Egyptaland - Eyðimerkurferð - Bahariyya Oasis - Sahara

www.visir.is Múslimar jákvæðir fyrir boðskap Obama

Egyptaland - Eyðimerkurferð - Bahariyya Oasis - Sahara.

Arab Republic of Egypt
جمهورية مصر العربية
Gumhūriyyat Miṣr al-ʿArabiyyah

Eyðimerkurferð - The White Desert National Park, Sunset, Bahariya Oasis, Sahara, Egypt 11. Feb. 2009 Þriðjudagur
Hér er framhald á ferðasögunni um eyðimörkina The White Desert í Egyptalandi:

SNJÓKARLAR Í EGYPTALANDI! http://photo.blog.is/blog/photo/entry/849122/

Til að byrja með þurfti að finna hentugt stæði fyrir búðir í eyðimörkinni, en það var komið svarta myrkur og því ekki góð birta til að athafna sig. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Oasis desert overnight trip. 4×4 safari tours in The White Desert National Park, Bahariya Oasis, Egypt (to view gallery: click image) (C)2009 Kjartan P. Sigurðsson

Til stóð að sofa úti á eyðimörkinni undir berum himni. Hér eru leiðsögumennirnir í óða önn að setja upp skjólvegg og tína til teppi og matvæli fyrir kvöldið. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Guides are putting up the camp. The night is spent in the desert, dinner and overnight camping. 4×4 safari tours in The White Desert National Park, Bahariya Oasis, Egypt (to view gallery: click image) (C)2009 Kjartan P. Sigurðsson

Það er auðvita strax byrjað á matseldinni enda komið svarta myrkur. Til stóð að elda vinsælan egypskan kjúkklinga og hrísgrjónarétt. Einnig var skorið mikið niður af tómötum og öðru grænmeti. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Finally, we camp and enjoy the egypt food with siwan tea and sleep over night under the clear sky and enjoy watching stars in Oasis desert. Overnight 4×4 trip in The White Desert National Park, Bahariya Oasis, Egypt (to view gallery: click image) (C)2009 Kjartan P. Sigurðsson

Hér er refur mættur á svæðið í von um að fá bein og annað góðgæti frá ferðalöngunum. Líklega mamma á ferð að leita af fæði fyrir unganna sína. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

This momma fox was looking for food for her young. We watched as she came quite close while cooking. Oasis desert overnight trip. 4×4 safari tours in The White Desert National Park, Bahariya Oasis, Egypt (to view gallery: click image) (C)2009 Kjartan P. Sigurðsson

Á einni myndinni mátti svo sjá draug í 9 mismunandi útgáfum á sömu myndinni. Það er greinilega margt sem ber að varast úti í svona eyðimörk. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

I got this marvelous picture of Ghost in the Desert while we were preparing the food. Oasis desert overnight trip. 4×4 safari tours in The White Desert National Park, Bahariya Oasis, Egypt (to view gallery: click image) (C)2009 Kjartan P. Sigurðsson

Þegar maturinn var orðin klár, þá var ekki annað eftir en að gefa á garðann svöngum og óþreyjufullum ferðalöngum. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Now the food is ready. Oasis desert overnight trip. 4×4 safari tours in The White Desert National Park, Bahariya Oasis, Egypt (to view gallery: click image) (C)2009 Kjartan P. Sigurðsson

Seinna um nóttina/kvöldið var brugðið á leik fyrir myndavélina. En myndataka sem þessi tekur alt upp í 30 sek. og er ekki auðvelt fyrir módelin að standa hreyfingalaus í svo langan tíma. Á myndinni má sjá stjörnubjartan himininn (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Playtime in front of the camera. Long exposing time up to 30 sec! Oasis desert overnight trip. 4×4 safari tours in The White Desert National Park, Bahariya Oasis, Egypt (to view gallery: click image) (C)2009 Kjartan P. Sigurðsson

Seinna um nóttina/kvöldið var brugðið á leik fyrir myndavélina. En myndataka sem þessi tekur alt upp í 30 sek. og er ekki auðvelt fyrir módelin að standa hreyfingalaus í svo langan tíma. Á myndinni má sjá stjörnubjartan himininn (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Playtime in front of the camera. Long exposing time up to 30 sec! The models under the clear sky and enjoy watching stars, may not move for up to 30 sec! Oasis desert overnight trip. 4×4 safari tours in The White Desert National Park, Bahariya Oasis, Egypt (to view gallery: click image) (C)2009 Kjartan P. Sigurðsson

Ekki er annað hægt en að segja að svæðið er magnað. Samspilið milli sandsins og klaksteinsins er flott og gaman að sjá hvernig sandurinn hefur náð að slípa til yfirborðið á löngum tíma og skilið eftir eyjar hér og þar á sléttunni. Fólk var á göngu í tunglskyninu út um allt svæðið og nokkrir hópar höfðu komið upp tjaldbúðum sínum á svæðinu. Söngur og tónlist glumdi um allt. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Singing and Playing Around The Camp Fire into the night. Oasis desert overnight trip. 4×4 safari tours in The White Desert National Park, Bahariya Oasis, Egypt (to view gallery: click image) (C)2009 Kjartan P. Sigurðsson

Leiðsögumennirnir höfðu tekið með sér stóran trjádrumb til að elda með og halda hita á mannskapnum. Í ljós kom að drumburinn náði að loga alla nóttina. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Oasis desert overnight trip. 4×4 safari tours in The White Desert National Park, Bahariya Oasis, Egypt (to view gallery: click image) (C)2009 Kjartan P. Sigurðsson

Það var verulega kalt um nóttina, þó svo að ég væri með tvö þykk teppi yfir mér. Mest var ég hræddur við að rebbi myndi koma og bíta í nefið á mér og því stakk ég hausnum vel undið teppið líka. Okkur var ráðlagt að passa vel upp á skóna okkar.


Kjartan
WWW.PHOTO.IS

Hér má svo sjá önnur blogg úr sömu ferð:

Blogg um flug með loftbelg sem Hassan útvegaði má svo sjá hér ásamt meiru:

Hluti-I http://photo.blog.is/blog/photo/entry/815725/

Hluti-II http://photo.blog.is/blog/photo/entry/816250/

Hluti-III http://photo.blog.is/blog/photo/entry/818496/

Hluti-4 http://photo.blog.is/blog/photo/entry/819322/

Skólahald í Egiptalandi http://photo.blog.is/blog/photo/entry/847341/

NEFERTITI DROTTNING http://photo.blog.is/blog/photo/entry/843600/

SNJÓKARLAR Í EGYPTALANDI! http://photo.blog.is/blog/photo/entry/849122/

Fært undir Alþjóðamál, Ferðalög, Jarðfræði, Ljósmyndun, Matur og drykkur, Menning og listir, Nám, Trúarbrögð, Tónlist, Umhverfi, Umræðan þann 11. apríl 2009 af photo | 0 ummæli

EGYPTALAND - SKÓLAHALD - MYNDIR

www.visir.is Kommúnistar sigruðu

EGYPTALAND - SKÓLAHALD - MYNDIR

Arab Republic of Egypt
جمهورية مصر العربية
Gumhūriyyat Miṣr al-ʿArabiyyah

Luxor - Abydos Temple, Dendera Temple 16. Feb. 2009 Mánudagur - kl. 7 til 17

Þennan dag stóð til að fara á tvo staði, Abydos Temple og Dendera Temple. Við vorum búin að semja við Hassan vin okkar að fá akstur + leiðsögn á 300 egypsk pund, en slík ferð kostar venjulega 500 - 600.

Ég vaknaði snemma þennan morgun. Ég vissi að skólahald myndi hefjast á ákveðnum tíma með tilheyrandi uppákomum á skólalóð við hliðina á hótelinu sem að ég gisti á. En við hliðina á hótelinu var barnaskóli og í honum voru eingöngu stúlkur. Það var magnað að horfa á skipulagið og agann sem ríkti greinilega á svæðinu og læt ég myndirnar tala sínu máli. Hér gengur skólastýran með prik á milli nemenda til að koma aga á hópinn (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

A children school close to Hótel Bob Marley (Hotel Sherif) in Luxor, Egypt. (to view gallery: click image) (C)2009 Kjartan P. Sigurðsson

Á meðan nemendur streymdu að og gerðu sig klár fyrir skólahaldið, að þá hljómaði upplestur og söngur úr kóraninum með miklum látum yfir allt svæðið. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

The Egyptian educational system is highly centralized, and is divided into three stages: Basic Education (Arabic: al-Taʿaleem al-Asassī), Primary Stage, Preparatory Stage, Secondary Education (Arabic: al-Taʿaleem al-Thanawī), Post-Secondary education (Arabic: al-Taʿaleem al-Gammeʿī). A children school close to Hótel Bob Marley (Hotel Sherif) in Luxor, Egypt. (to view gallery: click image) (C)2009 Kjartan P. Sigurðsson

Á meðan þurftu nemendur að klappa og syngja í takt og máta reglulega hvort að röðin væri í lagi með því að leggja hendur á þann nemanda sem er fyrir framan til að fjarlægðin yrði rétt. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

A children school close to Hótel Bob Marley (Hotel Sherif) in Luxor, Egypt. (to view gallery: click image) (C)2009 Kjartan P. Sigurðsson

Klappa saman höndunum og syngja. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Clap Your Hands Say Yeah. A children school close to Hótel Bob Marley (Hotel Sherif) in Luxor, Egypt. (to view gallery: click image) (C)2009 Kjartan P. Sigurðsson

Röðin og klæðnaðurinn þarf að vera rétt, allt undir ströngu eftirliti kennaranns (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

School uniforms are common in primary and secondary schools in many nations. A children school close to Hótel Bob Marley (Hotel Sherif) in Luxor, Egypt. (to view gallery: click image) (C)2009 Kjartan P. Sigurðsson

Nánar má lesa nánar um skólaklæðnað / More about school uniform:
http://en.wikipedia.org/wiki/School_uniform

Fyrir hverjum hópi mátti svo sjá nema sem voru útvaldir og höfðu líklega það hlutverk að passa upp á sinn hóp. En þarna mátti sjá þær sem voru yfir hverjum hóp ganga í skrúðgöngu með tilheyrandi látbragði. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

A children school close to Hótel Bob Marley (Hotel Sherif) in Luxor, Egypt. (to view gallery: click image) (C)2009 Kjartan P. Sigurðsson

Nánar má lesa um nám í Egyptalandi hér / Education in Egypt:
http://en.wikipedia.org/wiki/Education_in_Egypt


Kjartan
WWW.PHOTO.IS

Hér má svo sjá önnur blogg úr sömu ferð:

Blogg um flugið sem Hassan útvegaði má svo sjá hér:

Hluti-I http://photo.blog.is/blog/photo/entry/815725/

Hluti-II http://photo.blog.is/blog/photo/entry/816250/

Hluti-III http://photo.blog.is/blog/photo/entry/818496/

Hluti-4 http://photo.blog.is/blog/photo/entry/819322/

Fært undir Alþjóðamál, Efnahagur, Ferðalög, Fjölmiðlar, Heilbrigði, Ljósmyndun, Menning og listir, Nám, Stjórnmál, Trúarbrögð, Umhverfi, Umræðan, Íþróttir þann 7. apríl 2009 af photo | 0 ummæli

STÚDENTAKORT VIRKA VEL Í EGYPTALANDI!

STÚDENTAKORT VIRKA VEL Í EGYPTALANDI!

Arab Republic of Egypt
جمهورية مصر العربية
Gumhūriyyat Miṣr al-ʿArabiyyah

Luxor - Viðureignin við Hassan Hóteleiganda - Mannlífið í Lúxor 14. Feb. 2009 Laugardagur

Í fréttum í dag mátti lesa um þau stóru og alvarlegu tíðindi að kerfisbilun varð hjá HÍ varðandi skráningu á “Stúdentakortum” og í framhaldinu voru 8.000 nemendur reknir frá Háskólanum!

Það minnir mig á skemmtilegan atburð sem átti sér stað í ferð í Egyptalandi núna fyrir stuttu. En hægt er að sjá m.a. nýlegt blogg um flug með loftbelg á umræddu svæði í 4 færslum hér í blogginu á undan.

Í ferðinni var einn áfangastaðurinn bær sem heitir Luxor og liggur hann við ánna Níl.

Hér er stigið út úr gamalli næturlest í bænum Luxor snemma að morgni eftir að hafa ekið með lestinni frá Kaíró í um 9 klukkustundir. En það hentar vel og í leiðinni sparast hótel í eina nótt.

Sleeper train from Cairo to Luxor. “A first class night train” 9 hours trip! First-class overnight train from Ramses Station in Cairo incl. breakfast and lunch. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Það voru nokkur atriði sem stóðu sérstaklega upp úr í þessari ferð og voru minnisstæð.

Það fyrsta er maður sem er mikið kvennagull, Hassan að nafni. Hann er víst ekki mikið fyrir augað enda eineygður og minnti meira á sjóræningja og rekur hann Hótel Viagra (Venus). Hann er Egypti giftur japanskri konu. Það merkilega við þennan auðuga hóteleiganda er að á meðan konan hans býr í Japan að þá rekur hann hótel sitt í Egyptalandi.

Eins og sönnum múslima sæmir, að þá var hann minnisstæður fyrir margt eins og að þegar við heimsóttum karlinn eitt skiptið, að þá gengu tvær japanskar ofurskutlur út úr svefnherberginu hans. En Japanir eru víst þekktir fyrir ansi skrautlegt líf í svefnherberginu og það á greinilega við Egypta líka. Aðra stundina þurftum við svo að hlusta á hann með tárin í auganu um hversu slæmur hann væri og hvað hann syndgaði mikið og að hann ætti engan vegin skilið sína góðu eiginkonu í Japan. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

En umræddur Hassan er með lítið hótel sem nýtur mikillar vinsældar og hann beitir öllum brögðum til að ná í nýja viðskiptavini. En einn af hans útsendurum beið á lestarstöðinni til að fanga nýja ferðamenn sem koma grænir með lestinni frá Cairo á hverjum degi. Við urðum auðvita eitt af hans fórnarlömbum.

