Jóhanna Vilhjálmsdóttir fjölmiðlakona og Geir Sveinsson, fyrrverandi handboltakappi, eignuðust á dögunum son. Drengurinn er barnabarn Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar borgarstjóra en sjálfur býst borgarstjórinn ekki við nafna. Hann nýtur sín þó í afahlutverkinu.
“Barnabörnin eru orðin tiltölulega mörg á skömmum tíma. Á síðustu níu mánuðum eignaðist ég þrjú barnabörn og átti tvö fyrir, svo þau eru orðin [...]

Plata Jógvans Hansen, fyrstu X-factor stjörnu landsins, kemur út hinn 11. júní. Samkvæmt staðfestum fréttum frá útgáfufyrirtækinu Senu mun plata Jógvans einfaldlega bera nafnið Jógvan. Á plötunni verða lög sem Jógvan syngur á ensku, bæði eftir hann sjálfan sem og aðra þekkta listamenn. Hinn færeyski Jógvan heillaði þjóðina í X-factor sjónvarpsþættinum og fékk 70% atkvæða [...]

Tinna Lind Gunnarsdóttir er nýútskrifuð leikkona og unnusta Garðars Thórs Cortes. Tinna og Garðar Thór ætla að gifta sig í sumar en þau hafa verið saman í sjö ár. Tinna Lind rifjar upp æskuna, námið og veltir fyrir sér framtíðinni í forsíðuviðtali við Sirkus sem kemur út á morgun með Fréttablaðinu.
Þar kemur fram að Tinna [...]

Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs og þriðji ríkasti Íslendingurinn samkvæmt úttekt Sirkus, varð fyrir þeirri óskemmtilegu reynslu um daginn að rúða á Range Rover bíl hans var brotin þar sem bíllinn stóð fyrir utan heimili hans og Ingibjargar Pálmadóttur á Sóleyjargötu. Jón Ásgeir hafði nýverið fest kaup á bílnum, hvítum Range Rover Supercharger, sem kostar [...]

Heimildir Sirkus herma að Ólafur Þ. Stephensen, núverandi aðstoðarritstjóri Morgunblaðsins, muni taka við af Trausta Hafliðasyni sem ritstjóri Blaðsins. Bæði blöðin eru í eigu Árvakurs og verjast forsvarsmenn þess allra fregna. Trausti tók við sem ritstjóri í desember á síðasta ári þegar Sigurjón M. Egilsson hvarf á braut. Ólafur verður fimmti ritstjóri Blaðsins á tæplega [...]

Lítið gengur hjá athafnakonunni Þóru Guðmundsdóttur, sem oft er kennd við flugfélagið sáluga Atlanta, að selja glæsivillu sína við Asparhvarf í Kópavoginum. Stórhýsið, sem er alls um 564 fermetrar, afhentist fullbúið að utan en fokhelt að innan og vill Þóra fá 125 milljónir fyrir sinn snúð. Eignin hefur verið á sölu í rúman einn og [...]

Fyrir þá sem eru áhugasamir um Sveinbjörn Kristjánsson, fyrrverandi yfirféhirði Landssímans, sem var dæmdur í fjögurra og hálfs árs fangelsi fyrir á þriðja hundrað milljóna króna fjárdrátt, þá hefur hann lokið afplánun. Hann er kominn til Tékklands, nánar tiltekið til höfuðborgarinnar Prag þar sem hann starfar sem fjármálaráðgjafi fyrir hótelkeðjuna Key Hotels sem rekin er [...]

Athafnamaðurinn og knattspyrnukappinn Arnar Gunnlaugsson, sem leikur með toppliði FH í Landsbankadeildinni, er gjafmildur maður. Arnar hefur gert það gott í fasteignaviðskiptum á undanförnum árum og lét sig ekki muna um að kaupa eitt stykki Benz fyrir kærustu sína Pöttru Sriyanonge á dögunum. Það verður þó að fylgja sögunni að hann var ekki nýr, heldur [...]

Fasteignasalinn Þorlákur Ómar Einarsson, sem átti til skamms tíma fasteignasöluna Miðborg ásamt þeim Birni Þorra Viktorssyni og Karli Georgi Sigurbjörnssyni og, var látinn hætta þar á dögunum. Persónulegar deilur á milli Þorláks Ómars og Karl Georgs ollu því að sá fyrrnefndi var látinn fara. Þorlákur Ómar er þó ekki hættur í fasteignabransanum því hann keypti [...]

Kastljóssdrottningin Jóhanna Vilhjálmsdóttir og sambýlismaður hennar, handboltahetjan og skólastjórinn Geir Sveinsson, eignuðust strák síðastliðinn föstudag. Bæði móður og barni heilsast afar vel en þetta var fyrsta barn þeirra skötuhjúa saman. Fyrir á Jóhanna þrettán ára gamla stúlku og Geir fimmtán ára gamlan dreng. Auk þess eiga þau eina fósturdóttur sem er á fimmta ári. Sirkus [...]

leita áfram »
Vísir Fréttir Lífið Íþróttir Viðskipti Vefmiðlar
Blogg.Vísir.is Innskráning Nýskráning