 people in the balloon basket. Total around 2 ton incl. basket! (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Hér er mynd sem að ég tók af einu frægasta hofi Egypta Deir el-Bahri, Djeser-Djeseru – Hatshepsut’s temple. Hofið er gert fyrir konu. Árið 1997 voru 58 ferðamenn og 4 Egyptar drepnir af öfgafullum trúmönnum. Drápin höfðu mjög slæm áhrif á ferðaþjónustu Egypta í mörg ár á eftir.

Deir el-Bahri, Djeser-Djeseru – Hatshepsut’s temple. In 1997, 58 tourists and 4 Egyptians where killed in this place. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Hægt er að lesa meira um þetta fræga hof hér:
http://en.wikipedia.org/wiki/Deir_el-Bahri
Við vorum greinilega ekki þau einu sem voru að fara snemma í loftið á loftbelg þennan morgunninn. Hér má sjá 9 loftbelgi taka í loftið á sama tíma. Líklega hafa verið um ca. 20 loftbelgir sem tóku í loftið þennan morguninn.

Luxor is one of the most popular tourist place in Egypt. Nowadays it is very save to fly with an air ballon. Luxor area is probably one of the best you can find to make a save balloon flying. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Við flugum í aflíðandi boga yfir nokkur hof og svo þorpið í átt að ánni Níl og síðan upp með ánni að vestan verðu. Sólin var að koma upp og greinilegt að fólkið í þorpinu var að vakna til lífsins. Hænur og önnur húsdýr voru á vappi á meðan bændur og búalið voru í óða önn að sinna morgunverkum. _
Í landi sem aldrei rignir, þá þarf varla að hafa áhyggjur af því að setja þak á húsið. En eins og sjá má á mörgum myndum, að þá er venja að ein hæð sé ókláruð á hverju húsi fyrir næsta fjölskyldumeðlim.

In country where you never get rain you have no need for roof. In muslim country you have always on floor ready for new family member. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Hér þarf líklega einn að taka aðeins til hjá sér. Það er ekki bara á Ísland sem hægt er að finna einhvern bónda sem nennir ekki að taka til mikið heima hjá sér.

One messy place. House on the west bank close to Luxor town. Picture taken from a hot air ballon tour. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Ég tók eitthvað um 400 myndir í þessari flugferð. Verð því að reyna að dreifa þessu myndabloggi á 2-3 blogg til að reyna að gera því góð skil
![]()
Kjartan
WWW.PHOTO.IS
p.s. þessar myndir voru unnar með nýrri tækni svo að litir, skerpa og fl. gæti verið smá vandamál. Einnig var sólin að koma upp sem gerir svona myndatöku pínu erfiða. Sumar myndir líta út fyrir að vera teknar í björtu snemma að morgni, en svo er ekki, það var mjög dimmt þegar flugið hófst. En með góðum stafrænum myndavélum, þá er hægt að lýsa upp svona dökkar myndir.
Fært undir Alþjóðamál, Efnahagur, Ferðalög, Fjölmiðlar, Flug, Ljósmyndun, Menning og listir, Nám, Samgöngur, Stjórnmál, Trúarbrögð, Umhverfi, Vinir og fjölskylda þann 27. febrúar 2009 af photo | 0 ummæli
KÍNAFERÐ - SHANGHAI - KVÖLDMYNDIR - ÁRAMÓT - 13
KÍNAFERÐ - SHANGHAI - KVÖLDMYNDIR - ÁRAMÓT - 13
Dagur - 13b / Day - 13b Miðvikudagur 31. des. 2008
Shanghai: Shēnchéng (申城, “City of Shēn”), China, Kína, The People’s Republic of China (中华人民共和国, 中華人民共和國)
Shanghai borg er mjög falleg á kvöldin þegar farið er að dymma. Hér er tákn borgarinnar, Orient Pearl TV Tower, sem verður eins og ljósasjóv á kvöldin

Shanghai Oriental Pearl TV Tower (上海东方明珠塔). Located at the tip of Lujiazui in the Pudong district, by the side of Huangpu River, opposite The Bund of Shanghai. It was designed by Jia Huan Cheng. Construction began in 1991 and the tower was completed in 1995. At 468 m (1,535 feet) high, it is the tallest tower in Asia, and the third tallest tower in the world. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Hér eru 2 hæstu byggingar borgarinar Shanghai World Financial Center og Shanghai Jinmao Observatory 88 Jin Mao Tower

Shanghai World Financial Center - 上海环球金融中心 - 1997-2008 - Designed by Kohn, Pedersen & Fox and East China Architectural Design & Research Institute Co. Ltd, the Shanghai World Financial Center. Highest building in China reaching 1614ft (491,9m). Shanghai Jinmao Observatory 88 Jin Mao Tower (金茂大厦), Lujiazui, Pudong, Shanghai 1998 Skidmore, Owings & Merrill - SOM Architects 420m high, 88 storey skyscraper Incorporating offices + Grand Hyatt Hotel with thirty storey high atrium Jin Mao Shanghai building : Tallest building in China since 2005 Seventh tallest building in world at time of writinger. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Og nokkrir turnar til viðbótar. Merkilegt hvað allt þetta svæði hefur náð að byggjast upp á aðeins 15 árum

Shanghai Night pictures. And few more towers in the Pudong district in Shanghai China. High-rise building at night. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Hér er ég komin hinu megin við ánna Hunagpu River og það fyrsta sem fyrir augum ber, er stór bátur með risa auglýsingaskilti

Shanghai Night pictures. Night Cruise on the Huangpu River. Shanghai skyline in the background. A boat-trip on Huang-Pu-river in Shanghai at night, between The Bund and Pudong. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
En fallegust er borgarmyndin yfir fljótið Hunagpu River séð frá “The Bund” hverfinu við endan á verslunargötunni Nanjing Road (南京路 Nánjīnglù) sem er 4km löng með um 4.000 verslanir. Við endann á henni er svæði sem kallað er “Bund” og oft kallað Wall Street Shanghai.

Shanghai at night. Shanghai is one of the most modern and cosmopolitan cities in China. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Shanghai Night pictures (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Shanghai Night pictures. Panoramic picture of the Pudong district where Shanghai Oriental Pearl TV Tower, Shanghai World Financial Center and Shanghai Jinmao Observatory 88 Jin Mao Tower are the higest one. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
The HSBC Building in Bund the old part of Shanghai.

Shanghai Night pictures. The HSBC Building has been called “the most luxurious building from the Suez Canal to the Bering Strait” (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Hér er gosbrunnur á svæði sem heitir “Bund” sem er við endann á Nanjing Road við árbakkann the Huangpu River

Shanghai Night pictures of fountain on Bund with Orient Pearl TV Tower in background. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
![]()
Kjartan
WWW.PHOTO.IS
p.s. fyrir þá sem hafa áhuga á fleirri myndum, þá fór ég í ferð til Kína 2003 og þá sem ferðamaður og leiðsögumaður.
http://www.photo.is/kina/index.html
Tók jarðlest sem fór m.a. undir The Bund og ánna Hunagpu River og fjármálahluta borgarinnar þar sem sjónvarpsturninn frægi með kúlunum Orient Pearl TV Tower,
Fært undir Alþjóðamál, Efnahagur, Ferðalög, Fjölmiðlar, Ljósmyndun, Menning og listir, Samgöngur, Stjórnmál, Tækni og vísindi, Umhverfi, Umræðan þann 5. febrúar 2009 af photo | 0 ummæli
Næsta síða »