En þannig var að við höfðum óskað eftir því að það yrði náð í okkur á lestarstöðina frá hótelinu sem að við skráðum okkur á í gegnum netið (Hótel Bob Marley - Hotel Sherif). Við spurðum til vegar og hvort að umræddur útsendari væri að bíða eftir okkur og hann svaraði auðvita “já” en í stað þess að aka okkur á Hótel Bob Marley (Hotel Sherif), að þá var farið með okkur beinustu leið á Hótel Venus! (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Frá fyrstu mínútu var byrjað á að reyna að selja okkur alskyns pakka og ferðir og auðvita allt á uppsprengdu verði. En eins og gefur að skilja, að þá höfðum við lítinn verðsamanburð. Það var bókstaflega stjanað við okkur í einu og öllu og vorum við með einkabílstjóra í boði Hassan sem sá fyrir öllum okkar þörfum. Við féllumst að lokum á að kaupa af umræddum Hassan flug með loftbelg næsta dag fyrir 350 pund á mann ásamt því að fara í hálfs dags ferð yfir í Valley of Kings.

En áður vildi Hassan í sinni góðmennsku að við myndum útbúa “Teacher og Student Card” eða Kennara- og Stúdentakort til að fá aðgang inn á öll söfnin á hálfvirði!

En til að svo mætti verða, að þá þurfti að fara í passamyndatöku með tilheyrandi veseni. En það munar umtalsverðu í ferð til Egyptalands að hafa slíkan passa við höndina enda er ca. helmingur af “öllum” ferðakostnaði í Egyptalandi aðgangseyrir! (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Hér má svo sjá starfsmann útbúa “stúdentakort” snarlega og virðist þetta vera mjög algeng þjónusta sem að veitt er ferðamönnum og margir nýta sér. Á eftir var ég svo orðin Prófessor Sigurdsson in Archeology og Heng Student … :)

Eftir allar þessar sviptingar, að þá reyndi Hassan að fá okkur færð af ódýra hótelinu yfir á sitt, en konan mín lét sér ekki segjast og sagðist treysta umræddum Hassan svona rétt mátulega. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Að lokum vorum við keyrð yfir á upprunalega hótelið og mátti greinilega sjá að Hassan var ekki alveg sáttur við sitt hlutskipti í baráttunni við konuna mína. Við áttum síðan ágætt spjall við hóteleigandann á Hóteli Bob Marley og taldi hann það vera lítið mál að eiga við Hassan og sagðist geta útvegað okkur ferðina með lofbelgi fyrir 250 egypsk pund! Seinna kom í ljós að það var skollið á stríð milli þessa tveggja hóteleiganda um mig og konuna og að sjálfsögðu nutum við góðs af því í verulega lækkuðum verðum. Um kvöldið vildi konan fara til Hassan og heimta að fá endurgreitt fyrir loftbelgsferðina og kom þá í ljós að hinn hóteleigandinn var mættur á staðin og þeir greinilega góðir vinir. Hassan átti von á okkur og var komin með mótleik og bauð nú loftbelgsferðina á 200 pund á mann sem að við samþykktum ásamt fínum veitingum og skemmtilegu spjalli þá um kvöldið. En Hassan varð að viðurkenna að hann hefði aldrei lent í konu sem væri svona erfið í viðskiptum eins og konan mín! Hassan hafði fengið sér aðeins í tánna þetta kvöldið og varð því óvenju lausmáll og voru það ótrúlegar sögur sem fengu að flakka þetta kvöldið. En velsæmisins vegna læt ég þær sögur kjurt liggja að sinni (svona að hætti Davíð Oddsonar til betri tíma). En eitt vorum við þó sammála um, en það er að japanskar og kínverskar konur væru alveg sér á báti :)

Lífsspeki Hassans var ótrúleg og var þar greinilega reyndur og klár maður á ferð. Hann gagnrýndi egypskt kerfið og sá ég að margt sem hann benti á mætti yfirfæra yfir á Ísland þessa dagana. Hann talaði um hvernig embættismenn eins og tollarar snéru við öllum hans farangri þegar hann kæmi reglulega frá Japan og kallaði hann það helv. öfund í sinn eigin garð frá sínum samlöndum.

Hassan lét egypska karlmenn fá það óþvegið og byggði sína lífskoðun að sjálfsögðu á því að hann hafði ferðast víða um heim og séð hvernig aðrar þjóðir lifa. Það sama gilti um hinn hóteleigandann sem var ungur af árum og tjáði okkur að hann væri ný komin með visa til USA og væri að flytja þangað til Ameríska kærustu.

En ég held að Hassan sé einmitt málið fyrir þjóð eins og Egypta, hann lætur ekki berast með straumnum og er harður í að gagnrýna kerfið, en það er eitthvað sem veitir ekki af í Egyptalandi.

Það merkilega við þessa ferð er að allir vildu Egyptarnir fá að kaupa konuna mína. Enda eiga egypskir karlmenn því ekki að venjast að konur séu að standa uppi í hárinu á þeim í harðri samningagerð. Fyrir mig var þetta alveg sérstaklega skemmtileg upplifun að fylgjast með öllu þessu sjónarspili úr fjarlægð þar sem íslömsk og kínversk menning tókust á.
Oftar en ekki komu þeir svo vælandi til mín eftir að hafa gefist upp á að semja við þessa erfiðu konu. En þá passaði ég mig á því jafnan að benda alltaf á hana og að ég væri alslaus og konan sæi um peningamálin.

En svo er það annað mál hvort að þessi kort sem greinin fjallaði um voru notuð í ferðinni eða ekki. Ég vil benda fátækum námsmönnum, kennurum og öðrum Íslendingum á að þetta getur verið ágætt mótvægi við allt það peningaplokk sem annars er látið viðgangast í þessu landi :)


Kjartan
WWW.PHOTO.IS

Blogg um flugið sem Hassan útvegaði má svo sjá hér:

Hluti-I http://photo.blog.is/blog/photo/entry/815725/

Hluti-II http://photo.blog.is/blog/photo/entry/816250/

Hluti-III http://photo.blog.is/blog/photo/entry/818496/

Hluti-4 http://photo.blog.is/blog/photo/entry/819322/

Fært undir Alþjóðamál, Efnahagur, Ferðalög, Flug, Ljósmyndun, Menning og listir, Stjórnmál, Trúarbrögð, Umhverfi, Umræðan þann 4. mars 2009 af photo | 0 ummæli

EGYPTALAND - MYNDIR ÚR LOFTBELG

MYNDIR LOFTBELGUR - LENDING - EGYPTALAND

Arab Republic of Egypt
جمهورية مصر العربية
Gumhūriyyat Miṣr al-ʿArabiyyah

Luxor - Flug með loftbelg - Mannlífið í Lúxor séð úr lofti! Hluti-4 15. Feb. 2009 Sunnudagur kl. 5 til 9 … sólin að koma upp.

Hér kemur svo lokasyrpan úr fluginu með loftbelg í Luxor í Egyptalandi.

Eins og sjá má, þá heppnaðist lendingin 100% og er von að allir séu brosandi út að eyrum. Svei mér þá ef lagið “Kútter Haraldur” hljómaði ekki í ósjálfrátt í eyrum … “en allir komu þeir aftur og engin þeirra …” (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

The passengers seemed to really enjoy their flight! The Hot Air balloon makes save landing on the county site close to town Luxor in Egypt. (to view gallery: click image)

Það er mikið mál að halda svon stórum ferlíki á sínum stað og eins gott að það blási ekki hressilega eins og oft vill gerast á fjóni. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

The navigator smiling and other crew people helping to keep the basket in place. ‘Wind gust’ can cause lot of problems. The basked have also the name gondola and is made of wicker and ratan, but can be made of aluminum to. (to view gallery: click image)

Þegar er farið að undirbúa næstu ferð. En hér er komið með nýjar gasbyrgðir. Eins og sjá má, að þá þarf mikið magn af gasi til að halda hita á stórum loftbelg. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

The helping crew is already started to prepare the next flight. Here they come with a newly filled propane fuel tank. (to view gallery: click image)

Kynda þarf regluega upp til að hitinn fari ekki úr belgnum. Nýr hópur af ferðamönnum er á leiðinni og því gott að nota þá farþega sem fyrir eru sem ballest. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

The pilot need to heat up the envelope regularly to keep the balloon in uprigth possition. The envelope is usually made of ripstop nylon, or dacron (a polyester). (to view gallery: click image)

Bændur og búalið voru lítið að stressa sig á þessari uppákomu. Hér má sjá asna fá sér smá snæðing á meðan loftbelgsfarar gera sig klára í næstu ferð. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

We have clearly landet on the country site where the “Real Country People” live. A wonderful picture with two donkey eating in front of the newly landed Hot Air balloon close to town Luxor in Egypt. (to view gallery: click image)

Það er vissara að vera vel vopnum búinn ef einhver brjálaður ferðamaður skyldi fara að vera með óþarfa stæla. Hér er ungur maður og ef að líkum lætur, þá er hann ekki komin með skotveiðileyfi eins og gert er á Íslanska vísu að hætti BB (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

It is better to have a good gun if you meet some crazy tourist. The place was protected by armed young residents :) (to view gallery: click image)

Þá er næsta ferð hafin og lendingastaðurinn er ókunnur. Börnin eru alltaf jafn forvitin og oftast fyrst á staðinn þegar eitthvað er um að vera. Þau voru nú ekki öll á því að láta mynda sig og hjálpaði mikið til hversu víð linsan var hjá mér. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Now the next balloon trip or jorney to some unnovned place is already started. The kids are usually the first one to show up when some event or happening like ballon flying is going on in the neighbourhood. (to view gallery: click image)

Svona í lokin, að þá er ekki úr vegi að sýna svefnaðstöðuna á hótelinu sem að við gistum á. Hótelið heitir Bob Marley að hætti frægs tónlistarmanns og vantaði nánast ekkert á staðinn nema reykjarlyktina sem jafnan hefur fylgt þessum kúltúr (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Just to show my bed at the Hotel Bob Marley in Luxor in Egypt. A great five stars expeiens :) (to view gallery: click image)


Kjartan
WWW.PHOTO.IS

Blogg um sama flug má svo sjá hér:

Hluti-I http://photo.blog.is/blog/photo/entry/815725/

Hluti-II http://photo.blog.is/blog/photo/entry/816250/

Hluti-III http://photo.blog.is/blog/photo/entry/818496/

Fært undir Alþjóðamál, Efnahagur, Ferðalög, Flug, Ljósmyndun, Menning og listir, Nám, Trúarbrögð, Tækni og vísindi, Umhverfi þann 4. mars 2009 af photo | 0 ummæli

EGYPTALAND - FLUG YFIR LUXOR MEÐ LOFTBELG

EGYPTALAND - FLUG YFIR LUXOR MEÐ LOFTBELG

Arab Republic of Egypt
جمهورية مصر العربية
Gumhūriyyat Miṣr al-ʿArabiyyah

Luxor - Flug með loftbelg - Mannlífið í Lúxor séð úr lofti! Hluti-III 15. Feb. 2009 Sunnudagur kl. 5 til 9 … sólin að koma upp.

En hér heldur svo myndasagan um flug í loftbelg áfram:

Hér er verið að flytja sykurreyr. En Egyptaland er mikið landbúnaðarland þar sem mikið er ræktað af sykurreyr og sykurrófum meðfram öllu Nílarfljóti. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Balloons over Sugar Cane, Egypt. Egyptians love sugar, and one of the things we saw them consuming quite frequently was fresh-squeezed sugar cane. Egypt ranks second following South Africa in sugar production among African. Sugar industry in Egypt started back in the year 710. The total production of sugar in Egypt in 2007–2008 is 1,582 million tonnes and the consumption is 2,485 million tonnes. (to view gallery: click image)

Fjöldi starfsmanna fylgir loftbelgnum eftir á litlum pallbíl. Einnig eru 2 litlir rútubílar ekki langt undan sem fylgja hópnum einnig eftir. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Some balloons require a lot of people to operate. The air balloon team is following on 3 cars. 2 for picking up the tourist and one to take care of the balloon and the basket. Picture taken close to town Luxor in Egypt from a Hot Air Balloon. (to view gallery: click image)

Tvær litlar rútur fylgdu einnig loftbelgnum til að ná í farþeganna í lok ferðarinnar. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Two Minibus to pick up the customers and drive them back to the hotel. Picture taken close to town Luxor in Egypt from a Hot Air Balloon. (to view gallery: click image)

Oft mátti sjá hvar verið var að brenna gömlum plöntuleyfum. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Old plants and trees need to be burnt to give space for new plants. Picture taken close to town Luxor in Egypt from a Hot Air Balloon. (to view gallery: click image)

Hér eru nokkrir hvítir fuglar búnir að koma sér fyrir á greinum pálmatrés og nóta þess þegar morgunsólin kemur upp. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Birds and palm trees. Picture taken close to town Luxor in Egypt from a Hot Air Balloon. (to view gallery: click image)

Skepnur og önnur húsdýr þurfa sinn mat eins og aðrir. Hér má sjá konu sem er að sinna gegningum snemma að morgni. Ég tók eftir því að oft er ekki mikið um girðingar, heldur er band sett utan um löppina á dýrinu þannig að það getur aðeins hreift sig takmarkað um svæðið. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

The Village Women Giving Alms to the Cow. Picture taken close to town Luxor in Egypt from a Hot Air Balloon. (to view gallery: click image)

Hér “smæla” (brosa) þrjár fallegar Egipskar blómarósir framan í loftbelgsfaranna. Gaman að skoða öl smáatriðin í myndinni. Ofn til að baka og svo öll áhöldin sem liggja eins og hráviður út um allt. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Three young women with smiling faces to the photographer. Picture taken close to town Luxor in Egypt from a Hot Air Balloon. (to view gallery: click image)

Nú fer að líða að því að hópurinn komi inn til lendingar. Hér er karfan þegar farin að sleikja toppanna á sykurreyrnum sem mikið er af í Egyptalandi. Stefnan er sett á lítið svæði rétt hjá (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Now it is time to landing after a successful flying with Hot Air Balloon just over the roofs of small town on the opposite site of Nile river close to town Luxor in Egypt. (to view gallery: click image)

Aðstoðarmenn koma hlaupandi til að taka á móti. En mikilvægt er að stoppa loftbelginn sem fyrst svo að karfan dragist ekki eftir jörðinni. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Balloon team come running to help for a save landing and keep the balloon in place. (to view gallery: click image)


Kjartan
WWW.PHOTO.IS

Blogg um sama flug má svo sjá hér:

Hluti-I http://photo.blog.is/blog/photo/entry/815725/

Hluti-II http://photo.blog.is/blog/photo/entry/816250/

Fært undir Alþjóðamál, Efnahagur, Ferðalög, Flug, Ljósmyndun, Menning og listir, Nám, Samgöngur, Trúarbrögð, Umhverfi, Umræðan þann 3. mars 2009 af photo | 0 ummæli

EGYPTALAND - MYNDIR ÚR LOFTBELG - II

EGYPTALAND - MYNDIR ÚR LOFTBELG - II

Arab Republic of Egypt
جمهورية مصر العربية
Gumhūriyyat Miṣr al-ʿArabiyyah

Luxor - Flug með loftbelg - Mannlífið í Lúxor séð úr lofti! Hluti-II 15. Feb. 2009 Sunnudagur kl. 5 til 9 … sólin að koma upp.

Ég tók svo mikið af myndum í þessari flugferð yfir þorpið Lúxor í Egyptalandi að ég neyðist til að búta flugið niður. Hér kemur svo kafli II í þessu annars skemmtilega flugi.

Eftir að ég fór að skoða þessi mál betur, að þá rakst ég á nýja grein um fyrsta flug í loftbelg á Íslandi sem Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson skrifar um hér:

http://postdoc.blog.is/blog/postdoc/entry/774915/

Áður var ég búinn að lesa “skemmtilega” frásögn eftir Ómar Ragnarsson hér:

Minnir mig á skelfileg augnablik.

Framhald loftbelgssögunnar.

En hér heldur svo myndasagan um flug í loftbelg áfram:

Einnig mátti sjá falleg og snyrtileg hús

Flying with Air hot Balloon just over the roof of small town on opposite site of Nile river close to town Luxor in Egypt. Lot of nice houses. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Dagurinn byrjar snemma í Egyptalandi. Hér er maður að ná í fóður fyrir húsdýrin sín.

Work start early in Egypt. Here is farmer getting some “food” for his animals at home. Picture taken close to town Luxor in Egypt from a Hot Air Balloon. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Heita loftið í Egyptalandi gerir það að verkum að auðvelt er að sofa undir berum himni, ef það skildi nú rigna, að þá er það smá sýnishorn sem varir yfirleitt aðeins í nokkrar mínútur. En á myndinni má sjá Egypta sem er ekki enn risin á lappir. Algengt er að vefja um sig þykku teppi og er höfuðið hulið líka til að halda hita yfir blánóttina sem getur orðið mjög köld.

Why do you need a roof in Egypt, you almost never get rain. The best way to sleep is outside with a fress air. Picture taken close to town Luxor in Egypt from a Hot Air Balloon. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Hani, hæna, kind, hundur, köttur, kýr … Hænur og önnur húsdýr voru á vappi á meðan bændur og búalið voru í óða önn að sinna morgunverkum.

A rooster and hens, sheeps, cat, dog, cow … This looks like Animal Farm! Where is George Orwell and his pigs? Picture taken close to town Luxor in Egypt from a Hot Air Balloon. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Ekki er að sjá að það sé verið að aka börnum í skólann eins og gert er orðið víða.

No school bus here. What is better than a fress morning walk for the kids? Kids looking up to the Hot Air Balloon flying just above theyr heads. Picture taken close to town Luxor in Egypt from a Hot Air Balloon. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Það er greinilegt að Egyptaland er mikið landbúnaðarland. Húsdýr eru hvert sem litið er. hér er einn bóndinn að sinna búskap.

Ancient Egyptian farmers depended on the flooding cycle of the Nile to grow their crops. In 2009 is still like it was for 4-5000 years ago. Picture taken close to town Luxor in Egypt from a Hot Air Balloon. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Hér er ein falleg mynd af konu sem virðist vera sú eina sem vöknuð er í þorpinu.

A lonly women on the street in small town close to Luxor in Egypt. Picture taken from a Hot Air Balloon. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Margar skemmtilegar myndir náðust af börnum sem voru út um allt

Many of the best picture from this air photo baloon trip was from the kids playing, working, on way to school … Picture taken close to town Luxor in Egypt from a Hot Air Balloon. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Það liggur við að það sé flogið svo lágt að karfan festist í trjánum. Það er í lagi á meðan ekki eru háspennulínur að þvælast fyrir eins og í ferðinni hjá Ómari Ragnarssyni á Íslandi forðum

Balloon flyers have to be careful not to fly into trees, powerlines, houses … There were probably flying arond 20 Hot Air Ballons in the Luxor area at the same time. Picture taken close to town Luxor in Egypt from a Hot Air Balloon. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Gott er að fá sér eina vatnspípu sem mikil hefð er fyrir í Egyptalandi. En reykurinn er látin fara í gegnum vatn.

Photo of Egyptian man smoking water pipe (Shisha, hookah) on street in town close to Luxor. Problem is they do not change the mouthpiece, the tube or the water? Becearfule of the bacteria resides. Picture taken close to town Luxor in Egypt from a Hot Air Balloon. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)


Kjartan
WWW.PHOTO.IS

p.s. þessar myndir voru unnar með nýrri tækni svo að litir, skerpa og fl. gæti verið smá vandamál. Einnig var sólin að koma upp sem gerir svona myndatöku pínu erfiða. Sumar myndir líta út fyrir að vera teknar í björtu snemma að morgni, en svo er ekki, það var mjög dimmt þegar flugið hófst. En með góðum stafrænum myndavélum, þá er hægt að lýsa upp svona dökkar myndir.

Fyrsta hlutann má svo sjá hér:

http://photo.blog.is/blog/photo/entry/815725/

Fært undir Alþjóðamál, Efnahagur, Ferðalög, Flug, Ljósmyndun, Menning og listir, Nám, Trúarbrögð, Umhverfi þann 28. febrúar 2009 af photo | 0 ummæli

LOFTBELGUR Í EGYPTALANDI

www.visir.is Franskur ferðamaður deyr

LOFTBELGUR Í EGYPTALANDI

Arab Republic of Egypt
جمهورية مصر العربية
Gumhūriyyat Miṣr al-ʿArabiyyah

Luxor - Flug með loftbelg - Mannlífið í Lúxor séð úr lofti! Hluti-I 15. Feb. 2009 Sunnudagur kl. 5 til 9 … sólin að koma upp.

Það vill svo til að ég og konan erum ný komin úr ferð frá Egyptalandi. Þó að það sé mikið til af spilltum stjórnmálamönnum (eins og þeir sem verið er að ræða um í fréttinni), að þá er margt þar merkilegt að sjá fyrir ferðamenn.

Upphaf þessa bloggs er að ég las fyrir stuttu skemmtilega sögu frá Ómari Ragnarssyni um hrakfarir hans í sínu fyrsta flugi með loftbelg.

Minnir mig á skelfileg augnablik.

Framhald loftbelgssögunnar.

Sagan Ómars rifjaðist upp fyrir mér þegar mér var boðið í slíkt flug í Egypska bænum Lúxor fyrir stuttu af eineygðum og vægast sagt sérkennilegum hótelhaldara, Hassan að nafni (hægt að skrifa heila bók um karlinn).

Upphaflega átti ferðin að kosta 350 egypsk pund, en eftir skemmtilega rimmu við tvo hóteleigendur sem voru að bítast um okkur, að þá fengum við ferðina lækkaða niður í 200 egypsk pund á mann og umræddur Hassan endurgreiddi konunni minni 300 pund til baka þá um kvöldið og í kjölfarið grét hann stórum krókódílatárum og hélt mikla ræðu um hvað hann væri slæmur maður. En kvöldið var hin ágætasta skemmtun og verður lengi í minnum haft.

Loftbelgurinn átti að fljúga snemma næsta morgun yfir hluta af bænum Luxor sem liggur ofarlega upp með Nílarfljóti yfir á svæði sem oft er nefnt “staður hinna dauðu”! (þar sem sólin sest, vestan við ánna). Austan megin við ánna er svo bærinn Luxor (staður hinna lifandi þar sem sólin kemur upp).

Við þurftum að vakna kl. 5:00 og vera mætt á hótel Venus fyrir kl. 5:30 (Hótel Venus sem Hassan á sem að ég kalla oft Hótel Viagra). Þegar við komum niður í anddyrið á hótelinu okkar (Hótel Bob Marley House Hostel), að þá lágu þar 4 sofandi manneskjur. Ekki vildum við vekja neinn svo að við læddumst út á götu til að finna leigubíl (10 egypsk pund). Við komum tímalega á Hótel Venus þar sem rútubíll ók okkur svo áfram um borð í bát sem beið eftir okkur. Í bátnum var uppábúið borð með te og kaffi ásamt meðlæti sem gestir fengu á meðan siglt var með hópinn yfir ánna Níl. Í okkar hóp voru að mestu þjóðverjar frá skemmtiferðarskipi sem siglir reglulega með stóra hópa upp og niður Níl.

At 5:30 in the morning. A boat trip over Nile river to west bank at town Luxor in Egypt. On way to an Adventure Hot Air Balloon trip. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Hinu megin við ánna biðu svo litlar rútur eftir okkur sem keyrðu á mikilli ferð með okkur í átt að fjöllunum (Valley of the Kings and Valley of the Queens) þar sem um 500 grafir (Tomb, 4-5000 ára gamlar) eru ásamt nokkrum þekktum hofum. Ekið var að stóru bílaplani þar sem verið var að gera risastóran loftbelg kláran til flugs.

Loftbelgurinn lá á hliðinni og sáu fjórir stórir gasbrennarar um að hita upp loftið inn í belgnum. Byrjað var á því að fara yfir öryggisatriði varðandi flugtak og lendingu ásamt því að finna út þyngd á farþegum.

Egypt sunshine Hot Air Ballooning trips over town Luxor. Early in the morning heating up the air so the balloon can fly over the area of West Bank of Luxor. Flying over Valley of the Kings and Valley of the Queens (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Hér er belgurinn búinn að lyfta sér upp og að verða klár. Það þarf mikið af fólki til að halda svona útgerð gangandi eins og sjá má á myndunnum.

Egypt sunshine Hot Air Ballooning trips over town Luxor. Early in the morning heating up the air so the balloon can fly over the area of West Bank of Luxor. Flying over Valley of the Kings and Valley of the Queens (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Fljótlega varð loftbelgurinn klár og um 20 manna hópur kom sér fyrir í stórri körfunni. Flugtakið tókst vonum framar og liðum við í hægum morgunvindinum rólega upp í loftið á meðan flugmaðurinn hitaði loftið í belgnum.

Soon the Air Balloon trip could start when the air was getting hot enough to lift up those 20 people. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Hér er svo loftbelgurinn komin á loft og eins og sjá má, þá eru fjöldi starfsmanna sem veifa

Hot air balloon flying is one of the oldest successful human-carrying flight technology. Around 20 people in the balloon basket. Total around 2 ton incl. basket! (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Hér er mynd sem að ég tók af einu frægasta hofi Egypta Deir el-Bahri, Djeser-Djeseru – Hatshepsut’s temple. Hofið er gert fyrir konu. Árið 1997 voru 58 ferðamenn og 4 Egyptar drepnir af öfgafullum trúmönnum. Drápin höfðu mjög slæm áhrif á ferðaþjónustu Egypta í mörg ár á eftir.

Deir el-Bahri, Djeser-Djeseru – Hatshepsut’s temple. In 1997, 58 tourists and 4 Egyptians where killed in this place. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Hægt er að lesa meira um þetta fræga hof hér:

http://en.wikipedia.org/wiki/Deir_el-Bahri

Við vorum greinilega ekki þau einu sem voru að fara snemma í loftið á loftbelg þennan morgunninn. Hér má sjá 9 loftbelgi taka í loftið á sama tíma. Líklega hafa verið um ca. 20 loftbelgir sem tóku í loftið þennan morguninn.

Luxor is one of the most popular tourist place in Egypt. Nowadays it is very save to fly with an air ballon. Luxor area is probably one of the best you can find to make a save balloon flying. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Við flugum í aflíðandi boga yfir nokkur hof og svo þorpið í átt að ánni Níl og síðan upp með ánni að vestan verðu. Sólin var að koma upp og greinilegt að fólkið í þorpinu var að vakna til lífsins. Hænur og önnur húsdýr voru á vappi á meðan bændur og búalið voru í óða önn að sinna morgunverkum. _

Í landi sem aldrei rignir, þá þarf varla að hafa áhyggjur af því að setja þak á húsið. En eins og sjá má á mörgum myndum, að þá er venja að ein hæð sé ókláruð á hverju húsi fyrir næsta fjölskyldumeðlim.

In country where you never get rain you have no need for roof. In muslim country you have always on floor ready for new family member. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Hér þarf líklega einn að taka aðeins til hjá sér. Það er ekki bara á Ísland sem hægt er að finna einhvern bónda sem nennir ekki að taka til mikið heima hjá sér.

One messy place. House on the west bank close to Luxor town. Picture taken from a hot air ballon tour. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Ég tók eitthvað um 400 myndir í þessari flugferð. Verð því að reyna að dreifa þessu myndabloggi á 2-3 blogg til að reyna að gera því góð skil


Kjartan
WWW.PHOTO.IS

p.s. þessar myndir voru unnar með nýrri tækni svo að litir, skerpa og fl. gæti verið smá vandamál. Einnig var sólin að koma upp sem gerir svona myndatöku pínu erfiða. Sumar myndir líta út fyrir að vera teknar í björtu snemma að morgni, en svo er ekki, það var mjög dimmt þegar flugið hófst. En með góðum stafrænum myndavélum, þá er hægt að lýsa upp svona dökkar myndir.

Fært undir Alþjóðamál, Efnahagur, Ferðalög, Fjölmiðlar, Flug, Ljósmyndun, Menning og listir, Nám, Samgöngur, Stjórnmál, Trúarbrögð, Umhverfi, Vinir og fjölskylda þann 27. febrúar 2009 af photo | 0 ummæli

KÍNAFERÐ - SHANGHAI - RÓBÓTAR DANSA - TÆKNISAFNIÐ - 13

KÍNAFERÐ - SHANGHAI - RÓBÓTAR DANSA - TÆKNISAFNIÐ - 13

Dagur - 13 / Day - 13 Mánudagur 31. des. 2008

Shanghai: Shēnchéng (申城, “City of Shēn”), China, Kína, The People’s Republic of China (中华人民共和国, 中華人民共和國)

Dagur-13 Mið. 31. des. 2008
Ný tilraun var gerð til að fara aftur í tæknisafnið, Shanghai Science and Technology Museum (上海科技馆). Í þetta skiptið var opið. Komið var inn í risa glerbyggingu á mörgum hæðum og voru líklega 20-30 verkamenn á fullu að þrífa glerið að utan og innan.

Shanghai Science and Technology Museum (上海科技馆) is a large museum in Pudong, Shanghai, close to Century Park, the largest park of the city. The museum incorporates an IMAX theatre, and as of 2006 there are 12 main exhibits open to the public, including “Spectrum of Life”, “World of Robots” and “Information Era”. The construction of the museum cost 1,75 billion RMB, and the floor area is 98000m2 (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Það var ótrúleg upplifun að skoða þetta safn sem skiptist í margar deildir og hefði vart dugað dagurinn til að skoða hverja deild fyrir sig. Þarna var mikið af skólakrökkum og greinilegt að safnið er notað sem hluti af kennslu. Jarðfræðideildin var spennandi með stóru steinasafni, rekbeltin voru útskýrð, jarðskjálftabylgjur, olíuvinnsla, kolavinnsla, salthellir og að sjálfsögðu var allt útskýrt með hjálp nýjustu tækni.

Hér stjórna krakkar stálkúlu með heilabylgjum og var markmiðið að færa kúluna upp í borðið hjá andstæðingnum.

Children’s Technoland: Aimed at children aged 1-12. including laser musical instruments. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Ég nánast hljóp í gegnum sumar deildirnar eins og dýra- og plöntufræði, dýr jarðarinnar (risastór), geimsagan og fl. Stoppaði dágóða stund í deildinni þar sem öll grundvallarhugtök í eðlisfræði voru útskýrð. Einnig stoppaði ég mikið þar sem farið var yfir þróun tölvutækninnar, fjarskipti og nýjustu tækni í fjölmiðlun. Prófaði flughermi, karókí (þar sem ég var mixaður live inn á myndband). Flott framsetning á uppstoppuðum dýrum jarðarinnar

Wide Spectrum of Life: Exhibitions about biodiversity, genetics and rainforests. The Earth Exploration exhibit passes fossils on a fascinating journey to the Earth’s core (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

En róbótasafnið stóð upp úr. Þarna voru krakkar að tefla við róbót, róbót að teikna myndir af fólki, þú gast stýrt róbót frá hnappaborði, ýmis framleiðsla á minjagripum, 3D styttur af andliti gert með CNC tækni (allt mjög ódýrt). Hér er Róbót eða þjarki að tefla eða spila … við unga dömu

Robots thrill youngsters at tech expo. AV Paradise: Information technology and video & film technologies. Robot Theatre, Plane Steering Simulation. World of Robots (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Ég fór í keppni við tvo róbóta, þjarka að skjóta af boga í mark (ég tapaði stórt).

Robot shooting arrow at goal. AV Paradise: Information technology and video & film technologies. Robot Theatre, Plane Steering Simulation. World of Robots. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

hápunktur róbótadeildarinnar var leiksýning með 20-30 róbótum sem dönsuðu allt frá kínverskan sverð- og regnhlífadansi yfir í franskan Moulin Rouge dans með fjaðurskrauti og alles á meðan stórhljómsveit róbóta leið inn á sviðið spilandi á ýmis hljóðfæri! Og að sjálfsögðu allt með nákvæmni tölvutækninnar (dæmi um slíkt, þá var flott að sjá sverðsoddanna snertast í lok bardagans).

AV Paradise: Information technology and video & film technologies. Robot Theatre, Plane Steering Simulation. Robot Show - Robots Perform Traditional Chinese Parasol Dance (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Hér spilar þjarki eða róbót á píanó af mikilli nákvæmni.

AV Paradise: Information technology and video & film technologies. Robot Theatre, Plane Steering Simulation. Don’t forget to sing karaoke with the robot that plays the piano. It’s really fun. World of Robots. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Hér er ég inni í kúlunni, en inni í henni miðri er 4D kúlu bíó

4-D Theatre: Theatre that produces movement, wind, rain, and other 4-D effects; capacity of 56 seats. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Það sem vakti sérstaklega athygli mína, var hversu mikil nákvæmni var í smíði og uppsetningu á öllu. Hér má sjá heilan dýragarð af uppstoppuðum dýrum og var engu líkara en að maður væri komin til Afríku, svo nákvæm var öll umgjörðin.

Shanghai Wild Animal Park. The museum has 3000 pieces of rare animals specimen in its 3000 square (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Ég var víst búinn að fá mér smá kvef sem lýsti sér í stöðugu nefrennsli og var ég því ekki mikið fyrir að fara út að borða


Kjartan
WWW.PHOTO.IS

p.s. fyrir þá sem hafa áhuga á fleiri myndum, þá fór ég í ferð til Kína 2003 og þá sem ferðamaður og leiðsögumaður.

http://www.photo.is/kina/index.html

Fært undir Alþjóðamál, Efnahagur, Ferðalög, Fjölmiðlar, Jarðfræði, Kvikmyndir, Ljósmyndun, Matur og drykkur, Menning og listir, Nám, Samgöngur, Stjórnmál, Trúarbrögð, Tækni og vísindi, Tónlist, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda þann 3. febrúar 2009 af photo | 0 ummæli

KÍNAFERÐ - SHANGHAI - SÖFN - EXPO 2010 - HEIMBOÐ - 10

KÍNAFERÐ - SHANGHAI - SÖFN - EXPO 2010 - HEIMBOÐ - 10

Dagur - 10 / Day - 10 Sunnudagur 28. des. 2008

Shanghai: Shēnchéng (申城, “City of Shēn”), China, Kína, The People’s Republic of China (中华人民共和国, 中華人民共和國)

Kínverjar eru mikið fyrir að stunda reglubundna heilsurækt. Í bakgarðinum þar sem við bjuggum var reglulega stór hópur af fólki að dansa eða stunda einhverskonar hreyfiíþrótt. Eitt kvöldið þegar við gengum í gegnum garðinn í myrkri, þá var einn að æfa sverðdans, með alvöru sverði :|

Þennan dag var byrjað á því að taka létt borðtennismót með stórfjölskyldunni snemma í morgunsárið. Það var sérstaklega gaman að spila við eina spræka ömmuna og bogaði af mér svitinn (og lýsið) í öllum hamaganginum. En það vill svo til að borðtennis er þjóðaríþrótt Kínverja.

Table tennis (乒乓球), also known as ping pong is Chinas national sport. China continues to dominate most world titles. Iceland playing against China Table Tennis Super League! Her is the Icelandic master loosing the game against 105 year old grandmama! (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Eftir hádegi fór ég í þjóðminjasafnið Shanghai Museum við People’s Square (人民广场, 人民廣場). Það var frítt inn á safnið og er það líklega ein af ástæðunum fyrir því hversu marar rútur voru þar fyrir utan. Á safninu mátti sjá margt merkra muna frá fornsögu Kínverja eins og peninga, málverk, ritverk, líkneski, leirker, skartgripi ásamt ýmsum áhöldum og vopnum frá fyrri tímum.

The Shanghai Museum (上海博物館) is a museum of ancient Chinese art, situated on the People’s Square (人民广场, 人民廣場) in the Huangpu District of Shanghai, People’s Republic of China. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Safnið er mjög stórt og upp á nokkrar hæðir. Sérstaklega var gaman að skoða peningasafnið og búdda líkneskin. Hér má svo sjá haganlega útskorin húsgögn

The Shanghai Museum (上海博物館) has a collection of over 120,000 pieces, including bronze, ceramics, calligraphy, furniture, jades, ancient coins, paintings, seals, sculptures, minority art and foreign art. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Mikið var af “útskornum” munum úr steini eða marmara. Greinilegt var að mikil vinna hafði verið lögð í marga dýrgripinna

Hand made parts of “jade” stones. Jade is an ornamental stone. The term jade is applied to two different metamorphic rocks that are made up of different silicate minerals. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Það er mikið af fallegu handverki á safninu og má sjá ótrúlega skrautgripi unna úr mjúkum og hörðum marmara.

The Jade (玉) and the Chinese. In the Chinese Empire jade was considered the most noble of all gems. Jade was considered more valuable than gold or silver. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Næst var farið á aðra sýningu sem var þar rétt hjá og var hún um borgarskipulag Shanghai og hönnun á World EXPO 2010 sýningarsvæðinu ásamt stórbrotnum vinningstillögum.

The Shanghai Urban Planning Exhibition Hall (上海城市规划展览馆). In front of the hall is the Mascot figue, the sign of World EXPO 2010 exhibition in Shanghai. Mascot is created from a Chinese character meaning people, the mascot “Haibao” embodies the character of Chinese culture. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Þegar inn var komið, þá mátti sjá ótrúlega sýnigu á 6 hæðum um Shanghai borg. Hér má sjá stórt módel af EXPO 2010 sýningarsvæðinu sem núna er í byggingu. Íslenski skálinn er neðarlega vinstra megin, 2 lítil grá hús og er Íslenski skálinn húsið hægra meginn.

Shanghai World EXPO 2010. Expo 2010 (上海世界博览会) will be held in Shanghai, China. Model of the Exhibition site. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Þarna mátti einnig sjá ótrúlega flott RISA módel af allri Shanghai borg með húsum og öllum smáatriðum.

The Shanghai Urban Planning Exhibition Hall (上海城市规划展览馆). The biggest scale model I’ve ever seen is of the Shanghai City. A mini-landscape of historic architecture, electronic reading materials and a three-dimensional digital cinema were among the multimedia forms displayed yesterday to illustrate the splendid wonderland of the World Expo. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Ég náði aðeins að skoða 3 hæðir af sýningunni. Var seinn fyrir en rétt náði að sjá 360° tölvugerða kvikmynd af allri Shanghai borg ásamt flugvellinum og var það frábær upplifun. Gaman að sjá hversu langt 3D grafíkin er komin. Sýning sem að ég mæli hiklaust með, enda aldrei áður séð eins vel staðið að kynningu á borgarmálum áður (aðgangseyrir ¥30).

A three-dimensional digital cinema in The Shanghai Urban Planning Exhibition Hall (上海城市规划展览馆). Amazing 3D rendering and fly through of Shanghai City, a must to see! (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Næst var skotist með leigubíl yfir þvera borgina (¥19) til að taka þátt í heimboði til ungra frænku Heng og fjölskyldu hennar sem býr í lítilli íbúð. Pabbinn var meistara kokkur og var búinn að galdra fram þvílíka stórmáltíð.

Vegna plássleysis í íbúðarkitrunni, þá var eldhúsborðið fært upp að rúmgafli inn í herbergi dótturinnar og sátum við Heng á rúminu, pabbi og stjúpa Heng við sitthvorn endann og svo gömlu hjónin sem buðu í matinn beint á móti (gat ekki neitað því að það var smá íslensk baðstofustmenning yfir borðhaldinu). One of my best memory from the Shanghai trip was on the best and finest restaurant in Shanghai, a private home. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Dóttirin kom svo skömmu seinna, tróð sér inn á milli og tók þátt í borðhaldinu með okkur. Í boði var fiskisúpa (fiskhausinn soðin) ásamt með glæru hlaupi (búið til úr hrísgrjónum), svínasultu dýft í viniger sósu, rækjur, fiskkurl í grænmeti, ásamt kínversku eðal “Yellow wine”.

Hápunktur veislunnar endaði svo með nýveiddum hárvatnakrabba í dökkri sósu sem var nánast borðaður upp til agna nema af undirrituðum og mátti sjá vígvöll borðhaldsins eins og eftir sprengjuárás þar sem sundurlimaðir krabbar lágu út um allt. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

En ég var víst orðin eitthvað slappur þarna um kvöldið og var komin með kvef sem tók 3 daga að losna við.


Kjartan
WWW.PHOTO.IS

p.s. fyrir þá sem hafa áhuga á fleirri myndum, þá fór ég í ferð til Kína 2003 og þá sem ferðamaður og leiðsögumaður.

http://www.photo.is/kina/index.html

Fært undir Alþjóðamál, Efnahagur, Ferðalög, Heilbrigði, Ljósmyndun, Matur og drykkur, Menning og listir, Stjórnmál, Trúarbrögð, Tækni og vísindi, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda, Íþróttir þann 1. febrúar 2009 af photo | 0 ummæli

KÍNAFERÐ - Shanghai - Jarðaför - 3

KÍNAFERÐ - Shanghai - Jarðaför - 3

Dagur - 3 / Day - 3

Shanghai: Shēnchéng (申城, “City of Shēn”), China, Kína

Eftir að hafa sofið í fyrsta skiptið eins og steinn, þá vaknaði ég við að pabbi og stjúpmóðir Heng voru að lauma sér út til að kaupa í morgunmatinn. En þau komu með flugi deginum áður frá borg sem heitir Harbin. Á meðan skaust ég í sturtu og föt.

Heng byrjaði á að útbúa heitt vatn með hunangi og einhverju sem líktist rauðum rúsínum.

Skömmu síðar koma hjónakornin til baka af markaðinum með ilmandi morgunmat og byrja er að bera á borð hverja kræsinguna á fætur annari fyrir okkur unga fólkið.

Við fengum m.a. að smakka safaríkar þykkar pönnukökur, heimagerða sojamjólk, stóra pylsu og fl. góðmeti. Best of Shanghai is “Breakfast in Shanghai”. Our first “REAL” breakfas! (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Næsti klukkutíminn fór síðan í að útbúa enn meiri morgunmat handa okkur sem var margrétta og hreint ótrúlegur svo ekki sé meira sagt. Pabbi Heng spændi sojahnetur niður og útbjó ekta heimatilbúinn heitan sojadrykk.

Hér er karlinn að steykja fisk á pönnu og mátti sjá að eldamennska var hans fag. Cooking fish on pan in Shanghai, probably not the Top Ten Traditional Chinese Breakfast! (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Síðan borðuðum við 2 gerðir af heitum flatkökum með ýmsu góðmeti og súkkulaðifylltar deigbollur með valíum korni (æði).

… og smökkuðust þær alveg einstaklega vel. My favorite! Sweet and soft, very delicious. Cake with cashew nut (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Mikið er um grænmeti og hitað spínat var borðað sem meðlæti með þessari veislumáltíð

Ný steikt ilmandi spínat á pönnu. Lot of green things! (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Hér fáum við 2 gerðir af reyktum pylsum frá svæði sem heitir Harbin sem er í norður Kína við landamæri Rússlands (20 - 40°C frost núna og var áður Rússnesk borg).

En pabbi Heng býr þar ásamt spúsu sinni og komu þau þaðan með flugi þaðan dagin áður. Smoked Chinese sausage from Harbin in north close to russian border. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Svona bollur með mismunandi fyllingu eru mjög vinsælar.

Bollurnar geta verið með grænmeti, kjöti og eins og í þessu tilfelli þá fékk ég eina bollu með baunakremi sem bragðaðist eins og súkkulaði. Delicious cake or ball with mixed food inside. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Til að kóróna veisluna, þá fengum við smjörsteiktar rækjur í garliksósu í eftirrétt (við erum enn að tala um morgunmatinn)!

Það var ekki eins og ég væri að springa eftir þessa máltíð, heldur voru hér margir smáréttir, hver öðrum betri. Shrimps á la Shanghai in garlic souce. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Á meðan við Heng boðuðum morgunmatinn, þá var pabbi Heng að elda mat fyrir fyrrum eiginkonu (mömmu Heng) með aðstoð frá nýju konunni! En hún dó fyrir rúmum 6 árum síðan úr krabbameini rétt rúmlega fimmtug!

Hvernig má það vera að þau skuli vera að elda mat fyrir konu sem nú er látin mörgum árum áður? Cooking for a funeral or person that pass 5 years ago! How can that be? (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Jú það er víst siður í Kína að brenna hina látnu og þeim síðan komið fyrir í litlum kistli. En hin eiginlega jarðaför átti að fara fram í dag í kirkjugarði ca. kl.st. fjarlægð frá Shanghai 5-6 árum seinna og var maturinn hugsaður sem virðing við hina látnu og reynt að gera henni allt til geðs eins og hún hefði sjálf viljað hafa hlutina ef hún væri lifandi enn í dag.

Svona til að setja puntinn yfir allt, þá borða kínverjar mikið af ávöxtum og ekki er óalgengt að fá epli, kíví, peru eða annan ávöxt til að enda máltíðinna.

Hér er verið að skera utan af epli. All good breakfast, lunch or dinner in Shanghai is ended with some kind of a fruit. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Að loknum morgunmati gerði hópurinn sig klára fyrir jarðaförina og var haldið af stað með forlátan kistil og mikið magn af nýelduðum mat, grænmeti og ávöxtum.

Ég var látin kaupa blóm og síðan var farið í sérstaka búð til að kaupa “peninga” og alvöru kínverja eða sprengjubelti eins og krakkarnir myndu vilja kalla það (3 m langt með 1000 kínverjum!). Síðan var lagt að stað í lítilli rútu með hópinn ásamt dyggum fjölskyldumeðlimum sem dreif að úr öllum áttum. Að endingu þurfti að fara á 2 bílum.

Hér situr Heng með kistilinn sem inniheldur jarðneskar leifar móður sinnar asamt blómaskreytingum, mat og öðrum veigum. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Það tók töluverða stund að komast út úr þröngri götunni með tilheyrandi handapati frá fjölda manns þar sem bílar þurftu að tvístrast í allar áttir til að þessi litla rúta kæmist út. Heng hafði á orð að þessi bílstjóri væri ekki OK, að vísu var það alveg rétt hjá henni en hann skilaði þó sínu eftir mikinn glæfraakstur báðar leiðir. Hann tók fram úr báðu megin og lá á flautunni stanslaust allan tímann á meðan hann reifst við einn farþegann sem vildi ólmur fá að skipta sér að akstrinum líka.

Þegar komið var í kirkjugarðinn, þá var þar algjört umferðaröngþveiti og mátti víða heyra sprengingar og læti óma úr öllum áttum. En þessi dagur var fyrsti vetradagur og þá fara allir í kirkjugarðinn (ath. garður án kirkju, en það eru fáar kirkjur í Kína, flestir trúlausir eða Búddatrúa!).

Því miður harðbannaði Heng mér að taka myndir af athöfninni sem var hreint ótrúlegt myndefni og sannkallað augnakonfekt sem þarf mörg orð til að lýsa. En í fáum orðum, þá eru þúsundi legsteina svo langt sem augað eygir og fyrir framan hvern legstein var rammi eða hola með 1,2 eða 3 hólfum 15 x 35 cm og 20 cm djúpt. Á legsteininum er mynd af viðkomandi og pláss tekið frá fyrir eiginkonu eða eiginmann. Kistlinum með ösku móður Hengs var komið fyrir í einu af hólfinu. En á undan var kveikt í einhverju gulum þykkum blöðum ofan í holunni til að hita hana upp. Síðan er hent í holuna ýmsum smápeningum og gervipeningum og svo kemur starfsmaður og steypti lokið fast efir að jarðneskar leifar og kistilinn er kominn á sinn stað. Næst er “lagt á borð” fyrir hina látnu og þar er sett upp stórt og mikið veisluborð af mat sem er raðað ofan á gröfina og þar má finna ýmsa ávexti, fiskmeti, kjötmeti. Síðan er veislan skreytt með miklu blómahafi frá viðstöddum.
Því næst er komið með stórt ílát sem fyllt er með enn meiri peningum sem eru eins og litlir bátar í laginu og eru þeir gull- eða silfurhúðaðir. En þetta var gamall gjaldmiðill sem Kínverjar notuðu fyrir ca. 1300 árum síðan.

Hér má sjá sýnishorn af umræddum peningum

Síðan var kveikt í öllu og á meðan eldurinn logaði þá komu nánustu með hvern sinn pokann og settu á eldinn og þannig brann mikið magn af “gömlum” peningum til heiðurs hinni látnu.
Að lokum var sprengibeltinu komið fyrir með 1000 Kínverjum og kveikt í og sprakk það síðan með miklum látum og mikinn reyk lagði yfir svæðið.

Eftir að allir voru búnir að signa sig 3svar sinnum yfir gröfina og hver um sig búinn að stinga 3um reykelsum í vax (þarf að vera oddatala 1,3,5,…) að þá hélt hersingin áfram að annarri gröf. Eftir mikið labb, þá var komið að gröf afa og ömmu Heng og fékk sú gröf svipaða meðferð með mat og reykelsi nema einn kveikti í sígarettu og lagði á gröfina, allt átti að vera eins og það var hjá viðkomandi aðila sem verið var að votta virðingu sína.

Hér laumaðist ég til að taka mynd af einum legsteini við eina gröfina _ Legsteinn við Kínverska gröf.

Graveyard in Shanghai (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Eftir þessa upplifun, var ekið til baka með enn meira offorsi en áður og var ótrúlegt að sjá keyrslulagið þar sem verið er að fara yfir á rauðu ljósi ásamt því að sveigja fram hjá bílum, fólki, mótor- og reiðhjólum af mikilli nákvæmni.

Stefnan var sett á veitingastað og beið þar 20-30 rétta stórveisla og ekkert til sparað.

Hópurinn fékk m.a. froska, ýmsar kjöttegundir eins og lamb, sviðalappir, fuglafit (hænu), nokkrar fisktegundir, kolkrabbi, 3-4 tegundir af súpum og endaði veislan síðan á hárkrabba þar sem ALLT var borðað og virtist það vera hápunktur veislunnar hjá flestum. (smellið á mynd til að sjá fleiri myndir)

Að lokum hélt hersingin heim til Heng þar sem útdeilt var gjöfum á alla m.a. frá Danmörku.

Það leið ekki langur tími þar til byrjað var að tala AFTUR um mat og voru gömlu hjónin komin í nýja eldamennsku áður en maður náði að snúa sér við! Núna fengum við þessa dýrindis súpu með grænmeti, pylsum, hrísgrjónum (sem þeir borða víst lítið af) … og var hún meira borðuð fyrir kurteisi sakir hjá mér enda lítið pláss eftir fyrir meiri mat!

Puff … núna er ég að borða risajarðaber og kíví með tannstönglum sem er búið að skera niður í stóra bita. Ég man hreinlega ekki eftir að hafa borðað annað eins á svona stuttum tíma áður! Annað hvort þarf maður að leggjast hressilega á meltuna eða þá að þetta er svo þung fæða að maður er búinn að vera hálfsofandi síðan við komum hingað út, líkaminn hefur ekki undan að vinna úr þessu öllu saman.


Kjartan
WWW.PHOTO.IS

Fært undir Alþjóðamál, Efnahagur, Ferðalög, Heilbrigði, Ljósmyndun, Matur og drykkur, Menning og listir, Samgöngur, Trúarbrögð, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda þann 24. janúar 2009 af photo | 0 ummæli

HVERNIG MÁ STÓRAUKA VERÐMÆTI Í ÍSLENSKU HAGKERFI?

www.visir.is ÍAV segja upp 151

HVERNIG MÁ STÓRAUKA VERÐMÆTI Í ÍSLENSKU HAGKERFI?

Hér hef ég verið að taka saman nokkra punkta um hvernig má bæta Íslenskt samfélag og auka fjölbreytni í atvinnumálum.

Upphaflega hugmyndin að listanum hófst þegar ég fór að spá í hvernig spara mætti gjaldeyrir og auka útflutninginn.

Eins og sjá má, þá er listinn langur. En ég vil líka reyna að virkja fleiri og óska ég því eftir að þeir sem þetta lesa komi með flottar og frjóar hugmyndir sem geta hjálpað Íslendingum í þessum þrengingum.

A) SJÁVARÚTVEGUR OG FISKVINNSLAN
1) HEFJA HVALVEIÐAR - Bræðsla, lýsi, kjöt, mjöl, fiskafóður, eldsneyti
2) HEFJA SELVEIÐAR - Skinn (fatnað, skó, veski …), lýsi, kjöt, bræðsla, mjöl, fiskafóður
3) FLYTJA VINNSLU Á ÖLLUM SJÁVARAFURÐUM TIL LANDSINS - Auka verðmæti á fiskafurðum heima með innlendu vinnuafli eins og hægt er.
4) AUKA VEIÐAR Á SMÁBÁTUM OG STÆKKA VEIÐISVÆÐI - Styrkir landsbyggðina.
5) VINNA ALLT HRÁEFNI BETUR OG ÞANNIG SNARHÆKKA ENDURSÖLUVERÐMÆTI Á AFURÐUM - Nýta mannafla og húsnæði út um allt land og vinnsluhúsnæði sem stendur hvort eð er autt út um allt.
6) ÞRÓA FISKELDI ÞAR SEM MÆTTI NOTA AFGANGA FRÁ SJÁVARÚTVEGI SEM FÆÐU - Hér má nota óspart hval og sel sem fæðu sem nóg er til af.
7) VINNA SÍLD OG MAKRÍL MEIRA - Selja til manneldis í stað þess að setja í bræðslu (Asíuþjóðir borga hátt verð í dag fyrir þessar afurðir).
8) SÆKJA Í NÝJA FISKISTOFNA - Túnfiskur, Makríll eða stofna sem eru fyrir utan kvóta.
9) AFNEMA KVÓTAKERFIÐ OG FESTA VEIÐIKVÓTANN VIÐ BYGGÐARLÖGINN! - Ekki á að vera hægt að flytja kvótann frá byggðarlagi eins og áður, að vísu mætti byggðarlag leigja út kvóta til annarra.
10) STÓRAUKA NEYSLU Á FISKAFURÐUM - Hér er besti matur sem hægt er að fá. Spurning um að lofa gömlum trillukörlum að veiða fyrir utan kvóta og selja beint til almennings.

B) ÁLIÐNAÐURINN
1) HEFJA VINNSLU Á VÖRUM INNANLANDS ÚR ÁLI - Auka stórlega þróun og skoða nýja tækni eins og vélar til framleiðslu.
2) SETJA UPP RÓBÓTAFRAMLEIÐSLUVERKSMIÐJU - Apple var að setja upp nýja svona verksmiðju þar sem róbótar smíða nýjustu ferðatölvurnar. Með þessari nýju tækni er hægt að sérsmíða smáhluti úr áli á örstuttum tíma með litlum tilkostnaði og fljótlegt er að breyta um form og lögun. Þarf engin mót. Allt skorið með vatni.
3) REYNA AÐ FÁ BÍLAFRAMLEIÐENDUR TIL AÐ FRAMLEIÐA HLUTI Í BÍLA Á ÍSLANDI - Ísland er vel staðsett og með öflugt flutningskerfi.
4) FÁ ÁLFYRIRTÆKI TIL AÐ BÚA TIL SJÓÐ SEM STYÐUR BETUR VIÐ SKÓLAKERFIÐ - Hér mætti kaupa vélar og tæki ásamt því að útbúa sérhæfðar námsbrautir í verkmenntaskólum sem kenna allt sem við kemur álframleiðslu. Einnig mætti búa til námsbraut sem er á háskólastigi og sú braut gæti verið alþjóðleg.
5) LEITA EFTIR VERKEFNUM HJÁ ÁLFYRIRTÆKJUM TIL AÐ ÞRÓA SÉRHÆFÐA TÆKNIVÖRU SEM ÁLIÐNAÐURINN NOTAR - Það er töluverð reynsla og þekking þegar til staðar á Íslandi bði í smíði á búnaði og hugbúnaði.
6)
7)
8)
9) SETJA ÍSLENSK LÖG UM ÁLFRAMLEIÐSLU OG ÚTFLUTNING - Setja ströng lög sem skilyrða álfyrirtæki að ákveðin % af framleiðslunni fari í framleiðslu og þróun innanlands. Álið verði selt á kostakjörum til innlendra framleiðslufyrirtækja á meðan verið er að byggja upp slíkan iðnað á Íslandi. Hér eiga Íslendingar EKKI að sætta sig við að öll framleiðslan sé flutt óunnin úr landi!

C) ORKUIÐNAÐURINN
1) FLYTJA ÚT ÞEKKINGU - Í samvinnu við Sameinuðuþjóðirnar reka Íslendingar alþjóðlegan skóla sem kennir allt sem viðkemur orkuvinnslu með hjálp jarðgufu.
2) ÞRÓA AÐFERÐIR TIL AÐ NÝTA GUFUORKUNA BETUR - Aðeins er 10 - 15% nýting á þeirri orku sem kemur frá borholum í dag.
3) FRAMLEIÐA ELDSNEYTI Í SAMVINNU VIÐ ÁLVERIN - Nota útblásturinn frá borholum
4) FJÖLGA HEIMARAFSTÖÐVUM - Hér er lítill iðnaður sem mætti vel styðja við bakið á HÉR: http://www.photo.is/08/04/4/pages/kps04082265.html
5) KANNA MÖGULEIKA Á OLÍUVINNSLU VIÐ ÍSLAND - Spurning um að leita til Norðmanna.
6) FINNA FLEIRI NOTKUNARMÖGULEIKA FYRIR HEITT VATN - Hér má nota frárennsli frá virkjunum. Meðalrennsli frá Reykjanesvirkjun er svipað og í Elliðaánum sem rennur ónýtt til sjávar.
7) REYNA AÐ KOMA Á SAMSTARFI VIÐ FYRIRTÆKI SEM FRAMLEIÐA VINDMYLLUR - Spurning um að setja upp vindmyllur á Íslandi fyrir fyrirtæki eins og VESTAS. Ísland er kjörin staður til að álagsprófa slíkan búnað.
8) KANNA MÖGULEIKA Á STÓRFELLDRI FRAMLEIÐSLU Á VETNI Á ÍSLANDI - Nú er verið að þróa marga nýja notkunarmöguleika á vetni.
9) NÝTA VATNSORKUNA BETUR VIÐ KÁRAHNJÚKA - Það virðist vera mun meiri orka þarna á ferðinni en útreikningar sýndu á sínum tíma. Hvernig væri nú að virkja nýja fossinn?

D) FERÐAIÐNAÐURINN
1) AUKA NÝTINGU Á AÐSTÖÐU - Með því að lengja ferðamannatímann má bæta nýtingu á hótelum, bílum og mannskap
2) ÍSVETRARFERÐIR - Allt innifalið í pakka, 4×4 ferð á jökull
3) ÓVEÐURSFERÐIR - Hvað er meira spennandi en að lenda í alvöru vondu veðri á Íslandi.
4) VEIÐI Í GEGNUM ÍS - Vinsæl íþrótt sem er að aukast mikið.
5) BORA FYRIR ALVÖRU ELDGOSI - Það tókst við Kröflu á sínum tíma :)
6) FINNA LEIÐIR TIL AÐ NÝTA BETUR LANDSBYGGÐINA YFIR VETRATÍMANN - Hér er vandamálið þjónustustigið sem dettur niður um leið og sumarvertíðin er búin.
7) ÚTBÚA NÝJA HAGKVÆMA 4X4 FERÐALEIÐ Í KRINGUM HENGILINN - Hér þarf aðeins að leggja smá spotta til að klára hringleið.
8) ÚTBÚA HRINGLEIÐ FRAMHJÁ FOSSINUM GLYM Í HVALFIRÐI - Vantar að selja ferðamönnum alvöru fjörð eins og Norðmenn eru að gera. http://photo.blog.is/blog/photo/entry/267781/
9) ÚTBÚA ALÞJÓÐLEGT SKÍÐASVÆÐI - Ég hef verið með hugmyndir um að búa til alvöru skíðasvæði á milli Þórisjökul og Geitlandsjökul ásamt því að stækka Gullna hringinn HÉR: http://photo.blog.is/blog/photo/entry/263922
10) STÓRBÆTA ALLA AÐSTÖÐU Á FERÐAMANNASTÖÐUM - Bæði byggingar-, rafverktakar og málmiðnaðurinn er í lægð. Hér er auðvelt að búa til verkefni á vegum ríkisins.
11) BÚA TIL NÝJA FERÐAMANNASTAÐI TIL AÐ DREIFA BETUR ÁLAGINU - Finna ný og falleg svæði og reyna jafnframt að vernda önnur betur.

E) LANDBÚNAÐUR
1) HEIMASLÁTRUN - Eykur atvinnu í sveitum landsins
2) LEYFA SÖLU BEINT Á AFURÐUM - Bóndinn má þá pakka í sínar eigin umbúðir
3) AUKA ÚTFLUTNING Á HROSSUM OG FJÖLGA MARKAÐSSVÆÐUM - Íslenski hesturinn er þegar orðin heimsþekktur. Stoppa útflutning a graðhestum (stundargróði).
4) MARKAÐSSETJA SKYR INN Á FLEIRI MARKAÐI - Það hefur gengið vel að markaðssetja skyr t.d. í New York
5) FRAMLEIÐA MEIRA AF KORNI FYRIR INNLENDA FRAMLEIÐSLU - Á Íslandi er fullkomin mylla til að mala hveiti í hágæða brauð.
6) NOTA HEITT VATN TIL AÐ HITA UPP JARÐVEG OG HRAÐA ÞANNIG VEXTI Á T.D. KARTÖFLUM - Þannig mætti lengja vaxtartímabilið og fá þar með stærri og betri vöru.
7) LEGGJA ÁHERSLU Á HEILSUVÖRUR - Gott dæmi um slíkan búskap er hjá bóndanum á Þorvaldseyri http://www.photo.is/08/04/4/pages/kps04082254.html
8) REYNA AÐ ENDURBÆTA TENGSLIN Á MILLI LANDSBYGGÐARINNAR OG ÞEIRRA SEM BÚA Á MÖLINNI - Væri ekki kjörið að reyna að koma þessum krakkaormum í sveit aftur til að moka flórinn og stinga út úr fjárhúsunum!
9) KANNA HVORT EKKI SÉ HÆGT AÐ NÝTA EITTHVAÐ AF ÖLLUM ÞEIM JÖRÐUM SEM AUÐMENN HAFA KEYPT UPP - Þetta eru oft á tíðum góðar landbúnaðarjarðir sem sumar eru að fara í órækt. Ríkið er víst að yfirtaka eitthvað af þessum jörðum aftur vegna greiðsluþrota.

F) BYGGINGARIÐNAÐURINN
1) REYNA AÐ KLÁRA SEM FLESTAR NÝBYGGINGAR - Það er betra að reyna að klára hálfklárað verk svo að það nýtist þó einhverjum frekar en að láta dæmið standa og grotna niður. Hér þarf að skoða lánakerfið betur.
2) BYRJA Á HÁSKÓLASJÚKRAHÚSI - Hvað varð um andvirði sölunnar á Símanum sem átti að nota í þá byggingu?
3) KLÁRA VIRKJUNINA Á BÚÐARHÁLSI - Hér má lesa nánar um málið: http://photo.blog.is/blog/photo/entry/436034/
4) RÍKIÐ KOMI MEÐ VIÐHALDSVERKEFNI Á HÚSEIGNUM VÍÐA UM LAND - Nóg er til af eignum á vegum ríkisins.
5) FARA Í STÓRT VIÐHALDS- OG UPPBYGGINGARVERKEFNI Á ÖLLUM HELSTU FERÐAMANNASTÖÐUM - Slíkt verkefni myndi bæði styrkja byggingariðnaðinn og ferðamannaiðnaðinn.
6)

G) FRAMLEIÐSLUIÐNAÐUR SEM MÁ LEGGJA ÁHERSLU Á
1) PRENTIÐNAÐUR - Auka innlenda umbúðarframleiðslu. Nú má fara að flytja út prentverk. Ef færð er vinnsla á fiskafurðum aftur til landsins, þá þarf mikið magn af umbúðum.
2) PLASTIÐNAÐUR - Auka innlenda umbúðarframleiðslu. Aukin neysla á innlendum vörum kallar á aukið magn af umbúðum.
3) KEX, SÆLGÆTI, ÞVOTTAEFNI - Draga saman innflutning á svona vörum. Væri gaman að sjá Hreinol og grænsápu aftur. Sínalco væri nú ekki slæmt heldur :)
4) FRAMLEIÐA ÍSLENSKAN ÁBURÐ - Öll aðstaða til staðar.
5) FRAMLEIÐA ÍSLENSKT SEMENT - Vélar og tæki til staðar.
6) FRAMLEIÐA ÍSLENSKA ÁVEXTI OG GRÆNMETI - Hvað er hollara en íslensk framleiðsla. Um að gera að auka neyslu á slíkum mat.
7) SETJA AFTUR Í GANG ULLARFRAMLEIÐSLU OG GERA SKIPTISAMNING VIÐ RÚSSA - Hér er hægt að fá olíu á skipin og bílaflotan í skiptum fyrir innlenda framleiðslu. Þekking sem er enn til staðar fer að hverfa úr landi ef ekki verður brugðist fljótt við.
8) GERA ÍSLAND EINS SJÁLFBÆRT Í MATVÆLAFRAMLEIÐSLU OG HÆGT ER - Þó svo að það kosti eitthvað að vernda innlenda matvælaframleiðslu, þá sýnir það sig best þegar svona árar hversu mikilvæg slík framleiðsla er.

H) HUGBÚNAÐARIÐNAÐURINN
1) ÞRÓA HUGBÚNAÐ Í VERÐBRÉFAVIÐSKIPTUM FYRIR ERLENDA BANKAMARKAÐI - Alþjóðleg þekking Íslendinga er orðin mikil á þessu sviði og slæmt ef að hún glatast.
2) ÞRÓA HUGBÚNAÐ Í GREIÐSLUÞJÓNUSTU FYRIR ERLENDA BANKAMARKAÐI - Líklega er eitthvað af svona lausnum nú þegar til staðar á markaðinum.
3) ÞRÓA HUGBÚNAÐ Í SMÁFYRIRTÆKJAREKSTRI FYRIR ERLENDA BANKAMARKAÐI - Vantar hagkvæma lausn fyrir tengingu á smáfyrirtækjum við bankakerfið.
4) FÁ CCP TIL AÐ ÞRÓA MEIRA SINN HUGBÚNAÐ Í SAMSTARFI VIÐ ÍSLENSKA NOTENDUR - CCP er með sterka stöðu til að þróa sínar vörur. Spurning um að nýta betur alla þá Íslensku msn, Faccebook og internetsjúklinga meira í vöruþróun.
5) KANNA MÖGULEIKA Á ÚTFLUTNINGI Á ÍSLENSKUM HUGBÚNAÐI SEM HEFUR REYNST VEL FYRIR ÍSLENSKAN MARKAÐ - Hér er hugsanlega fullt af földum möguleikum. Best hefur reynst að semja við stóra aðila sem eru með svipaðar lausnir og selja í gegnum þeirra dreifikerfi.
6)

I) SKÓLAR OG KENNSLA
1) ENDURMENNTUN - Í stað þess að hanga heima í atvinnuleysisvolæði, þá er kjörið að fara og mennta sig aðeins.
2) BÚA TIL NÝ FÖG TENGD ORKU, ÁLFRAMLEIÐSLU - Fínt að fá stuðning frá álfyrirtækjum og orkufyrirtækjum.
3) MINNKA VÆGI Á LÖGFRÆÐI, HAGFRÆÐI OG VIÐSKIPTAFRÆÐI - Hefur því miður verið offramleiðsla á fólki í þessum fögum síðustu árinn.
4) AUKA VÆGI Á VERKMENNTUN MEÐ MEIRI TENGINGU VIÐ HÁSKÓLAUMHVERFIÐ - Handverk og verkmenntun vantar nauðsynlega inn í Íslenskt samfélag.
5)
6)
7)
8) ENDURMENNTUN FYRIR STJÓRNMÁLAMENN - Hér er kjörið tækifæri fyrir einhverja skólastofnun um að leggjast í rannsóknir og útbúa námsefni og námsbraut fyrir lögmenn, viðskiptafræðinga og hagfræðinga þar sem fari er yfir hvað var gert vitlaust í stjórnun efnahagsmála síðustu 7 árin. Þetta verður að vera nám sem allir sem huga að stjórnmálum verða að fara í gegnum og viðkomandi aðilar verða að standast próf eins og annað fólk til að fá að bjóða sig fram til þings. Hér væri mjög gott að vera með IQ próf inni í prógramminu. Líklega er nóg að kenna fræði Hannesar H með öfugum formerkjum.
9)

J) HEILBRIGÐISKERFIÐ
1) FLYTJA INN SJÚKLINGA - Heilsuhæli þar sem lögð væri áhersla á náttúruleg böð. Í Hveragerði eru 4 - 5 sundlaugar!
2) HEILBRIGÐISÞJÓNUSTA FYRIR ERLENDA FERÐAMENN - Boðið upp á skurðaðgerðir, hjartaaðgerðir, öldrunarþjónustu, endurhæfing, heita vatnið, hreint loft og ísenskt vatn. Einnig flott að reyna að nýta dýran búnað á spítölum betur.
3)
4) NÝTA ÓNÝTTA GISTIAÐSTÖÐU YFIR VETRATÍMANN SEM SJÚKRA- OG HEILSUHÓTEL - Út á landi þarf ekki mikið að gera til að hægt sé að útbúa vetrarhótel. Mývatn er t.d. með 4 baðstaði og flotta náttúru. Hér á að leggja áherslur á staði sem eru með “0″ stress.
5)
6)

K) SAMGÖNGUMÁL
1) HEFJA SIGLINGAR Í KRINGUM LANDIÐ - Ríkið tekur yfir hluta af Eimskip
2) FJÖLGA FERÐUM STRÆTISVAGNA - Hér þarf að venja þjóðina á nýjar samgöngumöguleika
3)
4) ÚTBÚA HJÓLASTÍGA OG LEGGJA ÁHERSLU Á HJÓLREIÐAR - Að vera á hjóli á Íslandi er ekkert mál. Holl og góð hreyfing og kostar ekki neitt.
5)
6) BÍÐA MEÐ HÖFNINA VIÐ BAKKAFJÖRU - Mig grunar nú að það renni tvær grímur á suma að sjá hver veðurofsinn getur orðið við suðurströndina þegar haust- og vetrarlægðunum rignir yfir landið.
7) BÍÐA MEÐ TVÖFÖLDUN Á HVALFJARÐAGÖNGUM - Hætta að rukka gjald og þá rennur umferðin greiðara í gegn.
8) BÍÐA MEÐ SUNDAGÖNG - Hægt er að gera þessi göng með mun hagkvæmari hætti http://photo.blog.is/blog/photo/entry/382366/
9) FÆKKA BÍLUM Á ÍSLANDI OG SETJA LÖG SEM STUÐLA AÐ HAGKVÆMNI - Setja þarf ný lög sem leggur áherslu á sparneyta bíla. Ofurskatta á lúxusbíla. Lækka verð á díselolíu og hærra verð á bensín.

L) BANKASTARFSEMI
1) SAMEINA INNLENDU BANKANNA OG BYGGJA UPP STERKA SÉRSJÓÐI - Spurning um að vera með einn einkabanka og einn ríkisbanka.
2) BYGGJA UPP ÖFLUGAN BANKA OG SJÓÐ TIL AÐ STYRKJA ORKUIÐNAÐINN - Nýfrjálshyggjan lagði því miður niður alla þessa sterku sjóði sem gamla kerfið var búið að koma sér upp. Núna þegar þarf á þeim sjóðum að halda, þá eru allir peningar horfnir.
3) BYGGJA UPP ÖFLUGAN BANKA OG SJÓÐ TIL AÐ STYRKJA SJÁVARÚTVEG - Hvar er Fiskveiðasjóður Íslands í dag?
4) BYGGJA UPP ÖFLUGAN BANKA OG SJÓÐ TIL AÐ STYRKJA LANDBÚNAÐ - Hvar er Framleiðnisjóður landbúnaðarins í dag?
5) BYGGJA UPP ÖFLUGAN BANKA OG SJÓÐ TIL AÐ STYRKJA IÐNAÐINN - Hvar er Iðnlánasjóður í dag?
6) BYGGJA UPP ÖFLUGAN BANKA OG SJÓÐ TIL AÐ STYRKJA HÚSNÆÐISMARKAÐINN - Það munaði EKKI NEINU að þessum sjóði yrði eytt í fjárglæfrahítina og hvar væri húsnæðismarkaðurinn staddur í dag ef svo hefði farið.
7)
8)

M) TÆKNIIÐNAÐUR
1) LEGGJA BETRI GRUNN AÐ HÁTÆKNIIÐNAÐI - Á Íslandi vantar alla grasrót og stuðning frá stjórnvöldum.
2) SÆKJA ERLEND HÁTÆKNIVERKEFNI Í GEGNUM ALÞJÓÐLEGAR STOFNANNIR OG TENGINGAR ÍSLENDINGA - Hér er kjörið að nýta allt embættismannakerfið í útlöndum til slíkra hluta frekar en að eltast við sæti í öryggisráðinu.
3) KOMA Á SAMSTARFI VIÐ NASA, EVRÓPSKU GEIMFERÐASTOFNUNINA OG NORÐURLÖNDIN - Það er fullt af flottum verkefnum sem verið er að þróa hjá þessum stofnunum.
4)
5)

N) HUGMYNDAIÐNAÐUR
1) LEGGJA ÁHERSLU Á GJALDEYRISSKAPANDI HUGMYNDIR SEM SKAPA STÖRF INNAN LANDS - Hér þarf að hugsa til lengri tíma og þá með útflutning í huga.
2) JARÐLESTAKERFI - Umhverfisvænt neðanjarðarlestarkerfi fyrir stór-Reykjavíkursvæðið sem notar ódýra innlenda orkugjafa. HÉR: http://photo.blog.is/blog/photo/entry/438283
3) LÉTTLEST TIL KEFLAVÍKUR - Auðvelt er að þróa ódýrt Íslenskt léttlestarkerfi HÉR: http://photo.blog.is/blog/photo/entry/267781/ og HÉR: http://photo.blog.is/blog/photo/entry/339910
4) ÞRÓA ÁFRAM FRAMLEIÐSLUBÚNAÐ FYRIR SJÁVARÚTVEG - Marell, Pólinn, Naust Marin og fl. fyrirtæki hafa náð að sérhæfa sig í búnaði fyrir fiskveiðiflotann. Enda þægilegt að þróa slíkar vörur þar sem samskiptaleiðirnar eru stuttar og flotinn við hendina.
5) ÞRÓA INNLENDA ELDSNEYTISGJAFA FYRIR FISKISKIPAFLOTANN - Fiskolía (hvalur), CO2 verkefni Orkuveitunnar …
6) RAFBÍLAVÆÐING - Spara aðkeypta erlenda orku. Meira samstarf við erlend stórfyrirtæki.
7) LYFJAIÐNAÐUR - Hér eru tengsl út um allan heim. Spurning um að flytja eitthvað af framleiðslunni heim aftur. En hver á Aktavís?
8) UMBREYTA ÓSELDUM 4X4 BÍLAFLOTANUM Í SÚPERJEPPA OG FLYTJA TIL ANNARRA LANDA - Mikil sérþekking er á Íslandi til að breyta bílum. Spurning um að hagræða tollalögum og losa svo Íslendinga við fullt af stórum óseldum dýrum bílum. Svo eru auðvita uppi hugmyndir um að flytja út óselda bíla til Noregs.
9) STYÐJA VIÐ BAKIÐ Á AUGLÝSINGA- OG HÖNNUNARGEIRANUM (Emil) - Íslendingar vel samkeppnisfærir í verði og gæðum.

O) STJÓRNSÝSLA OG STJÓRNMÁL
1) FÆKKA ÞINGMÖNNUM - Fækka þingmönnum og auka skilvirkni. Stór hluti þings ásamt aðstoðarmönnum hefur lítið að gera inni á þingi. Ráðherrar ráða öllu.
2) AUKA VÆGI ÞINGRÆÐIS OG MINNKA VÆGI RÁÐHERRA Á ÞINGI - Þingmenn eiga að leggja línurnar og reglurnar sem ráðherrar og ráðuneyti ber að fara eftir.
2) FÆKKA RÁÐUNEYTUM - 320 þús. manna þjóð HEFUR ekkert að gera með þetta risavaxna stjórnsýslukerfi til að halda þessu litla örþjóðfélagi gangandi.
4) FELLA NIÐUR EFTIRLAUNAFRUMVARPIÐ STRAX - Fylgja sömu reglum eins og aðrir ríkisstarfsmenn. Afnema öll sérfríðindi einhverjum útvöldum til handa. Ef þessi mál eru skoðuð nánar, þá kemur í ljós að þingmenn höfðu það bara nokkuð gott áður en þessi lög voru sett.
5) STYTTA SUMARFRÍ STJÓRNMÁLAMANNA - Láta þá skila vinnuframlagi eins og annað fólk í þjóðfélaginu þarf að gera.
6) LEGGJA NIÐUR AÐSTOÐARMANNAKERFIÐ - Sem er ekkert annað en falið kerfi til að styrkja flokkskerfið. Í raun er verið að nota skattpeninga til að greiða útvöldum gæðingum flokkanna laun.
7) FÆKKA NEFNDUM OG AUKA SKILVIRKNI - Vera með opið bókhald á netinu sem sýnir störf ALLRA nefnda. Einnig má fækka boðleiðum á milli þingmanna og kjósenda.
8) EINFALDA REGLUVERK - Skilyrða hraðafgreiðslu á málum (tímamörk), annars verða ALLAR kröfur látnar falla niður. Notast við erlendar samþykktir og staðla eins og hægt er eins og CE merkingar. Ekki vera að búa til eftirlitsstofnanir að óþörfu.
9) FARA EFTIR STJÓRNSÝSLULÖGUM - Það þurfa að vera mjög skýr skilaboð að starfsmenn ríkisins eru að vinna fyrir almenning en ekki fyrir einhverja allt aðra annarlega hagsmuni.
10) FLÝTIAFGREIÐSLU Á MÁLUM - Skilyrða hraðafgreiðslu á málum (tímamörk), annars verða ALLAR kröfur látnar falla niður.
11) SETJA LÖG GEGN PENINGAÞVÆTTI - Erlendis þarf að gera grein fyrir því hvernig eignamyndun á sér stað hjá t.d. fólki sem hefur engar tekjur.
12) BINDA KRÓNUNA VIÐ ANNAN STERKAN GJALDMIÐIL EINS OG DANIR - Ásamt því að fá tryggan stuðning frá viðkomandi gjaldmiðli sem Íslendingar myndu tengja sig við.
13) GANGA Í ESB EÐA SAMBÆRILEGT KERFI SEM STYRKIR KRÓNUNA - Krónan eða gjaldmiðilinn verður að hafa fasta viðmiðun svo að fólk viti að hverju það gengur. Einnig mætti skoða Norsku krónuna.
14) LEGGJA ÁHERSLU Á SKANDÍNAVÍSKT VELFERÐARKERFI - Við eigum samleið með þessum löndum og svo hefur þetta kerfi verið að reynast mun betur en önnur kerfi. Því að vera að finna upp ný kerfi?
15) MINNKA OPINBER UMSVIF STÓRLEGA - Í tíð Sjálfstæðismanna hafa ríkisumsvif vaxið gríðarlega. Hér þarf að kanna betur hvað er eiginlega í gangi.
16) AFNEMA VERÐTRYGGINGU - Banna verðtryggingu (okur) með lögum.
17) ÞVINGA VEXTI NIÐUR Í ÞAÐ SAMA OG ER Í EVRÓPU - Banna hávaxtarstefnu (okur) með lögum. Svona svipað og verðlagseftirlit.
18) VERÐBÓLGAN VERÐI SÚ SAMA OG ER Í EVRÓPU - Íslensk stjórnvöld hafa komist upp með svo slælega efnahagsstjórn í gegnum árin út af því að þau hafa ekkert aðhald. Þegar allt er komið í óefni, þá er bara krónan felld … reglulega
19) REKA ÞÁ SEM BRJÓTA AF SÉR Í KERFINU - Ef starfsmaður verður uppvís af kvörtunum og endurteknum brotum frá kjósendum, þá BER stjórnvöldum að víkja viðkomandi frá. Þessar boðleiðir þarf að laga.
20) STJÓRNMÁLAMENN VERÐI LÁTNIR SEGJA AF SÉR VIÐ MISTÖK Í STARFI - Eftir bankahrunið, þá hefur engin verið látin sæta ábyrgð. Hér þarf greinilega að setja kvóta. Fínt væri að reka ca. 5-10 manns á ári ef vel ætti að vera til að veita stjórnvöldum eðlilegt aðhald.
21) SKIPTA ÚT TOPPUM OG STJÓRN HJÁ SEÐLABANKANUM - Mjög alvarleg mistök hafa verið gerð sem er ekki hægt að kalla annað en landráð.
22) SKIPTA ÚT TOPPUM HJÁ FJÁRMÁLAEFTIRLITINU - Mjög alvarleg mistök hafa verið gerð sem er ekki hægt að kalla annað en landráð.
23) KJÓSA AFTUR UPP Á NÝTT SEM FYRST - Mjög alvarleg mistök hafa verið gerð sem er ekki hægt að kalla annað en landráð og þarf því að skipta þeim út sem bera ábyrgð sem fyrst.
24) FÆKKA SENDIRÁÐUM UM HELMING - Samhliða því mætti þróa öflugt samskiptakerfi fyrir ráðuneyti. Síðan þyrfti að vera opið bókhald sem sýnir risnu og dagpeninga þingmanna.
25) GERA LANDIÐ AÐ FÆRRI KJÖRDÆMUM - Einu eða 3 eins og VG leggja til.
26) ÞJÓÐARATKVÆÐAGREIÐSLA UM ÖLL MIKILVÆG MÁL - Þeir sem færu með stjórn landsmála geta einfaldlega listað upp nokkrum málum á vefnum og svo getur fólk einfaldlega kosið. Með nútíma tölvutækni, þá er auðvelt að framkvæma svona kosningar í matar- eða kaffipásum. auðvelt að nota kerfi eins og heimabankann :)
27) KJÓSA PERSÓNUR Í STAÐ FLOKKA - Það er til fullt af hæfileikaríku hugsjónarfólki sem hefur fókusinn á réttum stöðum sem hefur margsannað sig í starfi fyrir land og þjóð. Ef viðkomandi verður uppvís af mistökum, þá er auðvelt að kjósa viðkomandi út og nýja inn í staðinn.
28) GEFA KJÓSENDUM KOST Á AÐ KJÓSA ÚT ÞINGMENN SEM VERÐA UPPVÍSIR AF SPILLINGU - Það eitt og sér væri gríarlega gott aðhald fyrir þingmenn.
29) BANNA ALLAR PÓLITÍSKAR STÖÐUR INNAN STJÓRNKERFISINS - Auðvelt að láta fólk kjósa með hjálp netsins.
30) TÖLVUVÆÐA KOSNINGAKERFI - Hér mætti nýta tölvutæknina og internetið eins og bloggheiminn og bankakerfið meira. (wikipedia, forum bb3, kosningakerfi, ToDo listi, verk og viðverubókhald). Með þessu væri hægt að vera með opið og mjög skilvirkt kerfi þar sem allt væri á borðinu og sæist hvað hver þingmaður væri að vinna.
31) GERA ÚTTEKT Á ÞEIM MISTÖKUM SEM LEIDDU TIL BANKAHRUNSINS MIKLA - Láta erlenda aðila gera úttektina.
32) STYRKJA GAGNRÝNA OG MÁLEFNALEGA UMRÆÐU INNI Á ÞINGI - Það er bara einfaldlega hluti af lýðræðinu.
33) STYRKJA GAGNRÝNA OG MÁLEFNALEGA UMRÆÐU Í FJÖLMIÐLUM - Það er bara einfaldlega hluti af lýðræðinu. Hér þarf að hampa sérstaklega tuðurum og leiðindaafturhaldsseggjum eins og jonas.is!
34) FÓLK FÆR SJÁLFT AÐ VELJA HVERNIG EIGIN GREIDDIR SKATTAR SKIPTAST NIÐUR Á FJÁRLÖG - Auðvelt með tengingu við bankakerfið þar sem hægt er að velja hvernig þínum skattgreiðslum er varið.
35) SETT VERÐI SKÝR SKILABOÐ Í LÖG AÐ ÞEIR SEM VERÐA UPPVÍSIR AÐ LANDRÁÐI VERÐI LÁTNIR SÆTA ÁBYRGÐ - Nú er staðan þannig að forsætisráðherra er kjökrandi í auðmönnum um að koma aftur til baka með allt fjármagnið til landsins!
36) GERVIEFTIRLITSSTOFNANIR OG VERNDAÐIR VINNUSTAÐIR Á VEGUM RÍKISINS VERÐI LAGÐAR NIÐUR OG MEIRI ÁHERSLA LÖGÐ Á STOFNANIR SEM RAUNVERULEGU MÁLI SKIPTA - Búið er að búa til mikið af íþyngjandi eftirlitsstofnunum sem oftar en ekki hafa engan annan tilgang en að fela atvinnuleysi. Hér mætti t.d. leggja meiri áherslu á Fjármálaeftirlitið og endurvekja Þjóðhagsstofnun.
37) SENDA ERLENDA AFBROTAMENN STRAX ÚR LANDI - Í dag virðast heilu glæpagengin geta gengið laus um landið með barsmíðum, ofbeldi og þjófnaði í langan tíma.
38) LOKA LANDINU MEIRA FYRIR ÓHEFTUM INNFLUTNINGI Á FÓLKI - Leggja meiri áherslu á að fá fólk með hátt menntunarstig og leggja meiri áherslu á hálaunastörf. Auðvelt að setja flóknar og erfiðar reglur um visa og dvalarleyfi. Landið er eyja og því auðvelt að fylgjast betur með því fólki sem kemur til landsins.
39) LEGGJA LÁNASJÓÐ NIÐUR OG VEITA Í STAÐIN STYRKI - T.d. hafa Danir litið á menntun sem langtíma fjárfestingu. Veita mætti styrk upp að vissri upphæð og svo gæti fólk unnið sér inn fyrir því sem upp á vantar eða tekið lán.
40) NÁ ÞVÍ FÉ TIL BAKA MEÐ ÖLLUM TILTÆKUM RÁÐUM SEM HEFUR HORFIÐ ÚR LANDI - Það á að vera fyrir löngu búið að frysta fullt af eignum.
41) BANNA STÓRFELLDA FJÁRMAGNSFLUTNINGA ÚR LANDI SEM GETUR HAFT STÓRKOSTLEG ÁHRIF Á SJÁLFSTÆÐI ÞJÓÐARINNAR - Hér þarf að hafa mjög ákveðin lög sem koma í veg fyrir að örfáir einstaklingar geti leikið sér með fjöregg þjóðarinnar.
42) FÁ REYNDAN ÓPÓLITÍSKAN STJÓRNANDA TIL AÐ STJÓRNA LANDINU (Einar)(Ævar) - Þetta er ekki slæm hugmynd. Það eru til margir góðir þekktir stjórnendur sem hafa rétt af risafyrirtæki á örfáum árum.
43) ERLENDUR DÓMSSTÓLL (Sigurður) - hæstaréttadómarar og jafnvel rannsóknarnefnd verði fengin erlendis frá. Hentar líklega vel á meðan verið er að fara í gegnum þessi mál.
44) LEGGJA ÁHERSLU Á AÐ HALDA INNLENDRI FRAMLEIÐSLU INNI Í LANDINU SEM SPARAR GJALDEYRIR FYRIR ÞJÓÐABÚIÐ. - Öll helstu ríki í vestrænum heimi eru að verða búinn að missa stóran hluta af sinni framleiðslu og tækniþekkingu til annarra landa. Allir farnir að versla með pappíra sem ekkert reynist á bak við þegar á reynir.

P) GREINAR SEM VERÐA ILLA ÚTI Í SAMDRÆTTI
1) ARKITEKTAR - (hætta á 70-90% atvinnuleysi) Stofna nefnd sem leitar uppi allar alþjóðlegar samkeppnir. Þar eru verulegar upphæðir í verðlaun. Sveitafélög og stærri fyrirtæki geta líka sett í gang ýmis hönnunarverkefni.
2) BANKASTARFSMENN - Reyna að stofna nýja alþjóðlegan banka. Spurning með samvinnu við erlenda aðila?
3) BYGGINGARSTARFSMENN - Láta ríkið koma með verkefni sem nýtir sem mest innlendar vörur og þjónustu.
4) VERKTAKASTARFSEMI - Láta ríkið koma með verkefni sem nýtir sem mest innlendar vörur og þjónustu.
5) AUGLÝSINGASTOFUR - Íslendingar erum með fullt af fyrirtækjum út um allan heim. Hvernig væri nú að koma heim með eitthvað af þeirri auglýsingagerð sem þessi fyrirtæki eru að láta vinna fyrir sig. Spurning með sendiráð og aðila sem þeim tengjast.
6) BLAÐAÚTGÁFA - Íslendingar eru búnir að tapa gríðarlegum fjárhæðum á leikaraskap í blaðaheiminum, bæði í Danmörku og USA. Hér er mikil þekking sem þarf að reyna að nota.
7)

Q) BRUÐL OG SPARNAÐUR
1) STOFNA RÁÐUNEYTI SEM TEKUR Á BRUÐLI HJÁ ÍSLENDINGA - Hér má safna saman mestu nöldur- og leiðindaseggjum landsins sem koma síðan með tillögur að niðurskurði í þjóðfélaginu. Hér er af nógu að taka. Þeim verður svo skipaður heiðurssess í framtíðinni þar sem þeim er hreinlega skipað að stökka upp á nef sér af hneykslun og vandlætingu ef einhver bruðlbóla er að hefjast á Íslandi.
2) FÆKKA FJÓRHJÓLUM, MÓTORHJÓLUM, SÆÞOTUM - Hækka gjöld á svona lúxus.
3) ALLA YFIRGENGILEG SÝNDARMENNSKU ÞARF AÐ BANNA - Hlutverk fjölmiðla.
4) VERA MEÐ FRÍDAG Í BLAÐAÚTGÁFU OG RUSLPÓSTI - Hér má spara háar fjárhæðir með því einfaldlega að gefa út dagblöð aðeins 5 eða 6 daga vikunnar.
5) STYTTA OPNUNARTÍMA VERSLANA - Þegar ég var í námi í Danmörku (Odense), þá var búið að slökkva allstaðar kl. 10 á kvöldin. Ekki neitt sjoppurugl.
6)

R) MANNLEG GILDI OG TRÚMÁL
1) HROKI, ÖFUND, REIÐI, ÞUNGLYNDI, ÁGIRND OFÁT OG MUNÚÐLÍF - Þetta eru atriði sem þarf að passa alveg sérstaklega vel upp á.
2) VISKA, HÓFSTILLING, HUGREKKI, RÉTTLÆTI, VON, TRÚ OG KÆRLEIKUR - Hér eru þau atriði sem ber að halda á lofti.
3) KAPP ER BEST MEÐ FORSJÁ - Íslendingar eru þekktir fyrir aga- og hömluleysi. Stundum virkar það vel, bara ekki í fjármálum landans.
4) MEÐALHÓF ER BEST eða VANDRATAÐ ER MEÐALHÓF - Það er búið að sýna sig að allar öfgar hverju nafni sem að þær nefnast reynast landanum illa.
3) OFT ER GOTT ÞAÐ ER GAMLIR KVEÐA eða OFT GEFUR GAMALL MAÐUR GÓÐ RÁÐ - Ungliðavæðing landsins af reynslulausu fólki hefur verið landinu hættulegt. Einnig er slæmt þegar útbrunnin gamalmenni sitja endalaust í embætti.
4) HROKI VEX ÞÁ HÆKKAR Í PYNGJU. ÓHÓFIÐ FÆR SULT UM SÍÐIR. ÚTLENSKT ÓHÓF BÍTUR VERST. EFTIR ÓHÓF KEMUR ÖRBIRGÐ - Orð sem lýsa vel því ástandi sem verið hefur í þjóðfélaginu síðustu 7 árin.
5)
6) ÞRENGJA OPNUNARTÍMA SKEMMTISTAÐA OG KRÁA - Það þarf að koma Íslendingum fyrr í bælið á kvöldin. Það er ekki hægt að láta fólk vera að skemmta sér fram undir morgun og vera svo þreyttir og úrillir í vinnunni það sem eftir er vikunnar.
7) EKKI VERA MEÐ SJÓNVARP Á FIMMTUDÖGUM - Þannig má auka menningarstarfsemi og styrkja aðra menningartengda starfsemi. Fá fólk til að tala meira saman. Spurning um að oka fyrir internetið líka á þessum degi :)
8)
9) JÓHANNA SIGURÐARDÓTTIR SJÁI UM VELFERÐARMÁLIN - Hún er óumdeildur leiðtogi þeirra sem minna mega sín á meðan aðrir eru óumdeildir leiðtogar þess sem dansa hrunadans í kringum gullkálfinn! En Jóhanna er í raun sjálfkjörin í þetta embætti.

Þeir sem vilja koma með nýjar hugmyndir og athugasemdir við einstaka liði, er bent á að notast við merkingu eins og þessa Q) 4) SELJA LÚXUSÞOTUR ÚR LANDI (siggi) - …. og þá mun ég bæta þeim inn í ásamt nafni viðkomandi.

En eins og sjá má, þá er ýmislegt hægt að gera og möguleikar margir. En eins og venja er, þá er fullt af hugmyndasnauðum og tækifærissinnuðum stjórnmálamönnum sem væru alveg vísir til að stökkva á eitthvað af þessum hugmyndum og gera að sínum. Það er í raun bara hið besta mál, enda veitir þeim ekki af þessa dagana en að lappa aðeins upp á ímyndina og sjálfstraustið. Verst er hvernig þeir æða út í hvert fenið eftir annað í fljótfærni.

EN NÚNA SKORA ÉG Á ALLA BLOGGARA OG ÞÁ SEM NENNA AÐ LESA SIG Í GEGNUM ÞESSA BLOGGFÆRSLU AÐ KOMA MEÐ 2-3 GÓÐAR HUGMYNDIR HVER OG FYLLA INN Í EYÐURNAR ÞAR SEM UPP Á VANTAR.

!!! ÞAÐ ÞARF AÐ ÝTA Á RELOAD TIL AÐ ENDURHLAÐA INN SÍÐUNA, EN SÍÐAN ER Í STÖÐUGRI UPPFÆRSLU !!!

Kjartan

WWW.PHOTO.IS

Fært undir Alþjóðamál, Efnahagur, Fjölmiðlar, Heilbrigði, Menning og listir, Nám, Samgöngur, Slúður, Stjórnmál, Trúarbrögð, Tækni og vísindi, Umhverfi, Umræðan, Vinir og fjölskylda þann 27. október 2008 af photo | 4 ummæli

Næsta síða »
Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Vefmiðlar
Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning