Evrópusinnar yfirgefa Sjálfstæðisflokkinn 21. nóvember 2008
Fært af Einar Mar Þórðarson undir Stjórnmál. bakvísunÉg er að glugga í skoðanakönnun sem Capacent gerði fyrir Samtök iðnaðarins er það kemur fram að 52% þjóðarinnar er fylgjandi inngöngu í Evrópusambandið, 27% andvíg og 21% tekur ekki afstöðu. Það sem er athyglisvert við þessa könnun er að meirihluti þeirra sem ætla að kjósa Sjálfstæðisflokkinn er andvígur aðild að sambandinu. Í sambærilegri könnun sem gerð var fyrir ári Var helmingur þeirra sem sögðust ætla að kjósa flokkinn hlynntur aðild, 33% á móti en 17% óákveðnir.
Stuðningur við ESB eftir því hvað fólk ætlar að kjósa
Þrátt fyrir að fylgi flokka sé ekki tilgreint í skýrslunni frá Capacent má reikna það nokkurn veginn út og eins og sjá má myndinni hér að neðan mælist Sjálfstæðisflokkurinn aðeins með 23% í þessari könnun. Ég held að það megi draga þá ályktun að Evrópusinnar séu að yfirgefa flokkinn í stórum stíl. Þessi könnun er reyndar gerð áður en tilkynnt var um Evrópunefnd flokksins og spurning hvort einhverjir snúi til baka ef flokkurinn breytir afstöðu sinni til sambandsins.
Stuðningur við flokka samkvæmt könnuninni


Stjórnmálafræðingur hjá
Athyglisvert.
Hver munurinn í óákveðnum?
Ég get ekki séð það í skýrslu SI en eins og í undanförnum könnunum er óvenju hátt hlutfall sem ekki ætlar að kjósa eða að skila auðu og eins og sjá má á myndinni er meirihluti meðal þeirra fyrir ESB. Líklegt er að einhverjir sem áður kusu Sjálfstæðisflokkinn séu í þessum hópi.