Lyddur

21. janúar 2009

Það þurfti framskóknarkonu til að segja það sem þurfti að segja í þinginu. Sigrún Helga kallaði þingheim helvítis lyddur. Orð í tíma töluð. Hvað stóð í vegi fyrir því að þingmenn stjórnarandstöðunar yfirgæfu þingið og mótmæltu með alþýðunni? Var það hræðsla við að forseti þingsinns vítti þá? Var það vegna þess að þeir höfðu eitthvað að segja undir dagskrárliðnum um brennivínið í matvöruverslanirnar? Eða voru þeir bara lyddur og þorðu ekki út úr húsinu? Það var sorglegt að sjá þingmenn standa í gluggum bendandi á mótmælendur. Þó verð ég að segja að framkvæmdastjóri Frjálslynda flokksinns tók virkan þátt í aðgerðum. Þeir hefðu bertur gert slíkt hið sama þingmenn flokksinns. En nei, þeir höfðu öðrum hnöppum að hneppa eins og aðrir þingmenn andstöðunar. Það er ekki nóg að láta mannalega og láta vita af því að þeir hafi nú “tekið til máls” í hinu og þessu málinu. Það bara skiptir engu máli og ekkert hlustað á máttlaust röflið í þeim.

Þingmenn stjórnaraðstöðunar. Drullið ykkur á lappir og takið þátt í andófi alþýðunar gegn auðvalds ríkisstjórninni og spillingunni. Vaknið þið!!!!

Þetta er mitt mál.

r

Með hálfum hug

20. janúar 2009

Lét konuna vita að ég væri farin að blogga. Úfff.. var látin vita, svo ekki væri vafi á að ef ég ætlaði að fara að blogga um hana væri dagar mínir taldir… Ætla nú samt að láta slag standa.

Þórdís er farin að stunda ræktina af mikilli ákefð. Hún mætir í ræktina strax eftir vinnu, sem þýðir það að ég fæ ekkert að éta…..nema ég sjái um það sjálfur. Auðvitað sjá allir að þetta gengur auðvitað ekki lengi því ekki má ég við því að léttast. Finnst ykkur  ósanngjarnt að ÉG þurfi að hugsa um að fóðra mig. Ég um mig frá mér til mín… Þú ert hugrakkur núna Ragnar ):

En án gríns þá er nauðsynlegt að losna við ríkisstjónina, seðlabankastjórana og forstjóra fjármálaeftirlitsinns. Við þurfum ekki lengur að spá í auðmenninna þeir eru þegar farnir. Þess vegna er Ólafur Helgi (Stónsari) sýslumaður á Selfossi að gefa út handtökuskipanir á alþýðuna í Árnessýslu. Það þarf að ná öllum þeim 15 þúsund köllum, sem við skuldum í Húsasmiðjunni/ BYKO og er komið til Intum.  Glæpamennirnir eru greinilega í öðrukverju húsi í Árnessýslunni. Þó gæri verið að Ólafur Helgi (stónsari) sé með þessum aðgerðum að reyna (eins og restin af þjóðinni) að vekja stjórnvöld og skilaboð hans séu: Drullist á lappir og gerið skyldu ykkar og náið í raunverulegu glæpamennina. Ég allavega vona það Ólafur Helgi.

Þetta var mitt mál.

Ragnar

Ég er mættur

15. janúar 2009

Það er mit mál að tími sé komin til að taka til máls.

Hlustaði á upptöku RUV af Borgarafundinum í Háskólabíó á mánudagskvöld. Mér brá. Einhver af frummælendunum (man ekki hver) taldi að raunveruleg hætta væri á að stjórnvöld taki lífeyrissjóði landsmanna traustataki á næstunni. Hugsaði, þetta hlýtur að vera bull. En viti menn. Fulltrúar stjórnmálaflokkanna sem voru á sviðinu (auðvitað annara en Sjálfstæðisflokksinns) þögðu þunnu hljóði og engin þeirra óskaði eftir að fá að commentera. Varaformaður Samfylkingarinnar hélt áfram að horfa niður í borðið. Halló!!! Þarna var varpað sprengju og ekki nokkur kjaftur reis upp á afturfæturna. Hvað er í gangi? Getur verið að “ríkisstjórnin” sé að skoða þennann möguleika?

Þjóðstjórn er okkar síðasti og eini möguleiki í stöðunni. Það er fullt til af góðu fólki á Íslandi til að taka við stjórn mála. Þeir eru bara ekki á svokölluðu löggjafaþingi Íslendinga. Ef forseti Íslands er ekki nú þegar, tilbúinn með stjórn, sem er í startholunum, er hann ekki að valda sínu starfi.

Þetta er mitt mál.

R

 

Halló heimur!

15. janúar 2009

Velkominn á blogg.visir.is. Þetta er fyrsta færslan þín. Þú getur breytt henni eða eytt. Byrjaðu að blogga!


Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Vefmiðlar
Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning