FERÐ KVENNA YFIR VATNAJÖKUL - MYNDIR OG KORT
Konurnar komnar niður af Öræfajökli
FERÐ YFIR VATNAJÖKUL - MYNDIR OG KORT
FERÐ YFIR VATNAJÖKUL - TRIP OVER VATNAJÖKULL GLACIER
Ekki er ólíklegt að dömurnar hafi farið í skálanN á Grímsfjalli en vegalengdin þaðan í Tjaldaskarð er um 52 km. Frá JökUlheimum eru svo aðrir 50 km í Grímsvötn. Þannig að þær hafa verið búnar að leggja af baki um 100 km vegalengd. Ef einhverjir eru að huga að ferð á svipaðar slóðir á næstu dögum, að þá er gott að fara inn á
Sem dæmi, þá verður gríðarleg mikil ofankoma næstkomandi miðvikudag um kl. 3 og má þá búast við í nokkra daga á eftir geti verið mikið magn af púðursnjó á svæðinu og færi mjög erfitt. Hér má sjá skjáskot af veðrinu þennan dag í kringum Öræfajökul og suður hluta landsins (smellið á mynd til að fara inn á gamli.belging.is)

Wether map of Vatnajökull. Biggest glacier in Iceland placed on the east-coast of Iceland (to view more picture: click image) (C)2009 Kjartan P. Sigurðsson
Hér er horft upp eftir Svínafellsjökli, en í fjarska efst upp á brúninni er Tjaldskarði á Öræfajökli. Á þessum stað hlémegin við Hvannadalshnjúk getur verið gríðarlega mikil úrkoma og oft mjög erfitt færi. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

A view up the glacier tong Svinafellsjökul (to view gallery: click image) (C)2009 Kjartan P. Sigurðsson
Hér er komið nærri brúninni og má sjá hvernig skriðjökulinn lekur niður á milli fjallshrygga sem eru sinn hvoru meginn. Nokkurn vegin þarna efst á brúninni er staðurinn þar sem konurnar voru með tjöldin sín. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

A view up the glacier tong Svinafellsjökul (to view gallery: click image) (C)2009 Kjartan P. Sigurðsson
Hér má svo sjá mynd af svæðinu uppi á jöklinum með Öræfajökul og Hvannadalshnjúk í baksýn. Það var einmitt á þessum sama kafla sem færið fór að verða verulega erfitt fyrir mikið breytta bíla. Það var þó ekki fyrr en við komum niður á sléttuna fyrir neðan Hermannaskarðið að færið varð virkilega erfitt og var þá meðalhraðinn ekki nema 2-3 km/klst! Myndir af jeppaleiðangri sem farin var páskana svipaða leið (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

On top of glacier Vatnajökull close to Svinafellsjökul and Tjaldskarð (to view gallery: click image) (C)2009 Kjartan P. Sigurðsson
Hér er stoppað til að taka nokkrar myndir (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

A super 4×4 jeep trip over glacier Vatnajökull close to Svinafellsjökul and Tjaldskarð. Stop to make pictures (to view gallery: click image) (C)2009 Kjartan P. Sigurðsson
Ógleymanleg fegurð á fjöllum þegar veðuraðstæður eru eins og voru þetta kvöldið hjá okkur. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

A super 4×4 jeep trip over glacier Vatnajökull close to Svinafellsjökul and Tjaldskarð. Stop to make pictures (to view gallery: click image) (C)2009 Kjartan P. Sigurðsson
Hér má svo sjá kort af Vatnajökli, Öræfajökli, Hvannadalshnjúki og svo Tjaldskarði þar sem konurnar tjölduðu eftir 10 daga ferð á jöklinum (smellið á mynd til að sjá fleirri myndir)

Map of Vatnajökull glacier on south coast of Iceland (to view more picture: click image) (C)2009 Kjartan P. Sigurðsson
![]()
Kjartan
WWW.PHOTO.IS
Ferð yfir Vatnajökull - Trip over Vatnajökull Glacier http://photo.blog.is/blog/photo/entry/839736/
Vatnajökull Klofajökull þíðjökull Ísland Evrópa 8.100 km² meðalþykkt hans 400 metrar Saga jökull Eldvirkni Þjóðgarður rýrnun Klofajökull eldstöðvar Grímsvötn Öræfajökull Gjálp Gos jarðvísindamenn goshrina friðun Skaftafell Vatnajökulsþjóðgarður Glacier of Rivers largest glacier Iceland south-east Europe volume average thickness ice highest peak Hvannadalshnúkur 2110 m Skaftafell National Park ice cap glacier volcanoes Grímsvötn glacial lake outburst flood eruption ice age eruptions occurred under Vatnajökull subglacial tuyas Herðubreið shrinking climatic changes phenomenon Jökulhlaup Guinness World Records longest sight line Slættaratindur highest mountain Faroe Islands atmospheric refraction British sailor
Fært undir Ferðalög, Fjölmiðlar, Heilbrigði, Jarðfræði, Ljósmyndun, Samgöngur, Slúður, Umhverfi, Umræðan, Íþróttir þann 21. apríl 2009 af photo | 0 ummæli
DJÚPIVOGUR - PAPEY - SMYGLARAR - MYNDIR OG KORT
Smyglskútan leigð frá Belgíu - Myndir
DJÚPIVOGUR - PAPEY - SMYGLARAR - MYNDIR OG KORT
DJÚPIVOGUR - PAPEY
Á milli Berufjarðar og Hamarsfjarðar má finna 350 manna þorp Djúpivogur sem stendur á Búlandsnesi í Djúpavogshreppi.
Hér eru myndir frá Djúpavogi þar gúmmíbáturinn mun hafa verið átt viðdvöl sem fjallað er um í fréttinni í stóra smyglmálinu. Höfnin á Djúpavogi þar sem gúmmíbáturinn á að hafa verið (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

The harbor and main port in town Djupivogur in east Iceland (to view gallery: click image) (C)2009 Kjartan P. Sigurðsson
Spurning hvað þessi fjölskylda er að fiska hér upp úr sjónum í höfninni í Djúpavogi (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

A family fishing in the harbour and main port in the town Djupivogur in east Iceland (to view gallery: click image) (C)2009 Kjartan P. Sigurðsson
Fjallið Búlandstindur er eins og stór nattúrulegur píramídi séð frá bænum og eitt ef kennileitum svæðisins (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

The most famous mountain in Djupavogur area is Bulandstindur (to view gallery: click image) (C)2009 Kjartan P. Sigurðsson
Hér má svo sjá eyjuna Papey. Efst á eyjunni er viti. Við skulum vona að lundanum verði ekki bumbult af einhverjum undarlegum efnum sem gætu fundist óvænt á eyjunni. Papey var eina byggða eyjan við austurströnd landsins en byggð lagðist þar af árið 1966. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Papey is about 2 km² in area and the largest island off the east coast of Iceland with several smaller islands around. The island got its name from Irish monks called “papar”. Tourist can take on a boat trips to the island from Djupivogur. (to view gallery: click image) (C)2009 Kjartan P. Sigurðsson
Hér er svo landgangurinn upp á eyjuna Papey (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Tourist can take on a boat trips to the island from Djupivogur. The harbour and main port on the island Papey close to Djupivogur in east Iceland. (to view gallery: click image) (C)2009 Kjartan P. Sigurðsson
Á Papey má finna nokkur hús eins og uppgerða kirkju, (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

A small old rebuild church on the island Papey close to Djupivogur in east Iceland. (to view gallery: click image) (C)2009 Kjartan P. Sigurðsson
Hér má svo lesa nánar um lundann http://photo.blog.is/blog/photo/entry/511281/
Hér má svo lesa nánar um Djúpavog http://is.wikipedia.org/wiki/Djúpivogur
Hér má sjá víðmynd eða panorama mynd af Djúpavogi, Berufirði, Búlandstindi og nágrenni. Berufjörður er um 20 km langur fjörður á Austfjörðum á Íslandi. Upp úr honum ganga 3 dalir, Búlandsdalur, sem liggur fyrst þvert á fjörðinn og síðan inn eftir, því næst Fossárdalur upp af Fossárvík að sunnan, og Berufjarðardalur úr botni fjarðarins. Þorpið Djúpivogur liggur við sunnanverðan fjörðinn. Næstu firðir eru Breiðdalsvík að norðan, og Hamarsfjörður að sunnan. (smellið á mynd til að sjá stækkaða mynd)

Panoramic picture from Djupavogur, a small fishing town on east coast of Iceland (to view large panorama: click image) (C)2009 Kjartan P. Sigurðsson
Hér má sjá kort af Djúpavogi, Berufirði, Búlandstindi og svæðinu í kring (smellið á mynd til að sjá fleirri myndir)

Map of Djupavogur, a small fishing town on east coast of Iceland (to view more picture: click image) (C)2009 Kjartan P. Sigurðsson
![]()
Kjartan
WWW.PHOTO.IS
Fært undir Alþjóðamál, Efnahagur, Ferðalög, Fjölmiðlar, Heilbrigði, Ljósmyndun, Slúður, Stjórnmál, Umhverfi, Umræðan þann 20. apríl 2009 af photo | 0 ummæli
ÞINGMENN ÞURFA MEIRA KYNLÍF TIL AÐ ÖRVA ÞINGSKÖP!
Stórauknar líkur á stuttu kjörtímabili
ÞINGMENN ÞURFA MEIRA KYNLÍF TIL AÐ ÖRVA ÞINGSKÖP!
Ef Þingheimur Alþingis Íslendinga hefði verið svona sprækur eins og þessi gamli Ef Þingheimur Alþingis Íslendinga hefði verið svona sprækur eins og þessi gamli maður hér, að þá væri þjóðin örugglega í betri málum í dag. Þess í stað er verið að rífast og karpa um hvort að það eigi að banna súludans hjá Geira i Goldfinger eða hvort einhver bóndi austur á fjörðum megi hafa hreindýrakálf í garðinum hjá sér.
http://uk.reuters.com/news/video?videoId=102037
En núna eru að koma kosningar og það grátlega við þær er að í raun er verið að kjósa 63 þingmenn ásamt fullt af aðstoðarmönnum í 109 daga sumarfrí!
Ég bara spyr, því þarf allan þennan fjölda af ráðherrum, þingmönnum, aðstoðarmönnum, ráðuneytum, sendiráðum og ríkisstofnunnum … og síðast þegar ég vissi hátt í 800 nefndir til að stjórna 320 þúsund manna þjóðfélag?
Á eyjunni Fjóni (Fyn) í Danmörku býr svipaður fjöldi af fólki. Ég er ansi hræddur um að margir myndu reka upp stór augu ef þeir sæju annað eins bruðl og vitleysu þar eins og er látið viðgangast á Íslandi.
Ég er á því að þetta sé aðeins of mikill lúxus. Er ekki bara allt þetta lið á fullu í því að hossa hvert öðru.
Annars var ég á skemmtilegum kosningafundi í Jónshúsi í gær og voru þingmenn flestra flokka mættir á staðin. Þetta er í fyrsta skiptið sem að ég fer á svona fund og verð ég að segja að þetta hafi bara verið hin ágætasta skemmtun þegar upp var staðið. Fróðlegt væri að vita til hvers þarf svo að senda fullt af liði á Norðurlandaráð með tilheyrandi dagpeningum og hóteluppihaldi og að sjálfsögðu allur kostnaður greiddur að auki þó svo að lögin kveði á um annað! En fundur Norðurlandaráðs var víst í gangi sömu dagana í Köben.
![]()
Kjartan
WWW.PHOTO.IS
Fært undir Alþjóðamál, Efnahagur, Ferðalög, Fjölmiðlar, Heilbrigði, Kvikmyndir, Menning og listir, Nám, Slúður, Umhverfi, Umræðan, Íþróttir þann 18. apríl 2009 af photo | 0 ummæli
HVERNIG MÁ STÓRAUKA VERÐMÆTI Í ÍSLENSKU HAGKERFI?
HVERNIG MÁ STÓRAUKA VERÐMÆTI Í ÍSLENSKU HAGKERFI?
Hér hef ég verið að taka saman nokkra punkta um hvernig má bæta Íslenskt samfélag og auka fjölbreytni í atvinnumálum.
Upphaflega hugmyndin að listanum hófst þegar ég fór að spá í hvernig spara mætti gjaldeyrir og auka útflutninginn.
Eins og sjá má, þá er listinn langur. En ég vil líka reyna að virkja fleiri og óska ég því eftir að þeir sem þetta lesa komi með flottar og frjóar hugmyndir sem geta hjálpað Íslendingum í þessum þrengingum.
A) SJÁVARÚTVEGUR OG FISKVINNSLAN
1) HEFJA HVALVEIÐAR - Bræðsla, lýsi, kjöt, mjöl, fiskafóður, eldsneyti
2) HEFJA SELVEIÐAR - Skinn (fatnað, skó, veski …), lýsi, kjöt, bræðsla, mjöl, fiskafóður
3) FLYTJA VINNSLU Á ÖLLUM SJÁVARAFURÐUM TIL LANDSINS - Auka verðmæti á fiskafurðum heima með innlendu vinnuafli eins og hægt er.
4) AUKA VEIÐAR Á SMÁBÁTUM OG STÆKKA VEIÐISVÆÐI - Styrkir landsbyggðina.
5) VINNA ALLT HRÁEFNI BETUR OG ÞANNIG SNARHÆKKA ENDURSÖLUVERÐMÆTI Á AFURÐUM - Nýta mannafla og húsnæði út um allt land og vinnsluhúsnæði sem stendur hvort eð er autt út um allt.
6) ÞRÓA FISKELDI ÞAR SEM MÆTTI NOTA AFGANGA FRÁ SJÁVARÚTVEGI SEM FÆÐU - Hér má nota óspart hval og sel sem fæðu sem nóg er til af.
7) VINNA SÍLD OG MAKRÍL MEIRA - Selja til manneldis í stað þess að setja í bræðslu (Asíuþjóðir borga hátt verð í dag fyrir þessar afurðir).
8) SÆKJA Í NÝJA FISKISTOFNA - Túnfiskur, Makríll eða stofna sem eru fyrir utan kvóta.
9) AFNEMA KVÓTAKERFIÐ OG FESTA VEIÐIKVÓTANN VIÐ BYGGÐARLÖGINN! - Ekki á að vera hægt að flytja kvótann frá byggðarlagi eins og áður, að vísu mætti byggðarlag leigja út kvóta til annarra.
10) STÓRAUKA NEYSLU Á FISKAFURÐUM - Hér er besti matur sem hægt er að fá. Spurning um að lofa gömlum trillukörlum að veiða fyrir utan kvóta og selja beint til almennings.
B) ÁLIÐNAÐURINN
1) HEFJA VINNSLU Á VÖRUM INNANLANDS ÚR ÁLI - Auka stórlega þróun og skoða nýja tækni eins og vélar til framleiðslu.
2) SETJA UPP RÓBÓTAFRAMLEIÐSLUVERKSMIÐJU - Apple var að setja upp nýja svona verksmiðju þar sem róbótar smíða nýjustu ferðatölvurnar. Með þessari nýju tækni er hægt að sérsmíða smáhluti úr áli á örstuttum tíma með litlum tilkostnaði og fljótlegt er að breyta um form og lögun. Þarf engin mót. Allt skorið með vatni.
3) REYNA AÐ FÁ BÍLAFRAMLEIÐENDUR TIL AÐ FRAMLEIÐA HLUTI Í BÍLA Á ÍSLANDI - Ísland er vel staðsett og með öflugt flutningskerfi.
4) FÁ ÁLFYRIRTÆKI TIL AÐ BÚA TIL SJÓÐ SEM STYÐUR BETUR VIÐ SKÓLAKERFIÐ - Hér mætti kaupa vélar og tæki ásamt því að útbúa sérhæfðar námsbrautir í verkmenntaskólum sem kenna allt sem við kemur álframleiðslu. Einnig mætti búa til námsbraut sem er á háskólastigi og sú braut gæti verið alþjóðleg.
5) LEITA EFTIR VERKEFNUM HJÁ ÁLFYRIRTÆKJUM TIL AÐ ÞRÓA SÉRHÆFÐA TÆKNIVÖRU SEM ÁLIÐNAÐURINN NOTAR - Það er töluverð reynsla og þekking þegar til staðar á Íslandi bði í smíði á búnaði og hugbúnaði.
6)
7)
8)
9) SETJA ÍSLENSK LÖG UM ÁLFRAMLEIÐSLU OG ÚTFLUTNING - Setja ströng lög sem skilyrða álfyrirtæki að ákveðin % af framleiðslunni fari í framleiðslu og þróun innanlands. Álið verði selt á kostakjörum til innlendra framleiðslufyrirtækja á meðan verið er að byggja upp slíkan iðnað á Íslandi. Hér eiga Íslendingar EKKI að sætta sig við að öll framleiðslan sé flutt óunnin úr landi!
C) ORKUIÐNAÐURINN
1) FLYTJA ÚT ÞEKKINGU - Í samvinnu við Sameinuðuþjóðirnar reka Íslendingar alþjóðlegan skóla sem kennir allt sem viðkemur orkuvinnslu með hjálp jarðgufu.
2) ÞRÓA AÐFERÐIR TIL AÐ NÝTA GUFUORKUNA BETUR - Aðeins er 10 - 15% nýting á þeirri orku sem kemur frá borholum í dag.
3) FRAMLEIÐA ELDSNEYTI Í SAMVINNU VIÐ ÁLVERIN - Nota útblásturinn frá borholum
4) FJÖLGA HEIMARAFSTÖÐVUM - Hér er lítill iðnaður sem mætti vel styðja við bakið á HÉR: http://www.photo.is/08/04/4/pages/kps04082265.html
5) KANNA MÖGULEIKA Á OLÍUVINNSLU VIÐ ÍSLAND - Spurning um að leita til Norðmanna.
6) FINNA FLEIRI NOTKUNARMÖGULEIKA FYRIR HEITT VATN - Hér má nota frárennsli frá virkjunum. Meðalrennsli frá Reykjanesvirkjun er svipað og í Elliðaánum sem rennur ónýtt til sjávar.
7) REYNA AÐ KOMA Á SAMSTARFI VIÐ FYRIRTÆKI SEM FRAMLEIÐA VINDMYLLUR - Spurning um að setja upp vindmyllur á Íslandi fyrir fyrirtæki eins og VESTAS. Ísland er kjörin staður til að álagsprófa slíkan búnað.
8) KANNA MÖGULEIKA Á STÓRFELLDRI FRAMLEIÐSLU Á VETNI Á ÍSLANDI - Nú er verið að þróa marga nýja notkunarmöguleika á vetni.
9) NÝTA VATNSORKUNA BETUR VIÐ KÁRAHNJÚKA - Það virðist vera mun meiri orka þarna á ferðinni en útreikningar sýndu á sínum tíma. Hvernig væri nú að virkja nýja fossinn?
D) FERÐAIÐNAÐURINN
1) AUKA NÝTINGU Á AÐSTÖÐU - Með því að lengja ferðamannatímann má bæta nýtingu á hótelum, bílum og mannskap
2) ÍSVETRARFERÐIR - Allt innifalið í pakka, 4×4 ferð á jökull
3) ÓVEÐURSFERÐIR - Hvað er meira spennandi en að lenda í alvöru vondu veðri á Íslandi.
4) VEIÐI Í GEGNUM ÍS - Vinsæl íþrótt sem er að aukast mikið.
5) BORA FYRIR ALVÖRU ELDGOSI - Það tókst við Kröflu á sínum tíma :)
6) FINNA LEIÐIR TIL AÐ NÝTA BETUR LANDSBYGGÐINA YFIR VETRATÍMANN - Hér er vandamálið þjónustustigið sem dettur niður um leið og sumarvertíðin er búin.
7) ÚTBÚA NÝJA HAGKVÆMA 4X4 FERÐALEIÐ Í KRINGUM HENGILINN - Hér þarf aðeins að leggja smá spotta til að klára hringleið.
8) ÚTBÚA HRINGLEIÐ FRAMHJÁ FOSSINUM GLYM Í HVALFIRÐI - Vantar að selja ferðamönnum alvöru fjörð eins og Norðmenn eru að gera. http://photo.blog.is/blog/photo/entry/267781/
9) ÚTBÚA ALÞJÓÐLEGT SKÍÐASVÆÐI - Ég hef verið með hugmyndir um að búa til alvöru skíðasvæði á milli Þórisjökul og Geitlandsjökul ásamt því að stækka Gullna hringinn HÉR: http://photo.blog.is/blog/photo/entry/263922
10) STÓRBÆTA ALLA AÐSTÖÐU Á FERÐAMANNASTÖÐUM - Bæði byggingar-, rafverktakar og málmiðnaðurinn er í lægð. Hér er auðvelt að búa til verkefni á vegum ríkisins.
11) BÚA TIL NÝJA FERÐAMANNASTAÐI TIL AÐ DREIFA BETUR ÁLAGINU - Finna ný og falleg svæði og reyna jafnframt að vernda önnur betur.
E) LANDBÚNAÐUR
1) HEIMASLÁTRUN - Eykur atvinnu í sveitum landsins
2) LEYFA SÖLU BEINT Á AFURÐUM - Bóndinn má þá pakka í sínar eigin umbúðir
3) AUKA ÚTFLUTNING Á HROSSUM OG FJÖLGA MARKAÐSSVÆÐUM - Íslenski hesturinn er þegar orðin heimsþekktur. Stoppa útflutning a graðhestum (stundargróði).
4) MARKAÐSSETJA SKYR INN Á FLEIRI MARKAÐI - Það hefur gengið vel að markaðssetja skyr t.d. í New York
5) FRAMLEIÐA MEIRA AF KORNI FYRIR INNLENDA FRAMLEIÐSLU - Á Íslandi er fullkomin mylla til að mala hveiti í hágæða brauð.
6) NOTA HEITT VATN TIL AÐ HITA UPP JARÐVEG OG HRAÐA ÞANNIG VEXTI Á T.D. KARTÖFLUM - Þannig mætti lengja vaxtartímabilið og fá þar með stærri og betri vöru.
7) LEGGJA ÁHERSLU Á HEILSUVÖRUR - Gott dæmi um slíkan búskap er hjá bóndanum á Þorvaldseyri http://www.photo.is/08/04/4/pages/kps04082254.html
8) REYNA AÐ ENDURBÆTA TENGSLIN Á MILLI LANDSBYGGÐARINNAR OG ÞEIRRA SEM BÚA Á MÖLINNI - Væri ekki kjörið að reyna að koma þessum krakkaormum í sveit aftur til að moka flórinn og stinga út úr fjárhúsunum!
9) KANNA HVORT EKKI SÉ HÆGT AÐ NÝTA EITTHVAÐ AF ÖLLUM ÞEIM JÖRÐUM SEM AUÐMENN HAFA KEYPT UPP - Þetta eru oft á tíðum góðar landbúnaðarjarðir sem sumar eru að fara í órækt. Ríkið er víst að yfirtaka eitthvað af þessum jörðum aftur vegna greiðsluþrota.
F) BYGGINGARIÐNAÐURINN
1) REYNA AÐ KLÁRA SEM FLESTAR NÝBYGGINGAR - Það er betra að reyna að klára hálfklárað verk svo að það nýtist þó einhverjum frekar en að láta dæmið standa og grotna niður. Hér þarf að skoða lánakerfið betur.
2) BYRJA Á HÁSKÓLASJÚKRAHÚSI - Hvað varð um andvirði sölunnar á Símanum sem átti að nota í þá byggingu?
3) KLÁRA VIRKJUNINA Á BÚÐARHÁLSI - Hér má lesa nánar um málið: http://photo.blog.is/blog/photo/entry/436034/
4) RÍKIÐ KOMI MEÐ VIÐHALDSVERKEFNI Á HÚSEIGNUM VÍÐA UM LAND - Nóg er til af eignum á vegum ríkisins.
5) FARA Í STÓRT VIÐHALDS- OG UPPBYGGINGARVERKEFNI Á ÖLLUM HELSTU FERÐAMANNASTÖÐUM - Slíkt verkefni myndi bæði styrkja byggingariðnaðinn og ferðamannaiðnaðinn.
6)
G) FRAMLEIÐSLUIÐNAÐUR SEM MÁ LEGGJA ÁHERSLU Á
1) PRENTIÐNAÐUR - Auka innlenda umbúðarframleiðslu. Nú má fara að flytja út prentverk. Ef færð er vinnsla á fiskafurðum aftur til landsins, þá þarf mikið magn af umbúðum.
2) PLASTIÐNAÐUR - Auka innlenda umbúðarframleiðslu. Aukin neysla á innlendum vörum kallar á aukið magn af umbúðum.
3) KEX, SÆLGÆTI, ÞVOTTAEFNI - Draga saman innflutning á svona vörum. Væri gaman að sjá Hreinol og grænsápu aftur. Sínalco væri nú ekki slæmt heldur :)
4) FRAMLEIÐA ÍSLENSKAN ÁBURÐ - Öll aðstaða til staðar.
5) FRAMLEIÐA ÍSLENSKT SEMENT - Vélar og tæki til staðar.
6) FRAMLEIÐA ÍSLENSKA ÁVEXTI OG GRÆNMETI - Hvað er hollara en íslensk framleiðsla. Um að gera að auka neyslu á slíkum mat.
7) SETJA AFTUR Í GANG ULLARFRAMLEIÐSLU OG GERA SKIPTISAMNING VIÐ RÚSSA - Hér er hægt að fá olíu á skipin og bílaflotan í skiptum fyrir innlenda framleiðslu. Þekking sem er enn til staðar fer að hverfa úr landi ef ekki verður brugðist fljótt við.
8) GERA ÍSLAND EINS SJÁLFBÆRT Í MATVÆLAFRAMLEIÐSLU OG HÆGT ER - Þó svo að það kosti eitthvað að vernda innlenda matvælaframleiðslu, þá sýnir það sig best þegar svona árar hversu mikilvæg slík framleiðsla er.
H) HUGBÚNAÐARIÐNAÐURINN
1) ÞRÓA HUGBÚNAÐ Í VERÐBRÉFAVIÐSKIPTUM FYRIR ERLENDA BANKAMARKAÐI - Alþjóðleg þekking Íslendinga er orðin mikil á þessu sviði og slæmt ef að hún glatast.
2) ÞRÓA HUGBÚNAÐ Í GREIÐSLUÞJÓNUSTU FYRIR ERLENDA BANKAMARKAÐI - Líklega er eitthvað af svona lausnum nú þegar til staðar á markaðinum.
3) ÞRÓA HUGBÚNAÐ Í SMÁFYRIRTÆKJAREKSTRI FYRIR ERLENDA BANKAMARKAÐI - Vantar hagkvæma lausn fyrir tengingu á smáfyrirtækjum við bankakerfið.
4) FÁ CCP TIL AÐ ÞRÓA MEIRA SINN HUGBÚNAÐ Í SAMSTARFI VIÐ ÍSLENSKA NOTENDUR - CCP er með sterka stöðu til að þróa sínar vörur. Spurning um að nýta betur alla þá Íslensku msn, Faccebook og internetsjúklinga meira í vöruþróun.
5) KANNA MÖGULEIKA Á ÚTFLUTNINGI Á ÍSLENSKUM HUGBÚNAÐI SEM HEFUR REYNST VEL FYRIR ÍSLENSKAN MARKAÐ - Hér er hugsanlega fullt af földum möguleikum. Best hefur reynst að semja við stóra aðila sem eru með svipaðar lausnir og selja í gegnum þeirra dreifikerfi.
6)
I) SKÓLAR OG KENNSLA
1) ENDURMENNTUN - Í stað þess að hanga heima í atvinnuleysisvolæði, þá er kjörið að fara og mennta sig aðeins.
2) BÚA TIL NÝ FÖG TENGD ORKU, ÁLFRAMLEIÐSLU - Fínt að fá stuðning frá álfyrirtækjum og orkufyrirtækjum.
3) MINNKA VÆGI Á LÖGFRÆÐI, HAGFRÆÐI OG VIÐSKIPTAFRÆÐI - Hefur því miður verið offramleiðsla á fólki í þessum fögum síðustu árinn.
4) AUKA VÆGI Á VERKMENNTUN MEÐ MEIRI TENGINGU VIÐ HÁSKÓLAUMHVERFIÐ - Handverk og verkmenntun vantar nauðsynlega inn í Íslenskt samfélag.
5)
6)
7)
8) ENDURMENNTUN FYRIR STJÓRNMÁLAMENN - Hér er kjörið tækifæri fyrir einhverja skólastofnun um að leggjast í rannsóknir og útbúa námsefni og námsbraut fyrir lögmenn, viðskiptafræðinga og hagfræðinga þar sem fari er yfir hvað var gert vitlaust í stjórnun efnahagsmála síðustu 7 árin. Þetta verður að vera nám sem allir sem huga að stjórnmálum verða að fara í gegnum og viðkomandi aðilar verða að standast próf eins og annað fólk til að fá að bjóða sig fram til þings. Hér væri mjög gott að vera með IQ próf inni í prógramminu. Líklega er nóg að kenna fræði Hannesar H með öfugum formerkjum.
9)
J) HEILBRIGÐISKERFIÐ
1) FLYTJA INN SJÚKLINGA - Heilsuhæli þar sem lögð væri áhersla á náttúruleg böð. Í Hveragerði eru 4 - 5 sundlaugar!
2) HEILBRIGÐISÞJÓNUSTA FYRIR ERLENDA FERÐAMENN - Boðið upp á skurðaðgerðir, hjartaaðgerðir, öldrunarþjónustu, endurhæfing, heita vatnið, hreint loft og ísenskt vatn. Einnig flott að reyna að nýta dýran búnað á spítölum betur.
3)
4) NÝTA ÓNÝTTA GISTIAÐSTÖÐU YFIR VETRATÍMANN SEM SJÚKRA- OG HEILSUHÓTEL - Út á landi þarf ekki mikið að gera til að hægt sé að útbúa vetrarhótel. Mývatn er t.d. með 4 baðstaði og flotta náttúru. Hér á að leggja áherslur á staði sem eru með “0″ stress.
5)
6)
K) SAMGÖNGUMÁL
1) HEFJA SIGLINGAR Í KRINGUM LANDIÐ - Ríkið tekur yfir hluta af Eimskip
2) FJÖLGA FERÐUM STRÆTISVAGNA - Hér þarf að venja þjóðina á nýjar samgöngumöguleika
3)
4) ÚTBÚA HJÓLASTÍGA OG LEGGJA ÁHERSLU Á HJÓLREIÐAR - Að vera á hjóli á Íslandi er ekkert mál. Holl og góð hreyfing og kostar ekki neitt.
5)
6) BÍÐA MEÐ HÖFNINA VIÐ BAKKAFJÖRU - Mig grunar nú að það renni tvær grímur á suma að sjá hver veðurofsinn getur orðið við suðurströndina þegar haust- og vetrarlægðunum rignir yfir landið.
7) BÍÐA MEÐ TVÖFÖLDUN Á HVALFJARÐAGÖNGUM - Hætta að rukka gjald og þá rennur umferðin greiðara í gegn.
8) BÍÐA MEÐ SUNDAGÖNG - Hægt er að gera þessi göng með mun hagkvæmari hætti http://photo.blog.is/blog/photo/entry/382366/
9) FÆKKA BÍLUM Á ÍSLANDI OG SETJA LÖG SEM STUÐLA AÐ HAGKVÆMNI - Setja þarf ný lög sem leggur áherslu á sparneyta bíla. Ofurskatta á lúxusbíla. Lækka verð á díselolíu og hærra verð á bensín.
L) BANKASTARFSEMI
1) SAMEINA INNLENDU BANKANNA OG BYGGJA UPP STERKA SÉRSJÓÐI - Spurning um að vera með einn einkabanka og einn ríkisbanka.
2) BYGGJA UPP ÖFLUGAN BANKA OG SJÓÐ TIL AÐ STYRKJA ORKUIÐNAÐINN - Nýfrjálshyggjan lagði því miður niður alla þessa sterku sjóði sem gamla kerfið var búið að koma sér upp. Núna þegar þarf á þeim sjóðum að halda, þá eru allir peningar horfnir.
3) BYGGJA UPP ÖFLUGAN BANKA OG SJÓÐ TIL AÐ STYRKJA SJÁVARÚTVEG - Hvar er Fiskveiðasjóður Íslands í dag?
4) BYGGJA UPP ÖFLUGAN BANKA OG SJÓÐ TIL AÐ STYRKJA LANDBÚNAÐ - Hvar er Framleiðnisjóður landbúnaðarins í dag?
5) BYGGJA UPP ÖFLUGAN BANKA OG SJÓÐ TIL AÐ STYRKJA IÐNAÐINN - Hvar er Iðnlánasjóður í dag?
6) BYGGJA UPP ÖFLUGAN BANKA OG SJÓÐ TIL AÐ STYRKJA HÚSNÆÐISMARKAÐINN - Það munaði EKKI NEINU að þessum sjóði yrði eytt í fjárglæfrahítina og hvar væri húsnæðismarkaðurinn staddur í dag ef svo hefði farið.
7)
8)
M) TÆKNIIÐNAÐUR
1) LEGGJA BETRI GRUNN AÐ HÁTÆKNIIÐNAÐI - Á Íslandi vantar alla grasrót og stuðning frá stjórnvöldum.
2) SÆKJA ERLEND HÁTÆKNIVERKEFNI Í GEGNUM ALÞJÓÐLEGAR STOFNANNIR OG TENGINGAR ÍSLENDINGA - Hér er kjörið að nýta allt embættismannakerfið í útlöndum til slíkra hluta frekar en að eltast við sæti í öryggisráðinu.
3) KOMA Á SAMSTARFI VIÐ NASA, EVRÓPSKU GEIMFERÐASTOFNUNINA OG NORÐURLÖNDIN - Það er fullt af flottum verkefnum sem verið er að þróa hjá þessum stofnunum.
4)
5)
N) HUGMYNDAIÐNAÐUR
1) LEGGJA ÁHERSLU Á GJALDEYRISSKAPANDI HUGMYNDIR SEM SKAPA STÖRF INNAN LANDS - Hér þarf að hugsa til lengri tíma og þá með útflutning í huga.
2) JARÐLESTAKERFI - Umhverfisvænt neðanjarðarlestarkerfi fyrir stór-Reykjavíkursvæðið sem notar ódýra innlenda orkugjafa. HÉR: http://photo.blog.is/blog/photo/entry/438283
3) LÉTTLEST TIL KEFLAVÍKUR - Auðvelt er að þróa ódýrt Íslenskt léttlestarkerfi HÉR: http://photo.blog.is/blog/photo/entry/267781/ og HÉR: http://photo.blog.is/blog/photo/entry/339910
4) ÞRÓA ÁFRAM FRAMLEIÐSLUBÚNAÐ FYRIR SJÁVARÚTVEG - Marell, Pólinn, Naust Marin og fl. fyrirtæki hafa náð að sérhæfa sig í búnaði fyrir fiskveiðiflotann. Enda þægilegt að þróa slíkar vörur þar sem samskiptaleiðirnar eru stuttar og flotinn við hendina.
5) ÞRÓA INNLENDA ELDSNEYTISGJAFA FYRIR FISKISKIPAFLOTANN - Fiskolía (hvalur), CO2 verkefni Orkuveitunnar …
6) RAFBÍLAVÆÐING - Spara aðkeypta erlenda orku. Meira samstarf við erlend stórfyrirtæki.
7) LYFJAIÐNAÐUR - Hér eru tengsl út um allan heim. Spurning um að flytja eitthvað af framleiðslunni heim aftur. En hver á Aktavís?
8) UMBREYTA ÓSELDUM 4X4 BÍLAFLOTANUM Í SÚPERJEPPA OG FLYTJA TIL ANNARRA LANDA - Mikil sérþekking er á Íslandi til að breyta bílum. Spurning um að hagræða tollalögum og losa svo Íslendinga við fullt af stórum óseldum dýrum bílum. Svo eru auðvita uppi hugmyndir um að flytja út óselda bíla til Noregs.
9) STYÐJA VIÐ BAKIÐ Á AUGLÝSINGA- OG HÖNNUNARGEIRANUM (Emil) - Íslendingar vel samkeppnisfærir í verði og gæðum.
O) STJÓRNSÝSLA OG STJÓRNMÁL
1) FÆKKA ÞINGMÖNNUM - Fækka þingmönnum og auka skilvirkni. Stór hluti þings ásamt aðstoðarmönnum hefur lítið að gera inni á þingi. Ráðherrar ráða öllu.
2) AUKA VÆGI ÞINGRÆÐIS OG MINNKA VÆGI RÁÐHERRA Á ÞINGI - Þingmenn eiga að leggja línurnar og reglurnar sem ráðherrar og ráðuneyti ber að fara eftir.
2) FÆKKA RÁÐUNEYTUM - 320 þús. manna þjóð HEFUR ekkert að gera með þetta risavaxna stjórnsýslukerfi til að halda þessu litla örþjóðfélagi gangandi.
4) FELLA NIÐUR EFTIRLAUNAFRUMVARPIÐ STRAX - Fylgja sömu reglum eins og aðrir ríkisstarfsmenn. Afnema öll sérfríðindi einhverjum útvöldum til handa. Ef þessi mál eru skoðuð nánar, þá kemur í ljós að þingmenn höfðu það bara nokkuð gott áður en þessi lög voru sett.
5) STYTTA SUMARFRÍ STJÓRNMÁLAMANNA - Láta þá skila vinnuframlagi eins og annað fólk í þjóðfélaginu þarf að gera.
6) LEGGJA NIÐUR AÐSTOÐARMANNAKERFIÐ - Sem er ekkert annað en falið kerfi til að styrkja flokkskerfið. Í raun er verið að nota skattpeninga til að greiða útvöldum gæðingum flokkanna laun.
7) FÆKKA NEFNDUM OG AUKA SKILVIRKNI - Vera með opið bókhald á netinu sem sýnir störf ALLRA nefnda. Einnig má fækka boðleiðum á milli þingmanna og kjósenda.
8) EINFALDA REGLUVERK - Skilyrða hraðafgreiðslu á málum (tímamörk), annars verða ALLAR kröfur látnar falla niður. Notast við erlendar samþykktir og staðla eins og hægt er eins og CE merkingar. Ekki vera að búa til eftirlitsstofnanir að óþörfu.
9) FARA EFTIR STJÓRNSÝSLULÖGUM - Það þurfa að vera mjög skýr skilaboð að starfsmenn ríkisins eru að vinna fyrir almenning en ekki fyrir einhverja allt aðra annarlega hagsmuni.
10) FLÝTIAFGREIÐSLU Á MÁLUM - Skilyrða hraðafgreiðslu á málum (tímamörk), annars verða ALLAR kröfur látnar falla niður.
11) SETJA LÖG GEGN PENINGAÞVÆTTI - Erlendis þarf að gera grein fyrir því hvernig eignamyndun á sér stað hjá t.d. fólki sem hefur engar tekjur.
12) BINDA KRÓNUNA VIÐ ANNAN STERKAN GJALDMIÐIL EINS OG DANIR - Ásamt því að fá tryggan stuðning frá viðkomandi gjaldmiðli sem Íslendingar myndu tengja sig við.
13) GANGA Í ESB EÐA SAMBÆRILEGT KERFI SEM STYRKIR KRÓNUNA - Krónan eða gjaldmiðilinn verður að hafa fasta viðmiðun svo að fólk viti að hverju það gengur. Einnig mætti skoða Norsku krónuna.
14) LEGGJA ÁHERSLU Á SKANDÍNAVÍSKT VELFERÐARKERFI - Við eigum samleið með þessum löndum og svo hefur þetta kerfi verið að reynast mun betur en önnur kerfi. Því að vera að finna upp ný kerfi?
15) MINNKA OPINBER UMSVIF STÓRLEGA - Í tíð Sjálfstæðismanna hafa ríkisumsvif vaxið gríðarlega. Hér þarf að kanna betur hvað er eiginlega í gangi.
16) AFNEMA VERÐTRYGGINGU - Banna verðtryggingu (okur) með lögum.
17) ÞVINGA VEXTI NIÐUR Í ÞAÐ SAMA OG ER Í EVRÓPU - Banna hávaxtarstefnu (okur) með lögum. Svona svipað og verðlagseftirlit.
18) VERÐBÓLGAN VERÐI SÚ SAMA OG ER Í EVRÓPU - Íslensk stjórnvöld hafa komist upp með svo slælega efnahagsstjórn í gegnum árin út af því að þau hafa ekkert aðhald. Þegar allt er komið í óefni, þá er bara krónan felld … reglulega
19) REKA ÞÁ SEM BRJÓTA AF SÉR Í KERFINU - Ef starfsmaður verður uppvís af kvörtunum og endurteknum brotum frá kjósendum, þá BER stjórnvöldum að víkja viðkomandi frá. Þessar boðleiðir þarf að laga.
20) STJÓRNMÁLAMENN VERÐI LÁTNIR SEGJA AF SÉR VIÐ MISTÖK Í STARFI - Eftir bankahrunið, þá hefur engin verið látin sæta ábyrgð. Hér þarf greinilega að setja kvóta. Fínt væri að reka ca. 5-10 manns á ári ef vel ætti að vera til að veita stjórnvöldum eðlilegt aðhald.
21) SKIPTA ÚT TOPPUM OG STJÓRN HJÁ SEÐLABANKANUM - Mjög alvarleg mistök hafa verið gerð sem er ekki hægt að kalla annað en landráð.
22) SKIPTA ÚT TOPPUM HJÁ FJÁRMÁLAEFTIRLITINU - Mjög alvarleg mistök hafa verið gerð sem er ekki hægt að kalla annað en landráð.
23) KJÓSA AFTUR UPP Á NÝTT SEM FYRST - Mjög alvarleg mistök hafa verið gerð sem er ekki hægt að kalla annað en landráð og þarf því að skipta þeim út sem bera ábyrgð sem fyrst.
24) FÆKKA SENDIRÁÐUM UM HELMING - Samhliða því mætti þróa öflugt samskiptakerfi fyrir ráðuneyti. Síðan þyrfti að vera opið bókhald sem sýnir risnu og dagpeninga þingmanna.
25) GERA LANDIÐ AÐ FÆRRI KJÖRDÆMUM - Einu eða 3 eins og VG leggja til.
26) ÞJÓÐARATKVÆÐAGREIÐSLA UM ÖLL MIKILVÆG MÁL - Þeir sem færu með stjórn landsmála geta einfaldlega listað upp nokkrum málum á vefnum og svo getur fólk einfaldlega kosið. Með nútíma tölvutækni, þá er auðvelt að framkvæma svona kosningar í matar- eða kaffipásum. auðvelt að nota kerfi eins og heimabankann :)
27) KJÓSA PERSÓNUR Í STAÐ FLOKKA - Það er til fullt af hæfileikaríku hugsjónarfólki sem hefur fókusinn á réttum stöðum sem hefur margsannað sig í starfi fyrir land og þjóð. Ef viðkomandi verður uppvís af mistökum, þá er auðvelt að kjósa viðkomandi út og nýja inn í staðinn.
28) GEFA KJÓSENDUM KOST Á AÐ KJÓSA ÚT ÞINGMENN SEM VERÐA UPPVÍSIR AF SPILLINGU - Það eitt og sér væri gríarlega gott aðhald fyrir þingmenn.
29) BANNA ALLAR PÓLITÍSKAR STÖÐUR INNAN STJÓRNKERFISINS - Auðvelt að láta fólk kjósa með hjálp netsins.
30) TÖLVUVÆÐA KOSNINGAKERFI - Hér mætti nýta tölvutæknina og internetið eins og bloggheiminn og bankakerfið meira. (wikipedia, forum bb3, kosningakerfi, ToDo listi, verk og viðverubókhald). Með þessu væri hægt að vera með opið og mjög skilvirkt kerfi þar sem allt væri á borðinu og sæist hvað hver þingmaður væri að vinna.
31) GERA ÚTTEKT Á ÞEIM MISTÖKUM SEM LEIDDU TIL BANKAHRUNSINS MIKLA - Láta erlenda aðila gera úttektina.
32) STYRKJA GAGNRÝNA OG MÁLEFNALEGA UMRÆÐU INNI Á ÞINGI - Það er bara einfaldlega hluti af lýðræðinu.
33) STYRKJA GAGNRÝNA OG MÁLEFNALEGA UMRÆÐU Í FJÖLMIÐLUM - Það er bara einfaldlega hluti af lýðræðinu. Hér þarf að hampa sérstaklega tuðurum og leiðindaafturhaldsseggjum eins og jonas.is!
34) FÓLK FÆR SJÁLFT AÐ VELJA HVERNIG EIGIN GREIDDIR SKATTAR SKIPTAST NIÐUR Á FJÁRLÖG - Auðvelt með tengingu við bankakerfið þar sem hægt er að velja hvernig þínum skattgreiðslum er varið.
35) SETT VERÐI SKÝR SKILABOÐ Í LÖG AÐ ÞEIR SEM VERÐA UPPVÍSIR AÐ LANDRÁÐI VERÐI LÁTNIR SÆTA ÁBYRGÐ - Nú er staðan þannig að forsætisráðherra er kjökrandi í auðmönnum um að koma aftur til baka með allt fjármagnið til landsins!
36) GERVIEFTIRLITSSTOFNANIR OG VERNDAÐIR VINNUSTAÐIR Á VEGUM RÍKISINS VERÐI LAGÐAR NIÐUR OG MEIRI ÁHERSLA LÖGÐ Á STOFNANIR SEM RAUNVERULEGU MÁLI SKIPTA - Búið er að búa til mikið af íþyngjandi eftirlitsstofnunum sem oftar en ekki hafa engan annan tilgang en að fela atvinnuleysi. Hér mætti t.d. leggja meiri áherslu á Fjármálaeftirlitið og endurvekja Þjóðhagsstofnun.
37) SENDA ERLENDA AFBROTAMENN STRAX ÚR LANDI - Í dag virðast heilu glæpagengin geta gengið laus um landið með barsmíðum, ofbeldi og þjófnaði í langan tíma.
38) LOKA LANDINU MEIRA FYRIR ÓHEFTUM INNFLUTNINGI Á FÓLKI - Leggja meiri áherslu á að fá fólk með hátt menntunarstig og leggja meiri áherslu á hálaunastörf. Auðvelt að setja flóknar og erfiðar reglur um visa og dvalarleyfi. Landið er eyja og því auðvelt að fylgjast betur með því fólki sem kemur til landsins.
39) LEGGJA LÁNASJÓÐ NIÐUR OG VEITA Í STAÐIN STYRKI - T.d. hafa Danir litið á menntun sem langtíma fjárfestingu. Veita mætti styrk upp að vissri upphæð og svo gæti fólk unnið sér inn fyrir því sem upp á vantar eða tekið lán.
40) NÁ ÞVÍ FÉ TIL BAKA MEÐ ÖLLUM TILTÆKUM RÁÐUM SEM HEFUR HORFIÐ ÚR LANDI - Það á að vera fyrir löngu búið að frysta fullt af eignum.
41) BANNA STÓRFELLDA FJÁRMAGNSFLUTNINGA ÚR LANDI SEM GETUR HAFT STÓRKOSTLEG ÁHRIF Á SJÁLFSTÆÐI ÞJÓÐARINNAR - Hér þarf að hafa mjög ákveðin lög sem koma í veg fyrir að örfáir einstaklingar geti leikið sér með fjöregg þjóðarinnar.
42) FÁ REYNDAN ÓPÓLITÍSKAN STJÓRNANDA TIL AÐ STJÓRNA LANDINU (Einar)(Ævar) - Þetta er ekki slæm hugmynd. Það eru til margir góðir þekktir stjórnendur sem hafa rétt af risafyrirtæki á örfáum árum.
43) ERLENDUR DÓMSSTÓLL (Sigurður) - hæstaréttadómarar og jafnvel rannsóknarnefnd verði fengin erlendis frá. Hentar líklega vel á meðan verið er að fara í gegnum þessi mál.
44) LEGGJA ÁHERSLU Á AÐ HALDA INNLENDRI FRAMLEIÐSLU INNI Í LANDINU SEM SPARAR GJALDEYRIR FYRIR ÞJÓÐABÚIÐ. - Öll helstu ríki í vestrænum heimi eru að verða búinn að missa stóran hluta af sinni framleiðslu og tækniþekkingu til annarra landa. Allir farnir að versla með pappíra sem ekkert reynist á bak við þegar á reynir.
P) GREINAR SEM VERÐA ILLA ÚTI Í SAMDRÆTTI
1) ARKITEKTAR - (hætta á 70-90% atvinnuleysi) Stofna nefnd sem leitar uppi allar alþjóðlegar samkeppnir. Þar eru verulegar upphæðir í verðlaun. Sveitafélög og stærri fyrirtæki geta líka sett í gang ýmis hönnunarverkefni.
2) BANKASTARFSMENN - Reyna að stofna nýja alþjóðlegan banka. Spurning með samvinnu við erlenda aðila?
3) BYGGINGARSTARFSMENN - Láta ríkið koma með verkefni sem nýtir sem mest innlendar vörur og þjónustu.
4) VERKTAKASTARFSEMI - Láta ríkið koma með verkefni sem nýtir sem mest innlendar vörur og þjónustu.
5) AUGLÝSINGASTOFUR - Íslendingar erum með fullt af fyrirtækjum út um allan heim. Hvernig væri nú að koma heim með eitthvað af þeirri auglýsingagerð sem þessi fyrirtæki eru að láta vinna fyrir sig. Spurning með sendiráð og aðila sem þeim tengjast.
6) BLAÐAÚTGÁFA - Íslendingar eru búnir að tapa gríðarlegum fjárhæðum á leikaraskap í blaðaheiminum, bæði í Danmörku og USA. Hér er mikil þekking sem þarf að reyna að nota.
7)
Q) BRUÐL OG SPARNAÐUR
1) STOFNA RÁÐUNEYTI SEM TEKUR Á BRUÐLI HJÁ ÍSLENDINGA - Hér má safna saman mestu nöldur- og leiðindaseggjum landsins sem koma síðan með tillögur að niðurskurði í þjóðfélaginu. Hér er af nógu að taka. Þeim verður svo skipaður heiðurssess í framtíðinni þar sem þeim er hreinlega skipað að stökka upp á nef sér af hneykslun og vandlætingu ef einhver bruðlbóla er að hefjast á Íslandi.
2) FÆKKA FJÓRHJÓLUM, MÓTORHJÓLUM, SÆÞOTUM - Hækka gjöld á svona lúxus.
3) ALLA YFIRGENGILEG SÝNDARMENNSKU ÞARF AÐ BANNA - Hlutverk fjölmiðla.
4) VERA MEÐ FRÍDAG Í BLAÐAÚTGÁFU OG RUSLPÓSTI - Hér má spara háar fjárhæðir með því einfaldlega að gefa út dagblöð aðeins 5 eða 6 daga vikunnar.
5) STYTTA OPNUNARTÍMA VERSLANA - Þegar ég var í námi í Danmörku (Odense), þá var búið að slökkva allstaðar kl. 10 á kvöldin. Ekki neitt sjoppurugl.
6)
R) MANNLEG GILDI OG TRÚMÁL
1) HROKI, ÖFUND, REIÐI, ÞUNGLYNDI, ÁGIRND OFÁT OG MUNÚÐLÍF - Þetta eru atriði sem þarf að passa alveg sérstaklega vel upp á.
2) VISKA, HÓFSTILLING, HUGREKKI, RÉTTLÆTI, VON, TRÚ OG KÆRLEIKUR - Hér eru þau atriði sem ber að halda á lofti.
3) KAPP ER BEST MEÐ FORSJÁ - Íslendingar eru þekktir fyrir aga- og hömluleysi. Stundum virkar það vel, bara ekki í fjármálum landans.
4) MEÐALHÓF ER BEST eða VANDRATAÐ ER MEÐALHÓF - Það er búið að sýna sig að allar öfgar hverju nafni sem að þær nefnast reynast landanum illa.
3) OFT ER GOTT ÞAÐ ER GAMLIR KVEÐA eða OFT GEFUR GAMALL MAÐUR GÓÐ RÁÐ - Ungliðavæðing landsins af reynslulausu fólki hefur verið landinu hættulegt. Einnig er slæmt þegar útbrunnin gamalmenni sitja endalaust í embætti.
4) HROKI VEX ÞÁ HÆKKAR Í PYNGJU. ÓHÓFIÐ FÆR SULT UM SÍÐIR. ÚTLENSKT ÓHÓF BÍTUR VERST. EFTIR ÓHÓF KEMUR ÖRBIRGÐ - Orð sem lýsa vel því ástandi sem verið hefur í þjóðfélaginu síðustu 7 árin.
5)
6) ÞRENGJA OPNUNARTÍMA SKEMMTISTAÐA OG KRÁA - Það þarf að koma Íslendingum fyrr í bælið á kvöldin. Það er ekki hægt að láta fólk vera að skemmta sér fram undir morgun og vera svo þreyttir og úrillir í vinnunni það sem eftir er vikunnar.
7) EKKI VERA MEÐ SJÓNVARP Á FIMMTUDÖGUM - Þannig má auka menningarstarfsemi og styrkja aðra menningartengda starfsemi. Fá fólk til að tala meira saman. Spurning um að oka fyrir internetið líka á þessum degi :)
8)
9) JÓHANNA SIGURÐARDÓTTIR SJÁI UM VELFERÐARMÁLIN - Hún er óumdeildur leiðtogi þeirra sem minna mega sín á meðan aðrir eru óumdeildir leiðtogar þess sem dansa hrunadans í kringum gullkálfinn! En Jóhanna er í raun sjálfkjörin í þetta embætti.
Þeir sem vilja koma með nýjar hugmyndir og athugasemdir við einstaka liði, er bent á að notast við merkingu eins og þessa Q) 4) SELJA LÚXUSÞOTUR ÚR LANDI (siggi) - …. og þá mun ég bæta þeim inn í ásamt nafni viðkomandi.
En eins og sjá má, þá er ýmislegt hægt að gera og möguleikar margir. En eins og venja er, þá er fullt af hugmyndasnauðum og tækifærissinnuðum stjórnmálamönnum sem væru alveg vísir til að stökkva á eitthvað af þessum hugmyndum og gera að sínum. Það er í raun bara hið besta mál, enda veitir þeim ekki af þessa dagana en að lappa aðeins upp á ímyndina og sjálfstraustið. Verst er hvernig þeir æða út í hvert fenið eftir annað í fljótfærni.
EN NÚNA SKORA ÉG Á ALLA BLOGGARA OG ÞÁ SEM NENNA AÐ LESA SIG Í GEGNUM ÞESSA BLOGGFÆRSLU AÐ KOMA MEÐ 2-3 GÓÐAR HUGMYNDIR HVER OG FYLLA INN Í EYÐURNAR ÞAR SEM UPP Á VANTAR.
!!! ÞAÐ ÞARF AÐ ÝTA Á RELOAD TIL AÐ ENDURHLAÐA INN SÍÐUNA, EN SÍÐAN ER Í STÖÐUGRI UPPFÆRSLU !!!
Kjartan
WWW.PHOTO.IS
Fært undir Alþjóðamál, Efnahagur, Fjölmiðlar, Heilbrigði, Menning og listir, Nám, Samgöngur, Slúður, Stjórnmál, Trúarbrögð, Tækni og vísindi, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda þann 27. október 2008 af photo | 4 ummæli
HÉR ERU MYNDIR AF MILLJÖRÐUNUM SEM HURFU!
Greiðslukortum hjá þúsund Íslendingum á Fjóni lokað
HÉR ERU MYNDIR AF MILLJÖRÐUNUM SEM HURFU!
Hér er líklega einn Kaupþingsforstjórinn að reisa sér smáhýsi ekki langt frá Baulu í Borgarfirði það sem pylsurnar frægu voru keyptar (fengnar að láni) eftir þyrluflugferðina frægu úr einni laxveiðiánni

Skrítið að Íslenskum ofurfjarfestum skuli ekki hafa dottið í hug að gera meira af því að fara á þyrlunni til að kaupa sér eina með öllu. Iceland’s financial banking crisis. Where is the money? The party is over for Iceland. Icelandic luxury summerhouses. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Hér er svo önnur af sama húsi: http://www.photo.is/08/08/2/pages/kps08081537.html
Hér er “frekar” látlaust og íburðarlítið hús við Þingvallavatn. Það eru margir útrásavíkingarnir að byggja sér hallir víða um land. Gaman væri að vita hvað þeir ná að eyða miklum tíma á ári í þessum húsum sínum?

Dýrustu lóðir fyrir sumarhús er að finna við Þingvallavatn. Iceland’s financial banking crisis. Where is the money? The party is over for Iceland. Icelandic luxury summerhouses. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Hér er verið að fljúga yfir svæðið við Sogið og Þrastalund á leið á Selfoss. Eins og sjá má, þá verða sumarbústaðir auðmanna sífellt stærri og stærri.

Sumarbústaður af stærri gerðinni. Iceland’s financial banking crisis. Where is the money? The party is over for Iceland. Icelandic luxury summerhouses. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Hér er einn sumarbústaðurinn á suðurströndinni við sjóinn á frekar óvenjulegum stað. Ætli einhver útgerðargreifinn eigi þennan bústað? Nóg er af bátunum.

En þetta er annars skemmtilegur og fjölskylduvænn staður að koma á, ólíkt með margt annað í þessu græðgisvædda þjóðfélagi Íslendinga. Iceland’s financial banking crisis. Where is the money? The party is over for Iceland. Icelandic luxury summerhouses. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Hver ætli eigi svo þennan litla sæta og netta sumarbústað hér? Ég efa að það þurfi að fara yfir lækinn til að sækja vatnið þó bakkabróðir sé.

Hér er einn sumarbústaður með ÖLLU og ekkert til sparað í óhófi. Lágkúra, óhóf, bruðl flottræfilsháttur … spurning hvernig á að flokka svona óráðsíu? Hver er svo að borga brúsann þegar upp er staðið? Iceland’s financial banking crisis. Where is the money? The party is over for Iceland. Icelandic luxury summerhouses. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Þingvallaþjóðgarðurinn hefur löngum verið vinsæll og eftirsóttur staður. Fyrst að einn bróðirinn byggir stórt í Fljótshlíðinni, þá getur hinn ekki verið minni maður. Þar er að vísu ekki lækur sem þarf að fara yfir til að sækja vatnið, heldur var notuð þyrla sem hjólbörur í samfellt 3 daga sem flaug frá morgni til kvölds við jarðvegsflutninga.

Heyrst hefur að reglugerðir um hámarks stærð á húsum hafi fljótt fokið út í veður og vind, enda margbúið að blessa útrásarvíkingana í bak og fyrir, bæði af forsetanum og BB. Iceland’s financial banking crisis. Where is the money? The party is over for Iceland. Icelandic luxury summerhouses. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Hér er svo önnur af sama húsi: http://www.photo.is/08/07/10/pages/kps07088166.html
Byko veldið hefur náð að koma ár sinni vel fyrir borð eftir gríðarlegan uppvöxt á húsnæðismarkaði Íslendinga. Sagt er að á meðan Kárahnjúkavirkjun kostaði 100 milljarða, þá hafi uppbyggingin á stórreykjavíkursvæðinu kostað 350 milljarða.

En hér var allt fjarlægt til að hægt væri að reysa höll fyrir hinn skjótfengna auð. Iceland’s financial banking crisis. Where is the money? The party is over for Iceland. Icelandic luxury summerhouses. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Hér má svo sjá jarðir nokkura auðmanna sem hafa plantað litlu sætu sumarhúsunum sínum á vinsælum stað í Fljótshlíðinni. Hér hefur m.a. stjórnmálaforinginn BB komið sér vel fyrir innan um hóp auðmanna.

Það kemur sér vel að boðleiðirnar séu stuttar og eins og sjá má, þá er skattpeningum þjóðarinnar greinilega vel varið. Iceland’s financial banking crisis. Where is the money? The party is over for Iceland. Icelandic luxury summerhouses. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Þekktir þingmenn eins og BB hafa heldur ekki farið varhluta af græðgisvæðingunni. Nú dugar ekki þingmönnum lengur lítil sumarhús til afnota til að senda kjósendum sínum stöðu mála af þingi og af ferðum sínum um heiminn á bloggi sínu lengur

Mig grunar nú að Dabbi kóngur búi nú ekki mjög langt í ekki minni sumarbústað en BB. Hver segir svo að þingstörf borgi sig ekki? Iceland’s financial banking crisis. Where is the money? The party is over for Iceland. Icelandic luxury summerhouses. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Önnur aðferð er að kaupa sér sveitabæ á rólegum og notalegum stað eins og þessum hér sem er á Barðaströnd á Vestfjörðum eins og Össur hefur gert. Ekki dugar að vera með lítið sumarhús á einum stað á landinu heldur þarf eitt hús á hvert horn landsins og síðan er notast við snekkju til að sigla á milli staða.

Heyrst hefur að öflugt eftirlitskerfi sem er í beinni tengingu við internetið sé á mörgum af þessum stöðum og er því hægt að fara á netið hvar sem er í heiminum og sjá hvort að einhverjir óboðnir gestir eru nálægir. Eins og sjá má, þá hafa verið útbúnar tjarnir fyrir endurnar. Iceland’s financial banking crisis. Where is the money? The party is over for Iceland. Icelandic luxury summerhouses. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Það er von að margur Íslendingurinn gráti þessa dagana þá fáránlegu stöðu sem hann er komin í.
Hér er svo annar fallegur sveitabær sem hefur fengið andlitslyftingu. Bærinn er rétt áður en komið er að Geysi í Haukadal.

Því miður hefur mörgum ef betri jörðum landsins verið breitt í óðal fjárglæframanna og er nú svo komið að ungt fólk getur ekki lengur orðið hafið búskap þar sem verð á jörðum hefur snarhækkað svo mikið. En í dag eru víða góð tún í órækt og notuð sem beitaland fyrir hross. Iceland’s financial banking crisis. Where is the money? The party is over for Iceland. Icelandic luxury summerhouses. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Ekki er þetta nú allt alslæmt, en Íslenskir arkitektar og iðnaðarmenn hafa fengið botnlausa vinnu við að hanna og smíða þessi hús og ekki má svo gleyma öllum peningunum sem streyma í ríkiskassann! Gæti hugsast að þetta hafi allt verið gert fyrir lánsfé sem Íslendingar eru svo að súpa seyðið af þessa dagana!

Sum hús taka sig vel út, fallegur arkitektúr eins og þetta hér sem er í þjóðgarðinum við Þingvallavatn. Iceland’s financial banking crisis. Where is the money? The party is over for Iceland. Icelandic luxury summerhouses. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Því miður er það svo á Íslandi að þú ert ekki að meika það nema að þeir sem eru í kringum þig haldi að þú sért að meika það og því er þessi umgjörð sem þetta fólk er að reyna að skapa sér alveg bráðnauðsynleg - Eða er það ekki?
Kjartan
Fært undir Alþjóðamál, Efnahagur, Fjölmiðlar, Flug, Ljósmyndun, Slúður, Stjórnmál, Trúarbrögð, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda þann 14. október 2008 af photo | 8 ummæli
ÆTLI ÞAÐ SÉ EITTHVAÐ TIL Í SKRIFUM JÓNASAR EFTIR ALLT?
12.10.2008
Vita vonlaus þjóð
Íslendingar eru vonlausir. Seðlabankastjóri, útrásargreifar, bankastjórar,
ráðherrar og fjármálaeftirlit selja ykkur í ánauð. Þið rekið ekki pakkið frá
völdum, heldur farið að skúra undir stjórn þess. Fólk verður að standa saman,
segja leiðarar. Eyðum ekki tíma í blammeringar, segir gott fólk. Við eigum að
sætta okkur áfram við snarvitlausa frjálshyggju. Sætta okkur við, að
brennuvargar séu í brunaliðinu og að bankastjórar séu áfram ráðgjafar. Að ráðherrar fái syndauppgjöf fyrir kjafthátt í símanum til Bretlands. Að heyrnardaufur æsingamaður í Seðlabankanum haldi velli. Svei ykkur öllum.
12.10.2008
Nokkrar spurningar um Geir
Af hverju slítur Geir Haarde ekki samningum við umboðsmenn Gordon Brown? Af hverju segir hann ekki, að Brown hafi teflt skákinni í patt? Af hverju lýsir hann ekki yfir, að Brown sé terroristi og ræningi? Hann hafi rænt fjórum milljörðum punda af Íslendingum og þrýst Íslandi á brún gjaldþrots? Af hverju sakar hann ekki Alþjóða gjaldeyrisvarasjóðinn um að ganga erinda Brown? Af hverju segir hann ekki, að ráðamenn Vesturlanda hindri Ísland í að komast á fætur? Af því að hann er enginn pólitíkus í samanburði við þá, sem náðu fram stækkun landhelginnar. Hann getur nefnilega ekki ákveðið sig.
Það skyldi þó ekki vera að íslenskir stjórnmálmenn séu búnir að mála sig út í horn í þessu máli eftir margra ára aðgerðar- og sinnuleysi?
Nema að hér sé hrein og klár heimska ráðamanna á ferðinni?
Ef svo er, þá er illa komið fyrir Íslensku þjóðinni.
Auðurinn bætir alla skák ef ei væri mát á borði.
Kjartan
WWW.PHOTO.IS
Fært undir Alþjóðamál, Efnahagur, Fjölmiðlar, Slúður, Stjórnmál, Trúarbrögð, Umhverfi, Umræðan þann 13. október 2008 af photo | 0 ummæli
NÚ RÍÐUR Á AÐ TAKA RÉTTAR ÁKVARÐANIR!
NÚ RÍÐUR Á AÐ TAKA RÉTTAR ÁKVARÐANIR!
Nú þurfa Íslendingar að standa í báðar lappir og standa “FASTIR” á sínu eins og þeir hafa gert í gegnum tíðina (Þorskastríðið).
Það er greinilegt að alþjóðasamfélagið er ekki alveg sátt við þessa frábæru lánatillögu sem kom óvænt á elleftu stundu snemma að morgni frá Rússneska sendiherranum.
Ekki skal vanmeta Rússa í þessum leik, en Rússar hafa löngum verið skákmenn góðir ekki síður en Íslendingar.
Að sjálfsögðu eru Rússar með öflugt njósnanet og búnir að fylgjast vel með því sem hér er að gerast og hvernig búið er að leiða Íslenska bankakerfið til slátrunar án þess að Ameríkanar, Evrópubandalagið eða frændur vor Skandínavar réttu litla putta til hjálpar. Verst var að sjá hvernig vinir vor Bretar komu svo í lokin og greiddu náðarhöggið til að flýta fyrir fallinu.
Fróðlegt væri að vita hver væri hin raunverulega skýring á öllu þessu sjónarspili?
Því er þessi örvænting í gangi að koma endilega Alþjóðagjaldeyrissjóðnum (IMF) að í þessu máli? Þar sem ALLT snýst um að verja hagsmuni og að endanum láta Íslendinga taka á sig ALLA ÁBYRGÐIR til langframa á skuldum bæði í Englandi og Hollandi?
Nútíma hernaður er ekki lengur háður með vopnum, heldur peningum og með þeirri krísu sem Íslendingar eru að lenda í núna, þá er í raun verið að breyta Íslensku þjóðinni í vaxtarþræla um ókomin ár þar sem allur þjóðarauðurinn verður sendur jafnóðum úr landi í hendurnar á …?
Nú væri ráðið mitt í öllum þessum darraðardansi að hringja líka í Kínverska sendiherrann og kanna lánamöguleika þar og að sjálfsögðu undir þeim formerkjum að lofa að skamma Björk aðeins í staðin :)
Líklega er þessi fjármálakrísa sem nú er í gangi, dæmi um einhverja þá mestu tilfærslu á fjármunum í sögunni og hverjir skildu nú hagnast í raun? Hvar eru blaðamennirnir okkar? Er ekki komin tími á að virkja “Follow The Money” aðferðina núna?
En hvað varð annars um alla þessa milljarða, varla hafa þeir bara gufað upp?
Varðandi lánið frá Rússum, þá man ég ekki eftir að Rússar hafi verið að koma neitt sérstaklega illa fram við Íslendinga hér á árum áður.
Núna eiga ráðamenn að spýta í lófanna og nýta sér eitt stærsta net af sendiherrum sem þessi litla þjóð hefur yfir að ráða og beita þeim ÓSPART í þessari baráttu.
Svo mörg voru þau orð.
Kjartan
Fært undir Alþjóðamál, Efnahagur, Fjölmiðlar, Menning og listir, Slúður, Stjórnmál, Umhverfi, Umræðan þann 11. október 2008 af photo | 0 ummæli
NÝJU FÖTIN KEISARANS
NÝJU FÖT KEISARANS
Nú blasir skyndilega nakinn sannleikurinn við landsmönnum og dansinn í kringum gullkálfinn síðustu árin virðist vera á enda og þá með skelfilegri afleiðingum en nokkurn þorði að ímynda sér fyrir Íslenskt samfélag. Greinilegt er að þar er víða er pottur brotinn.
Nú er vinsælt að koma með bækur til að gera upp spillingarmál af ýmsu tagi á Íslandi. Eftir einhvern ár, þá verður líklega hægt að næla sér í eintak af þessari bók. Bókin yrði líklega hin fróðlegasta lesning um Íslenskt samfélag eins og það er í dag.
Eins og sjá má, þá hefur Davíð náð að safna í kringum sig góðri og öflugri fylkingu af “Já”-liði og er jafnvel talað um náhirð í því sambandi.
Geir Hilmar Haarde forsætisráðherra, Davíð Oddsson, seðlabankastjóri og Hannes Hólmsteinn Gissurarson í bankaráði Seðlabankans.

Nýju fötin keisarans, Geir Hilmar Haarde forsætisráðherra, Davíð Oddsson, seðlabankastjóri og Hannes Hólmsteinn Gissurarson í bankaráði Seðlabankans.
Kjartan
p.s. minni á tónleika með Bubba Morteins sem verður við Austurvöll fyrir framan Alþingishúsið klukkan 12:00 þann 8. október vegna efnahagsástandsins.
Fært undir Alþjóðamál, Efnahagur, Fjölmiðlar, Heilbrigði, Menning og listir, Slúður, Stjórnmál, Trúarbrögð, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda þann 8. október 2008 af photo | 2 ummæli
HVORT ÁTTI ÞAÐ AÐ VERA DAVÍÐ OG GEIR … EÐA GEIR OG DAVÍÐ?
HVORT ÁTTI ÞAÐ AÐ VERA DAVÍÐ OG GEIR … EÐA GEIR OG DAVÍÐ?
Frétts hefur að nú hafi tveir af “RÁÐA”-MÖNNUM landsins flúið land vegna fyrirhugaðra mótmæla sem búið er að auglýsa að verði við Austurvöll fyrir framan Alþingishúsið.
En Bubbi Morteins verður með mótmæli gegn ráðamönnum þjóðarinnar á Austurvelli klukkan 12:00 þann 8. október vegna efnahagsástandsins. Flott framtak hjá honum. (spurning hvort að BB mætti á staðinn með …).

Hér hefur farið fram lýtaraðgerð á Geir Haarde og Davíð Oddssyni og er hægt að sjá hvernig þeir verða fyrir og eftir lýtaraðgerðina þar sem búið er að víxlað á þeim andlitunum (smellið á mynd til að kynna ykkur málið nánar)
Ég fékk óvart sendan þennan póst frá lýtalækni í Búlgaríu sem á að sjá um að skipta á andlitum á þeim félögum!
Kjartan
WWW.PHOTO.IS
Fært undir Alþjóðamál, Efnahagur, Fjölmiðlar, Heilbrigði, Ljósmyndun, Slúður, Stjórnmál, Trúarbrögð, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda þann 6. október 2008 af photo | 0 ummæli
HVOR ER MEIRI JÓKER DAVÍÐ EÐA GEIR
Fundað stíft í ráðherrabústaðnum
Hvor er meiri Jóker Davíð Oddsson seðlabankastjóri eða Geir Hilmar Haarde forsætisráðherra?

Smellið á félagana til að kynna ykkur málið nánar
Kjartan
WWW.PHOTO.IS
Fært undir Alþjóðamál, Efnahagur, Fjölmiðlar, Ljósmyndun, Slúður, Stjórnmál, Trúarbrögð, Tækni og vísindi, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda þann 4. október 2008 af photo | 0 ummæli
BÓNUS ER MEÐ DAVÍÐ Á ÚTSÖLU!
Þingflokksformaður segir forystu Seðlabankans rúna trausti
BÓNUS ER MEÐ SLÁTUR Á ÚTSÖLU!
Nú er sláturvertíð í gangi og Bónus auglýsir

Smellið á auglýsinguna til að fá evru!
En annars rakst ég hér á ótrúlega skemmtilega grein um Íslenska matseld sem að ég skora ALLA á að lesa:
http://www.visir.is/article/20081003/SKODANIR06/33562372/-1
Kjartan
WWW.PHOTO.IS
Fært undir Alþjóðamál, Efnahagur, Fjölmiðlar, Heilbrigði, Matur og drykkur, Slúður, Stjórnmál, Umhverfi, Umræðan þann 3. október 2008 af photo | 0 ummæli
Næsta síða »
