maí
14
Nýtt lag: Grillaðu Oní’þig (mp3)
14. maí 2011 kl. 12.16 | 2 ummæli
Í sumar eiga allir að grilla allt sem hægt er að borða. Ef það er hægt að borða það, þá er hægt að grilla það!
Hér er lag sem ætti að koma öllum í gírinn.
Grillaðu Oní’þig-ég elska að grilla grilla
Simmi&Jói
mar
12
Dónakall hringir inná Bylgjuna (.mp3)
12. mars 2011 kl. 12.21 | Rita ummæli
Við lendum stundum í því að hlustendur hringi inn í þáttinn og reynast síðan vera ansi skrítnir.
Í dag hringdi inn” Dónakall” í kjölfar umræðu um stinningarlyf.
Simmi & Jói
mar
9
Nýtt lag frá Charlie Sheen (.mov)
9. mars 2011 kl. 0.51 | Rita ummæli
Það verður varla hægt að toppa frammistöðu Charlie Sheen undanfarna daga.
Slæmur mánuður er ekki orðið sem nær utan um það ástand sem er á honum þessa daganna.
Viðtölin hans eru öll “súrealísk” og í því ljósi er meira segja hægt að gera lag úr þeim og tónlistarmyndband.
Hér má sjá skemmtilega útgáfu: Charlie Sheen - lag og myndband
Simmi & Jói
feb
26
VIP partýið sett í lag (.mp3)
26. febrúar 2011 kl. 12.00 | 8 ummæli
Það hefur fátt verið rætt meira en einkapartý á Grensásvegi þessa vikuna.
Við ákváðum því að setja saman lag um þennan merkilega viðburð.
Hækkið í botn og njótið.
Simmi & Jói
feb
16
Og þykist þú eiga við vandamál að stríða? (.mov)
16. febrúar 2011 kl. 20.41 | 2 ummæli
Maður fer misjafnlega framúr og er misjafnlega upplagður á daginn. En eftir að hafa horft á þetta myndband þá fer maður að hugsa “og ég þykist eiga við vandamál að stríða”.
Horfðu á þetta myndband og berðu þitt líf saman við hans. Spurðu þig síðan, hvernig er ég að nýta minn tíma í þessu jarðneska lífi?!
Í dag getur þú breytt þinu viðhorfi til lífsins og byrjað að LIFA.
Maður sem fær mann til að hugsa!
Simmi & Jói
feb
4
Varúð: Töfrabragð með nekt, ekki fyrir viðkvæma (.mov)
4. febrúar 2011 kl. 15.17 | Rita ummæli
Það er alltaf gaman að sjá töfrabrögð. Maður grunar alltaf töframanninn eða konuna um að fela hluti innanklæða.
Þessi töfrakona tekur allan þann vafa af með því að afklæðast í töfrabragðinu. Og hvar er síðan klúturinn?
Simmi&Jói
jan
24
Svona virkar heimurinn okkar (.mov)
24. janúar 2011 kl. 11.28 | 1 ummæli
Það er mjög áhugavert að sjá hvernig við Jarðarbúar ferðumst á milli staða.
Hér er mínútu myndband af ferðalögum jarðarbúa um heiminn á einum sólarhring.
Greinilegt að Evrópa og Bandaríkin eru fjölmennustu áfangastaðirnir.
Simmi & Jói
jan
11
Við getum EKKI gengið beint (.mov)
11. janúar 2011 kl. 22.21 | 1 ummæli
Þetta myndband vekur athygli á því að mannfólk getur hreinlega ekki gengið beint.
Reyndar getum við ekki farið beint nema með aðstoð kennileita eins og tunglsins, sólarinnar, fjalla eða annara til að taka miðið.
Mjög áhugavert myndband HÉR á ferð.
Simmi & Jói
jan
6
Nýtt “skip” í bátaútgerð íslendinga? (.mov)
6. janúar 2011 kl. 23.30 | 1 ummæli
Hér er hugmynd að nýju skipi sem væri frábært að sjá sem hluti af bátaútgerð íslendinga.
Hver segir að útgerðirnar gætu ekki komið einu svona í bolfiskveiðar!
Simmi & Jói
des
19
Nýtt síðbúið jólalag frá okkur (.mp3)
19. desember 2010 kl. 9.23 | 1 ummæli
Við ákváðum á síðustu stundu að senda frá okkur síðbúið jólalag sem við frumfluttum í síðasta þætti okkar fyrir jól á Bylgjunni.
Um er að ræða íslenska textan Hvít Jól við gamla útgáfu af lagi The Drifters.
Hér má heyra afraksturinn.
GLEÐILEG JÓL
18. Desember - Jólalagið - Hvítljól - Simmi&Jói.mp3
SimmiV

