Nýtt Sirkus komið út

29. júní 2007 kl. 8.07 | Rita ummæli

urlget2906.gifNýtt Sirkus er komið út. Í blaðinu í dag má meðal annars finna viðtal við Alexander Peterson, einn kynþokkafyllsta mann Íslands sem og Rósu Björk og Reyni, sem eru ástfangnasta par Íslands. Þóra Sigurðardóttir, sem sumir þekkja sem Birtu úr Stundinni okkar, segir frá ævintýrunum á Bahamas og Dagmar Una Ólafsdóttir segir frá kjólnum sem hún klæðist þegar hún gengur að eiga athafnamanninn Eyþór Arnalds í Selfosskirkju á morgun.
Sirkus er dreift inn á hvert heimili landsins með Fréttablaðinu en það má einnig finna hér.

Eiður Smári leigir Landcruiser

24. júní 2007 kl. 18.17 | 1 ummæli

eidur-1.JPGeidurlandcruiser1.jpgFótboltahetjan Eiður Smári Guðjohnsen er kominn í sumarfrí eftir langt og strangt tímabil með Barcelona á Spáni. Eiður Smári er mættur til Íslands ásamt sambýliskonu sinni Ragnheiði Sveinsdóttur og þremur sonum og dvelja þau í fallegu einbýlishúsi í Fossvoginum sem þau festu kaup á síðasta sumar. Athygli vekur að Eiður Smári á engan bíl hér heldur leigir gullfallegan svartan Toyota Landcruiser hjá Toyota-umboðinu. Ekki amaleg auglýsing það fyrir Toyota.

Nýtt Sirkus komið út

22. júní 2007 kl. 7.08 | Rita ummæli

sirkus22jun.gifNýtt Sirkus er komið út og barst inn á hvert heimili landsins með Fréttablaðinu í morgun. Í blaðinu er meðal annars að finna úttekt á einkaþotum íslenskra auðmanna en þessar þotur verða æ mikilvægari samgöngutæki í nútíma viðskiptum. Grétar “líkmaður” Sigurðarson ætlar að verða sterkasti maður Íslands, Habitat-hjónin seldu glæsivillu fyrir 160 milljónir og hin þokkafulla Friðrika Geirsdóttir er mætt aftur á skjáinn í Íslandi í dag. Hægt er að skoða nýtt Sirkus hér.

Engin veiði í Borgarfirði

21. júní 2007 kl. 18.17 | Rita ummæli

nordura-1.JPGÞeir eru ekki glaðir veiðimennirnir sem hafa keypt fokdýrar stangir á undanförnum dögum í dýrustu veiðiám Borgarfjarðar. Dagurinn kostar oft um 150 þúsund krónur pr. stöng en nær undantekningalaust koma menn heim með öngulinn í rassinum. Þannig hafa veiðst 2 fiskar í Langá, 2 í Kjarrá, 4 í Norðurá og svipað í Hítará. Það hlýtur að fara að líða að því að allir veiðimenn landsins kaupi sér ferð á Kólaskaga í Rússlandi þar sem menn hafa mokað upp laxinum í byrjun sumars.

d86040405_laufasvegu_13-1.JPGMikil og hatrömm nágrannadeilda geisar nú á Laufásveginum á milli þriggja húseigenda annars vegar og embætti forseta Íslands hins vegar. Húseigendurnir Þorsteinn M. Jónsson á Laufásvegi 73, Einar Eiríksson á Laufásvegi 74 og Stefán Matthíasson á Smáragötu 13 hafa ekki fengið að byggja svo mikið sem sandkassa á lóðum sínum þar sem húsin eru öll í næsta nágrenni við forsetabústaðinn á Laufásvegi 72. Embætti forsetans hefur, með hjálp frá Ríkislögreglustjóra, kæft allar framkvæmdir í fæðingu af þeirri ástæðu að öryggi gesta forsetans yrði ógnað við slíkar aðstæður. Húseigendurnir eru afar ósáttir, telja rökin ekki halda vatni og íhuga nú að draga forsetann og embætti hans fyrir dóm til að fá úr því skorið hvort þeir eigi engan rétt á sinni eigin lóð.

geest-samskipolafurolafsson-bigpic-1.JPGÞó nokkrar vangaveltur hafa verið um það hvaða Íslendingur eigi fyrirtækið Zegna III Holdings sem keypti fasteign í hinu fræga Belgravia-hverfi í London fyrir tíu milljarða íslenskra króna í síðustu viku. Ætlunin er byggja 14 lúxusíbúðir á 66 þúsund fermetra svæði og er búist við verklokum á næsta ári. Fréttablaðinu barst það til eyrna í dag að auðkýfingurinn Ólafur Ólafsson, einatt kenndur við Samskip eða Elton John, sé maðurinn á bak við félagið. Þegar leitast var eftir staðfestingu á því fengust þau svör frá aðstoðarkonu hans að Ólafur myndi ekki tjá sig um þetta mál heldur myndi hún gera það. Hún neitaði síðan að tjá sig um málið sem bendir til þess að Ólafur sé eftir allt saman potturinn og pannan í þessu lúxusíbúðabraski. Eða hvað?

Sendið okkur fréttaskot

19. júní 2007 kl. 15.22 | Rita ummæli

Við á Sirkus þiggjum það með þökkum að þið lesendur sendið okkur fréttir og myndir af fræga fólkinu eða einhverju skemmtilegu sem þið lendið í. Hægt er að senda póst á sirkusfbl@gmail.com.

island-1.JPGdans-1.JPGLeikmenn íslenska landsliðsins í handbolta fögnuðu því vel og innilega að hafa borið sigurorð af Serbum, 42-40, í leik liðanna í Laugardalshöll á sjálfan þjóðhátíðardaginn og tryggt sér þar með sæti í EM í Noregi á næsta ári. Landsliðsmennirnir fóru á Vegamót eftir leikinn og slettu úr klaufunum. Eftir að staðnum var lokað var síðan haldið heim til hetjunnar Ólafs Stefánssonar, sem á íbúð á Hverfisgötu, þar sem leikmennirnir skemmtu sér fram undir morgun með meðlimum íslenska dansflokksins, leikmönnum íslenska kvennalandsliðsins í handbolta og nokkrum valinkunnum leikurum. Herma fregnir að Queen-lagið We Are the Champions hafi verið vinsælt heima hjá Ólafi í nótt sem leið.

Flaug Benedikt í boði Baugs?

18. júní 2007 kl. 15.01 | Rita ummæli

Benedikt Erlingsson � þyrlunni góðuStórleikarinn Benedikt Erlingsson, sem vann til þriggja verðlauna á leiklistarhátíðinni Grímunni síðastliðið föstudagskvöld, mætti til hátíðarinnar í þyrlu. Hún flutti hann frá Borgarnesi þar sem hann lék í Mr. Skallagrímsson fyrr á föstudaginn og beint á hátíðina. Baugur Group var aðalstyrktaraðili Grímunnar og má búast við því að Benedikt hafi því fengið þyrluflug í boði Baugs.

mavanes-1.JPGSópransöngkonan Ólöf Sigríður Valsdóttir, sem er systir leikkonunnar Arnbjargar Hlífar Valsdóttur, hefur sett glæsilegt einbýlishús sitt og manns síns Tómasar Heiðars Hauks, þjóðréttarfræðings hjá utanríkisráðuneytinu, á asparhvarf-1.JPGsölu. Húsið er staðsett í Mávanesi á Arnarnesinu og herma heimildir Sirkus að hjónin vilji fá í það minnsta 150 milljónir fyrir. Glæsivillan er rúmlega 360 fermetrar að stærð og stendur á 1700 fermetra sjávarlóð. Útsýnið er óviðjafnanlegt og geta húseigendur notið þess út í ystu æsar þar eikaras-1.JPGsem gluggarnir að sjónum nú frá gólfi og upp úr. Þetta er enn eitt glæsihýsið sem sett er í sölu á undanförnum mánuðum en eins og Sirkus greindi frá fyrir skömmu þá hafa þrjú hús sem metin eru á yfir 100 milljónir, í Asparhvarfi í Kópavogi sem er í eigu athafnakonunnar Þóru Guðmundsdóttur, Eikarási í Garðabæ sem er í eigu saebraut-1.JPGHabitat-hjónanna Ingibjargar Þorvaldsdóttur og Jóns Arnars Guðbrandssonar og á Sæbraut á Seltjarnarnesi sem er í eigu geðlæknisins Högna Óskarssonar og eiginkonu hans, glerlistakonunnar Ingunnar Benediktsdóttur, ekki selst þrátt fyrir að hafa verið töluverðan tíma til sölu. Verður fróðlegt að sjá hvort Mávanesið skýtur þessum þremur eignum ref fyrir rass og selst á undan þeim.


Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Vefmiðlar
Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning