AKRANES - SAFNIÐ Á AKRANESI - MYNDIR OG KORT
Safnafólk gagnrýnir Akraneskaupstað
AKRANES - SAFNIÐ Á AKRANESI - MYNDIR OG KORT
AKRANES - SÖFN
Á milli Hvalfjarðar og Leirárvoga 6500 manna þorp Akraneskaupstaður eða Skipaskagi sem stendur á vesturodda Akraness á Vesturlandi.
Líklega er safnið á Akranesi þekktast fyrir þennan gamla uppgerða bát hér. Kútter Sigurfari, 86 smálesta eikarseglskip. Kútterinn er sá eini sem hefur verið varðveittur úr fyrri tíðar þilskipastóli Íslendinga og færður í upprunalegt horf, til minja um merkilegan kafla í skipa- og útgerðarsögu Íslands, skútuöldina. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

The Akranes Museum. Among the museum’s more notable relics of early seafaring is a 125 year old fishing boat with full rigging, as well as the cutter “Sigurfari”, an 86 tonne oak ship of 1885, the only fishing vessel of its kind preserved in Iceland. The Akranes Museum - Görðum Akranes (to view gallery: click image) (C)2009 Kjartan P. Sigurðsson
Hér má sjá gamalt trésmíðarverkstæði (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

The museum has a large collection of mostly 19th century tools and household objects that bear witness to farming, housekeeping and social conditions in the township and vicinity of Akranes. The Akranes Museum - Görðum Akranes (to view gallery: click image) (C)2009 Kjartan P. Sigurðsson
Á safninu á Akranesi má sjá mikið úrval af tólum og tækjum sem læknar og ljósmæður notuðu hér fyrr á árum. _ Various tools for doctors in The Akranes Museum - Görðum Akranes (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

The Akranes Museum. The museum has also rebuilt Iceland’s oldest concrete house, built in 1876 -1882, as well as the township’s oldest timber family house of 1875. - Görðum Akranes (to view gallery: click image) (C)2009 Kjartan P. Sigurðsson
Akranes er þekkt fyrir fiskveiðar og sjósókn. Á safninu á Akranesi má finna mikið magn af veiðafærum og búnaði frá fyrri tíð. Meðal annarra merkra gripa er gott úrval sjóminja, skipslíkön, áraskip frá árinu 1874, fallbyssa af varðskipi og togvíraklippur úr þorskastríðum Íslendinga við Breta. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

The Akranes Museum. The museum has also rebuilt Iceland’s oldest concrete house, built in 1876 -1882, as well as the township’s oldest timber family house of 1875. - Görðum Akranes (to view gallery: click image) (C)2009 Kjartan P. Sigurðsson
Hér má svo önnur blogg frá mér um Akranes http://photo.blog.is/blog/photo/entry/284603/
Hér má svo lesa nánar um Akranes http://is.wikipedia.org/wiki/Akranes
Hér má sjá kort af Akranesi, Akrafjalli og hvar safnasvæðið er (smellið á mynd til að sjá fleirri myndir)

Map of Akranes, a small fishing town on vest coast of Iceland (to view more picture: click image) (C)2009 Kjartan P. Sigurðsson
![]()
Kjartan
WWW.PHOTO.IS
Byggðasafn Akraness Görðum safn Safnaskálinn Jóns M. Guðjónssonar sóknarprestur kirkjustaður prestssetur sveitarfélög Skarðsheiði Akraneskaupstaður munir búskaparhættir saga áhöld læknir ljósmóðir eldsmiðja gamlar bifreiðar og smíðatól smiður handverksmenn ljósmyndun ljósmyndatækni kvikmyndatækni póst símamál afþreying Kútter Sigurfari eikarseglskip þilskipastóli Íslendingar skipasaga útgerðarsaga Íslands skútuöld sjóminja skipslíkön áraskip fallbyssa varðskip togvíraklippur þorskastríð Bretar Safnasvæðið Byggðasafn Akraneskaupstaður Skipaskagi Hvalfjarðar Leirárvoga Akrafjall Akraneshrepps Skilmannahrepps þéttbýli sjósókn verslun Ytri-Akraneshreppi en sveitin inn með Akrafjalli að Innri-Akraneshreppi Ytri-Akraneshreppur Akraneskaupstaður sjávarútvegur iðnaður sementsverksmiðja Grundartanga Faxastígur Knattspyrna Í Hvalfjarðargöngin Akraborgin History fishing village aluminum smelting plant fishing industry town industry transportation Hvalfjörður underwater road tunnels Icelandic football league Akranes, IA, museum The Akranes Museum collection tools household farming housekeeping social conditions township vicinity
Fært undir Ferðalög, Fjölmiðlar, Kvikmyndir, Ljósmyndun, Menning og listir, Nám, Stjórnmál, Tækni og vísindi, Umhverfi, Umræðan þann 20. apríl 2009 af photo | 0 ummæli
4×4 HÁLENDISFERÐIR Í AFRÍKU - VIDEO
Rúmlega 40 bifreiðar á Eyjafjallajökli
Ég var á ferð í Egyptalandi fyrir stuttu og fór í skemmtilega 4×4 ferð út í eyðimörkina Sahara. ÞAð sem kom mér á óvart var að keyrslan og upplifunin minnti ansi mikið á margar af þeim jöklaferðum sem ég hef sjálfur farið í með ferðamenn.
http://www.youtube.com/watch?v=7gZ2ev0rJ0M
Fært undir Alþjóðamál, Ferðalög, Jarðfræði, Kvikmyndir, Ljósmyndun, Menning og listir, Samgöngur, Tækni og vísindi, Umhverfi, Umræðan þann 12. apríl 2009 af photo | 0 ummæli
KÍNAFERÐ - FERÐAMANNAÞORPIÐ Zhu Jia Jiao, Quingpu
KÍNAFERÐ - FERÐAMANNAÞORPIÐ Zhu Jia Jiao, Quingpu - 14
Dagur - 14 / Day - 14 Fimmtudagur 1. jan. 2009
Zhu Jia Jiao, Quingpu China, Kína, The People’s Republic of China (中华人民共和国, 中華人民共和國)
Þar sem ferðasagan frá Kína var ekki lokið, að þá kemur framhald hér með fullt af nýjum myndum:
Dagurinn byrjaði með því að fara með lest á Stadium, en Heng vildi kynna sér aðstæður fyrir næstu samkeppni sem við vorum að spá í að taka þátt í. Hún plataði mig síðan rækilega. Sagði að við þyrftum að fara og kanna þorp fyrir utan borgina sem þyrfti að endurskipuleggja (kom svo í ljós að það var rétt að sumu leiti) og til þess þurfti að taka tvo strætisvagna. Sá fyrir var frekar hrörlegur og bílstjórinn skoraði ekki hátt fyrir stórhættulegt aksturslag. Ef vélin var ekki á yfirsnúning, þá var stigið svo harkalega á bremsuna að fólkið í vagninum mátti hafa sig alla við að halda sjó í látunum.
Næst komum við í nýlegt þorp (ca. 600.000 íbúar) og fórum við inn á lítinn veitingastað þar sem hitastigið var líklega við frostmark. Fengum okkur hádegismat sem voru súpur þar sem mátti finna í þurkaða svínapuru og svínamaga. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

To keep food fress in China, the best way it to keep it live! A small resturant in town on way to Qingpu District (青浦区) district of Shanghai Municipality, China. There we got a delicious soup which include stomage and skin from pig! (to view gallery: click image) (C)2009 Kjartan P. Sigurðsson
Næst var haldið aftur út á götuna þar sem reynt var að finna vagn sem færi áfram á staðinn sem Heng var með í huga. Það gekk ekki þrautalaust fyrir sig, enda allir vagnar troðnir út úr dyrum. Hér var ekki annað að gera en að treysta á frumskógarlögmálið og á milli þess sem að við hlupum á milli vagna, eltu okkur 2-3 betlarar. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

In China they can easily handle rush-hour loads, they only put more people into the bus! A overloaded bus in town on way to Qingpu District (青浦区) district of Shanghai Municipality, China. (to view gallery: click image) (C)2009 Kjartan P. Sigurðsson
Að lokum komumst við inn í vel troðin strætó. Þar var ung og falleg kona sem réði þar ríkjum (ásamt bílstjóra) þar sem hún reyndi sem best hún gat að troða sem flestum inn í vagninn á hverri stoppustöð og alltaf tókst henni að troða fleirrum. Hún lét mig snúa mér 180° svo að það raðaðist betur inn í vagninn. Á meðan tróð hún sér á milli með seðlabúntið í annarri og rukkaði stíft með hinni. Gengið virtist vera mismunandi eftir því hver átti í hlut og rukkaði hún mig meira en aðra og líklega út af því að hún hefur séð að ég væri útlendingur. Ég skildi annars ekki orð af því sem að hún sagði. Þetta var annars mögnuð upplifun og náði ég videói af atburðinum og þessari óvenjulegu nálægð sem að ég lenti í við fjölda fólks. Ég mæli ekki með þessari reynslu fyrir þá sem þjást af innilokunarkennd.
Hér er myndband sem að ég tók á síman hjá mér sem sýnir þegar aðstoðarkonan í vagninum fer á milli farþega og rukkar þá:
http://www.youtube.com/watch?v=uPrgqlfqZkM
Hálftíma síðar var þrýstingnum létt og við bárumst út úr vagninum með mannhafinu. Núna vorum við komin í gamalt þorp með þröngum götum.
Það fyrsta sem tók á móti okkur voru nokkrir dansandi kjúklingar sem búið var að hengja upp á þvottasnúru til þerris innan um annan nærfatnað. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

It is winter, it is cold the trip with overloaded bus to the town Zhu Jia Jiao, Quingpu, Zhujiajiao. The first to see was a strange things: 14 chicken legs hanging for drying on the washing lines with some bra and knickers! (to view gallery: click image) (C)2009 Kjartan P. Sigurðsson
Þetta var eins og að ferðast aftur í tímann. Þarna var allt orginal með gömlum húsum og allt var troðið af fólki! Í ljós koma að þetta var ferðamannaþorpið Zhu Jia Jiao með hundruðum smáverslanna í þessum þrögnu götum. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

It was like going back in time. An old orginal Chines town, which now is very popular for the tourist to visit. Town Zhu Jia Jiao, Quingpu, Zhujiajiao. (to view gallery: click image) (C)2009 Kjartan P. Sigurðsson
Hér er verið að baka risa pönnukökur. En það er gert á stórri eldavélahellu sem snýst á meðan skafið er með sköfu til að gera pönnukökuna þunna. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Chinese Super Size thin pancake. Jian bing guo zi is a breakfast fast food sold on the streets of China (煎餅). (to view gallery: click image) (C)2009 Kjartan P. Sigurðsson
Ferðamönnum var jafnframt boðið og að sigla með gondólum með undirspili með rómantískri tónlist um síkin sem lágu allt um kring. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Boat trip in Zhou Zhuang close to Shanghai in China. (to view gallery: click image) (C)2009 Kjartan P. Sigurðsson
Þarna var mikið úrval af mat og öðru góðgæti ásamt flottu handverki. Heng viðurkenndi að hún hefði verið að plata mig, það átti EKKI að fara að leggja þennan stað niður og hanna einhverja stórborg í staðin, að vísu átti að hanna stórborg á stórt akursvæði sem tengja átti þetta litla þorp við borgina sem að við vorum ný komin frá! Næstu klukkutímarnir fóru síðan í að skoða ótrúlegt mannlíf og skraut.
Heng keypti lifandi fiska og skjaldböku sem hún henti svo í kanalinn fram af hárri göngubrú. Áður þurfti hún að labba hring í kringum tákn á miðri brúnni. Á meðan pössuðu 2 gamlar konur upp á að allt færi fram samkvæmt ritualinu. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Heng is throwing turtle and fish into the canal in town Zhu Jia Jiao, Quingpu, Zhujiajiao in China. (to view gallery: click image) (C)2009 Kjartan P. Sigurðsson
Þar sem lífeyrirskerfið er ekki sterkt í Kína, að þá þarf mikið að fólki að finna sér aðrar aðferðir til að komast af. Her er ein gömul kona að biðja um smá aur og bregst Heng vel við beiðni hennar. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Old women in town Zhu Jia Jiao, Quingpu, Zhujiajiao in China. (to view gallery: click image) (C)2009 Kjartan P. Sigurðsson
Heimferðin var allt annar lúxus, fundum nýlega rútu sem var öll í leðri og flottheitum. Ferðin byrjaði rólega og hafði ég á orði að þessi bílstjóri kynni sko að keyra. En Adam var ekki lengi í paradís. Það færðist skyndilega mikið kapp í bílstjórann sem sönglaði hástöfum á milli þess sem hann byrjaði að æpa á farþeganna um að drífa sig nú fljótt inn eða út úr rútunni. En það var stoppað víða til að safna fólki í rútuna og það sem verra var að hann var í kappakstri við aðra rútu við að ná sem flestum farþegum inn á leiðinni og skiptust rúturnar um foristuna. Það kemur manni ekki á óvart að maður varð vitni að 2-3 árekstrum á dag. Líklega mætti bæta umferðarmenninguna töluvert en flautan er mikið notað samskiptsatæki í umferðinni.
Kvöldið endaði svo með ENN EINU MATARBOÐINU. Það var eitthvað um 20 réttir og má þar nefna lifandi rækjur í sojasósu, sterkt vín með sporðdreka, þunnar sneiðar í raspi.
En hér má svo sjá tillögur sem að við sendum inn í keppni sem tengdist gagnaöflun í þessari ferð:
Green Water City, Shanghai Qingpu New City West Region International Competition of Conceptual Urban Design

(C)2009 Heng Shi & Kjartan P. Sigurdsson (click image to enlarge picture - smellið á mynd til að stækka mynd)
Green Water City, Shanghai Qingpu New City West Region International Competition of Conceptual Urban Design

(C)2009 Heng Shi & Kjartan P. Sigurdsson (click image to enlarge picture - smellið á mynd til að stækka mynd)
Green Water City, Shanghai Qingpu New City West Region International Competition of Conceptual Urban Design

(C)2009 Heng Shi & Kjartan P. Sigurdsson (click image to enlarge picture - smellið á mynd til að stækka mynd)
Green Water City, Shanghai Qingpu New City West Region International Competition of Conceptual Urban Design

(C)2009 Heng Shi & Kjartan P. Sigurdsson (click image to enlarge picture - smellið á mynd til að stækka mynd)
![]()
Kjartan
WWW.PHOTO.IS
p.s. fyrir þá sem hafa áhuga á fleirri myndum, þá fór ég í ferð til Kína 2003 og þá sem ferðamaður og leiðsögumaður.
http://www.photo.is/kina/index.html
Fært undir Alþjóðamál, Efnahagur, Ferðalög, Fjölmiðlar, Ljósmyndun, Matur og drykkur, Menning og listir, Nám, Samgöngur, Stjórnmál, Tækni og vísindi, Umhverfi, Umræðan þann 9. mars 2009 af photo | 0 ummæli
EGYPTALAND - MYNDIR ÚR LOFTBELG
MYNDIR LOFTBELGUR - LENDING - EGYPTALAND
Arab Republic of Egypt
جمهورية مصر العربية
Gumhūriyyat Miṣr al-ʿArabiyyah
Luxor - Flug með loftbelg - Mannlífið í Lúxor séð úr lofti! Hluti-4 15. Feb. 2009 Sunnudagur kl. 5 til 9 … sólin að koma upp.
Hér kemur svo lokasyrpan úr fluginu með loftbelg í Luxor í Egyptalandi.
Eins og sjá má, þá heppnaðist lendingin 100% og er von að allir séu brosandi út að eyrum. Svei mér þá ef lagið “Kútter Haraldur” hljómaði ekki í ósjálfrátt í eyrum … “en allir komu þeir aftur og engin þeirra …” (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

The passengers seemed to really enjoy their flight! The Hot Air balloon makes save landing on the county site close to town Luxor in Egypt. (to view gallery: click image)
Það er mikið mál að halda svon stórum ferlíki á sínum stað og eins gott að það blási ekki hressilega eins og oft vill gerast á fjóni. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

The navigator smiling and other crew people helping to keep the basket in place. ‘Wind gust’ can cause lot of problems. The basked have also the name gondola and is made of wicker and ratan, but can be made of aluminum to. (to view gallery: click image)
Þegar er farið að undirbúa næstu ferð. En hér er komið með nýjar gasbyrgðir. Eins og sjá má, að þá þarf mikið magn af gasi til að halda hita á stórum loftbelg. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

The helping crew is already started to prepare the next flight. Here they come with a newly filled propane fuel tank. (to view gallery: click image)
Kynda þarf regluega upp til að hitinn fari ekki úr belgnum. Nýr hópur af ferðamönnum er á leiðinni og því gott að nota þá farþega sem fyrir eru sem ballest. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

The pilot need to heat up the envelope regularly to keep the balloon in uprigth possition. The envelope is usually made of ripstop nylon, or dacron (a polyester). (to view gallery: click image)
Bændur og búalið voru lítið að stressa sig á þessari uppákomu. Hér má sjá asna fá sér smá snæðing á meðan loftbelgsfarar gera sig klára í næstu ferð. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

We have clearly landet on the country site where the “Real Country People” live. A wonderful picture with two donkey eating in front of the newly landed Hot Air balloon close to town Luxor in Egypt. (to view gallery: click image)
Það er vissara að vera vel vopnum búinn ef einhver brjálaður ferðamaður skyldi fara að vera með óþarfa stæla. Hér er ungur maður og ef að líkum lætur, þá er hann ekki komin með skotveiðileyfi eins og gert er á Íslanska vísu að hætti BB (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

It is better to have a good gun if you meet some crazy tourist. The place was protected by armed young residents :) (to view gallery: click image)
Þá er næsta ferð hafin og lendingastaðurinn er ókunnur. Börnin eru alltaf jafn forvitin og oftast fyrst á staðinn þegar eitthvað er um að vera. Þau voru nú ekki öll á því að láta mynda sig og hjálpaði mikið til hversu víð linsan var hjá mér. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Now the next balloon trip or jorney to some unnovned place is already started. The kids are usually the first one to show up when some event or happening like ballon flying is going on in the neighbourhood. (to view gallery: click image)
Svona í lokin, að þá er ekki úr vegi að sýna svefnaðstöðuna á hótelinu sem að við gistum á. Hótelið heitir Bob Marley að hætti frægs tónlistarmanns og vantaði nánast ekkert á staðinn nema reykjarlyktina sem jafnan hefur fylgt þessum kúltúr (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Just to show my bed at the Hotel Bob Marley in Luxor in Egypt. A great five stars expeiens :) (to view gallery: click image)
![]()
Kjartan
WWW.PHOTO.IS
Blogg um sama flug má svo sjá hér:
Hluti-I http://photo.blog.is/blog/photo/entry/815725/
Hluti-II http://photo.blog.is/blog/photo/entry/816250/
Hluti-III http://photo.blog.is/blog/photo/entry/818496/
Fært undir Alþjóðamál, Efnahagur, Ferðalög, Flug, Ljósmyndun, Menning og listir, Nám, Trúarbrögð, Tækni og vísindi, Umhverfi þann 4. mars 2009 af photo | 0 ummæli
KÍNAFERÐ - SHANGHAI - KVÖLDMYNDIR - ÁRAMÓT - 13
KÍNAFERÐ - SHANGHAI - KVÖLDMYNDIR - ÁRAMÓT - 13
Dagur - 13b / Day - 13b Miðvikudagur 31. des. 2008
Shanghai: Shēnchéng (申城, “City of Shēn”), China, Kína, The People’s Republic of China (中华人民共和国, 中華人民共和國)
Shanghai borg er mjög falleg á kvöldin þegar farið er að dymma. Hér er tákn borgarinnar, Orient Pearl TV Tower, sem verður eins og ljósasjóv á kvöldin

Shanghai Oriental Pearl TV Tower (上海东方明珠塔). Located at the tip of Lujiazui in the Pudong district, by the side of Huangpu River, opposite The Bund of Shanghai. It was designed by Jia Huan Cheng. Construction began in 1991 and the tower was completed in 1995. At 468 m (1,535 feet) high, it is the tallest tower in Asia, and the third tallest tower in the world. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Hér eru 2 hæstu byggingar borgarinar Shanghai World Financial Center og Shanghai Jinmao Observatory 88 Jin Mao Tower

Shanghai World Financial Center - 上海环球金融中心 - 1997-2008 - Designed by Kohn, Pedersen & Fox and East China Architectural Design & Research Institute Co. Ltd, the Shanghai World Financial Center. Highest building in China reaching 1614ft (491,9m). Shanghai Jinmao Observatory 88 Jin Mao Tower (金茂大厦), Lujiazui, Pudong, Shanghai 1998 Skidmore, Owings & Merrill - SOM Architects 420m high, 88 storey skyscraper Incorporating offices + Grand Hyatt Hotel with thirty storey high atrium Jin Mao Shanghai building : Tallest building in China since 2005 Seventh tallest building in world at time of writinger. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Og nokkrir turnar til viðbótar. Merkilegt hvað allt þetta svæði hefur náð að byggjast upp á aðeins 15 árum

Shanghai Night pictures. And few more towers in the Pudong district in Shanghai China. High-rise building at night. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Hér er ég komin hinu megin við ánna Hunagpu River og það fyrsta sem fyrir augum ber, er stór bátur með risa auglýsingaskilti

Shanghai Night pictures. Night Cruise on the Huangpu River. Shanghai skyline in the background. A boat-trip on Huang-Pu-river in Shanghai at night, between The Bund and Pudong. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
En fallegust er borgarmyndin yfir fljótið Hunagpu River séð frá “The Bund” hverfinu við endan á verslunargötunni Nanjing Road (南京路 Nánjīnglù) sem er 4km löng með um 4.000 verslanir. Við endann á henni er svæði sem kallað er “Bund” og oft kallað Wall Street Shanghai.

Shanghai at night. Shanghai is one of the most modern and cosmopolitan cities in China. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Shanghai Night pictures (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Shanghai Night pictures. Panoramic picture of the Pudong district where Shanghai Oriental Pearl TV Tower, Shanghai World Financial Center and Shanghai Jinmao Observatory 88 Jin Mao Tower are the higest one. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
The HSBC Building in Bund the old part of Shanghai.

Shanghai Night pictures. The HSBC Building has been called “the most luxurious building from the Suez Canal to the Bering Strait” (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Hér er gosbrunnur á svæði sem heitir “Bund” sem er við endann á Nanjing Road við árbakkann the Huangpu River

Shanghai Night pictures of fountain on Bund with Orient Pearl TV Tower in background. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
![]()
Kjartan
WWW.PHOTO.IS
p.s. fyrir þá sem hafa áhuga á fleirri myndum, þá fór ég í ferð til Kína 2003 og þá sem ferðamaður og leiðsögumaður.
http://www.photo.is/kina/index.html
Tók jarðlest sem fór m.a. undir The Bund og ánna Hunagpu River og fjármálahluta borgarinnar þar sem sjónvarpsturninn frægi með kúlunum Orient Pearl TV Tower,
Fært undir Alþjóðamál, Efnahagur, Ferðalög, Fjölmiðlar, Ljósmyndun, Menning og listir, Samgöngur, Stjórnmál, Tækni og vísindi, Umhverfi, Umræðan þann 5. febrúar 2009 af photo | 0 ummæli
KÍNAFERÐ - SHANGHAI - RÓBÓTAR DANSA - TÆKNISAFNIÐ - 13
KÍNAFERÐ - SHANGHAI - RÓBÓTAR DANSA - TÆKNISAFNIÐ - 13
Dagur - 13 / Day - 13 Mánudagur 31. des. 2008
Shanghai: Shēnchéng (申城, “City of Shēn”), China, Kína, The People’s Republic of China (中华人民共和国, 中華人民共和國)
Dagur-13 Mið. 31. des. 2008
Ný tilraun var gerð til að fara aftur í tæknisafnið, Shanghai Science and Technology Museum (上海科技馆). Í þetta skiptið var opið. Komið var inn í risa glerbyggingu á mörgum hæðum og voru líklega 20-30 verkamenn á fullu að þrífa glerið að utan og innan.

Shanghai Science and Technology Museum (上海科技馆) is a large museum in Pudong, Shanghai, close to Century Park, the largest park of the city. The museum incorporates an IMAX theatre, and as of 2006 there are 12 main exhibits open to the public, including “Spectrum of Life”, “World of Robots” and “Information Era”. The construction of the museum cost 1,75 billion RMB, and the floor area is 98000m2 (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Það var ótrúleg upplifun að skoða þetta safn sem skiptist í margar deildir og hefði vart dugað dagurinn til að skoða hverja deild fyrir sig. Þarna var mikið af skólakrökkum og greinilegt að safnið er notað sem hluti af kennslu. Jarðfræðideildin var spennandi með stóru steinasafni, rekbeltin voru útskýrð, jarðskjálftabylgjur, olíuvinnsla, kolavinnsla, salthellir og að sjálfsögðu var allt útskýrt með hjálp nýjustu tækni.
Hér stjórna krakkar stálkúlu með heilabylgjum og var markmiðið að færa kúluna upp í borðið hjá andstæðingnum.

Children’s Technoland: Aimed at children aged 1-12. including laser musical instruments. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Ég nánast hljóp í gegnum sumar deildirnar eins og dýra- og plöntufræði, dýr jarðarinnar (risastór), geimsagan og fl. Stoppaði dágóða stund í deildinni þar sem öll grundvallarhugtök í eðlisfræði voru útskýrð. Einnig stoppaði ég mikið þar sem farið var yfir þróun tölvutækninnar, fjarskipti og nýjustu tækni í fjölmiðlun. Prófaði flughermi, karókí (þar sem ég var mixaður live inn á myndband). Flott framsetning á uppstoppuðum dýrum jarðarinnar

Wide Spectrum of Life: Exhibitions about biodiversity, genetics and rainforests. The Earth Exploration exhibit passes fossils on a fascinating journey to the Earth’s core (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
En róbótasafnið stóð upp úr. Þarna voru krakkar að tefla við róbót, róbót að teikna myndir af fólki, þú gast stýrt róbót frá hnappaborði, ýmis framleiðsla á minjagripum, 3D styttur af andliti gert með CNC tækni (allt mjög ódýrt). Hér er Róbót eða þjarki að tefla eða spila … við unga dömu

Robots thrill youngsters at tech expo. AV Paradise: Information technology and video & film technologies. Robot Theatre, Plane Steering Simulation. World of Robots (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Ég fór í keppni við tvo róbóta, þjarka að skjóta af boga í mark (ég tapaði stórt).

Robot shooting arrow at goal. AV Paradise: Information technology and video & film technologies. Robot Theatre, Plane Steering Simulation. World of Robots. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
hápunktur róbótadeildarinnar var leiksýning með 20-30 róbótum sem dönsuðu allt frá kínverskan sverð- og regnhlífadansi yfir í franskan Moulin Rouge dans með fjaðurskrauti og alles á meðan stórhljómsveit róbóta leið inn á sviðið spilandi á ýmis hljóðfæri! Og að sjálfsögðu allt með nákvæmni tölvutækninnar (dæmi um slíkt, þá var flott að sjá sverðsoddanna snertast í lok bardagans).

AV Paradise: Information technology and video & film technologies. Robot Theatre, Plane Steering Simulation. Robot Show - Robots Perform Traditional Chinese Parasol Dance (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Hér spilar þjarki eða róbót á píanó af mikilli nákvæmni.

AV Paradise: Information technology and video & film technologies. Robot Theatre, Plane Steering Simulation. Don’t forget to sing karaoke with the robot that plays the piano. It’s really fun. World of Robots. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Hér er ég inni í kúlunni, en inni í henni miðri er 4D kúlu bíó

4-D Theatre: Theatre that produces movement, wind, rain, and other 4-D effects; capacity of 56 seats. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Það sem vakti sérstaklega athygli mína, var hversu mikil nákvæmni var í smíði og uppsetningu á öllu. Hér má sjá heilan dýragarð af uppstoppuðum dýrum og var engu líkara en að maður væri komin til Afríku, svo nákvæm var öll umgjörðin.

