fara í valmynd

McCain stóð sig ekki - búið spil? 8. október 2008

Fært af Einar Mar Þórðarson undir Stjórnmál. rita ummæli

Er að horfa að kappræður forsetaframbjóðendanna og fyrirkomulagið í kvöld er svokallaður borgarfundur. Þ.e. spurningarnar koma úr sal (vel valdir óákveðnir kjósendur) eða í gegnum tölvupóst. Þetta er nú engin brjálæðisleg skemmtun en þessar kappræður eru þó betri en þegar að félagarnir hittust síðast. Þrátt fyrir að vera frekar niðurnegldar tímalega séð þá er frjálslegra yfirbragð. Það felst fyrst og fremst í því að frambjóðendurnir geta gengið um gólf og talað til áhorfenda.

Þetta var fyrirkomulag sem talið var nýtast McCain betur enda hefur hann haldið fjölda slíkra funda um öll Bandaríkin undanfarna mánuði. Reyndar fannst mér Obama fara betur af stað. McCain virtist óöruggur, rölti of mikið um og varð móður af öllu labbinu. Hann fór ítrekað úr mynd og stundum voru einu skotin sem myndavélarnar náðu beint ofan á skallann á honum. Svo er hann bara svo kassalegur karlinn. Kassalagið minnir suma á hetjudáðir hans í Víetnamstríðinu en hina á hvað hann er gamall.

Einnig verður örugglega skrifað um það í bandaríku pressunni á morgun að McCain var alltaf að skrifa hjá sér punkta. Í spurningu sem var í þremur liðum þurfti McCain að biðja spyrilinn um að endurtaka spurninguna, skrifaði hana hjá sér og þurfti svo að líta á punktana sína áður en hann gat klárað svarið. Hef á tilfinningunni að pressan eigi eftir að líta á þetta sem veikleika merki (munið þið ekki eftir stóra Bush og klukkunni?).

En McCain kom verulega til í seinni hluta þáttarins en ég held að Obama hafi unnið og það er afleitt fyrir McCain eins og staðan er kosningarbaráttunni núna.

Rússagull beint úr kassanum!

Fært af Einar Mar Þórðarson undir Stjórnmál. rita ummæli

Við Baldur Þórhallsson vorum gestir í Ísland í dag fyrr í kvöld og aðal umfjöllunarefnið var afmælisbarn dagsins, Putín aðrir nýir vinir okkar í Rússlandi. Ég hef svo sem engu við viðtalið að bæta en eins og kom fram í viðtalinu höfum við Íslendingar löngum átt í ágætum viðskiptum við Rússaland (Sovétríkin). Fyrir fisk og ull fengum við olíu og önnur „gæði“. En alltaf lærir maður e-ð nýtt. Eftir viðtalið sagði pabbi mér að í þessum vöruskiptum hefðum við t.d. fengið moskvits (ef einhver lesandi er yngri en ég þá var það bílategund). Þessir bílar voru fluttir inn í trékössum og þaðan er komið hugtakið að kaupa bíl beint úr kassanum.

Gaman að vita þetta því ég hef oft notað þetta orðatiltæki án þess að hafa nokkurn tímann séð bíl í kassa.

Svo fylgdi auðvitað sögunni að timbur úr þessum kössum hefði verið þaulnýtt í vinnuskúra, byggingapalla og annað slíkt (gætum lært af slíkri nýtni).

Þjóðstjórn 2. október 2008

Fært af Einar Mar Þórðarson undir Stjórnmál. 1 ummæli fram að þessu

Geri ekki ráð fyrir að Fréttablaðið fari með fleipur, en á erfitt með að trúa því að Davíð Oddsson hafi hvatt til þjóðstjórnar. Sé t.d. ekki fyrir mér að aðkoma félaganna í Frjálslynda flokknum myndi breyta miklu. Ef rétt er haft eftir Davíð dettur mér helst í hug hans hugmynd að þjóðstjórn sé sú að bankastjórn Seðlabankans komi inn í ríkisstjórnina.

 

Annars er Stefán Pálsson með ágætis pælingar um hvað sé þjóðstjórn.

Uppfært:

Annars er gaman að sjá hvað þjóðin er pollróleg yfir þessu. Vinsælustu fréttirnar á Vísi erum um rassinn á  Jennifer Aniston og fatasmekk Katie Holmes.

Engin stemmning fyrir öðru Baugsmáli 1. október 2008

Fært af Einar Mar Þórðarson undir Stjórnmál. 2 ummæli

Ég hef afskaplega lítið fjármálavit og á í fullu fangi með mín eigin fjármál. En þar sem ríkisvæðing Glitnis er orðin pólitísk ætti ég kannski að hafa vit/skoðun á henni (og þó?).

 

Á þess að hafa nokkurt vit á virði, veðum eða starfsháttum seðlabanka þá hefur það ekki verið hrakið að stjórn Glitnis leitaði til stjórnvalda sem settu saman áætlun sem stærstu hluthafar Glitnis féllust á.

 

Því finnst mér málflutningur (samsæriskenningar) eigenda Glitnis þeim til skammar. Ef bankinn er svona góður og vel rekinn hlýtur einhver að vilja annað hvort kaupa bankann eða lána honum peninga.

 

Peningarnir bíða ekki í röðum og því eru fréttir eins og sú sem vísað var til í síðustu færslu fáránlegar. Meira að segja ég veit að verðmyndun fer eftir framboði og eftirspurn og þegar enginn er til að kaupa er ekki hægt að selja og enginn græðir. Samt halda menn þessu fram, spurning hvort að íslenska útrásin hafi klikkað á þessu einfalda markaðslögmáli?

 

Ég ætla að að leyfa mér að halda því fram að allir hafi tapað á því að svona fór, bæði hluthafar Glitnis, íslenskt viðskiptalíf og ekki síst skattgreiðendur (Íslendingar).

 

Baugsmenn ættu því að gæta orða sinna. Undanfarið ár hefur gengið talsvert á „goodwill“ þeirra hjá þjóðinni. Þetta mál undirstrikar líka hversu óheppilegt er að fyrrum stjórnmálamenn setjist að í Seðlabankanum

 

Ég fullyrði að það sé engin stemmning hjá þjóðinni að fara aftur í Baugur vs. Davíð skotgrafirnar. Allir eiga nóg með sitt.

Ríkið græðir 138 milljarða á Glitniskaupum

Fært af Einar Mar Þórðarson undir Stjórnmál. 2 ummæli

Ríkið græðir 138 milljarða á Glitniskaupum

 Samkvæmt þessari frétt eru Davíð og Geir klókustu businessmenn á Íslandi í dag.  Spurning hvort að fallnir útrásarvíkingar ættu ekki að panta námskeið hjá þeim félögum.

Myndin er fengin af DV.is

Litríkur prófessor 5. júní 2008

Fært af Einar Mar Þórðarson undir Stjórnmál. rita ummæli

Mig langar að benda lesendum á spennandi fund á vegum Viðskipta- og hagfræðideildar íx1 fyrramálið en þar mun Xavier Sala-i-Martin prófessor í Columbia háskóla fjalla um samkeppnishæfni þjóða eins og sjá má hér. Martin þessi hefur örugglega fá einhverju skemmtilegu að segja en það sem er mest spennandi við fundinn er jakkinn sem kappinn kemur til með að mæta í. En eins og sjá má myndunum virðist hann eiga gott safn af litríkum jökkum.  Hér má sjá fleiri myndir  af prófessornum. x2X4X5

Mennta elítan er í öllum flokkum Styrmir! 3. júní 2008

Fært af Einar Mar Þórðarson undir Stjórnmál. rita ummæli

Vel er við hæfi að Styrmir Gunnarsson fjalli um Sjálfstæðisflokkinn í síðasta Staksteinapistli sínum þar sem hann telur flokkinn í lífshættu. Kannski orðum ofaukið en vissulega er vandræðagangurinn í borginni að leika flokkinn illa. En Styrmir getur auðvitað ekki látið hjá líða að slá til Samfylkingarinnar og segir hana stjórnað af „menntaðri elítu sem lítur niður á fólkið í landinu“. Ef við skoðum aðeins fyrri hluta þessarar fullyrðingar um menntaða elítu þá á það ekki bara við um Samfylkinguna heldur aðra flokka einnig. Þegar að vísað er til menntaðrar elítu er ekki einungis verið að vísa til formlegrar menntunar en samt er fróðlegt skoða menntun þingmanna.

Ef menntun þingmanna er raðað í einfaldasta flokkunarkerfi hagstofunnar á menntun þar henni er skipt í háskólapróf eða sambærilegt próf, verkleg eða bókleg framhaldsmenntun og svo grunnskólapróf kemur í ljós að yfir 70% þingmanna er með háskólapróf eða sambærilegt próf. En á íslenskum vinnumarkaði er hlutfallið 22%.

 Öllum stjórnmálaflokkum og um leið Alþingi er stjórnað af menntaðri elítu, hvað sem fólki kann að finnast um það.

 Menntun þingmanna

menntun

Í seinni hluta fullyrðingarinnar um að menntaða elítan líti niður á fólkið í landinu er ritstjórinn farinn að hljóma eins og Sturla vörubílstjóri sem sakar ríkisstjórnin um að vera ekki að vinna fyrir fólkið í landinu af því hún lækkar ekki verðið á olíunni sem fer á trukkinn hans.

Deja-vu! Vigdís forseti

Fært af Einar Mar Þórðarson undir Stjórnmál. rita ummæli

Héðan frá skrifstofu minni í Gimli sé ég ágætlega út að heimili Vigdísvigdis.JPGar Finnbogadóttur við Aragötu. En þar er nú staddur hópur manna með kvikmyndatökuvélar og aðrar græjur. Á svölunum stendur svo kona með blómvönd sem veifar ótt og títt. Mér sýnist á öllu, sérstaklega kjólnum, að verið sé að endurtaka sunnudaginn 29. júní 1980. En þá safnaðist saman fjöldi fólks fyrir framan heimili Vigdísar klukkan sex að morgni til að fagna kjöri hennar sem forseta. Líklega er verið að gera heimilda mynd eða jafnvel bíómynd um forsetann.

Mér sýnist þetta reyndar kosta nokkra fyrirhöfn þar stór körfubíll er notaður til að ná skoti af svölunum enda hafa trén hennar Vigdísar líklega hækkað nokkur á síðustu 28 árum.

Gaman að þessu, enda missti ég af þessu á sínum tíma. Svaf líklega á vært 6 ára gamall í Keflavík.

Ég sé bara ekki héðan hver leikur Vigdísi - þarf að kíkja út og kanna málið.

Uppfært kl. 11.30. 

Að sjálfsögðu er það Ástríður sem er í hlutverki mömmu sinnar. En verið er að búa til auglýsingu sem við fáum að berja augum á kvennréttindadaginn 19. júní.

Hvað ef…borgarfulltrúar væru 21? 27. febrúar 2008

Fært af Einar Mar Þórðarson undir Stjórnmál. 3 ummæli

Í framhaldi af vangaveltum Oddnýjar Sturludóttir um fjölda borgarfulltrúa bloggar Stefán Pálsson: „Gaman er að velta því fyrir sér hvort borgarmálakrísan nú væri betri eða verri ef fulltrúarnir hefðu verið 21 eða 23 en ekki 15?“. Ég skal ekki fullyrða um hvort krísan væri betri eða verri eða jafnvel hvort nokkur krísa hefði komið upp. Alla vega er ljóst mál hefðu þróast á allt annan veg. Ef borgarfulltrúar væru nú 21 eins og þegar að vinstri meirihlutinn var við völd 1978-1982 þá hefði fjöldi borgarfulltrúa eftir síðustu kosningar verið svona:

Sjálfstæðisflokkur 9

Samfylking 6

Vinstri græn 3

Frjálslyndi flokkur 2

Framsóknarflokkur 1

Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkurinn hefðu því ekki getað myndað meirihluta eftir síðustu kosningar. Ég læt svo lesendum eftir að velta fyrir sér hvað ef spurningunni.

Smessið hjá Staksteinum! 6. febrúar 2008

Fært af Einar Mar Þórðarson undir Stjórnmál. 1 ummæli fram að þessu

Eins og svo oft áður eru Staksteinar dagsins bara snilld. En þar er fjallað um essemmess sem dálknum hefur borist frá sumum Sjálfstæðismönnum.

Í því ljósi spyr ég hvað er síminn hjá Staksteinum ef mér dytti í hug að essemmessann.

….

Eða þarf að vera innvígður og innmúraður til að vita það?

Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Vefmiðlar
Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning