Mögnuð sólarupprás - Egyptaland - Eyðimerkurferð - Bahariyya Oasis - Sahara.
Egyptaland - Eyðimerkurferð - Mögnuð sólarupprás - Bahariyya Oasis - Sahara.
Arab Republic of Egypt
جمهورية مصر العربية
Gumhūriyyat Miṣr al-ʿArabiyyah
Eyðimerkurferð - The White Desert National Park, Sunset, Bahariya Oasis, Sahara, Egypt 11. Feb. 2009 Þriðjudagur
Hér er framhald á ferðasögunni um eyðimörkina The White Desert í Egyptalandi sem má lesa nánar um hér / More about the trip to The White Desert in Egypt here:
SNJÓKARLAR Í EGYPTALANDI! http://photo.blog.is/blog/photo/entry/849122/
Hér er vaknað snemma næsta morgun til að geta náð myndum að sólarupprásinni á þessum magnaða stað. Þegar ég ætla að ná í myndavélina, að þá er bílinn læstur og leiðsögumaðurinn steinsefur hér undir teppinu úti undir berum himni. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Our guide sleeping in front of his car (to view gallery: click image) (C)2009 Kjartan P. Sigurðsson
Eftir að hafa vakið bílstjórann og endurheimt myndavélin, þá ákveð ég að ganga einn út í myrkri í átt að einhverjum þústum í næsta nágrenni. Seinna kemst ég að því að þessar þústir reynast vera eitt af táknum svæðisins og nefnist hæna og tré, hen and tree. Ég er tilbúinn með vélina uppstillta á þrífæti. En við miðbaug, þá er sólarupprás á nokkrum mínútum, ólíkt því sem gerist norðar og sunnar á hnettinum. Bjarminn af sólinni er þegar farin að sjást. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Hen and tree. Sunrise walking in The White Desert National Park, Bahariya Oasis, Egypt (to view gallery: click image) (C)2009 Kjartan P. Sigurðsson
Næst kemur uppáhalds skotið mitt í ferðinni. Hér er sólin að koma upp og náði ég að lauma mér inn á milli. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

My favor shot of hen and tree. Sunrise walking in The White Desert National Park, Bahariya Oasis, Egypt (to view gallery: click image) (C)2009 Kjartan P. Sigurðsson
Hér má sjá sama fyrirbæri frá hinni hliðinni (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Another picture of Hen and Tree on the sunny side. Sunrise walking in The White Desert National Park, Bahariya Oasis, Egypt (to view gallery: click image) (C)2009 Kjartan P. Sigurðsson
Ekki er ólíklegt að geimverur komi einnig til að skoða þetta merkilega svæði. hér hefur verið skilið eftir tákn um síðustu heimsókn. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

UFO, Alien or maybe ET! The Extra-Terrestrial from space! Sunrise walking in The White Desert National Park, Bahariya Oasis, Egypt (to view gallery: click image) (C)2009 Kjartan P. Sigurðsson
Víða má sjá spor í sandinum eftir ref eða önnur kvikindi eins og sporðdrekar, bjöllur, snákar. Auðvita svaf maður ekki vært þessa sömu nótt af tilhugsuninni einni um öll þessi dýr ráfandi um eyðimörkina. Hér má sjá leifar af mannaferðum. Strigaskór. Ætli eigandinn hafi ráfað lengi um eyðimörkina. Það var ekki laust við það að ég færi einnig að líta eftir beinagrindum eftir þennan merkilega fund. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

HELP! Here is someone lost in the Desert! Where are the bones? Are my lost in desert to? I hope I have my mobile phone within range so I can raised the alarm, contact my relatives in Iceland to tell them that I amlost in the desert! (to view gallery: click image) (C)2009 Kjartan P. Sigurðsson
Hér má sjá spor eftir ref. Refurinn hefur greinilega verið á sömu leið og ég. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Steps in the Desert Sands made by desert fox. I also finde some scarab beetle tracks. How do ants and animals find their way home in the desert? They both navigate by the sun and smell! I didn’t sleep well this night. I was thinking to much about the desert ants like scarab beetle and scorpion, (to view gallery: click image) (C)2009 Kjartan P. Sigurðsson
Það er svipað með sandinn og með sporin í snjónum. Þau hverfa næst þegar vindur blæs. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Track in the sand (to view gallery: click image) (C)2009 Kjartan P. Sigurðsson
Eftir að hafa borðað sama morgunmatinn í 3-4 daga. Fatbaka með osti og marmelaði. Það var haldið af stað til baka. En við litum á þennan hval sem hafði verið mótaður haganlega. Hvalurinn var holur að innan og hægt að ganga inn í hann. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

On way back to Bahariya Oasis we find this whale. Here we are exploding a whale made of calc stone in The White Desert National Park, Sahara, Egypt. Remember the children’s bible story of Jonah and the whale. Jonah was swallowed by the whale. (to view gallery: click image) (C)2009 Kjartan P. Sigurðsson
Eftir þessa æsilegu ferð um “The White Desert” í Sahara. Þá var ekið til baka ásamt öðrum jeppum á æsilegum hraða um auðnir eyðimerkurinnar. Það var ekki laust við að það rifjaðist upp fyrir manni svipuð keyrsla með ferðamenn um öræfi Íslands.
Hægt er að skoða tvö myndbönd af þeim glæfraakstri sem var viðhafður á heimleiðinni hér: / 4×4 High speed driving Safari in The White Desert National Park, Sahara on way back to Bahariya Oasis, Egypt (video):
http://www.youtube.com/watch?v=7gZ2ev0rJ0M
og
http://www.youtube.com/watch?v=EZqX5OIoMQk
![]()
Kjartan
WWW.PHOTO.IS
Hér má svo sjá önnur blogg úr sömu ferð til Egyptalands / Othere related stories from the same trip to Egypt :
Blogg um flug með loftbelg sem Hassan útvegaði má svo sjá hér ásamt meiru:
Hluti-I http://photo.blog.is/blog/photo/entry/815725/
Hluti-II http://photo.blog.is/blog/photo/entry/816250/
Hluti-III http://photo.blog.is/blog/photo/entry/818496/
Hluti-4 http://photo.blog.is/blog/photo/entry/819322/
Skólahald í Egiptalandi http://photo.blog.is/blog/photo/entry/847341/
NEFERTITI DROTTNING http://photo.blog.is/blog/photo/entry/843600/
Fært undir Óflokkað þann 13. apríl 2009 af photo | 0 ummæli
HÉR MÁ FELLA RÍKISSTJÓRNINA
Telja ólíklegt að vantrauststillaga verði samþykkt
HÉR ER ÉG BÚINN AÐ SETJA UPP KOSNINGAKERFI ÞAR SEM HÆGT ER AÐ GEFA EINSTÖKUM ÞINGMANNI VÆGI :)
EF RÍKISSTJÓRNIN ER EITTHVAÐ ERFIÐ, ÞÁ ER HÉR HÆGT AÐ GREIÐA ATKVÆÐI - NÚNA!
http://www.photo.is/rikisstjorn.html
Kjartan
WWW.PHOTO.IS
Fært undir Óflokkað þann 24. nóvember 2008 af photo | 0 ummæli