Shanghai Wild Animal Park. The museum has 3000 pieces of rare animals specimen in its 3000 square (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Ég var víst búinn að fá mér smá kvef sem lýsti sér í stöðugu nefrennsli og var ég því ekki mikið fyrir að fara út að borða
![]()
Kjartan
WWW.PHOTO.IS
p.s. fyrir þá sem hafa áhuga á fleiri myndum, þá fór ég í ferð til Kína 2003 og þá sem ferðamaður og leiðsögumaður.
http://www.photo.is/kina/index.html
Fært undir Alþjóðamál, Efnahagur, Ferðalög, Fjölmiðlar, Jarðfræði, Kvikmyndir, Ljósmyndun, Matur og drykkur, Menning og listir, Nám, Samgöngur, Stjórnmál, Trúarbrögð, Tækni og vísindi, Tónlist, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda þann 3. febrúar 2009 af photo | 0 ummæli
KÍNAFERÐ - SHANGHAI - RISA PANORAMA MYND - 12
KÍNAFERÐ - SHANGHAI - RISA PANORAMA MYND - 12
Dagur - 12 / Day - 12 Mánudagur 30. des. 2008
Shanghai: Shēnchéng (申城, “City of Shēn”), China, Kína, The People’s Republic of China (中华人民共和国, 中華人民共和國)
Farið með mynd sem var um 400 Mb á stærð í útprentun á þann stað þar sem stóra myndavéabúðin er. Útkeyrslan kostaði ¥420 ásamt innrömmun, allt framkvæmt á meðan beðið er.

Shanghai Xingguang Photo Gear Mall. A heaven for camera lovers 星光摄影器材. I got a good price for big format print out including framing. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Síðan var ákveðið á síðustu stundu að fara með myndina í lest (250 x 60 cm) því hún passaði ekki inn í leigubílinn. Ekki annað hægt að segja en að það var frekar fyndið að ganga með þessa óinnpökkuðu risa mynd af Jökulsárlóni innan um mannlífið á götunni sem rak auðvita upp stór augu.

Ekki tók betur við þegar komið var niður í jarðlestastöðina. Það var Rush-hour og lestin sem að ég hugðist taka var troðin út að dyrum, tók ég því öfugan hring með lestinni. En Adam var ekki lengi í Paradís, því fljótlega fylltist þessi lest einnig og átti ég fullt í fangi með að verja viðkvæma myndina fyrir ágangi úr öllum áttum. The taxi was to small for my big panoramic picture so I had to take it on underground trip at rush-our time in Shanghai :) (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Ferðin hafði gengið að óskum, en nú var farið blása og umferðin var þétt á götunni sem að ég þurfti að fara með myndina um og þegar komið var að hliði bakdyramegin inn á svæðið þar sem Heng býr, þá var ekki hægt að koma myndinni þar í gegn. Sá ég þá gat á girðingunni sem myndin rétt passaði í og fékk ég einn sem selur appelsínur til að rétta mér myndina í gegnum gatið.

Eftir það tóku við tvö varðhlið og svo rétt slapp myndin inn í lyftunna með því að skáskjóta henni horn í horn. Pabbi Heng tók á móti mér og varð að vonum hissa þegar ég birtist með þetta 2.5 metra ferlíki. Myndin var að sjálfsögðu drifin upp á vegg á besta stað í stofunni. I had a great fun with this big picture in the underground in Shanghai. Glacier lagoon Breidamerkurlon in Iceland. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Gömlu hjónin launuðu myndina með enn einni stórmáltíðinni sem var rauðvín ásamt svínaeyrum, krydduðum hænsnalöppum (uppáhald hjá Heng)

Heng’s father was happy with the big panoramic picture from Iceland. and I got Shanghai pig ears and chicken legs and other delicious food as usual. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Hrískaka, hvítt þykkt hlaup sem var eins og að tyggja skósól og svo gult brauð sem var líklega búið til úr sojabaunum.

Rice cake was thick as a chewing-gum and the yellow bread was mad of soya beans. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Varðandi þessa fínu risa panorama mynd, þá var mjög skrítið að sjá hana upp á vegg hjá Halldóri Sigurðssyni sem var í viðtali við CNN 1. og 2. feb. í þætti sem heitir iReport. Það væri fróðlegt að vita hvar hann hefur fengið myndina. Man ekki neitt sérstaklega eftir því að hann hafi falast eftir henni hjá mér! (En myndin er greinilega orðin fræg).
Kvöldið endar svo í 2ja tíma nuddi á nuddstofu í nágrenninu fyrir alla fjölskyldumeðlimi.
![]()
Kjartan
WWW.PHOTO.IS
p.s. fyrir þá sem hafa áhuga á fleirri myndum, þá fór ég í ferð til Kína 2003 og þá sem ferðamaður og leiðsögumaður.
http://www.photo.is/kina/index.html
Fært undir Alþjóðamál, Efnahagur, Ferðalög, Ljósmyndun, Matur og drykkur, Menning og listir, Samgöngur, Tækni og vísindi, Umhverfi, Vinir og fjölskylda þann 2. febrúar 2009 af photo | 0 ummæli
KÍNAFERÐ - SHANGHAI - LOKUÐ SÖFN - MATUR - 11
KÍNAFERÐ - SHANGHAI - LOKUÐ SÖFN - MATUR - 11
Dagur - 11 / Day - 11 Mánudagur 29. des. 2008
Shanghai: Shēnchéng (申城, “City of Shēn”), China, Kína, The People’s Republic of China (中华人民共和国, 中華人民共和國)
Dagur-10 Mán. 29. des. 2008
Flókin morgunmatur að venju eins og gelfiskur, ásamt niðurskornu epli og niðursöxuðum hnetumulningi af ýmsum gerðum með vínberjum í eftirrétt.
Þennan daginn var ákveðið var að fara á Shanghai Science and Technology Museum (上海科技馆). Tæknisafnið er mikil bygging með risa glerkúlu í miðjunni. Því miður var safnið lokað og mátti sjá verkamenn hangandi í böndum upp um allt að hreinsa þessa risa glerbyggingu.

Shanghai Science and Technology Museum (上海科技馆) is a large museum in Pudong, Shanghai, close to Century Park, the largest park of the city. The museum incorporates an IMAX theatre, and as of 2006 there are 12 main exhibits open to the public, including “Spectrum of Life”, “World of Robots” and “Information Era”. The construction of the museum cost 1,75 billion RMB, and the floor area is 98000m2 (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Þegar komið var út úr lestastöðinni, blasti við stórt og mikið breiðstræti og mikið af veglegum glerbyggingum. Sérstaklega vakti athygli mína flottur arkitektúr á byggingunni Shanghai Oriental Art Center - Concert Hall & Performance Spaces. Ofan frá séð er byggingin eins og 5 blaða smári.

Shanghai Oriental Art Center - Concert Hall & Performance Spaces (上海东方艺术中心) 2004 Paul Andreu Architects. At night, the ceiling changes colors according to the melodic tunes played inside (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Þar rétt hjá mátti sjá þennan risa skúlptúr úr riðfríu stáli.

Sculpture near Oriental Arts Center (东方之光) and Shanghai Science and Technology Museum (上海科技馆). Time-themed sculpture (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Elda sjálfur “kvöldmatur”! Rafmagns fondapottur með stillanlegri eldahellu. Matur: hænuhjörtu, 10-15 cm langir hvítir sveppir, rækjur, þunnar lambaskífur, 3 gerðir af blaðsallati, rauðrófur, kartöfluskífur og rauðvín. Með þessu var svo borðuð dökk sósa ekki ósvipuð uxahalasúpu á bragðið.

Shanghai electric cooking plate, Induction cooker with special Induction Cookin Pot. Portable Induction Cooker. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
![]()
Kjartan
WWW.PHOTO.IS
p.s. fyrir þá sem hafa áhuga á fleirri myndum, þá fór ég í ferð til Kína 2003 og þá sem ferðamaður og leiðsögumaður.
http://www.photo.is/kina/index.html
Fært undir Alþjóðamál, Efnahagur, Ferðalög, Fjölmiðlar, Heilbrigði, Ljósmyndun, Matur og drykkur, Menning og listir, Nám, Samgöngur, Stjórnmál, Tækni og vísindi, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda þann 2. febrúar 2009 af photo | 0 ummæli
KÍNAFERÐ - SHANGHAI - SÖFN - EXPO 2010 - HEIMBOÐ - 10
KÍNAFERÐ - SHANGHAI - SÖFN - EXPO 2010 - HEIMBOÐ - 10
Dagur - 10 / Day - 10 Sunnudagur 28. des. 2008
Shanghai: Shēnchéng (申城, “City of Shēn”), China, Kína, The People’s Republic of China (中华人民共和国, 中華人民共和國)
Kínverjar eru mikið fyrir að stunda reglubundna heilsurækt. Í bakgarðinum þar sem við bjuggum var reglulega stór hópur af fólki að dansa eða stunda einhverskonar hreyfiíþrótt. Eitt kvöldið þegar við gengum í gegnum garðinn í myrkri, þá var einn að æfa sverðdans, með alvöru sverði :|
Þennan dag var byrjað á því að taka létt borðtennismót með stórfjölskyldunni snemma í morgunsárið. Það var sérstaklega gaman að spila við eina spræka ömmuna og bogaði af mér svitinn (og lýsið) í öllum hamaganginum. En það vill svo til að borðtennis er þjóðaríþrótt Kínverja.

Table tennis (乒乓球), also known as ping pong is Chinas national sport. China continues to dominate most world titles. Iceland playing against China Table Tennis Super League! Her is the Icelandic master loosing the game against 105 year old grandmama! (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Eftir hádegi fór ég í þjóðminjasafnið Shanghai Museum við People’s Square (人民广场, 人民廣場). Það var frítt inn á safnið og er það líklega ein af ástæðunum fyrir því hversu marar rútur voru þar fyrir utan. Á safninu mátti sjá margt merkra muna frá fornsögu Kínverja eins og peninga, málverk, ritverk, líkneski, leirker, skartgripi ásamt ýmsum áhöldum og vopnum frá fyrri tímum.

The Shanghai Museum (上海博物館) is a museum of ancient Chinese art, situated on the People’s Square (人民广场, 人民廣場) in the Huangpu District of Shanghai, People’s Republic of China. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Safnið er mjög stórt og upp á nokkrar hæðir. Sérstaklega var gaman að skoða peningasafnið og búdda líkneskin. Hér má svo sjá haganlega útskorin húsgögn

The Shanghai Museum (上海博物館) has a collection of over 120,000 pieces, including bronze, ceramics, calligraphy, furniture, jades, ancient coins, paintings, seals, sculptures, minority art and foreign art. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Mikið var af “útskornum” munum úr steini eða marmara. Greinilegt var að mikil vinna hafði verið lögð í marga dýrgripinna

Hand made parts of “jade” stones. Jade is an ornamental stone. The term jade is applied to two different metamorphic rocks that are made up of different silicate minerals. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Það er mikið af fallegu handverki á safninu og má sjá ótrúlega skrautgripi unna úr mjúkum og hörðum marmara.

The Jade (玉) and the Chinese. In the Chinese Empire jade was considered the most noble of all gems. Jade was considered more valuable than gold or silver. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Næst var farið á aðra sýningu sem var þar rétt hjá og var hún um borgarskipulag Shanghai og hönnun á World EXPO 2010 sýningarsvæðinu ásamt stórbrotnum vinningstillögum.

The Shanghai Urban Planning Exhibition Hall (上海城市规划展览馆). In front of the hall is the Mascot figue, the sign of World EXPO 2010 exhibition in Shanghai. Mascot is created from a Chinese character meaning people, the mascot “Haibao” embodies the character of Chinese culture. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Þegar inn var komið, þá mátti sjá ótrúlega sýnigu á 6 hæðum um Shanghai borg. Hér má sjá stórt módel af EXPO 2010 sýningarsvæðinu sem núna er í byggingu. Íslenski skálinn er neðarlega vinstra megin, 2 lítil grá hús og er Íslenski skálinn húsið hægra meginn.

Shanghai World EXPO 2010. Expo 2010 (上海世界博览会) will be held in Shanghai, China. Model of the Exhibition site. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Þarna mátti einnig sjá ótrúlega flott RISA módel af allri Shanghai borg með húsum og öllum smáatriðum.

The Shanghai Urban Planning Exhibition Hall (上海城市规划展览馆). The biggest scale model I’ve ever seen is of the Shanghai City. A mini-landscape of historic architecture, electronic reading materials and a three-dimensional digital cinema were among the multimedia forms displayed yesterday to illustrate the splendid wonderland of the World Expo. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Ég náði aðeins að skoða 3 hæðir af sýningunni. Var seinn fyrir en rétt náði að sjá 360° tölvugerða kvikmynd af allri Shanghai borg ásamt flugvellinum og var það frábær upplifun. Gaman að sjá hversu langt 3D grafíkin er komin. Sýning sem að ég mæli hiklaust með, enda aldrei áður séð eins vel staðið að kynningu á borgarmálum áður (aðgangseyrir ¥30).

A three-dimensional digital cinema in The Shanghai Urban Planning Exhibition Hall (上海城市规划展览馆). Amazing 3D rendering and fly through of Shanghai City, a must to see! (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Næst var skotist með leigubíl yfir þvera borgina (¥19) til að taka þátt í heimboði til ungra frænku Heng og fjölskyldu hennar sem býr í lítilli íbúð. Pabbinn var meistara kokkur og var búinn að galdra fram þvílíka stórmáltíð.

Vegna plássleysis í íbúðarkitrunni, þá var eldhúsborðið fært upp að rúmgafli inn í herbergi dótturinnar og sátum við Heng á rúminu, pabbi og stjúpa Heng við sitthvorn endann og svo gömlu hjónin sem buðu í matinn beint á móti (gat ekki neitað því að það var smá íslensk baðstofustmenning yfir borðhaldinu). One of my best memory from the Shanghai trip was on the best and finest restaurant in Shanghai, a private home. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Dóttirin kom svo skömmu seinna, tróð sér inn á milli og tók þátt í borðhaldinu með okkur. Í boði var fiskisúpa (fiskhausinn soðin) ásamt með glæru hlaupi (búið til úr hrísgrjónum), svínasultu dýft í viniger sósu, rækjur, fiskkurl í grænmeti, ásamt kínversku eðal “Yellow wine”.

Hápunktur veislunnar endaði svo með nýveiddum hárvatnakrabba í dökkri sósu sem var nánast borðaður upp til agna nema af undirrituðum og mátti sjá vígvöll borðhaldsins eins og eftir sprengjuárás þar sem sundurlimaðir krabbar lágu út um allt. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
En ég var víst orðin eitthvað slappur þarna um kvöldið og var komin með kvef sem tók 3 daga að losna við.
![]()
Kjartan
WWW.PHOTO.IS
p.s. fyrir þá sem hafa áhuga á fleirri myndum, þá fór ég í ferð til Kína 2003 og þá sem ferðamaður og leiðsögumaður.
http://www.photo.is/kina/index.html
Fært undir Alþjóðamál, Efnahagur, Ferðalög, Heilbrigði, Ljósmyndun, Matur og drykkur, Menning og listir, Stjórnmál, Trúarbrögð, Tækni og vísindi, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda, Íþróttir þann 1. febrúar 2009 af photo | 0 ummæli
KÍNAFERÐ - SHANGHAI - RISA LJÓSMYNDABÚÐ - 9
Þurfa að vinna sameiginlega að lausn efnahagskreppunnar
KÍNAFERÐ - SHANGHAI - RISA LJÓSMYNDABÚÐ - 9
Dagur - 9 / Day - 9 27. des. 2008
Shanghai: Shēnchéng (申城, “City of Shēn”), China, Kína
Dagurinn byrjaði að venju á “léttum” 10 rétta morgunverði og byrjað á sykursætri súpu. Í súpunni voru vatnskenndar bollur fylltar með sætum vökva. Ég verð að viðurkenna að mér þótti þær ekkert sérstaklega lystugar til að byrja með.

A ligth 10 course breakfast in Shanghai. This is a slightly sweet “soup” with soft balls. Tāngyuán is a Chinese food made from glutinous rice flour. Glutinous rice flour is mixed with a small amount of water to form balls and is then cooked and served in boiling water. Tangyuan can be either filled or unfilled. It is traditionally eaten during Yuanxiao, or the Lantern Festival. (汤圆 or 汤团) (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Ég fékk nýja tegund af poppkorni, það voru brún lítil hrísgrjón sem voru poppuð og mótað í litlar 5×10x1 cm kökur ásamt hnetum og öðru bragðbætandi korni - ótrúlega gott!

Chinese Shanghai rice popcorn cake with mixed beans, very tasty! (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Því næst fékk ég örþunnar risa nýbakaðar pönnukökur (ca. 1 meter í þvermál), rifnar niður í litla 20-30 cm sneiðar og sett á disk. Síðan er grænmeti og öðru góðmeti sett ofan á og öllu rúllað upp (virkilega gott).

Chinese Shanghai Super Size thin pancake. Jian bing guo zi is a breakfast fast food sold on the streets of China (煎餅). (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Við áttum pantaðan tíma með atvinnuljósmyndara sem bauðst til að fara og sýna okkur allt það sem skiptir máli þegar þarf að kaupa inn alvöru ljósmyndadót í Shanghai borg. Á leið okkar til hans varð á vegi okkur kona með 2 litla hunda og voru þeir í “alklæðnaði” og skóm eins og lítil börn.

Chihuahua (dog), Chihuahua Puppies in a Warm Dog Coats, Small Dog Clothes. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Ljósmyndarinn fór með okkur í búð sem var upp á heilar 8 hæðir með um 100 - 200 smáverslunum sem seldu “bara” ljósmyndavörur! Ég fann mikið magn af spennandi dóti og fékk m.a. tilboð í útprentun á risa ljósmynd (panorama mynd 60 x 250 cm á Canvas Satin striga (svipað og málarar nota) sem kostaði með útprentun, plöstun og innrömmun ¥420 (12 lita prenntari HP Z3100 Photo með UV vörn og 100 ára endingu).

Shanghai Xingguang Photo Gear Mall. A heaven for camera lovers 星光摄影器材. No. 288 Luban Road, Luwan District, Shanghai 上海市泸湾区鲁班路288号上海星光摄影器材城 (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Hægt var að kaupa Canon linsur á: 35mm F1.6 ¥8.300, 85mm F1.2 ¥11.800, 24-105mm F4 ¥5.500, 16-35mm F2.8 ¥8.200, 17-40mm F4 ¥4.300, 14mm F2.8 ¥12.000, Sigma 20mm F1.8 ¥2.400, Canon 5D II 3200 ASA ¥16.200 (án linsu með video i1080 mguleika), Torsiba var með nýtt 32Gb SD kort á ¥900, Panasonic LX3 ¥2.950 (seinna í ferðinni samdi ég verðið niður í ¥3.245 með auka rafhlöðu + 16Gb SD class 6 minniskorti), 16 Gb SD kort class 6 ¥230, 16 Gb CF x133 ¥280 …

Shanghai Xingguang Photo Gear Mall. Our professional photographic guide show us around the shop. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Á meðan ég var í Shanghai, þá notaði ég kort sem virkar í lestir, strætó, leigubíla, ferjur sem hægt er að fylla á reglulega. Nóg er að bera kortið upp að skynjara og þá lækkar fyrirfram greidd upphæð.
Um kvöldið, hittum við vinafólk Heng sem að hún var í skóla með. En þau eru bæði lærð sem Arkitektar. Farið var á mjög fínan veitingastað og borðaður sterkkryddaður matur

Kvöldmatur: svínalappir ásamt öðru góðmeti. Lunch with some architect from Shanghai. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
![]()
Kjartan
WWW.PHOTO.IS
p.s. fyrir þá sem hafa áhuga á fleirri myndum, þá fór ég í ferð til Kína 2003 og þá sem ferðamaður og leiðsögumaður.
http://www.photo.is/kina/index.html
Fært undir Alþjóðamál, Efnahagur, Ferðalög, Fjölmiðlar, Ljósmyndun, Matur og drykkur, Menning og listir, Stjórnmál, Tækni og vísindi, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda þann 31. janúar 2009 af photo | 0 ummæli
KÍNAFERÐ - SHANGHAI - TURNAR - 8
KÍNAFERÐ - SHANGHAI - TURNAR - 8
Dagur - 8 / Day - 8 26. des. 2008
Shanghai: Shēnchéng (申城, “City of Shēn”), China, Kína
Best að byrja á því að klára söguna frá deginum áður:
Eftir að hafa skoðað EXPO 2010 svæðið í þaula, þá tókum við nýja jarðlest lest sem hafði verið sett upp fyrir EXPO 2010. Þar var einn að dunda sér við að rífa ferðatölvu í sundur á meðan annar var að leika sér í tölvuleik á símann sinn

Shanghai World EXPO 2010 new underground system. Expo 2010 (上海世界博览会) (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Áður en við förum í lestina, þá verðum við vitni af smá árekstri. En það var venja að sjá 1 til 3 árekstara á dag! Þegar við erum að koma út úr lestinni, verðum við vitni að slysi þar sem kona með tveggja metra háann hitara/kælir fellur aftur fyrir sig og hreinlega rúllar á aftur á bak niður stóran rúllustigann ásamt skápnum. _ Þetta var hrikalegt að horfa upp á. Stiginn skilar svo skápnum og konunni upp á brúnina þar sem hún liggur meðvitundalítil og útlitið ekki gott. Fólk hópast að og Heng ætlar að hringja á sjúkrabíl en konan er að ranka við sér og mótmælir harðlega! Greinilegt er að hún finnur til í baki. Að lokum koma starfsmenn til hjálpar og konan stendur upp við illan leik.
Í framhaldinu af þessu ræðum við um heilbrigðismál og tryggingar og segir hún að fátækt fólk í Kína sé mjög illa statt í kerfinu þegar svona kemur upp á.
http://www.photo.is/08/12/1/index_20.html
http://www.photo.is/08/12/1/pages/kps12080418.html
Við vorum orðin mjög svöng eftir daginn (10-20 km labb) þannig að Heng ákveður að fara með mig á Kóreanskan veitingastað þar sem að ég fæ m.a. “snakk” sem eru kryddaðar sinar úr kýr (greinilega ALLT borðað)!!!

Einnig fengum við okkur litlar bollur á pinnum sem er þeirra pulsa með öllu. Hún sýndi mér að vísu líka pulsu með öllu en þar var hægt að velja um 10-20 tegundir og var ótrúlegt að sjá hvað hægt var að nota sem meðlæti :) Þar mátti m.a. horfa á hárgreiðslu í beinni. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Um kvöldið var stórfjölskylda Heng búin að skipuleggja borðtennismót. En borðtennis er ein af þjóðaríþróttum Kínverja. Við Heng höfðum verið að spila mikið saman á Íslandi og kom það sér því vel og stóðum við okkur bara nokkuð vel. Gaman var að sjá hversu gamlir karlar og kerlingar voru spræk með borðtennisspaðann. Mótið endaði svo með “of miklum mat” eins og vanalega á veitingarstað þar rétt hjá. Á borði komu þrjár stórar súpuskálar með logandi eld undir og var bætt sallati, pulsur og fl. út í eftir þörfum.
Dagur-8 26. des. 2008 (svo að við reynum að halda tímaplani á þessu bloggi)
Þennan dag var ákveðið að fara á verslunargötuna Nanjing Road (南京路 Nánjīnglù) sem er 4km löng með um 4.000 verslanir. Við endann á henni er “Bund” sem Evrópubúar kalla oft Wall Street Shanghai og fyrir miðju er People’s Square (人民广场).
Ferðin endaði óvart á Pudong (浦东) is Shanghai’s þar sem allar hæstu byggingarnar í Shanghai eru. Svæðið hefur byggst upp á aðeins 15 árum. Það fyrsta sem blasir við þegar komið er út úr lestastöðinni er sjónvarpsturninn frægi sem má segja að sé eitt helsta tákn Shanghai borgar.

Oriental Pearl TV Tower [1] (东方明珠塔 Dongfang Minzhuta) - Built in 1994, it is the 3rd tallest tower in the world (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Hér má sjá hluta úr stórri hringmynd af þessum risavöxnu byggingum á Pudong (浦东) svæðinu. Þær hæstu eru “upptakarinn” Shanghai World Financial Center (100 hæðir, 474 m) og Jinmao Tower (88 hæða, 420m)

To the left is Shanghai World Financial Center 上海(秀仕)环球金融中心 and right Jinmao Tower (金茂大厦) 420m high, 88 storey skyscraper (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
hærri turninn er enn í byggingu og eru framkvæmdir á loka stigi. Við settum stefnuna á að fara upp í Jin Mao Tower og á leiðinni þangað verður þetta brúðarpar á vegi okkar

Happy people in China getting married in the Pudong (浦东) Shanghai. Times Square of Shanghai. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Þegar við erum á leið in í lyftunna, þá hitti ég gamlan félaga, Jackie Chan að nafni sem að ég heilsaði að sjálfsögðu upp á. Síðan var lyftan tekin upp í topp á 88 hæða turni Jinmao Tower sem er risa hótel og skrifstofubygging

Actor Jackie Chan from Hong Kong, (born Chan Kong Sang, 陳港生, 7 April 1954). He is also an action choreographer, film director, producer, martial artist, comedian, screenwriter, entrepreneur, singer and stunt performer. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Útsýnið er alveg hreint ótrúlegt yfir borgina og þarna rennur upp fyrr manni í raun hversu stór borgin er. Þarna voru risa blokkir svo langt sem augað eygir í allar átti (mengun). Á meðan margar þjóðir byggja á þverveginn, þá byggja Kínverjar Shanghai lóðrétt upp í loftið. En þar búa núna á milli 16-20 milljón manns og er borgin talin ein öflugasta markaðsborg í Asíu.

Ótrúlegt var að sjá risa skip líða eftir fljótinu með risa auglýsingaskjá (TV)! (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Hér er horft niður efri hluta Jin Mao Tower turnsins. En þar er hótel þar sem hægt er að fara út á svalir og horft niður eftir miðjum turninum.

A big hotel with balcony is inside Jinmao Tower (金茂大厦) 420m high, 88 storey skyscraper (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Það var gaman að sjá helsta tákn borgarinnar, sjónvarpsturninn Oriental Pearl, en á kvöldin er turninn eins og blikkandi jólatré.
Hérna var ég svo heppinn að sjá loftskip með risa auglýsingaskjá líða um himininn rétt yfir toppum háhýsanna

The zeppeling airship is on the right side of the Pearl Tower. A large LCD screen show live video and text. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Næst var farið í alvöru Mall eða risaverslunarmiðstöð upp á 12 hæðir og seig neðri kjálkinn alltaf meira og meira niður af undrun eftir því sem leið á ferðina. Þar inni mátti m.a. finna stóra skautahöll, sérstakan enskuskóla fyrir smábörn, heila hæð fyrir allt sem snýr að börnum …

Grand Gateway Plaza in Xujiahui. Grand Gateway mall in Shanghai (Chinese: 港汇广场 in chinese it is “Gang Wei”). Grand Gateway is one of the largest and most swanky malls in Shanghai. A “must go” destination for Shanghai shoppers. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Eftir að hafa labbað í gegnum svona risa verslunarmiðstöð, þá er vona að sumir verði þreyttir. Hér er ein búin að fá sér góðan Hammara frá Burger King og steinsofnað á eftir.

Sleeping beauty in Burger King Restaurant in Shanghai Grand Gateway mall. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Þessi var með sölubás og greinilega orðin vel þreyttur líka. Spurningin er hvað eru Kínverjar að gera á næturnar þegar þeir eiga að vera að sofa?

What are all the chines doing during the night when they should be sleeping? (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)
Um kvöldið var frænku sem kunni ensku boðið í 12 rétta máltíð og var það greinilega gert til að kanna minn bakgrunn nánar, en pabbi Heng og konan hans skilja ekki stakt orð í ensku. Á meðan fór Heng og hitti gamla skólafélaga. Að sjálfsögðu var ég spurður spjörunum úr og náði ég að verjast fimlega þrátt fyrir allan minn litríka og skrautlega feril :)
![]()
Kjartan
WWW.PHOTO.IS
p.s. fyrir þá sem hafa áhuga á fleirri myndum, þá fór ég í ferð til Kína 2003 og þá sem ferðamaður og leiðsögumaður.
http://www.photo.is/kina/index.html
Fært undir Alþjóðamál, Efnahagur, Ferðalög, Ljósmyndun, Matur og drykkur, Menning og listir, Samgöngur, Tækni og vísindi, Umhverfi þann 29. janúar 2009 af photo | 0 ummæli
Næsta síða »


