fara í valmynd

Að segja hlutinna eins og þeir eru 8. október 2008

Fært af Einar Mar Þórðarson undir Stjórnmál. bakvísun

Ég sé það í CNN að bandarískir kjósendur eru sammála mínu mati að Obama hafi haft betur í kappræður kvöldsins.

Eftir bölmóð undanfarna daga var bara hressandi að hlusta á annarra þjóða vandamál. Við Íslendingar glímum við tímabundna gjaldeyriskreppu en grunnstoðir samfélagins eru í lagi. Þrátt fyrir að Bandaríkin eigi dollara og lánstraust er verulegur fúi í þeirra grunnstoðum. Eins og einn af mínum uppáhalds þáttastjórnendum í Bandaríkjunum, Bill Maher orðaði það (nokkurn veginn eftir minni):

Með 700 milljarða dollara „bailout“ frá Washington erum við orðin sósíalískt ríki. En af hverju er sósíalismi þvílíkt bannorð í Bandaríkjunum að við fáum eingöngu neikvæðar hliðar sósíalisma? Svíþjóð er sósíalískt ríki en þar er þó boðið upp á fría heilbrigðisþjónustu, allir fá fría menntun og ríkið þvær jafnvel þvottinn þinn (sagt í háði).

Ég skal reynda finna rétta kvótið á morgun.

Annars fannst mér Davíð Oddsson góður í Kastljósinu í kvöld. Hvað sem fólki kann að finnast um Davíð held ég að hann hafi loksins útskýrt fyrir þjóðinni á mannamála hvað er í raun að gerast.

Ummæli»

engin ummæli - viltu verða fyrstur?

Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Vefmiðlar
Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning